Morgunblaðið - 29.07.1989, Síða 4
4
MORGUNBLíAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
Tillögur neftidar um rekstur Þjóðleikhússins:
Framkvæmdastj óri verði
ráðinn að húsinu sem fyrst
Þjóðleikhúsið greiði ekki 240 milljóna króna skuld við ríkið
NEFND um rekstur Þjóðleikhússins hefúr skilað áfangaskýrslu þar
sem meðal annars er lagt til að framkVæmdastjóri verði ráðinn til
Þjóðleikhússins sem fyrst og að 240 milljóna króna skuld stofnunar-
innar við ríkissjóð verði látin niður falla. Enn fremur er lagt til að
það sem eftir er þessa árs verði leikrit einungis sýnd á stóra svið-
inu. Svavar Gestsson menntamálaráðherra skipaði 5 manna nefnd
um rekstur Þjóðleikhússins 13. júní sl. í henni sitja Haukur Ingibergs-
son frá flárlaga- og hagsýslustofhun, Friðrik H. Friðriksson og Sigr-
ún Valbergsdóttir frá menntamálaráðuneyti og ívar H. Jónsson og
Gísli Alfreðsson firá Þjóðleikhúsinu.
Menntamálaráðherra kynnti árin 1979 til ’81. Sé borinn saman
áfangaskýrsluna á fundi í gær,
ásamt Hauki Ingibergssyni, for-
manni nefndarinnar, og Guðrúnu
Ágústsdóttur, aðstoðarmanni ráð-
herra. Fram kom f máli Svavars
Gestssonar að Þjóðleikhúsið hefði á
undanförnum árum átt við veruleg-
an rekstrarvanda að stríða. Engum
einum aðila væri þar um að kenna.
í skýrslunni kemur fram að meðal-
kostnaður við hveija uppfærslu
Þjóðleikhússins hafi verið tæplega
helmingi hærri árin 1986 til ’88 en
fjöldi sýningargesta sömu ár kemur
í ljós að þeim hefur fækkað um 22%.
Nefndin telur að taka þurfi alla
þætti rekstrar Þjóðleikhússins til
gagnrýnnar endurskoðunar. Byggja
þurfi reksturinn á rekstrar- og
starfsáætlunum og tryggja að hann
fari að fjárlögum og sé eins hag-
kvæmur og unnt er. Bent er á að
samsetning starfsliðs sé óhagkæm.
Fjöldi tæknimanna sé ekki í sam-
ræmi við fjöida leikara og aldurs-
samsetning leikarahópsins sé óhag-
kvæm.
Lagt er til að ráðinn verði fram-
kvæmdastjóri til Þjóðleikhússins
sem fyrst og hafi hann það verk-
efni að styrkja rekstur og fjármála-
stjórn leikhússins. Gert er ráð fyrir
að nefndin geri tillögu um mann í
starfið og verði ráðið í stöðuna strax
í næsta mánuði. Þá mun einnig
valið hvaða leið skuli farin í rekstri
Þjóðleikhússins út þetta ár. Nefndin
varð sammála um að leggja til við
ráðherra að leikstarfsemi verði að-
eins á stóra sviðinu og þar verði
sýnd 4 leikrit. Þau eru Haustbrúð-
ur, Óvitar, Oliver og Fjölskyldufár-
ið. Verði þessi leið valin mun samt
vanta 60 til 70 milljónir króna til
að endar nái saman í árslok.
Skuld Þjóðleikhússins við ríkis-
sjóð frá síðastliðnum 4 árum er
tæplega 240 milljónir króna. Það
er álit nefndarmanna að óraunsætt
VEÐUR
I DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR I DAG, 29. JULI
YFIRLIT í GÆR: Skammt austur af landinu er heldur minnkandi
993 mb lægð, sem þokast austnorðaustur. Á morgun hlýnar nokk-
uð í veðri, einkum norðvestan til.
SPÁ: Fremur hæg norðan og norðvestanátt. Skúrir um norðanvert
landiö, en skýjað og úrkomulítið eða úrkomulaust annarsstaðar.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG:Hæg vestanátt. Skýjað og lítilsháttar súld
á annesjum vestanlands en annars þurrt. Léttskýjað um allt austan-
vert landið. Hlýnandi veður og hlýjast á Austur- og Suðausturlandi.
HORFUR Á MÁNUDAG:Hæg norðvestanátt, smáskúrir á annesjum
norðanlands en léttskýjað á Suður- og Austurlandi. Fremur milt.
