Morgunblaðið - 05.07.1989, Qupperneq 18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 1989
Listasafh íslands:
rsirAMi
-foo
Z/3.-9. /9G& -
fir 1
aasr
Nýtt torg við Fríkirkjuveg’
Borgarráð vildi ekki listaverk úti í Tjörn
BORGARRÁÐ hefiir samþykkt tíllögu __ Reynis Vilhjálmssonar
landslagsarkitekts að torgi við Listasa&i íslands við Fríkiriquveg.
Borgarráð samþykktí hins vegar ekki þann hluta tíllögunnar sem
gerði ráð fyrir að listaverki yrði komið fyrir úti í Tjörninni and-
spænis torginu og að tröppur yrðu lagðar niður að því.
Fyrirhugað torg mun liggja Fríkirkjuvegi. Torgið mun tengj-
vestan við Listasafnið á svæðinu ast Hallargarðinum og er fyrir-
sem afmarkast af Fríkirkjunni, hugað sýna þar höggmyndir og
Listasafninu, Hallargarðinum og að þar verði rými til ýmissá listvið-
burða.
í upphaflegum tillögum að
torginu var gert ráð fyrir að það
tengdist Tjörninni á þann hátt að
listaverk yrði staðsett úti í henni
andspænis torginu. Einnig var
ráðgert að tröppur lægju niður
að Tjörninni. Þessi hluti tillögunn-
ar var hins vegar ekki samþykkt-
ur í Borgarráði.
Evrópumótið í brids:
Hamingjusólin skín
ekki yfir Islendingum
Töp í 4. og 5. umferð
Frá Sigurði B. Þorsjteinssyni fréttaritara Morgunblaðsins í Turku.
ÞAÐ er ekki nein sérstök ham-
ingjusól sem skín hér alla daga
og heldur hitastígi í spilasölum
kringum 30 gráður. Islenska
bridslandsliðið tapaði bæði í 4. og
5. umferð Evrópumótsins og var
í 20 sæti.
í 4. umferð spilaði ísland martrað-
arleik við ítali sem stilla upp í bland
gömlum stjömum og yngri mönnum.
Staðan í hálfleik var 80-9 fyrir ítali
og í seinni hálfleik bættu þeir 16
impum við. Niðurstaðan varð stórtap,
2-25.
Island keppti við írland í 5. umferð
og leikurinn var stórtíðindalaus. Allt
gekk þó á móti íslenska liðinu og
ónákvæmni í sókn og vöm var allt
of algeng. írar áttu 23 impa í hálf-
leik en ísland vann 3 til baka í þeim
seinni og leikurinn fór því 18-12 fyrir
íra.
Evrópumeistarar Svía leiddu mótið
með 102 stig eftir 5 umferðir. Aust-
urríki var í 2. sæti með 99,5 stig og
Ítalía í 3. sæti með 95 stig. ísland
var með 55,5 stig. Sjötta umferð var
spiluð í gærkvöldi en þá öttu íslend-
ingar kappi við Tékka.
Sovétmenn spila hér á sínu fyrsta
Evrópumóti, og þótt þeir séu sérlega
vingjamlegir og kurteisir við spila-
borðið, geta þeir framið ýmis þorpara-
brögð þegar minnst varir. ísiand spil-
aði við Sovétmenn í annari umferð
og vann leikinn en ekki fyrirhafnar-
laust.
Norður
♦ 876543
V 93
♦ KD102
+ 8
Vestur Austur
♦ G10 ...... ♦ KD92
♦ K6 *G74
♦ G97654 ♦ 3
♦ DG5 +Á10632
Suður
♦ Á
♦ ÁD10852
♦ Á8
♦ K974
Skák:
Einvígi um Islands-
titilinn að hefjast
JÓN L. Ámason og Margeir Pét-
ursson munu hefja einvígi sitt
um íslandsmeistaratítilinn i skák
árið 1988 þann 9. júlí.
Jón og Margeir urðu jafnir í
Landsliðsflokki á síðasta skákþingi
sem var haldið fyrir tæpu ári. Þá
var ákveðið að þeir tefldu einvígi
um titilinn en af því hefur ekki
orðið fyrr en nú.
Ferðaskrifstofan Útsýn skipu-
leggur einvígið og verður það háð
í húsi Útsýnar í Mjóddinni. Skák-
mennirnir tefla fyrst fjórar skákir
en verði þeir jafnir tefla þeir tvær
skákir í lotu þar til úrslit fást.
Guðmundur Páll Arnarson og Þor-
lákur Jónsson spiluðu 4 hjörtu í NS,
og J. Kobin var aðeins þijár sekúndur
að finna útspilið, hjartasex!
Guðmundur fékk slaginn heima á
áttuna, tók tígulás og spilaði tígli á
kóng. En austur trompaði og spilaði
síðasta trompinu sínu til baka. Guð-
mundur svínaði drottningunni og gaf
vestri illt auga þegar hann tók á kóng-
inn enda var samningurinn glataður.
Við hitt borðið spilaði vestur út
laufí gegn 4 hjörtum. Austur tók á
ás og spilaði tígli til baka. Suður gat
því trompað tvö lauf í blindum og
unnið spilið og Sovétmenn græddu
10 impa.
