Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
Kanadískir skipasmiðir:
Kafbátur fyrir þá
sem minna mega sín
Sfjórnarformaður Stratas, Peter Spencer, aðalhluthai! í stóru lög-
fræðingafyrirtæki í Halifax segir nýja kafbátinn koma þeim þjóðum
að góðu gagni sem ekki hafa efiii á kjarnorkukafbátum. „Hann hef-
ur ekki stóran kjarnaofii sem þarfhast hefðbundinnar kjarnorku-
tækni. Við höfiim leyfi til að selja vinaþjóðum kaft)átinn.“ Iiann vildi
ekkert segja um fréttir af því að Tyrkir ætli sér að gera samning
við Stratas og kaupa fímm kafbáta fyrir 1,2 milljarða dollara.
eftir Ron Laytner
í Kanada er verið að þróa nýja
gerð af kafbátum sem kemur til með
að gerbreyta öllum aðstæðum í neð-
ansjávarhernaði.
Hægt verður að halda þessum
nýja kafbáti í djúpi sjávar jafn lengi
og venjulegum kjarnorkukafbáti en
hann verður jafnframt helmingi
ódýrari svo herir féminni ríkja innan
Atlantshafsbandalagsins og þriðja
heims ríkja munu hafa efni á honum.
Samkvæmt kenningunni á hann að
geta komið í staðinn fyrir skip og
þyrlur við strandvarnir.
Kafbáturinn er þannig hannaður
að hann getur iegið á landgrunni
vikum saman í einu og fylgst þög-
ull með öðrum kafbátum eða skipum
þegar þau nálgast ströndina. Hann
verður búinn tundurskeytum og get-
ur því komið óviðkomandi skipum
og kafbátum að óvörum og sökkt
þeim.
Það er kanadískt fyrirtæki,
Stratas SSI, í Halifax í Nova Scotia,
sem hefur hannað kafbátinn. Aætl-
anir eru um að framleiða nokkra
báta í Bretlandi.
Fram að þessu hafa aðeins verið
til tvær gerðir kafbáta; dísilkaf-
bátar, sem aðeins geta verið neðan-
sjávar stuttan tíma í einu og þurfa
að koma reglulega upp til að „anda“,
og svo kjarnorkukafbátar, en þeir
framleiða gufu sem drífur skrúfurn-
ar.
Stratas hefur þróað lítinn kjarna-
ofn sem framleiðir rafmagn og hleð-
ur rafhiöður. Verð bátsins er það
sama og dísilkafbátur kostar, stærð-
in einnig og svo getur hann verið
jafn lengi neðansjávar og kjarn-
orkukafbátur.
Fjölmörg ríki, þar á meðal Bret-
land og Bandaríkin og Sovétríkin
einnig eftir því sem talið er, hafa
gert tilraunir til að hanna sams kon-
ar sameinaðan dísil- og kjarnorkuk-
afbát og Stratas setur nú á markað
en þetta er í fyrsta sinn sem slíkt
kerfi fæst til að virka.
Hinn nýi kafbátur mun kosta um
það bil 250.000.000 dollara (11 millj-
arða ísl. krónaj, sem er helmingurinn
af verði bresku kjarnorkukafbá-
tanna af Trafallar-gerð sem sjóher-
inn hefur nú yfir að ráða. Þetta er
um það bil fimmti hluti af verði
bandarísks Trident-kafbáts.
Stratis-kafbáturinn er hins vegar
ekki heppilegur fyirr ríki eins og
Bretland og Bandaríkin því að þau
þurfa mjög hraðskreiða árásarkaf-
báta sem geta farið langar vega-
lengdir neðansjávar til að leita að
og eyðileggja kafbáta og skip óvin-
anna. Nútíma kjarnorkukafbátar
geta farið á meira en 40 hnúta h'raða
í kafi, en Stratas-báturinn nær ekki
slíkum hraða.
„Þessi kafbátur er einungis ætlað-
ur til varnar," segir Ed Dunn yfir-
maður Stratas. „Það eina sem tak-
markar úthald hans í kafi er það
hvað áhöfnin sjálf þolir lengi við og
hve miklar birgðir hann getur tekið.
En þetta er enginn hraðbátur og
hæfir best til strandvarna.“
Stjórnendur Stratas telja að kaup-
endur kafbátsins verði ríki sem þurfa
á vörnum að halda í landhelgi sinni.
Talið er að Stratas eigi í viðræðum
við Tyrki um samning upp á 1,2
milljarða dollara og viðræður við
fleiri ríki séu hafnar.
