Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
3
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
Hafísinn er nú kominn á siglingaleiðir norður af landinu.
Hafls kominn í strandstrauma
Skemmtiferðaskipum ráðlagt að fara austur fyrir land
HAFÍS er nú á siglingaleiðum við Horn og á austanverðum Húna-
flóa. ísinn er þar með kominn í strandstrauma og hreyfist væntan-
lega suður á bóginn í norðan- og norðvestanáttinni, sem ríkjandi
verður næstu daga.
Hafísdeild Veðurstofunnar hafa
borist fregnir bæði af hafísspöng-
um og eins af stökum jökum á
sigiingaleiðum og hefur tveimur
skemmtiferðaskipum, sem vænt-
anleg eru um helgina, verið ráðlagt
að fara heldur austur fyrir landið
til Akureyrar í stað þess að fara
vestur fyrir landið af ótta við hafís-
inn. Annað skipið er portúgalskt
og hitt sovéskt.
„Það er ekki svo að skilja að
siglingaleiðin sé ekki opin, en ef
skipin eiga þangað ekkert sérstakt
erindi, þykir réttast að benda þeim
á að velja sér aðra leið á áfanga-
stað,“ sagði Þór Jakobsson, deild-
arstjóri hafísdeildar, í samtali við
Morgunblaðið.
ísspöng, sem er um ein míla á
breidd, liggur þijár til ijórar sjómíl-
ur út af Drangaskarði á Ströndum.
Rekís tekur þar við og liggur aust-
ur úr. Þór sagði að ísspöngin væri
þétt og því væri varasamt að sigla
í gegnum hana. Full ástæða sé
fyrir sjófarendur að fara varlega.
Þá liggur ísspöng í tíu sjómílna
Álit alnæmislækna:
fjarlægð frá Kolbeinsey, sam-
kvæmt fréttum sem bárust frá
Landhelgisgæslunni í gær. ísinn
þar liggur í norðnorðvestur og
þaðan í norðvesturátt. í austurátt
sést ís í radar, einnig í um tíu
sjómílna fjarlægð.
Þór segir að hætta sé á að meiri
hafís berist hingað frá sjálfu Græn-
landssundi ef norðvestlægar og
vestlægar áttir ætla að vera ríkj-
andi næstu daga, eins og spáin
bendir til.
Fimmmenningarn-
ir við Sljörnubíó:
Þrír við bíó-
ið af slysni
Innbrotsþjófarnir fímm, sem
handteknir voru við Stjörnubíó
aðfararnótt miðvikudagsins,
hafa játað við yfirheyrslur hjá
Rannsóknarlögreglunni að hafa
átt þátt í nokkrum smáinn-
brotum. Bæði var um að ræða
innbrot þessa sömu nótt og
eldri mál.
Eins og kunnugt er af fréttum
voru þeir handteknir við
Stjörnubíó í tveimur hollum, fyrst
tveir og hálftíma síðar þrír. Við
yfirheyrslur hjá RLR kom í ljós
að þeir þrír, sem handteknir voru
síðar, ætluðu sér ekki að bijótast
inn í Stjörnubíó. Sá hópur ætlaði
sér inn í söluturn á Barónstíg.
Hins vegar fældust þeir frá því
innbroti vegna mannaferða og
leituðu sér skjóls bak við
Stjörnubíó.
íbúar þeir í nágrenninu, sem
létu vita af fyrra innbrotinu, voru
ekki sofnaðir aftur er þeir urðu
varir við þremenningana. Létu
þeir lögregluna því aftur vita sem
kom á staðinn og hirti þessa sein-
heppnu þjófa.
Ströng gæsla
á Laugarvatni
um verslun-
armannahelgi
STRÖNG gæsla verður á tjald-
og hjólhýsasvæðum við Laugar-
vatn um verslunarmannahelg-
ina til að afstýra ónæði.
Fjöldi tjalda verður takmarkað-
ur í samræmi við reglugerð og
öllum sem óvirða reglur og til-
mæli starfsmanna tafarlaust vísað
af svæðinu. í fréttatilkynningu
segir að á Laugarvatni sé áhersla
lögð á þjónustu við fjölskyldur og
fastagesti. Boðið sé upp á margs
konar þjónustu við ferðafólk því
til afþreyingar, svo sem báta,
hesta, seglbretti, mini-golf, gufu-
bað og sund. Gönguleiðir í ná-
grenninu ,séu við hvers manns
hæfi.
