Morgunblaðið - 29.07.1989, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARÐAGUR 29. JÚLÍ 1989
Hittígegnum Hörpuspjaldið
Pollameistararnir í 6. flokki Þórs voru iðnir frímiðar á leik Þórs og Fylkis í 1. deild íslands-
við að reyna að hitta í gegnum götin á Hörpu- mótsins. Þegar ljósmyndara bar að, hafði ein-
spjaldinu, sem stillt hafði verið upp í göngugöt- ungis einum tekist að hitta, en þá var nógur
unni í gær. Ollum vegfarendum gafst kostur á tími til stefnu, svo eflaust hafa miðarnir allir
að spreyta sig með þeim, en í boði voru tíu gengið út að lokum.
Grímsey:
Endurbætur á
flugbrautinni
UNNIÐ verður að endurbótum á
flugbrautinni i Grímsey í sumar,
og er ráðgert að lengja hana um
300 metra til norðurs. Þorlákur
Sigurðsson, oddviti í Grímsey,
sagði að líklega myndi verkinu
ekki Ijúka fyrr en með haustinu,
en töluvert þarf að sprengja, til
þess að hægt sé að lengja braut-
ina.
Þorlákur sagði þessa fram-
kvæmd nýtast Grímseyingum á
ýmsan hátt, því ,auk þess að vera
augljós endurbót á flugbrautinni,
þá fengist líklega gróft gijót til
þess að nýta við endurbætur á höfn-
inni.
„Það stendur til að hefja endur-
bætur á innri höfninni hjá okkur
næsta vor, og gera hana skjólsælli.
Er meiningin að gera bryggju þar
sem hægt verður að leggja smábát-
unum að allt árið, en það hefur
ekki verið hægt fram að þessu,“
sagði Þorlákur.
Rósa sýnir í
Gamla Lundi
MYNDLISTARKONAN Rósa Ing-
ólfsdóttir sýnir 36 sjónvarps-
grafíkmyndir í Gamla Lundi frá
og með deginum í dag, en sýning-
unni lýkur sunnudaginn 6. ágúst.
Á sýningunni er að finna þrjár
myndraðir, sem Rósa hefur unnið í
tengslum við starf sitt á Sjónvarp-
inu, og nefnast þær: „IConur í
íslenskri ljóðlist", „Það er leið út“
og „Óðurinn til krónunnar". Fyrr-
nefndu myndraðirnar eru blýants-
teikningar en „Óðurinn til krónunn-
ar“ er silkiprentaður og unninn með
blandaðri tækni.
Kaup á nýrri Hríseyj-
ar ferj u enn á dagskrá
KAUP á feiju eru enn á dagskrá hjá okkur, þó svo að ekkert hafi
orðið úr kaupum nú, og vona ég að við fáum nýja ferju á þessu
ári,“ sagði Guðjón Björnsson, sveitarstjóri í Hrísey, þegar Morgun-
blaðið innti hann eftir því hvort kaupum á nýrri feiju hefði verið
frestað fram á næsta ár. „Þetta er ekki rétti tíminn til að huga að
feijukaupum. Þær eru í stöðugri notkun nú yfir sumarið, og verð
því mjög hátt.“
Guðjón sagði að Hríseyingar
hefðu haft augastað á norskri feiju,
sem var til sölu, en ekkert litist á
verðið á henni, og því var ákveðið
að bíða með kaup á nýrri feiju þar
til í haust, og athuga þá hvort ekki
verði hægt að fá eina slíka á skikk-
anlegu verði. Hann sagði að gert
væri ráð fyrir 35 milljónum króna
á lánsfjárlögum til kaupa á feij-
unni, en kvaðst reikna með að
hærri fjárhæð þyrfti til að greiða
►Sumartónleikar:
Capella media
heldur tónleika
TRÍÓIÐ Capella media heldur
tónleika um þessa helgi í Akur-
eyrarkirkju, Húsavíkurkirlq'u og
Reykjahlíðarkirkju.
Tríóið er skipað tveimur Vestur-
Þjóðveijum, sem leika á lútu og
/ítar. en þriðji meðlimurinn er
ísiensk söngkona frá ísafirði; Rann-
veig Sif Sigurðardóttir, sem verið
hefur við söngnám í Austurríki
undanfarin þijú ár.
Tríóið Capella media var stofnað
í Austurríki árið 1987 og hefur
haldið tónleika í Vestur-Þýskalandi,
þetta eru hins vegar fyrstu tónleik-
ar þess hér á landi.
A efnisskránni eru verk eftir
Tobías Hume og John Dowland, og
að venju verður fyrst leikið í Akur-
eyrarkirkju á sunnudag kl. 17, þá
á Húsavík á mánudag kl. 20.30,
og loks i Reykjahlíðarkirkju á
þriðjudag kl. 20.30.
fyrir hana að fullu.
