Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 18
C8GJ um .es aUOAQHAOUM OlQAJflKUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JULI 1989
Morgunblaðið/Þorkell
Bryiyólfur Jónsson, framkvæmdasfjóri Skógræktarfélags íslands, við
einn söfnunarbaukanna.
Safiiað fyrir landgræðsluskóg-
um meðal erlendra ferðamanna
SETTIR hafa verið upp söfnunarbaukar á 30 stöðum víðsvegar um
land til að safna meðal erlendra ferðamanna til ræktunar landgræðslu-
skóga. Þetta er liður í miklu átaki, sem Skógræktarfélag Islands, Land-
græðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins og landbúnaðarráðuneytið eru nú
að undirbúa fyrir næsta ár í tilefni 60 ára afmælis Skógræktarfélags
Islands. Gróðursett hafa verið allt að 2 milljónum tijáplantna í gróðurs-
nautt en friðað land. Búnaðarbanki Islands kostaði gerð baukanna sem
voru framleiddir hjá Sviðsmyndum hf.
Hugmyndin að söfnunarbauknum
var þróuð með ýmsum aðilum ferða-
þjónustunnar. Stjóm Ferðamálaráðs
Islands studdi þetta framtak, Félag
leiðsögumanna og Félag landvarða
hétu því stuðningi sínum með því
m.a. að kynna átakið fyrir eriendum
ferðamönnum eftir efnum og ástæð-
um.
Baukunum var komið fyrir á
ferðamannastöðum, m.a. Flugstöð
Leifs Eiríkssonar og við afgreiðslu
feijunnar á Seyðisfirði, um og upp
úr miðjum júlí. Þeim er ætlað að
standa út næsta ár. í sumar fæst
því reynsla af söfnunarbaukunum,
sem mun nýtast næsta sumar —
átaksárið.
I frétt, sem Morgunblaðinu hefur
borist, segir að þetta sé fyrsta til-
raunin til að safna til uppgræðslu
landsins meðal erlendra ferðamanna,
en slíkt hafí verið gert erlendis með
góðum árangri. Þar megi t.d. benda
á glæsilegan árangur í ísrael, þar
sem svokallaður Þjóðarsjóður gyð-
inga hafí lyft grettistaki í upp-
græðslu landsins, klætt eyðimörkina
grænum skógum fyrir gjafafé frá
innlendum og erlendum mönnum.
Erlendir gestir sem þangað koma séu
hvattir til að leggja skógræktinni lið
og hafi margir, m.a. þjóðhöfðingjar,
skilið eftir heilu skógana í minningu
um heimsókn sína.
Þá segir í fréttinni, að ef vel ta-
kist til með söfnunina meðal erlendra
ferðamanna mætti vel reyna að
fylgja fordæmi gyðinga og fá erlenda
þjóðhöfðingja og önnur stórmenni til
að gefa til skógræktar í tilefni heim-
sóknar sinnar. Skógarlundir eða
skógarhlutar yrðu síðan nefndir eftir
þeim eða löndum þeirra.
Listahátíðin Hunda-
dagar hefst á morgun
Mynd ágústmánaðar í Listasafrii íslands „Úr Þingvallahrauni“ eftir
Finn Jónsson.
Listasafii íslands:
Mynd ágústmánaðar
HUNDADAGAR hefjast sunnu-
daginn 30. júlí, listadagar í
Reykjavík sem Tónlistarfélag
Kristskirkju, Alþýðuleikhúsið og
Listasafii Sigurjóns Ólafssonar
standa fyrir. A Hundadögum
Neftid endur-
skoðar lista-
mannalaun
Menntamálaráðherra hefiir
skipað nefnd sem fjalla á um
launamál listamanna i því skyni
að gera tillögur um nýtt fyrir-
komulag á listamannaiaunum.
Nefndinni er ætlað að skila fyrstu
niðurstöðum sinum fyrir nóvemb-
erlok.
í nefndinni eru Ragnar Amalds
alþingismaður, sem jafnframt er for-
maður, Eiður Guðnason alþingismað-
ur, Gerður Steinþórsdóttir kennari,
Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri og
formaður Bandalags íslenskra lista-
manna, og Guðný Magnúsdóttir
myndlistarmaður.
koma fram um það bil hundrað
listamenn úr flestum listgreinum.
Helstu atriði á Hundadögum eru
Macbeth, sýning Alþýðuleikhússins,
og nýja íslenska óperan „Mann hef
ég séð“ eftir Karólínu Eiríksdóttur.
Þá verður fjöldi kammer- og ein-
söngstónleika í óperunni.
Fyrstur kemur þar fram Martin
Berkovsky píanóleikari, þá spilar
Miami-strengjakvartettinn nýstofn-
aði sem leikið hefur víða og hefur
þegar unnið til verðlauna. I Miami-
kvartettinum leika þær Sigrún Eð-
valdsdóttir og Ásdís Valdimarsdóttir.
Aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, Peter Sakari,
kemur með píanótríóið sitt frá Finn-
landi sem kailar sig Tríó Kauniainen.
Þá munu Manuela Wiesler, Einar
Jóhannesson og Þorsteinn Gauti
leika einleiks- og tríótónlist eftir
íslensk tónskáld.
Hljómsveitin sem spilar í óperunni
mun ekki láta sinn hlut eftir liggja
og mun koma fram á sjálfstæðum
hljómsveitartónleikum undir stjórn
franska stjómandans Pascal Verrot.
Hljómsveitin er skipuð ungum hljóð-
færaleikurum sem ýmist eru starf-
andi eða við nám erlendis. Gesta-
stjómandi á tónleikunum verður
Hákon Leifsson.
Aðrir tónleikar verða annars stað-
ar en í íslensku óperunni. David
Tutt spilar í Listasafni Siguijóns
Ólafssonar þriðjudaginn 1. ágúst kl.
20.30. Þá verða djasstónleikar með
Ghanamanninum Cab Kaye í Lista-
safni Siguijóns Ólafssonar föstudag-
inn 4. ágúst kl. 20.30. Orgeltónleik-
ar, helgaðir eingöngu verkum eftir
franska tónskáldið Olivier Messiaen,
verða í kirkju Krists konungs í
Landakoti.
Þijár málverkasýningar verða á
Hundadögum. Kristján Davíðsson
sýnir andlitsmyndir í Listasafni Sig-
uijóns. Þá sýna Cheo Craz Ulloa og
Sigurður Örlygsson málverk í and-
dyri og á göngum íslensku óper-
unnar. Amgunnur Ýr sýnir málverk
í Gallerí Nýhöfn. Ungu skáldin
standa fyrir uppákomum á miðviku-
dagskvöldum í ágúst á Borginni. Þar
verða flutt ljóð, leikrit og stuttmynd-
ir.
Hundadagahátíðin hefst með há-
messu í Landakotskirkju 30. júlí og
með frumsýningu á Macbeth kl.
20.30 sama dag í Óperanni.
(Úr fréttatilkynningu)
MYND ágústmánaðar í Listasafni
íslands er „Úr Þingvallahrauni"
eftir Finn Jónsson listmálara.
Hér er um að ræða olíumálverk
frá árinu 1953 og er stærð þegs
108x109 cm. Listamaðurinn ogeig-
inkona hans, Guðný Elíasdóttir,
gáfu Listasafninu málverkið árið
1985 og er það til sýnis í sal 2.
Leiðsögnin „Mynd mánaðarins"
fer fram í fýlgd sérfræðings á
fimmtudögum kl. 13.30—13.45 og
er safnast saman í anddyri safns-
ins. Leiðsögnin er ókeypis og öllum
opin.
Listasafnið er opið alla daga
nema mánudaga kl. 11—17 og er
veitingastofa safnsins opin á sama
tíma.
Helsinki-listahátíðin;
Guðmundur Emilsson stjóm
ar hljómsveitinni Avanti!
Fátítt að utanaðkomandi stjórni sveitinni
GUÐMUNDI Emilssyni, framkvæmdastjóra og stjórnanda Islenzku
hljómsveitarinnar, hefur verið boðið að stjórna finnsku hljómsveit-
inni Avanti! á Helsinki-listahátíðinni í lok ágúst. Avanti! er ein þekkt-
asta hljómsveit Norðurlanda og hefur orðstír hennar farið víða um
heim. Það er fátítt að utanaðkomandi sljómandi fái að starfa með
hljómsveitinni, þvi að hún starfar helzt ekki nema með stofiiendum
sínum, þeim Esa-Pekka Salonen og Jukka-Pekka Saraste.
„Það fylgir vandi vegsemd
hvefri, og ég geri mér fulla grein
fyrir því að þetta er bæði heiður
og viðurkenning fyrir mig sem
hljómsveitarstjóra, en jafnframt er
þetta erfitt verkefni," sagði Guð-
mundur Emilsson í samtali við
Morgunblaðið. „Avantil-hljómsveit-
in er mjög sérstök hljómsveit. Hún
var stofnuð 1983 af tveimur ung-
um, finnskum stjómendum, þeim
Salonen og Saraste, sem höfðu
djúpstæða þörf fyrir að láta til sín
taka og öðlast reynslu í hljómsveit-
arstjóm, en það er yfirleitt ekki
auðsótt mál. Þeir söfnuðu í kring
um sig í kammerhljómsveit ungum
tónlistarmönnum, sem flestir eiga
það sameiginlegt að hafa útskrifazt
úr Sibeliusar-akademíunni í Hels-
inki. Þama vora því ekki neinir
aukvisar á ferðinni þótt sveitin
væri ekki mjög stór.“
Guðmundur sagði að markmið
hljómsveitarinnar væri að koma á
framfæri tónlist, sem ella heyrðist
sjaldan. „Það er oftast þannig með
hljómsveitir að fyrst er hljómsveitin
sett saman og síðan athugað hvað
hægt er að láta hana spila. Salonen
og Saraste sneru þessu við og
spurðu fyrst: „Hvaða tónverk vilj-
um við heyra?" og síðan sníða þeir
hljómsveitina að tónverkinu hveiju
sinni. Avantií-hljómsveitin getur
þess vegna verið allt frá einni
flautu og upp í fullskipaða Beetho-
ven-hljómsveit og allt þar á milli.