í grein Læknablaðsins er rakið
hvernig staðið hefur verið að
fræðslu um alnæmi hér á landi frá
árinu 1983. Tvær skoðanakannan-
ir voru gerðar árið 1987 til þess
að meta þekkingu og viðhorf ís-
lendinga til alnæmis. Af niðurstöð-
um þeirra er ljóst að staðfestar
smitleiðir alnæmis, þ.e. smit við
kynmök, frá blóði sýktra einstakl-
inga og við samnýtingu sprautuná-
la, eru vel þekktar. Hins vegar
töldu margir, um 60%, alnæmi
geta smitast eftir öðrum leiðum,
t.d. með kossum.
Sigurður Guðmundsson læknir
telur næsta skref í alnæmisfræðslu
vera rannsókn á kynhegðun og
atferli íslendinga. „Svo að áfram-
haldandi fræðsla beri tilætlaðan
árangur þarf að vera ljóst að hveij-
um hún á að beinast og hvernig
henni verði best komið til skila.
Einungis þannig má eyða fordóm-
um og breyta viðhorfum og kyn-
ferðislegu atferli almennings,"
sagði Sigurður. „Mjög lítið er vitað
. liií
um kynlífshegðun íslendinga, t.d.
hversu margir eru gagnkynhneigð-
ir og hve algengt fjöllyndi sé. Al-
næmi er alvarlegasti faraldur
síðari tíma og upplýsingar sem
þessar hefðu mikið gildi í barát-
tunni gegn sjúkdómnum.“
Sigurður kveður rannsókn á
kynlífshegðun nauðsynlega svo að
hægt sé að meta hvort árangur
fræðslunnar komi fram í breyttu
atferli og viðhorfum til alnæmis.
„Unnið hefur verið að undirbúningi
slíkrar könnunar með Félagsvís-
indastofnun en nú er þetta mál í
biðstöðu þar sem ekki fæst fé til
rannsóknarinnar,“ sagði Sigurður.
Vilborg Ingólfsdóttir, hjúkrun-
arfræðingur hjá Landlæknisem-
bættinu og einn höfunda greinar-
innar, tekur í sama streng og telur
niðurstöður rannsóknar á kynlífs-
hegðun íslendinga geta nýst vel
við skipulagningu forvarna. Að-
spurð sagði Vilborg alnæmis-
fræðsluna vera síst minni nú en
áður þó væri reynt að leggja
.Ttoshíit uL i.Jlo nartinniv ciit
Keppt á heimasmíðuðum tryllitækjum
Lokadagar Vinnuskóla og leikjanámskeiða æskulýðsráðs Haftiarflarðar voru í gær og fyrradag.
Hið árlega kassabílarall á Linnetsstíg fór fram í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. „Fífldjarfír
ökuþórar þreyta keppni á heimasmíðuðum tryllitækjum", stóð í auglýsingu æskulýðsráðs.
Nauðsynlegt að kanna
kynlífshegðun Islendinga
NAUÐSYNLEGT er að kanna kynlífshegðun og atferli íslendinga áherslu á aðra þætti en í upphafi, ranghugmyndum um smitleiðir
svo að betur megi sjá til hvaða þjóðfélagshópa fræðsla um alnæmi t.d. reynt að eyða fordómum og sjúkdómsins.
þarf helst að ná. Þetta kemur fram í grein í Læknablaðinu, þar
sem reynt er að meta árangur alnæmisfræðslu á íslandi til þessa.
Sigurður Guðmundsson læknir er einn höfunda greinarinnar og
segir hann slíka rannsókn nauðsynlega svo að hægt sé að beina
fræðslunni sérstaklega til þeirra sem eru í áhættuhópum. Auk
þess sé lítið vitað um kynhegðun Islendinga og gæti slík könnun
veitt mikilvægar upplýsingar um kynferðislegt atferli landsmanna.