Bflvelta í
Gilsfirði
Miðhúsum í Reykhólasveit.
í MORGUN valt Land Rover
bíll á Hlíðinni í Ólafsdal í
Gilsfírði. Bílstjórinn er nokk-
uð meiddur en óbrotinn.
Orsakir slyssins eru þær að
kind hljóp allt í einu í veg fyr-
ir bílinn og bílstjórinn hemlaði-
með þeim afleiðingum að
bíllinn valt og er hann mikið
skemmdur. Það má teljast lán
í óláni að bíllinn valt á móti
brekkunni og tæplega hefði
þurft að spyrja að leikslokum
ef bíllinn hefði farið niður fyrir
veginn, en þar eru ófærur mikl-
ar. Bílstjórinn gat losað bílas-
ímann úr bílnum og hringt
sjálfur á hjálp.
Sveinn
Forsetar Alþingis:
Lagastoftiun úr-
skurði um verksvið
Rfldsendurskoðunar
FORSETAR Alþingis hafa leitað
eftir áliti Lagasto&iunar Háskóla
íslands á verksviði Ríkisendur-
skoðunar, en stofnunin var færð
undir Alþingi samkvæmt lögum
nr. 12 frá 1986. Um mánuður er
síðan lagastofiiun fékk erindið til
umíjöllimar. Engin tímamörk eru
á því hvenær svar þurfi að berast.
Friðrik Ólafsson, skrifstofustjóri
Alþingis, sagði að þetta mál væri
einkum tilkomið vegna álitsgerðar
Ríkisendurskoðunar á framkvæmd
búvörulaga, en Ríkisendurskoðun
komst að þeirri niðurstöðu að tvær
reglugerðir gefnar út af landbúnað-
arráðuneytinu byggðust ekki á
heimildum í búvörulögum frá 1985.
Friðrik sagði að það væri ekki full-
ljóst í lögunum hvort valdsvið Ríkis-
endurskoðunar væri víðara en að
fjalla um fjárhagsleg málefni og
tölulegar staðreyndar eða hvort það
væri einnig á verksviði hennar að
túlka lögin og draga ályktanir af
niðurstöðum sínum.
Friðrik sagði að verkefni Ríkis-
endurskoðunar væri að fylgjast með
Sýnirá
Hvolsvelli
framkvæmd allra laga sem hefðu
fjárhagsleg útlát í för með sér.
Forsetar Alþingis teldu eðlilegt að
settar yrðu reglur um verksvið og
samskipti Alþingis og Ríkisendur-
skoðunar og því væri gott að hafa
álitsgerð óháðrar og sjálfstæðrar
stofnunar eins og Lagastofnunar í
höndunum þegar til þess væri geng-
ið.
Skákmót í Belfort:
Karl með
fullt hús eft-
ir 3 umferðir
KARL Þorsteins hefur unnið
þijár fyrstu skákir sínar í opnu
skákmóti í Belfort í Frakklandi.
Mót þetta er árlegur viðburður í
Belfort, og í þetta skipti taka yfir
100 þátttakendur þátt í mótinu.
En þrátt fyrir há peningaverðláun
eru fáir stórmeistarar þar á meðal.
Margeir Pétursson vann þetta
mót í fyrra. Það fór þá fram jafn-
hliða heimsbikarmóti.
JÓN Kristínsson bóndi og list-
málari í Lambey í Fljótshlíð hef-
ur sett upp málverkasýningu í
útíbúi Landsbankans á Hvols-
velli.
Jón hefur oft haft málverkasýn-
ingar í Rangárvallasýslu, sem hafa
verið vel sóttar. Hann teiknaði á
árum áður „Rafskinnu“.
Sjálfsmynd af Jóni.
Húsávík:
Vel sóttir
tónleikar
Húsavík.
TÓNLEIKAR þeir sem Gunnar
Guðbjörnsson tenórsöngvari
með aðstoð Jónasar Ingimund-
arsonar píanóleikara hélt á
Húsavík sl. sunnudag voru vel
sóttír.
Hrifning var mikil af hinum 23
ára gamla söngvara. Einn söng-
elskur Húsvíkingur sagði að
ábyggilega hefðu ekki jafn eftir-
minnilegir tónleikar verið haldnir
á Húsavík síðan Stefán íslandi
söng hér á árum áður og man
hann þó marga.
Söngskráin var fjölbreytt,
íslensk lög og aríur úr óperum.
- Fréttaritari
Morgunblaðið/Frosti Eiðsson
Bráðlátirjeppamenn
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd gerðust nokkrir jeppamenn
sem lögðu leið sína í Þórsmörk um helgina heldur bráðlátir í
Lóninu við rætur Eyjafjallajökuls. Að sögn sjónarvotta þótti snilli
ökuþóranna ekki í samræmi við dirfskuna, og máttu þeir að sögn
heita heppnir að sleppa óskaddaðir frá volkinu. Þessi uppákoma
hindraði þó ekki einn viðstaddra í því að leggja til atlögu við
Lónið daginn eftir, og mun þeirri viðureign hafa lyktað á sama
veg.