Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JUU 1989
Sætin eru þægilega stinn og
halda farþegum sem ökumanni í
góðum skorðum. Gott rými er í
framsætum og þægilegt fyrir tvo
að sitja í aftursætum. Þriðji maður-
inn þar myndi þrengja nokkuð að
og væri sjálfsagt ekki vinsæll á lan-
gieiðum. Stillingar á sætum og ör-
yggisbeltum eru góðar en ekki er
laust við að mönnum finnist þeir
sitja full lágt svona fyrst í stað að
minnsta kosti. Það kemur þó ekki
að mikilli sök því útsýni úr bílnum
er ágætt.
Kraftmikiil
Eins og fyrr segir eru aksturseig-
inleikarnir það sem BMW státar af
í þessum bíl. Og hann rís alveg
undir nokkru lofi þar. Sérstaklega
fær hann plús fyrir kraft. í við-
bragðinu úr kyrrstöðu er eins og
hann sé ekki endilega mjög snöggur
en þurfi að herða á í framúrakstri
eða við aðrar aðstæður jafnvel á
mikilli ferð er hann fljótur að auka
hraðann eins og þarf. Góð gírskipt-
ing auðveldar líka leikinn en þegar
ekið er á helstu þjóðvegum er lítið
um að skipta þurfi niður fyrir ijórða
gír. Þannig má til dæmis auðveld-
lega aka honum í fjórða gír upp
Kamba á 90 km hraða og bæta við
ef þarf. Hámarkshraðinn er upp-
gefinn 198 km á klukkustund.
Annað sem einkennir BMW skut-
bílinn er hversu hljóðlátur hann er.
Ekki er um að ræða hávaða frá
vél, jafnvel ekki við mikinn snúning
og vegarhljóð er óverulegt. Við
akstur á íslenskum malarvegi nýtur
bíllinn sín líka vel. Hann fer vel í
holur og þvottabretti og fjöðrunin
er stíf þannig að óvæntar sveiflur
með afturendann eru naumast fyrir
hendi í venjulegum akstri. Akstur
á fáförnum malarvegum þar sem
hryggur er hár í miðju er hins veg-
ar ekki beint fyrir bíl sem þennan.
Stýrið gott nema hvað það er óþarf-
lega hijúft viðkomu. Eg segi ekki
að það sé eins og sandpappír og
víst á stýri ekki að vera gljáslípað
en það þarf ekki að vera svo hrjúft.
Varla þarf að fjölyrða mikið um
ak'stur í borg, þar leikur allt í hönd-
um bílstjórans. Með vökvastýri að
sjálfsögðu og góðu útsýni og spegl-
um er bíllinn næsta auðveldur í
meðförum og þetta finnur bílstjóri
eiginlega strax og hann sest undir
stýri. Það er eins og hann kannist
við þetta allt.
Dýr ánægja
BMW 320i skutbíllinn er vel bú-
inn og vandaður bíll. Frágangur er
góður og í farangursrými er verk-
færum þægilega fyrir komið í hólfi
og bæta má fleira smádóti við í
annað hliðarhólf. Þessi gerð kostar
kringum 1.840 þúsund krónur sem
er allmikið verð fyrir fjölskyldu-
bílinn. Fyrir þetta verð fæst hins
vegar ýmislegt. Fyrst og fremst
má ítreka ánægju í akstri í þessum
hljóðláta og kraftmikia bíl bæði á
malarvegum og malbiki. Þá er
vagninn traustvekjandi og vandað-
ur eftir stutta viðkynningu og
kringum 600 km akstur.
Ný bók um bílaviðgerðir
Bíllinn minn heitir ný bók sem
Vaka-Helgafell hefur gefið út. Eins
og nafnið bendir til ijallar hún um
bílinn, er handbók með hagnýtum
upplýsingum varðandi rekstur og
viðhald bíla. Bókin er gefin út í
samvfnnu við Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda og er eftir Anders
Gustafsson en Jóhannes Jóhannes-
son tæknifræðingur hefur þýtt hana
og staðfært.
Fyrsti kaflinn fjallar um ýmis
almenn atriði varðandi rekstrar-
kostnað, viðgerðir, verkfæri og þess
háttar. Næsti ijallar um hreyfilinn
og eru þar útskýrð ýmis atriði um
hvemig hann vinnur, smurkerfi,
eldsneytiskerfi, kælingu og fleira.
Þá er sérstakur kafli um rafkerfi
og annar um kveikjukerfið. Aflrás
heitir næsti kafli og síðan koma
kaflar um hjól og fjaðrabúnað, stýr-
isgang, hemla og að endingu eru
kaflar um umhirðu, viðhald og bil-
analeit.
Auk þess sem ijallað er um efnið
í texta eru birtar' myndir og teikn-
ingar til frekari skýringar. Þá er
skrá yfir efnisatriði bókarinnar svo
að auðvelt ætti að reynast að fletta
beint á viðkomandi síður. Sé orðið
viftureim tekið sem dæmi er bent
á kafla þar sem ijallað er um skipt-
ingu og strekkingu viftureimar og
síðan hvar minnt er á hana sem
nauðsynlegan varahlut í bílnum.
Listinn er þó fremur knappur og
aðeins birt þau orð sem notuð eru
í bókinni. Leiti maður til dæmis að
orðinu hljóðkútur eða pústkerfí eru
þau ekki fyrir hendi heldur er rætt
um útblástur og hvernig skipta
megi um útblásturskerfi.
