Morgunblaðið - 29.07.1989, Síða 22

Morgunblaðið - 29.07.1989, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúarritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík FlaraldurSveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ÁgústlngiJónsson. BaldvinJónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. „Þetta gengur ekki lengur!“ ingmaður Framsóknar- flokksins, Guðmundur G. Þórarinsson, sker upp herör gegn stefnu ríkisstjómarinnar í ríkisfjármálum í grein í Tímanum sl. fimmtudag. Hann staðhæfír að það stefni, að öllu óbreyttu, í sautján þúsund milljóna króna ríkissjóðshalla á tveimur árum (1989 og 1990), þrátt fyrir stóraukna skattheimtu. „Þetta gengur ekki lengur,“ segir þingmaður- inn, „ráðið til að bregðast við tapi ríkissjóðs er að skera upp ríkiskerfið. Það þarf að sam- eina stofnanir, leggja niður stofnanir, hætta rekstri sem þegnamir í landinu geta sjálfir séð um. Við veljum ekki ráð- herra til að reka stálsmiðjur eða ferðaskrifstofur." Ástæða ér til að taka undir þessi sjónarmið. Það er megin- mál að hemja ríkisútgjöldin. Ríkisbúskapurinn verður að laga sig að efnahagslegum vemleika í samfélaginu. Þegar samdráttur er í þjóðarfram- leiðslu og/eða þjóðartekjum, „þegar herðir að hjá atvinnu- Íífi og launþegum," eins og þingmaðurinn kemst að orði, gengur ekki að ríkisbúskapur- inn hrifsi til sín stærri og stærri skiptahlut. Guðmundur G. Þórarinsson segir orðrétt: „Líklega em um 70% út- gjalda ríkisins laun. Fækkun ríkisstarfsmanna er erfítt mál þegar atvinnuleysi hefur hald- ið innreið sína. En er ekki hagræðing og fækkun starfs- fólks einmitt það sem ríkis- stjórnin krefst af atvinnulíf- inu? A það að vera einvörð- ungu til þess að ríkið þurfi ekki að fækka hjá sér? Stór- felldur uppskurður kerfisins, sameining stofnana og fækkun þeirra er því miður þjóðar- nauðsyn. Hjá því verður ekki komizt." Þingmaðurinn gerir og lítið úr léttvægum viðbrögðum íjár- málaráðherra gegn fyrirsjáan- legum fjárlagahalla: „Mönnum finnst einfalt að leysa vanda ríkissjóðs með inn- lendri lántöku. Auðvitað hækkar það vexti, tekur hið takmarkaða lánsfé frá at- vinnulífinu. Enn á ný er hugs- unin sú að aðalatriðið sé að ríkissjóður nái sínu. Lánsfjár- þörfin minnkar ekki við það. Aðrir verða að taka erlend lán eða fá engin. Það skiptir e.t.v. ekki máli ef ríkissjóður fær sitt. Flýting launaskatts verk- ar á sama hátt. Fyrirtækin sem em í vanda verða að taka auk- in lán til þess að bæta greiðslu- stöðu ríkissjóðs.“ Grein Guðmundar G. Þórar- inssonar, þingmanns Fram- sóknarflokksins, verður vart túlkuð nema sem andóf gegn stefnu Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra — og ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar — í skatta- og ríkisfjármálum. Hún ber þess vitni að éfasemdir og óánægja með stjómarstefnuna og fram- kvæmd hennar ná langt inn í raðir stuðningsmanna hennar. Þar vex sjónarmiðum fylgi, sem einkennt hafa gagnrýni stjórnarandstöðunnar. Hvorki greinarhöfundur né aðrir þing- menn stjómarflokkanna kom- ast þrátt fyrir það hjá pólitískri ábyrgð á stjórnarstefnunni eða framkvæmd hennar í höndum einstakra ráðherra meðan þeir ljá ríkisstjóminni stuðning sinn á þingi. Núverandi ríkisstjórn hefur stóraukið skatta, bæði á at- vinnulífið og almenning, þrátt fyrir samdrátt í þjóðarbú- skapnum. Hún hefur, ásamt ytri aðstæðum, skekkt rekstr- arlega undirstöðu atvinnuveg- anna. Hún hefur þráast við að skrá gengi krónunnar til sam- ræmis við efnahagslegan veru- leika atvinnulífsins. Fyrir- tækjadauði hefur verið tíður og