Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 2

Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 2
2 ««€1 um sg& tjKSAiavrrroaoM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989 Hagvirki: Viðræður við ráðuneyt- ið hefjast eftir helgina Vilji til að afstýra lokun fyrirtækisins VILJI er til að athuga fleiri möguleika í máli Hagvirkis en beinar peningagreiðslur þannig að ekki þurfí að koma til lokunar fyrirtækis- ins. „Eg geri ráð fyrir að viðræður við fjármálaráðuneytið hefjist strax eftir helgi,“ sagði Jóhann Bergþórsson, framkvæmdasfjóri Hagvirkis, við Morgunblaðið, en hann átti viðræður við Steingrím Hermannsson forsætisráðherra um málið. Mál Hagvirkis var rætt á ríkissfjórnarfundi í fyrradag í ljósi bréfs VSÍ til stjórnarinnar. reka mál Hagvirkis fyrir dómstól- í bréfi Vinnuveitendasambands- ins kemur fram að mikilvægt sé að fá vitneskju um hvort ríkissfjórn- in telji 4. gr. laga um raforkuver taka til söluskatts. Ákvæðið kveður á um að virkjunaraðili sé undanþeg- inn gjöldum í ríkissjóð vegna bygg- ingarframkvæmda. Jóhannes Berg- þórsson segir að bæði Hagvirki og ríkið vilji fá úrskurð um óvissu- þætti í lögum, hann hljóti því að Gengið lækk- að meira en gert var ráð fyrir í vor - segir Örn Frið- riksson vara- forseti ASÍ ÖRN Friðriksson, annar vara- forseti Alþýðusambands Is- lands, segir að gengislækkan- ir að undanförnu hafi verið meiri en gert hafi verið ráð fyrir þegar kjarasamningar voru gerðir í vor. Hann segir að í næsta mánuði muni for- ysta Alþýðusambandsins meta áhrif gengislækkananna og ákveða hvort gripið verði til einhverra aðgerða vegna þeirra. Om sagði í samtali við Morg- unblaðið að Alþýðusambandið myndi í næsta mánuði reyna að meta, hver áhrif gengislækkan- imar hefðu á launakjörin, en ljóst væri að allar gengislækkan- ir leiddu til verðhækkana þar sem grunnverð erlendrar vöru hækkaði og milliliðakostnaður ykist í kjölfar þeirra. „Við viljum að staðið verði við þær yfirlýsingar um aðhald í verðlagsmálum, sem gefnar voru þegar kjarasamningamir voru gerðir,“ sagði Öm. „Það hefur ekki verið gert nema að óverulegu leyti og í rauninni aðeins þegar launþegasamtökin hafa gripið til aðgerða eins og að hvetja fólk til að kaupa ekki mjólk og bensín. Við munum að sjálfsögðu meta hvort þörf er á að halda slíkum aðgerðum áfram.“ um. í bréfi VSÍ koma fram efasemdir um gildi reglna um innheimtu sölu- skatts. Deilt er á að óljóst sé hvað sé undanþegið söluskatti og hvað ekki. Þá segir orðrétt: „Atvinnu- reksturinn hlýtur að eiga kröfu á því að þær reglur sem settar eru um skyldu fyrirtækja til innheimtu- starfa fyrir ríkissjóð séu þolanlega skýrar og í samræmi við lög.“ Fjár- málaráðuneytið hefur þennan hluta bréfsins til athugunar að sögn Jó- hanns. í lokakafla bréfs VSÍ er áréttað reglugerðarákvæði um að jafnræðis beri að gæta við meðferð gjaldenda vegna vanskila söluskatts. Að síðustu ítrekar VSÍ samstarfsvilja sinn við stjórnvöld um endurskoðun á skattamálum fyrirtækja og viða- mikilli innheimtu þeirra á opin- berum gjöldum. Morgunblaðið/Einar Falur Eimskipafélagið hefur tekið í notkun nýja gáma til hrossaflutninga. Fyrstu hrossin voru flutt úr landi í þeim i nótt. Nýir gámar til hrossaflutninga EIMSKIPAFÉLAGIÐ hefiir tekið i notkun nýja gáma til flutnings á hrossum og í nótt voru fyrstu 24 dýrin flutt með þeim úr landi áleið- is til Svíþjóðar. Gámarnir eru hannaðir með það fyrir augum að bæta aðbúnað dýranna og eru meðal annars yfirbyggðir í þeim til- gangi. Gunnar Arnason, hrossaútflytj- andi, segir að mun betur fari um dýrin í nýju gámunum; þeir séu yfirbyggðir og veiti því meira skjól. Þeir séu í rauninni færanleg hest- hús. Nefndi hann meðal annars, að mun auðveldara væri að koma hrossunum í nýju gámana heldur en þá gömlu. Hross eru flutt úr landi sjóleiðis yfir sumarið en