Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
11
Philippe Cazal:
Hann á verk á sýningnnni Al-
þjóðleg nútímalist sem nú stendur
yfir á Kjarvalsstöðum, er franskur
og heitir Philippe Cazal. íslensk
sljórnvöld buðu honum hingað til
lands í tilefhi þessarar sýningar.
„Mér hefði aldrei dottið í hug að
koma hingað að eigin frumkvæði,"
segir hann. „Belgía er nyrsta
landið sem ég hef komið til í Evr-
ópu fram að þessu." Honum segist
ekkert hafa iitist á sig lyrst og það
var ekki bara vegna veðursins.
„Húsin hérna í Reykjavík eru
hræðiieg. En náttúran er stórkost-
leg og ég gæti vel hugsað mér að
ferðast meira um landið.“
Philippe Cazal lauk námi frá Art
Décoratif í París árið 1973. Tveimur
árum seinna gekk hann til samstarfs
við hóp listamanna sem kallaði sig
„Un tel“. „Nafnið er mjög táknrænt,
en „un tel“ getur þýtt staða eða stell-
ing. Hópurinn stóð fyrir allskyns
uppákomum og gjömingum, en ein-
staklingarnir innan hans unnu líka
sjálfstætt. Uppákomur hópsins vöktu
talsverða athygli, sem sést kannski
best á því að nú geta nemendur í
frönskum listaskólum valið að starfa
í hópum sem kallaðir eru „un tel“.
Mér finnst það skondið því það era
níu ár síðan hópurinn okkar hætti.
Ein minnisstæðasta uppákoma
hópsins í mínum huga, var í
Louvre-safninu 1978. Þar er alltaf
mikið af ferðamönnum og við voram
með sýningu á ferðamannatískunni.
Við vorum öll eins klædd, í hvítum
fötum sem búið var að þrykkja á
orðið ferðamaður (tourist) í mörgum
litum og með mismunandi letri. Við
límdum svo á okkur miða með nöfn-
unum okkar og fengum unga konu
með fágaða rödd til að kynna fatnað-
inn eins og gert er á tískusýningum.
Uppátækið hlaut góðar undirtektir
viðstaddra.
Ég stóð líka einn fyrir uppákomu
í bæ skammt utan Parísar. Eg stóð
innst á svæði sem opnaðist í áttina
frá mér með áhorfendur í eins kíló-
metra fjarlægð. Frá þeim séð var ég
því pínulítill. Síðan hélt ég á kalltæki
sem ómaði setningu sem ég hafði
yfir aftur og aftur til áhorfenda: „Ég
hef glatað tíma mínum, ég hef glatað
tíma mínum“ (je perd mon temps).“
Frá því tel-hópurinn hætti hefur
Cazal starfað einn. Hann skírskotar
oft til auglýsinga í verkum sínum og
um það segir hann: „Ég vil gera list-
ræna hluti sem fólki finnst það hafa
séðáður.
Ég hef nokkuð lengi gert verk í
svipuðum anda, þar sem ég leik mér
með myndir og titla. Öll verkin mín
bera titla sem hafa tvöfalda merk-
ingu. Ég hef gaman að tvíræðni og
einnig því að stilla upp andstæðum."
„Modele
Sculpture du
Salon.“ Viður
klæddur gerv-
ileðri og fjög-
ur kampavíns-
glös.
I BMW 3-línunni eru annarsvegar 2ja og 4ra
dyra bílar og hinsvegar 5 dyra Touring skutbíl-
ar. Þú borgar minnst fyrir BMW i 2ja dyra út-
færslunni, en hann kostar álíka og litill jap-
anskur bíll með sérútbúinni vél. Munurinn er
mikill milli BMW og japanskra bíla, og dæmi
þá hver fyrir sig.
Einkenni BMW eru þau sömu í öllum útfærsl-
um. Hann er aflmikill, hefur frábæra akstureig-
inleika og snerpu sem þú getur treyst þegar
mest á reynir. Fjöörunin og annar tæknilegur
útbúnaöur er fyrsta flokks enda hér á ferðinni
bíll sem er gerður fyrir kröfuharða kaupendur.
Þaö er eftirsóknarvert að eiga og aka BMW,
þess vegna viljum við gera okkar ítrasta til að
þú njótir þess besta, og eignist BMW. Þér er
hér með boðið að koma og reynsluaka BMW
3-línunni eða öðrum BMW bílum, þiggja hjá
okkur veitingar og ræða við sölumenn um
hagstæða greiðsluskilmála. Viljir þú að við
tökum gamla bílinn sem greiðslu upp í nýjan
BMW, skaltu hiklaust notfæra þér skiptitilboðið
okkar sem auðveldar þér að eignast BMW á
góðum kjörum.
BMW 3161, 2ja dyra kostar frá kr. 1.227 þúsund.
Bílaumboðið selur einnig notaða BMW.
Leitaðu upplýsinga hjá sölumönnum.
