Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 14

Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 14
'j'jc .es suoagíeaí'ujL' œjiajsm iu~m MORGUNBLAÐIÐ 'LAUGA-RDAGURr 29: -JULI -1989- 14 Hafa það heldur sem ósannara reynist „Nú veit Tómas Ingi miklu betur. Hann veit að höfundur þessarar greinar knúði fram samþykkt um Háskól- ann á Akureyri í ríkis- stjórninni. Hann veit að fyrir liggur ákvörðun ríkissljórnarinnar í heild um aukafjárveit- ingu á þessu ári til Há- skólans á Akureyri til þess að undirbúa sjáv- arútvegsbrautina. “ Svavar Gestsson eftir Svavar Gestsson Morgunblaðið birtir í dag, fimmtudag, grein eftir Tómas Inga Oirich. Þar reynir hann að koma pólitísku höggi á undirritaðan með eindæma óheiðarlegum hætti sam- kvæmt því lögmáli sem Sjálfstæðis- flokkurinn iðkar í stjórnarandstöðu að hafa ætíð fremur það sem ósann- ara reynist ef það gæti komið höggi á andstæðinginn. Málið er þetta: Bylgjan sendi út fréttatíma sem var allur löðrandi í ósannindum um fyrirhuguð sparn- aðaráform ríkisstjómarinnar. Þar var meðal annars sagt að í mennta- málaráðuneytinu ætti að skera nið- ur Háskólann á Akureyri það ætti að ganga í skrokk á Kennaraháskól- anum og eitthvað fleira var nefnt sem ég er búinn að gleyma. En í stuttu máli: Það var allt vitlaust. Það var hrein tilviljun að ég heyrði þessi ósköp í bílútvarpi og ég hringdi strax á Bylgjuna og sagði orðrétt við fréttamanninn: Viltu segja að allt það sem sagt var um niðurskurð í frétt ykkar hafi verið vitlaust að því er menntamálaráðu- neytið varðar. Leiðrétting kom en hún var þannig orðuð að þessi mál hefðu ekki verið rædd í mennta- málaráðuneytinu. Með þessu orða- lagi er Tómasi Inga og hans nótum gefið tilefni til þess að búa til lyga- sögu sem er einhvern veginn svona: Ekki þar nei, í menntamálaráðu- neytinu, en í ríkisstjórninni kannski ha, eða hvað? Og áfram er þráður- inn spunninn þar til í Morgunblaðs- greininni í gær. Nú veit Tómas Ingi miklu betur. Hann veit að höfundur þessarar greinar knúði fram samþykkt um Háskólann á Akureyri í ríkisstjórn- inni. Hann veit að fyrir liggur ákvörðun ríkisstjórnarinnar í heild um aukafjárveitingu á þessu ári til Háskólans á Akureyri til þess að undirbúa sjávarútvegsbrautina. Hann veit þetta vegna þess að upp- lýsingar um ijárveitinguna voru lagðar fram í fjárveitinganefnd. Hann veit að það er menntamála- ráðherra sem fer með Háskólann á Akureyri. Hann veit að hann á sjálf- ur aðgang að menntamálaráðherra og getur hvenær sem er náð til hans. Samt kaus hann heldur að hafa það sem ósannara er. Ég taldi hins vegar óhjákvæmi- legt að svara grein hans þó ósönn sé vegna þess að annars gæti Há- skólinn á Akureyri skaðast af. Von- andi verður grein Tómasar Inga ekki til þess að spilla fyrir Háskól- anum á Akureyri. Það hefur áreið- anlega ekki verið ætlun hans þó að hann hafi ætiað sér að koma höggi á undirritaðan með ósannind- um. Höfundur er menntamálaráðherra. V er ð a Baulu hf. o g verð á skyri eftir Þórð Asgeirsson Versta lygin er oft fólgin í því að segja hálfan sannleikann. Þetta er ekki góður málflutningur en til hans er stundum gripið og fer það þá eftir innræti viðkomandi hvernig fram er sett. Forstjóri Mjólkursam- sölunnar í Reykjavík skrifar grein í Morgunblaðið 28. júlí þar sem honum þykir „nauðsynlegt að upp- lýsa að ég hafi ítrekað boðið MS að kaupa fyrirtækið Baulu hf. Þessi boð hafi verjð opinberuð á smærri og stærri fundum sem haldnir hafa verið upp á síðkastið og segi ef til vill meira um afkomuna en mörg orð.