Verið er að smíða líkan að kjarna-
ofni kafbátsins og það verður tilbúið
í árslok 1988. Kafbáturinn verður
að mestu leyti hannaður í fimm km2
skipasmíðastöð í Port Hawkesbury
á Cap Breton-eyju, en þar er ein
dýpsta íslausa höfn í Norður-
Ameríku. Stöðin hefur þegar fengið
leyfi kanadískra stjórnvalda til að
smíða kjarprkukerfi í þungavatns-
verksmiðju Stratas, Atomic Energy
Canada Ltd. sem opnuð hefur verið
á ný.
Stratas hefur einnig opnað á ný
Cap Breton Industrial Marine-skipa-
smíðastöðina, sem áður hafði verið
lokað, en henni tilheyrir fljótandi
þurrkví á hinu djúpa Canso-sundi
sem aðskilur Cap Breton-eyju frá
Neva Scotia. „Viðskiptavinir okkar
eru áreiðanlega bandalagsríki sem
hafa undirritað samninginn um bann
við útbreiðslu kjarnorkuvopna," seg-
ir forseti Stratas, Peter Spencer í
Halifax. „Utanríkisráðuneytið verð-
ur að samþykkja allt sem við gerum
hér í Kanada."
Ef af þeim samningum um kaf-
bátinn verður, sem von er á, er þar
um að ræða stærsta skipasölusamn-
ing í sögu Kanada. „Til viðbótar við
1,2 milljarða framleiðslukostnað,"
segir Spencer, „fela aukasamningar
í sér þjálfun áhafnar í bátinn, endur-
bætur á hafnarmannvirkjum og 25
ára samning um viðhald á bátunum
svo í allt verður útflutningsverð-
mæti nokkrir milljarðar dollarar.
Kanadamenn hafa haldið þessu
kafbátaverkefni leyndu, er þó vitað
að Stratas hefur samstarf við tvö
bandarísk fyrirtæki. Annað þeirra
er Brow and Root inc. í Houston,
dótturfyrirtæki Haliburton, og hefur
það með höndum verkfræðilega út-
TÆPLEGA 50 norræn ung-
menni hafa undanfarna daga
lagt undir sig Brekkubæjarskóla
á Akranesi. Þar er nú námskeið
fyrir ungt fólk, sem starfar með
áhugaleikfélögum á Norður-
löndunum.
Eins og nafnið á námskeiðinu,
„Ævintýrið á götunni", gefur til
kynna er tilgangurinn að segja
ævintýri úti á götu. Það er gert
með grímum, stórum brúðum, tón-
list og dansi.
Árangurinn má svo sjá á götum
Akraness laugardaginn 29. júlí
þegar hópurinn fer um bæinn og
sýnir ævintýrið á götunni. Dag-
skráin byijar við Akraborgina kl.
13.30.
Unga fólkið er á aldrinum 16
til 22 ára og kemur víðsvegar að
af Norðuriöndunum. Þau sem
koma lengst að eru frá Álandseyj-
um og Finnlandi.
Árlega eru haldin leiklistarnám-
skeið eða hátíðir fyrir ungt fólk á
vegum Norræna áhugaleikhúss-
færslu og smíði. Þetta 30.000 manna
fyrirtæki gerði fyrir stuttu samning
við bandaríska sjóherinn um verk-
efni við herstöðina í Diego Garcia á
Indlandshafi, en hann hljóðar upp á
800 milljónir dollara.
Sú deild bandaríska fyrirtækisins
sem fer með verkfræðiframkvæmdir
á hafi úti sérhæfir sig í hönnun og
smíði á olíuborpöllum og pípum, og
starfar mikið á Norðursjó. Aðstoðar-
forstjóri Brow and Root, A1 Cross-
man, segir: „Við ætlum að veita
Stratas stuðning við kafbátaverkef-
nið. Við gerum einnig ráð fyrir því
að fá aðstöðu í stöð Stratas á Cape
Breton-eyju við hugsanlegt verkefni
okkar sem tengist olíuvinnslu við
hinar nýju olíulindir í Hibernia í
Austur-Kanada."
Brow and Root á stóran hlut í
breska fyrirtækinu Devonports
Dockyards í Playmouth í Englandi
en það var nýlega selt til einkaaðila.
Þegar fyrsta pöntunin á kafbátunum
kemur er búist við að Devonport
sjái um smíði þeirra fyrstu en fram-
kvæmdir kunna að hefjast árið 1991.
Hitt bandaríska fyrirtækið er
ORI. Inc. í Rockville, það er hluti
Atlantic Reserarch Corportation, í
ráðsins og skiptast löndin á að
standa fyrir slíku. „ ,
(Frettatilkynnmg-)
„Menningaráfair*:
Listadagskrá
á Hótel Borg
NOKKRIR listamenn, sem halda
til Sovétríkjanna í haust og kalla
sig „Next Stop Soviet", flylja
dagskrá á Hótel Borg á sunnu-
dag kl. 21.00 sem þeir kalla
„Menningaráfall“. Á dagskránni
verður tónlist, ljóðlist, brúðuleik-
list og upplestur.