með flugvélum á öðrum árstímum. Víðir Aðalsteins- son, verkstjóri hjá Eimskipafélag- inu segir, að frá því í vor hafi félag- ið flutt 170 hross, aðallega til Svíþjóðar og Þýskalands. Bandaríkjamemi kosta nýja vatnsveitu á Suðurnesjum Varnarliðið fær vatn án sérstakra greiðslna í 15 ár Bandaríkjamenn kosta gerð nýrrar vatnsveitu á Suðurnesjum og greiða til þess rúmlega hálfan milljarð króna, samkvæmt samkomu- lagi sem utanríkisráðherra hefiir gert við bandarísk stjómvöld. Vamarliðið á Keflavíkurflugvelli fær neysluvatn næstu 15 árin án sérstakra greiðslna en að þeim tíma liðnum er gert ráð fyrir því að það muni greiða fyrir vatnið til jafiis við aðra. Ráðherra undirritaði í gær samning við Vatnsveitu Suðurnesja um lagningu veitunnar og rekstur hennar. Bæjaiyfirvöld í Njarðvík og Keflavík stofnuðu sameignarfélagið Vatnsveitu Suðumesja í byijun þessa árs. Stjórnarformaður fyrir- tækisins er Oddur Einarsson, bæj- arstjóri í Njarðvík og framkvæmda- stjóri er Hannes Einarsson, formað- ur bæjarráðs í Keflavík. Kostnaður við gerð nýju vatns- veitunnar er áætlaður 465 milljónir króna og hefur verið samið við bandarísk stjómvöld um greiðslu þeirrar upphæðar. Auk þess munu Bandaríkjamenn greiða kostnað vegna þjálfunar starfsmanna og byijunarreksfrarkostnað upp á 58 milíjónir króna. Hönnun vatnsveitunnar er nú á lokastigi. Stefnt er að því að fram- kvæmdir hefjist á þessu ári og að þeim Ijúki um mitt næsta ár. Borað verður eftir vatni í svokölluðum Lágum, norðvestur af Svartsengi og verður vatnið leitt í leiðslum í miðlunartank fyrir ofan byggðina í Njarðvík og Keflavík. Veitt verður vatni til þessara tveggja byggðar- laga og flugvallarsvæðisins, en auk þess er gert ráð fyrir að önnur sveit- arfélög á Suðurnesjum geti tengst veitunni. Morgunblaðið/Arni Sæberg Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og Oddur Einarsson, stjómarformaður Vatnsveitu Suðumesja, takast í hendur eftir undir- ritun samkomulagsins. Ferðafélag- anum dreift Kristján Ólafsson, sölumaður og neytendafrömuður, gekk í gær í lið með lögreglunni og aðstoðaði hana við dreifingu bæklingsins Ferðafélagans, sem íþróttasamband lögreglumanna gefur út. í bæklingnum er meðal annars að finna ábendingar til ferðamanna. Lögreglan segir að vegfarendur megi búast við því hvenær sem er að verða stöðvað- ir af lögreglu, sem afhendi þeim Ferðafélagann að undangeng- inni athugun á ástandi bíis, öku- manns og farþega. Bömin í bílnum fá raðspil frá Tannvernd- arráði. Ferðafélaginn fæst einn- ig gefinn á nær öllum lögreglu- stöðvum landsins. Norðurlandamótið í skák: Guðfríði gengur vel GUÐFRÍÐUR Lilja Grétarsdóttir gerði í gær jafiitefli við alþjóðlega meistarann Bener frá Svíþjóð á Norðuriandamótinu í skák í Finn- landi og er nú með 3 'A vinning og í 3. sæti. Höiberg frá Danmörku hefúr þegar sigrað í kvennaflokki með 5/2 vinning, i 2. sæti er Dahl frá Noregi með 4 vinninga og þær tefla saman í síðustu umferð. Sigri Höiberg í þeirri skák og Guðfríður í sinni öðlast báðar þátttökurétt á millisvæðamóti kvenna. Engin breyting varð á stöðu efstu manna í karlaflokki. Margeir Péturs- son gerði jafntefli við Jón L. Áma- son, Helgi Ólafsson samdi um jafn- tefli við sænska stórmeistarann Schussler og jafntefli varð einnig hjá Jouni Yrjöla og Simen Agderstein. Þeir fjórmenningar hafa allir hlotið sjö vinninga eftir tíu umferðir. í meistaraflokki tefla tveir íslend- ingar. Lárus Jóhannesson vann skák í gær og hefur 5 vinninga en Tómas Bjömsson gerði jafntefli og hefur 4% vinning. Undirmenn samþykkja UNDIRMENN á farskipum hafa samþykkt, nýgerða kjarasamn- inga með 50 atkvæðum gegn 36. Atkvæði greiddu 87 og er það um 82% af stöðugildum innan flotans en 86 atkvæði komu upp úr kassan- um og hafði eitt atkvæði ekki skilað sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.