atvinnuleysi er meira en verið hefur í tvo áratugi. Að- stoð félagsmálastofnana til hjálparþurfandi fólks hefur vaxið mikið frá liðnu ári. Ríkis- stjómin tekur stærri hlut ríkis- sjóðstekna í verði vöru og þjón- ustu en grannríki með tilheyr- andi áhrifum á verðlag. Hún berst gegn því að opna lána- markaðinn. Og hún hefur bafnað öllum tillögum sjálf- stæðismanna um breyttar áherzlur í skattamálum. Ábendingar stjórnarþing- mannsins Guðmundar G. Þór- arinssonar í Vettvangi Tímans eru góðra gjalda verðar. Hann segir í raun allt sem segja þarf um stjórnarstefnuna i fjómm orðum: „Þetta gengur ekki lengur!“ Þau orð þarf þingmaðurinn að staðfesta í verki. Perluköfiin og bedúína- líf heyrir nú til fortíðinni SMÁRÍKIÐ Qatar teygir sig út í Persaflóa eins og bólginn þumalfíng- ur. Ætla mætti að lega landsins þætti hernaðarlega mikilvæg. En raunin er sú að Qatar var ekki merkt almennilega inn á landabréf fyrr en á síðustu öld, ekki einu sinni sjókort. Þá var engin aðstaða fyrir skipalægi og uppi á landi var ekki vatn að hafa. Þannig hefst grein eftir dr. Hussein Shehadeh um arabiska dvergríkið Qatar, sem fáir þekkja. Dr. Shehadeh er lesendum Morgun- blaðsins kunnur og birtar hafa verið eftir hann ýmsar greinar um málefíii Arabalanda síðasta ár. Hann er Palestínumaður en búsettur í Danmörku og skrifar bæði fyrir skandinavísk blöð og arabísk. Hann var gestur Blaðamannafélags íslands fyrir ári og flutti þá fyrirlestur í Norræna húsinu um málefíii Arabalanda við miklar og góðar undir- tektir. Hann var nýlega í Qatar og ritaði greinar um ríkið að ferð lok- inni. Hann veltir fyrir sér þróun mála í þessu litla eyðimerkurríki, sem sjaldan kemst í fréttir utan síns heimshluta. Ríki sem var bed- úínaland þar til fyrir Qórum áratugum að olía fannst og hefur breytt lifnaðarháttum Qatara. Til hins betra eða verra? Það er auðvitað áhorfsmál. Qatar teygir sig um 200 kíló- metra út í flóann. Bedúínar höfðu haldið til á Arabíuskaganum um aldir og farið á milli vinja eftir sér- stökum lögmálum til að tryggja skepnum sínum, úlföldum, geitum og sauðkindum fæðu. Venjulega komu bedúínarnir aðeins til Qatar- skagans yfir vetrarmánuðina, en héldu sig í Nejd og Hasa í mið- og austurhluta Arabíu á öðrum árstím- um. Hver ættbálkur hafði sitt sér- staka yfirráðasvæði, kallað dirah. Óskráð lögmál voru að ættbálkur- inn færi alls ekki út af sínu svæði. Hvert ættbálkasvæði var vandlega afmarkað, þótt hvergi væru nein landamerki í sandauðninni og þetta segir sína sögu um háþróaða tilfinn- ingu bedúína landfræðilega séð. Yfir hveq'um ættbálki vár höfðingi — sheik — sem bar ábyrgð á vel- ferð síns fólks. Ekki var hann endi- lega óskeikull og annar í ættbálkn- um gat gert tilkall til stöðunnar, en varð að sanna styrk sinn og hæfileika áður en ættbálkurinn við- urkenndi hann. Bedúínar Iifðu á mjólk og döðl- um. Kjöt var sjaldgæfur lúxus hjá þeim. Þeir bjuggu í tjöldum, gerðum úr geita- eða úlfaldaull og urðu að þola bæði vetrarkulda eða sumar- hita. Tilvera og lífsbarátta bedúínanna var hörð og óvægin að mörgu leyti. Þessi erfíðu lífskjör áttu þó sinn þátt í að þeir fundu hjá sér hvöt til að tileinka sér háleitar siðfræði- legar hugsjónir. Þeir virtu þá eigin- Jeika sem gerðu manninum kleift að lifa af í eyðimörkinni: hugrekki, þolgæði, varkámi og samheldni. En þeir höfðu einnig aðrar langanir sem aðeins óbeint vom þó nauðsyn- legar forséndur til að þrauka: gest- risni, höfðingslund, umburðarlyndi, réttlætiskennd og fúsleika til að fyrirgefa. Gestrisni bedúinanna varð annáluð. Hversu fátækur