s, Norðan, 4 vindstig:
* Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
■# # *
* * * * Snjókoma
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V H
= Þoka
= Þokumóða
’ , > Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hití veður Akureyrl 8 súld Reykjavík 8 rigning
Bergen 15 skýjað
Helsinki 26 léttskýjað
Kaupmannah, 20 skýjað
Narssarssuaq 9 alskýjað
Nuuk 5 skýjað
Osló 21 skýjað
Stokkhólmur 21 hálfskýjað
Þórshöfn 10 skúr
Algarve 28 léttskýjað
Amsterdam vantar
Barcelona 29 místur
Berlín 22 léttskýjað
Chicago 19 skýjað
Feneyjar 27 léttskýjað
Frankfurt 22 háifskýjað
Giasgow 17 mistur
Hamborg 18 skýjað
Las Palmas 25 léttskýjað
London 24 skýjað
Los Angeles 18 þokumóða
Lúxemborg 21 léttskýjað
Madríd 35 heiðskírt
Malaga 30 heiðskírt
Mallorca 31 hálfskýjað
Montreal 20 skýjað
New York 25 mistur
Orlando 25 þokumóða
Parfs 24 hálfskýjað
Róm 31 heiðskírt
Vfn 22 skýjað
Washington 25 mistur
Winnipeg vantar
Morgunblaðið/Þorkell
Svavar Gestsson menntamálaráðherra og Haukur Ingibergsson, for-
maður nefhdar um rekstur Þjóðleikhússins, stinga saman nefjuin á
blaðamannafundi um rekstur Þjóðleikhússins í gær. Guðrún Ágústs-
dóttir, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, fylgist með.
sé ’ að ætla að Þjóðleikhúsið geti hæðin verði tekin inn í næstu auka-
greitt þessa skuld á næstu árum fjárlög og skuldin jöfnuð með því
af sjálfsaflafé eða framlögum og framlagi að fengnu samþykki Al-
gera þeir að tillögu sinni að upp- þingis.
Urquell seldist
upp á 10 dögum
TEKKNESKI bjórinn Pilz Ur-
quell er nú uppseldur hjá Áfeng-
is- og tóbaksverslun rikisins. Sala
tékkneska bjórsins hófst fyrir tiu
dögum og hefur hann á nokkrum
dögum náð mestum vinsældum
hjá viðskiptavinum í vínbúðinni
Heiðrúnu, verslun ÁTVR við
Stuðlaháls, en þar er hann ein-
ungis seldur.
Þór Oddgeirsson, sölustjóri
ÁTVR, segir að þetta hafi verið
fyrsta sendingin, sem komið hafi
til landsins af tékkneska bjórnum,
en búið væri að leggja inn pöntun
fyrir þeirri næstu. Ovíst er hvenær
von er á henni, en það ætti ekki
að taka marga daga, sagði Þór.
Einar Jónatansson, sölustjóri í
Heiðrúnu, sagði að síðasti kassinn
af Urquell hafi verið seldur í hádeg-
inu í gær. „Þessi bjór hefur verið
vinsælastur hér í búðinni síðan hann
kom á markaðinn. Ég veit ekki
neina einhlíta skýringu á því, en
viðskiptavinir tala um að hér sé á
ferðinni hinn eini sanni pilsner."
Pilz Urquell er 4,1% að styrkleika
og hefur lág áfengisprósenta fælt
suma viðskiptavini frá því að kaupa
hann. Hugsanlega yrði bjórinn enn
vinsælli ef hann væri örlitið sterk-
ari, að sögn Einars.
Þór sagði að komið hefðu tæp-
lega þúsund kassar af Urquell til
landsins. Þeir innihéldu um það bil
sjö þúsund lítra.
Prófarkales-
urum sagt upp
á Tímanum
TÍMINN hefiir sagt upp tveimur
af þremur prófarkalesurum
sínum. Einn mun starfa áfram
og verður hlutverk hans að lesa
yfir fyrirsagnir á kvöldin.
Að sögn.Kristins Finnbogasonar,
framkvæmdastjóri blaðsins, er ætl-
unin að draga úr prófarkalestri í
tengslum við breytingar á tölvu-
kerfi blaðsins. Inn í kerfið væri nú
kominn „leiðréttingapúki“, sem
tæki fyrir vissar villur og einnig
væri væntanlegt fullkomið orðskipt-
ingaforrit frá Háskólanum, sem
ætti að fækka skiptingarvillum.
Auk þess væri ætlast til þess að
blaðamenn læsu vel yfir efni sem
þeir sendu frá sér. Sagði Kristinn
að lokum, að þrátt fyrir þessar
breytingar yrði áfram lögð áhersla
á að gefa Tímann út á góðu íslensku
máli.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Bifreiðin sem brann er gjörónýt og hin bifreiðin er töluvert skemmd.
Borgarfl örður:
Bifreið brann til kaldra kola
Hvanntúni í Andakíl
ALLHARÐUR árekstur tveggja bíla varð á fóstudagsmorgun á vegin-
um sem áður var þjóðvegur nr. 1, rétt vestan Eskiholts í Borgar-
hreppi. Við áreksturinn kviknaði í annarri bifreiðinni og varð ekki
við eldinn ráðið og brann allt í bílnum sem brunnið gat.
Tildrög voru þau að bifreið úr sakaði ekki.
vesturátt lenti í lausamöl og öku-
maðurinn missti stjórn á henni með
þeim afleiðingum að hún lenti á
annarri bifreið sem á móti kom.
Áreksturinn olli því að samstundis
kviknaði í bílnum sem var á leiðinni
út af veginum. Allir farþegar, tveir
í hvorri bifreið, voru í bílbeltum og
Það vildi svo illa til að ekki náð-
ist samband við síma lögreglunnar
i Borgarnesi fyrr en eftir fimmtán
minútna hringingar og var þá létt
verk fyrir slökkviliðið að slökkva í
glæðunum þegar það kom rúmri
klukkustundu eftir áreksturinn.
- DJ