Njóttu þess besta, — eignastu BMW.
ÞAÐ ER EINFALT MÁL
AÐ SEMJA VIÐ OKKUR.
Bílaumboðiö hf
Krókhálsi 1, Reykjavik, sími 686633
Einstakur bíll
ffyrir
kröfuhurðo.
áletranir sem merkt geta annað en
þær í fljótu bragði virðast gera.
Sýnt í tímariti
Síðustu fimm árin hefur Philippe
Cazal notið velgengni á alþjóðavett-
vangi og hefur hann í nógu að snú-
ast við að þeytast á milli sýninga í
Evrópu og Bandaríkjunum. En hann
segist þó eyða mestum tíma sínum í
vinnu.
Framundan hjá honum á þessu ári
era samsýningar í Hamborg, á Kor-
síku, í París, Mílanó og Bologna og
einkasýning í Brassel.
Cazal gefur sér reyndar einnig
tíma til að gefa út tímarit, með um-
fjöllun um listir, sem hann ritstýrir
jafnframt. Það heitir Public og kom
út í fjórða sinn fyrr á þessu ári. Út-
gáfan hófst árið 1984 og er því
óhætt að segja að eintök af tímarit-
inu séu sjaldgjæf. „Hugsunin á bak
við tímaritið er að gefa það út þegar
þess er þörf. Síðasta heftið er helgað
Frakklandi og er það sett upp eins
og sýning. Ljósmyndirnar vora tekn-
ar sérstaklega fyrir þessa „sýningu".
Þetta er nokkurskonar leikur, „sýn-
ingin“ bytjar einhvers staðar framar-
lega, tekur nær allt plássið, en aftast
er „bókabúð“, eins og á söfnum, þar
sem era ljósmyndir af verkum nokk-
urra listamanna í viðbót við þá sem
taka þátt í „sýningunni".
Hluti verksins „La magie du succés".
Morgunblaðið/Þorkell
Philippe Cazal
Kampavín og velgengni
Á sýningu sem Cazal hélt í Barbic-
an Center í London á síðasta ári var
meðal annars verk sem hann kallar
„La magie du succés" (Töfrar vel-
gengninnar). Það vora sex ljósmynd-
ir, allar af stúlku með kampavínsglas
og -flösku og manni að kyssa á háls-
inn á henni. Stúlkan á myndunum
var aldrei sú sama, en myndunum
var stillt upp eins og auglýsingu í
verslunarglugga. Fyrir ofan hveija
mynd var merkið með nafni Cazals,
sem hann lét auglýsingastofu hanna
sérstaklega fyrir sig, en fyrir neðan
mótaði fyrir dökkum útlínum af
kampavínsflösku og -glasi þar sem
stóð „L’Artiste dans son milieu".
„L’Artist dans son milieu" er Caz-
al sjálfur, þar sem hann er ekki að-
eins stjórnandi, heldur einnig gjaman
í aðalhlutverki í verkum sínum. „Það
er erfitt að þýða „milieu,“ segir
hann. Orðið hefur þijár mismunandi
merkingar í frönsku."
Philippe Cazal vinnur þannig að
hann gerir nákvæmar teikningar af
hugmyndum sínum en fær síðan fag-
menn, hvern á sínu sviði, til að fram-
kvæma þær. „Auglýsingaáhrifin
koma enn betur fram þegar vérkin
era unnin af iðnaðarmönnum. Ef um
er að ræða ljósmynd til dæmis, þá
sé ég um uppstillinguna en fæ Ijós-
myndara til að taka myndina." Sjálf-
ur sést hann á öllum ljósmyndunum.
Það er sama hvaða verk Cazals
eru skoðuð, allsstaðar rekst áhorf-
andinn á orðaleiki. Skúlptúrarnir
hans heita til að mynda allir Modele-
eitthvað í merkingunni „déja vu“ (séð
áður) og myndir og skilti bera oft
Við eram búin að kynna blaðið í
Grenoble, Bologna, New York og
London. Næst fer ég til Montreal,
en hugmyndin er að kynna tímaritið
í einum sýningarsal á hveijum stað.
Salurinn leggur til borð og stóla, ég
læt prentdúk á borðin og tímaritið
liggur á borðunum handa sýningar-
gestum. Þeir geta síðan sest niður
og drakkið meðan þeir skoða „sýn-
inguna“.“
Yfirskrift „sýningarinnar" í Publi
c er: II n’y a pas „d’art francais" —
Það er ekki til nein „frönsk list“.
„Titillinn er villandi, segir Philippe,
en þegar hann er lesinn sést að orðin
„frönsk list“ era höfð innan gæsa-
lappa. Enda á ekki að skilja þau bók-
staflega, heldur er átt við að það sé
ekki nein sérstök stefna eða hreyfing
til meðal franskra listamanna í dag.“
MEO
Mér fínnast orða-
leikir skemmtilegir