Lýsingar á viðgerðum eru stuttar
og laggóðar og tekið er fram hvað
þarf að hafa við hendina af verk-
færum og varahlutum og síðan lýst
stig af stigi hvernig menn skuli
bera sig að. Þessi bók er því áreið-
anlega góður leiðarvísir þeim sem
vilja leggja í ýmsar minni háttar
viðgerðir og viðhald á bíl sínum.
Góðar myndir og teikningar eru til nánari útskýringar í bókinni
Bíllinn minn.
ÚOSÍÖ fustiskrúfurruu.
Hf;r er önftUf yetð af teimor
irttlliruju. Hör iujtf okki
fitnyn efta spurma ut rofaiine
tuiUfw otu fosi.skrúfur iosoð
ar OQ teimm strekkt mcA sór-
stakn Hfilliskriifu.
BMW 320i Touring:
Góðir aksturseiginleikar
Bílar
JóhannesTómasson
Aðlaðandi
Haltlid rafainutri { possari
Hfdftu 09 horftið fetiiískrút-
umor.
Bílaumboðið hf. í Reykjavík sem
annast innflutning á BMW hefur
að undanförnu kynnt BMW 320i
Touring, skutbílinn frá BMW. Auk
320i gerðarinnar er hann til sem
325i og þá með stærri vél og sem
fjórhjóladrifinn 325i ef menn vilja.
Hér er á ferðinni 320i sem er bíll
með sex strokka stórri vél, hlaðinn
aukabúnaði og allur hinn vegleg-
asti. Þetta er bíll sem gaman er að
aka og er verst að vera ekki sölu-
maður í Þýskalandi eða í öðru álíka
starfí og umhverfi sem krefst hrað-
skreiðra bíla til ferða á góðum veg-
um. En vissulega má líka nota BMW
skutbílinn hérlendis. Hann er hins
vegar ekki ódýr - vel búinn bíll sem
þessi kostar kringum 1.840 þúsund
krónur.
BMW verksmiðjurnar hafa til
þessa verið þekktar fyrir annað en
skutbíla en nú á að leggja áherslu
á að koma þeim á framfæri. Slag-
orð verksmiðjanna með þessari nýju
gerð er að sameina góða aksturseig-
inleika og hentugan bíl á marga
vegu. Taka verður undir það að
góðir aksturseiginleikar eru fyrir
hendi, það verður varla á betra
kosið. Kraftur, stöðugleiki, lítill
hávaði frá vél og almenn þægindi
við aksturinn gerir það að verkum
að bílstjóra líður vel.
Sjálfsagt má frekar deila um
hversu hentugur bíllinn er til
margra verka. Sem venjulegur
borgarbíll er hann skemmtilegur,
einnig til aksturs úti á vegum og
hann getur vissulega flutt eitt og
annað í góðu farangursrými. En það
má líka velja sér ódýrari bíla og
jafnvel hentugri hvað varðar hleðslu
og umgang ef menn eru bara að
leita að flutningatæki. Því verður
fremur að líta á BMW 320i Touring
sem venjulegan fjölskyldu- og
ferðabíl í dýrari flokknum.
BMW skutbíllinn er aðlaðandi
bíll. Hann er fremur látlaus og ekki
beint sportlegur en þó með léttu
yfírbragði ef svo má að orði kom-
ast um bíl. Stuðarar eru ekki áber-
andi, enda í sama lit og bíllinn sjálf-
ur nema mjó svört rönd, framljósin
tvö eru lítið áberandi í framendan-
um og afturljósin falla vel inn í
skutflötinn. Rúður eru allstórar og
þrátt fyrir að póstar séu nokkuð
verklegir eru þeir ekki áberandi.
Bíllinn virðist ekki stór séður að
utan en helstu mál eru þessi: Lengd
4,325 m, breidd 1,645 m og hæðin
er 1,38 m. Bíllinn vegur 1.230 kg
óhlaðinn og getur borið 480 kg og
75 kg á toppnum. Lengd farangurs-
rýmis séu sætin lögð niður getur
mest orðið 1,545 metrar. Vélin er
sex strokka, 2 lítra og 129 hestöfl.
Hann er fímm gíra, með sóllúgu,
rafdrifnum rúðum að framan og
útispeglum, samlæsingu með sérs-
takri þjófavöm og Iítill upplýsinga-
gluggi ofan framrúðunnar gefur til
kynna bilanir á perum í ljósum,
Stórar rúður veita gott útsýni og sóllúgan var meira að seg]a kærkom-
in þegar sjaldséð sól birtist á höfúðborgarsvæðinu einn daginn nýve-
rið.
stöðu olíu og vatns á rúðusprautum
og fleim. Stórir hraða- snúnings-
hraðamælar em mest áberandi í
mælaborði og er það vel útbúið.
Sérstaklega eru stefnuljósa- og
þurrkuarmar við stýrið þægilegir í
notkun.
Þá er beint framan við ökumann
BMW 320i Touring er látlaus skutbíll sem býr yfir ýmsum góðum eiginleikuin. Morgunbiaðið/BAR
Þetta er gott vinnuumhverfi -
bílstjórinn kann strax vel við sig
hér.
angursrýmið og með henni fela
dótið og draga jafnvel enn úr
vegarhljóði sem þó er mjög lítið.
Farangursrýmið er ágætt en
mætta opnast betur niður þar
sem ljósin eru.
mælir sem sýnir bensínnotkun í
lítrum miðað við 100 km. Sé ekið
á jöfnum hraða milli 80 og 100
sýnir mælirinn 8 til 10 lítra eyðslu
á hundraðið. Uppgefin eyðsla er
sögð rúmir 7 lítrar á 90 og tæpir
10 á 120 km hraða. í borgarakstri
er hún sögð vera 12,5 lítrar.