Það má lýsa henni þannig að hún
sé bæði sveigjanleg og fersk.“
Frá stofnun Avanti! hefur hún
bæði náð að skapa sér sess heima
og erlendis og einnig hafa stjórn-
endur hennar, sem áður vora
óþekktir utan Finnlands, orðið
heimsfrægir menn. Líklegt þykir
að Esa-Pekka Salonen taki bráð-
lega við stjóm Los Angeles-
fílharmóníusveitarinnar. Hljóm-
sveitin starfar helzt ekki með nein-
um öðram stjómendum en stofn-
endum sínum. Þann tíma sem þeir
sinna öðram verkefnum starfar hún
sem kammersveit án hljómsveitar-
stjóra. Meðlimir úr sveitinni hafa
þó tekið að sér æfíngastjóm við
og við.
Guðmundur sagði að boðið um
að stjóma Avanti! væri til komið
fyrir milligöngu dr. Ilkka Oramos,
framkvæmdastjóra sveitarinnar.
Þeir hefðu kynnzt fyrir um tíu
áram við dómnefndarstörf fyrir
norræna tónlistardaga. Dr. Oramo
er jafnframt yfírmaður tónvísinda-
deildar Sibeliusar-akademíunnar.
„íslenzka hljómsveitin bauð honum
til íslands í vor til að halda fyrir-
lestra á tónvísindahátíðinni okkar,“
sagði Guðmundur. „Hann fór þá
að tala um að það væri gaman ef
ég fengist til að koma til Finnlands
að stjóma hljómsveitinni, en hann
hafði fylgzt með hljómsveitarstjórn
minni á norrænni tónlistarhátíð hér
í Reykjavík árið 1986. Vandinn
væri bara sá að hún fengist ekki
til að vinna með neinum öðram en
sínum eigin stjórnendum."
Guðmundur fór svo til Finnlands
í sumar í boði Oramos og kynntist
starfsemi og meðlimum Avanti! á
tónlistarhátíð sveitarinnar. Hann
segir að íslenzka hljómsveitin og
Avanti! eigi það sameiginlegt að
vilja leggja áherzlu á nútímatónlist
og verk ungra tónskálda og hvetji
ungt tónlistarfólk til dáða. A hátíð-
inni hitti Guðmundur Esa-Pekka
Salonen í annað sinn, en hann hafði
áður heyrt Guðmund stjórna verki
eftir sig á Ung nordisk muskikfest
í Reykjavík 1982.
Áður en Finnlandsdvöl Guð-
mundar var úti, höfðu þeir Esa-
Pekka Salonen og dr. Oramo haft
samband við framkvæmdastjóra
Helsinki-hátíðarinnar og fengið
hann til þess að breyta áður ákveð-
inni dagskrá þannig að Guðmundi
yrði boðið að stjórna Avanti! á ein-
um tónleikum 29. ágúst. „Vinsemd
Salonens er ekki lokið með þessu,
hann hefur boðað komu sína hing-
að til íslands næsta vetur til þess
að styðja við bakið á Islenzku
hljómsveitinni," sagði Guðmundur.
„Ég geri mér grein fyrir því að
Avantil-hljómsveitin er ljónagryfja
á köflum, þótt hljóðfæraleikararnir
séu dásamlegir tónlistarmenn. Ég
fylgdist með þeim bæði á æfingum
og tónleikum á hátíðinni í sumar
og þar héldu þau þijátíu og fimm
tónleika á sjö dögum, geri aðrir
betur. Þau æfðu myrkranna á
milli,_ en spiluðu allt eins og engl-
ar. Ég mun bara reyna að gera
mitt bezta og vera vandanum vax-
inn,“ sagði Guðmundur. Hann
sagði að tónleikamir hefðu enn
meiri þýðingu fyrir sig en ella að
því leytinu, að þeir yrðu lokatón-
leikar hans til doktorsprófs í hljóm-
sveitarstjómun við háskólann í
Indiana í Bandaríkjunum.
Guðmundur gerði tillögur að
verkefnavali fyrir tónleikana, þar
á meðal um þijú íslenzk verk. For-
ráðamenn hátíðarinnar völdu eitt
þeirra til flutnings, Poemi eftir
Hafliða Hallgrímsson, sem fékk
tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
1985.
Helsinki-hátíðin er stærsta lista-
hátíð á Norðurlöndum og þangað
er til dæmis ævinlega boðið tveim-
ur erlendum sinfóníuhljómsveitum.
Einnig kemur fram fjöldi finnskra
tónlistarmanna. ÓÞS