„Við erum að leita að u.þ.b. 300
tonna feiju, sem getur annað bæði
þungaflutningum fyrir okkur, svo
og farþegaflutningum," sagði Guð-
jón. „Þá verður þessi nýja feija
ekki einungis í áætlunum til
Hríseyjar, því einnig er í bígerð að
hún verði í flutningum til Grímseyj-
ar tvisvar í viku. Staðreyndin er
nefnileg sú að eyjarnar eru ekki
alveg sjálfbjarga, og þurfa stærri
fleytu til að annast þungaflutn-
inga,“ sagði Guðjón
Þorlákur Sigurðsson, oddviti í
Grímsey, tók undir þessi orð sveit-
arstjórans, og sagði að kaup á feiju
hefði mikla þýðingu fyrir Grímsey-
inga.
„Ríkisskip eiga erfitt með að
koma hér upp að — það má ekkert
vera að veðri — og því hefur oft
liðið langur tími á milli þess sem
skip frá þeim hafa getað lagst að
bryggju hér hjá okkur,“ sagði Þor-
lákur, og kvað það jafnvel hafa
skipt mánuðum.
„Sérstaklega kemur það baga-
lega við okkur að geta ekki sent
frá okkur fisk, sem búið er að meta,
auk þess sem það getur verið erfið-
leikum bundið að fá flutta hingað
þyngri hluti eins og vélar,“ sagði
oddvitinn að lokum.
Kennarar
Kennarar óskast til starfa við sérdeildir í
SVIFFLUG
frá Melgerðismelum
„Má bjóða þér
í f lugferð?"
Flugvikan stendur nú yfir
til 7. ágúst.
Opiðfram á kvöld.
s.
Löngumýri 9 og 15.
Upplýsingar gefur Trausti Þorsteinsson, fræðslustjóri,
sími 96-24655.
m
| Meira en þú geturímyndad þér!
Grund II og bændakirkjan að hálfii, eru til sölu. Morgunbiaðið/KJS
Grund II til sölu:
„Hef ekki kvóta til
að standa í skilum“
- segir Þórður Gunnarsson, bondi
„Það er ekki um annað að gera en að reyna að selja þessa jörð;
mjólkurframleiðslukvótinn er ekki nema 128.000 lítrar, og það er
alls ekki nóg til þess að hægt sé að borga af jörðinni og framfleyta
jaftiframt fjölskyldu. Ég hef því einfaldlega ekki kvóta til þess að
standa í skilum,“ sagði Þórður Gunnarsson, bóndi á Grund II, í sam-
tali við Morgun-blaðið um ástæður þess að hluti þessa landsfræga
höfuðbóls væri til sölu.
Þórður keypti jörðina fyrir sjö
árum ásamt bróður sínum, og hans
fjölskyldu, og sagði að þá hefði
þeim verið gefin fögur fyrirheit um
framleiðslu sem dyggði til þess að
borga af kaupunum. Framleiðslu-
kvótinn var síðan settur á árið eft-
ir, og þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir
um aukinn kvóta, hafðist ekkert
upp úr krafsinu.
„Ástæðan fyrir því að við fengun
ónógan kvóta, var sú að enginn
búskapur hafði verið á jörðinni áður
en við keyptum. Eftir það tók við
þrautarganga frá einum ráðamanni
til annars, en engin úrlausn fékkst.
Ég hefði þurft að fá svona 30-50
þúsund lítra í viðbót fyrir ári síðan
til þess að eygja von um að geta
staðið við mínar skuldbindingar.
Ég vildi hins vegar ekki trúa öðru
en því að mjólkurframleiðsla hér á
þessari jörð, sem er ein sú besta í
héraðinu, borgaði sig. Stefna
stjórnvalda er hins vegar sú, að í
staðinn fyrir að hvetja til fram-
leiðslu þar sem hún er ódýrust, þá
er verið að sækja mjólk upp um
fjöll og firnindi, og það geta allir
séð, hversu hagkvæmt það er fyrir
neytendur," sagði Þórður Gunnars-
son.
Leiðrétting
Blaðamanni varð heldur betur á
í meðferð mannanafna sem birtust
í frétt á Akureyrarsíðu í gær.
Framkvæmdastjóri Magnúsar
Gamalíelssonar hf. á Ólafsfirði var
réttnefndur Svavar Magnússon í
upphafi greinar, en upp frá því
nefndur Magnús. Framkvæmda-
stjóri ÚA var nefndur Þorsteinn
Vilhelmsson, en hið rétta er að
hann heitir Vilhelm Þorsteinsson.
Þá var Þorsteinn Baldvinsson hjá
Samheija sagður Baldursson. Er í
raun ótrúlegt hvað mörg mistök
áttu sér stað í ekki lengri grein,
og er innilega beðist afsökunar á
þessu.
TIOI J