sem bedúíninn var hikaði hann ekki við að slátra eina dýrinu sínu til að geta boðið gesti til veislu — þó svo að um væri að ræða ókunnan mann. Það gat orðið til að fjölskyldan varð að svelta, en hún hafði þó altjent haldið lögmál gestrisninnar og látið hag náungans sitja í fyrirrúmi um eigin hag. Vegna þeirra ytri aðstæðna sem bedúíninn bjó við í eyðimörkinni voru reglur samfélagsins aldrei á tabúla skráðar. En ótvíræður lýð- ræðishugsunarháttur virðist hafa ríkt meðal bedúínanna, þótt engar væru stofnanir til að framfylgja lýðræðishugmyndum þeirra né neins konar yfírbygging. Sama gilti um fleira. Listrænar hneigðir bed- úínans leituðu ekki útrásar í hand- verki heldur í orðum. Áhöld og tæki voru ekki mörg í venjulegum tjaldbúðum, aðeins var hugsað um það nauðsynlegasta. En í öllum búðum var skáldið eða frásagnar- maðurinn. Listin að yrkja, segja frá, búa til sögur var í miklum metum og skáldið naut virðingar í samræmi við það. Sá maður sem átti hvað drýgstan hlut að því að ríkið Qatar varð til var Jassim sheik. Hann var hraust- menni og mikill baráttumaður. Ekki síður aflaði hann sér þó viðurkenn- ingar er hann orti áhrifamikið harmljóð eftir Nuru konu sína. Nú á tímum hafa bedúínarnir, eða kannski ætti að kalla þá fyrrver- andi bedúína langflesta, fastan samastað og eru í óða önn að laga sig að breyttum heimi. Ljóð þeirra snúast nú oftar um chevrolet-trylli- tæki og MIG-flugvélar en um úlf- alda og töfra og leyndardóma eyði- merkurinnar. Við ströndina bjuggu einnig bed- úínar og færðu sig ekki jafn reglu- lega til og þeir sem voru inni í landinu. Þeir lifðu á að draga fisk úr sjó eða kafa eftir perlum. Þetta átti sérstaklega við um Qatar, en undan ströndum þess voru auðug ostrumið. Samt var lff fiskimann- anna óg perlukafaranna ekki síður ótryggt og erfítt og bedúínanna sem Hussein Shehadeh fóru um sandana. Að sönnu voru til nokkrir perlukafarar sem áttu mikið undir sér, en þessi atvinnu- grein lagðist af upp úr 1930, þegar japanskar gerviperlur fóru að flæða yfir markaðinn. Þegar kreppa var í Evrópu á fjórða áratugnum voru einnig mjög erfiðir tímar á svæðun- um við flóann, matur var af skorn- um skammti og fjöldi manns svalt til bana. Það má nærri geta að það var mikið áfall þegar perluköfunin lagð- ist af, þar sem náttúruperlurnar höfðu verið undirstaðan í efnahag og atvinnulífi fólksins sem þarna hafðist við. Perluköfun var heldur ekkert grín heldur púlvinna og mjög hættuleg. Notaðir voru sérhannaðir bátar, flestir smíðaðir í íran eða Bahrein og áhöfn var 16 manns. Lagt var upp á mörgum bátum og höfðu þeir samflot út. Hvetjum báti var úthlutað ákveðnu svæði. Vertíðin hófst 1. maí og bátarnir sneru ekki heim fyrr en vertíðin var á enda í septemberlok. Kapteinn, kafarar, siglingafræðingar, lærl- ingar og kokkar bjuggu allir við sömu skilyrði undir steikjandi sum- arsól. En hlutskipti kafaranna var áreiðanlega erfiðast. Einatt voru kafararnir þrælar, sem höfðu verið fluttir til þessa heimshluta í því skyni að þjálfa þá í perluköfun. Á fengsælustu miðunum voru straum- ar sterkir og hættulegir og hákarlar voru þama á sveimi. Ótaldir voru þeir kafarar sem skaut aldrei upp og lentu annað hvort í hákarls- kjafti eða drukknuðu. Said Mubarak al-Badedd, þekkt- ur fyrrverandi kafari í Qatar, hefur lýst köfuninni: „Vinnan hófst við sólampprás. Ég kafaði niður og vom bundin um mig tvö reipi, á öðm var lóð til að festa það við botninn. Hitt var bundið um ökkl- ann og á það settur poki, ekki ólík-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.