“ Hér sýnir forstjóri Mjólkur- samsölunnar innræti sitt. Það er rangt að ég hafi boðið MS Baulu til kaups. Það er hins VERÐSAMANBURÐUR Hreint MS skyr 200 gr. (engin samkeppni) Verð per. kg 125 kr. vegar rétt að aðrir hafa nefnt það við forstjóra MS að hugsanlega gæti MS forðað því að Baula gerist afurðastöð og um leið gert góðan „business" með því að kaupa hluta- bréf Baulu Á FJÓRFÖLDU NAFN- VERÐI. Ég hef síðan nefnt þetta á einum eða tveimur fundum sem dæmi um það hve langt menn hafa gengið til að reyna að finna lausn á deilu MS og Baulu. Ég veit ekki af hveiju forstjóra MS þótti svona nauðsynlegt að upplýsa lesendur Morgunblaðsins um hálfan sann- leikann í þessu máli en mér þykir trúlegt að hann hafi miklu meiri áhuga en almenningur á að vita hver rekstrarafkoma Baulu er. Og væntanlega annars konar áhuga. Það skyldi þó ekki vera að þessi málflutningur forstjóra MS mótist SKYRI OG JÓGÚRT Hrein MS jógúrt 180 gr. (engin samkeppni) Verð per. kg 211 kr. MS ávaxtaskyr 150 gr. (engin samkeppni) 287 kr. Jógúrt með ávöxtum 180 gr. (MS og Baula í samkeppni) 222 kr. af þeirri óskhyggju hans og mark- miði að sjá rekstrarafkomu Baulu lagða í rúst. Ég ætla ekki að svara öðrum ruglings- og þokukenndum atriðum í blaðagrein MS-forstjórans en af því að hann skrifar um að MS geri sér far um að tryggja hag neytenda í verðlagningu á vörum sínum þá ætla ég að koma hér með eitt lítið dæmi um verðlagningu MS. Hefur ekki MS gleymt að tryggja hag neytenda í öðrum vörum en þeim sem eru í samkeppni við Baulu. MS verðleggur sem sagt ávexti og bragðefni í skyr á 162 kr. í hvert kg af skyri sem þeir hafa lögvarinn einkarétt á að selja. Hins Þórður Ásgeirsson „Það er rangt að ég hafi boðið MS Baulu til kaups. Það er hins veg- ar rétt að aðrir hafa nefnt það við forstjóra MS að hugsanlega gæti MS forðað því að Baula gerist afurðastöð og um leið gert góðan „busi- ness“ með því að kaupa hlutabréf Baulu á Qór- foldu nafiiverði.“ vegar verðleggja þeir ávexti og bragðefni í hvert kg af jógúrt á 11 kr. Lesendur verða að dæma um hvort þetta bendir til meiri um- hyggju MS fyrir neytendum eða áhuga á að drepa keppinautinn Baulu með lágri álagningu á einu vöruna sem Baula framleiðir — jóg- úrt með ávöxtum. Gerðir þú þér grein fyrir því les- andi góður að ávaxtaskyr er 30% dýrara en ávaxtajógúrt og heldur þú að þetta væri svona ef Baula mætti líka framleiða ávaxtaskyr? Höfundur erforstjóri Baulu. 80 keppendur á J frj álsíþr óttamóti Borg í Miklaholtshreppi. Fijálsíþróttamót á sunnan- verðu Snæfellsnesi var haldið nýlega að Breiðabliki. Þátttaka í þessu móti var úr öllum hrepp- um sunnan fjalls. Er þetta í ann- að sinn sem þessi háttur er hafð- ur en nú var þátttaka úr öllum sveitum sem ekki var í fyrra. Upphafsmaður að þessu móts- haldi er formaður Iþróttafélags Miklaholtshrepps, Eggert Kjartans- son á Hofstöðum. Keppendur á þessu móti voru rúmlega 80 tals- ins. Verðlaunapeningar voru gefnir af útibúi KB á Vegamótum. Móts- stjóri var Höskuldur Goði Karlsson skólastjóri Laugagerðisskóla. Úrslit mótsins urðu þessi: íþróttafélag Miklaholtshrepps 130 stig, Eldborg Kolbeinsstaðahreppi 94 stig, Ung- mennafélag Staðarsveitar 47 stig, Árroðinn Eyjahreppi 26 stig, Trausti Breiðuvíkúrhreppi 24 stig. Á meðan á mótsstarfi stóð mátti heita að væri þurrt veður og tókst þetta á allan hátt ljómandi vel. Segja má að hér sé góður íþrótta- andi meðal unga fólksins. Það var góð tilbreytni frá amstri daganna sem flestir eru sólarlausir og blaut- ir, að sjá þetta unga fólk hraust og frjálslegt í hörkuspennandi keppni. Páll Þorvaldur Halldórsson sér um tónlist á Sólardögum 89 ásamt öðru Ungu fólki með hlutverk. Ungt fólk með hlutverk: Sólardagar ’89 UNGT fólk með hlutverk, ásamt erlendum gestum, stendur fyrir dagskrá sem það kallar Sólardaga 89 á næstunni. Raðsamkomur verða í Seltjarnarneskirkju og samverustundir verða á Eiðis- torgi, í miðbæ Reykjavíkur og víðar næstu þrjár vikur. Átakið hefst í Seltjarnameskirkju sunnudaginn 30. júlí með kvöldmessu kl. 20.30 þar sem fram fer altaris- ganga og létt tónlist verður flutt. Séra Solveig Lára Guðmundsdóttir þjónar fyrir altari og Jóhann Guð- mundsson predikar. Ungt fólk með hlutverk og gestir þess leika á hljóðfæri, syngja, verða með leikræna tjáningu og fólk sem mætt hefur Jesú sem frelsara sínum verður með vitnisburði. Oll tónlist er í umsjá Þorvalds Halldórssonar. COMBICAMPtjaldvagnar SÝN Staðreyndir: Engin hælun — 15 sek. að tjalda 3 m3geymsla — Gólf íframtjaldi Stórir hjólbarðar — Góðar fjaðrir Vindþéttur og hlýr — Hátt endursöluverð Hagstætt verð — Góð greiðslukjör Opið: Laugardag kl. 10-17. Mánudag-föstudags kl.9-18. BENCO hf. Lágmúla 7, sími 84077.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.