Meðal þess sem flutt verður er
tónverk eftir Þorvaid B. Þorvalds-
son og þjóðlagatónlist, Embluleik-
húsið verður á sviði og flytur brúðu-
leikhúsþátt og Baldur Á. Kristins-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Sjón,
Ulfhildur Dagsdóttir og Valdimar
Örn Flygenring flytja frumsamið
efni.
(Frcttatilkynning)
Alexandríu. Atlantic Research er
deild í Sequa Corporation í New
York, sem stundar alls kyns fram-
leiðslu og hefur áhuga á að smíða
eldflaugar og önnur vopn og tækni-
búnað til hernaðar.
Einn stærsti hluthafinn í Stratas,
skipaarkitektinn Bob Novitsky, seg-
ir: „Vegna fullveldisóska og vonar
Kanadamanna um yfirráðin á þriðja
heimshafinu (íshafinu) töldum við
að floti Kanada þyrfti að nýta sér
kjarnorkuna eins og mörg önnur ríki
hafa gert.“
Novitsky er sjóliðsforingi á eftirla-
unum, útskrifaður frá Konunglega
herskólanum í Kanada, MIT, og
ýmsum stofnunum sem kenna sjáv-
arverkfræði. Hann segir ennfremur:
„Næstu áratugi verður markaður
fyrir um það bil 90 nýja varnarkaf-
báta. Þriðja heims ríki þurfa að losa
sig við kafbáta frá því í heimsstyij-
öldinni síðari, sem eru orðnir gamlir
og ótraustir og sumir sjóherir vilja
fá nútímalega kafbáta til varnar
neðansjávar.“
Samkvæmt upplýsingum frá sjó-
her eins Vesturveldanna munu nýju
kafbátarnir geta sparað gífurlega
íjármuni í rekstri sjóheija um heim
allan. „Því tímabiii er lokið að erlend-
ir risakafbátar geti komist óáreittir
inn í landhelgi annarra ríkja,“ sagði
þessi sjóliðsforingi, en hann vill
halda nafni sínu leyndu.
„Það er erfitt að finna þennan
hljóðláta, litla kanadíska kafbát
nema maður sé beint fyrir ofan hann,
en hins vegar heyrist til kjarnorku-
knúinna árásarkafbáta á löngu færi.
Þetta eru mestu framfarir í þróun
dísil-rafmagnskafbáta í 50 ár.“
Dan Hayward talsmaður
kanadísku afvopnunarstofnunarinn-
ar í Ottawa segir: „Stratas-kaf-
báturinn hefur mikið aðdráttarafl á
erlenda viðskiptavini og eykur ekki
á spennu milli stórveldanna. Ástæð-
an er sú að Kanadamenn eru mjög
varkárir í vopnaútflutningi sínum
meðan aðrar þjóðir, svo sem Frakk-
ar, hafa alltaf selt hveijum sem
hafa vill.
Ég held þó ekki að búið sé að
þróa þessa tækni til fulls en kjarna-
ofninn sem verið er að ljúka við er
gerður til notkunar á landi. Hann
hefur enn ekki verið reyndur í kaf-
báti og enn hefur engin raunveruleg
reynsla fengist af honum. En þetta
þróunarverkefni Stratas er ákaflega
áhugavert.“
Höfundur er blaðaniaður í
Bandaríkjunum.
Kanadískur raf-dísil kafbátur fer framhjá kaíbátastöð Stratas í Halifax, Nova Scotia, á leið á haf út.
Auk þess að smíða hinn nýja dísil-kjarnorkukafbát ætlar Stratas að koma upp kafbátastöð við Canso-
sund sem tengist Norður-Átlantshafi og hernaðarlegum flutningaleiðum. Þessi stöð mun veita NATO
og bandalagsríkjum kafbátaþjónustu.
Akranes:
„Ævintýrið á götunni“
Wélagsúf
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR11798 0919533.
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 30. júlí
Kl. 08.00 Þórsmörk-dagsferð.
Verð kr. 2.000,-. Athugið afslátt
Ferðafélagsins á sumardvöl i
Þórsmörk.
Kl. 09.00 Gengið eftir Esju frá
Hátindi - komið niður hjá Artúni.
Verð kr. 1.000,-.
Kl. 13.00 Blikdalur. Létt göngu-
ferð. Blikdalurinn kemur á óvart.
Hann er lengsti dalurinn sem inn
i Esju skerst. Verð kr. 800,-.
Miðvikudagur 2. ágúst.
Kl. 08.00 Þórsmörk-dagsferð.
Verð kr. 2.000,-.
Kl. 20.00 Hrauntungustígur -
Gjásel. Létt kvöldganga. Verð
kr. 600,-.
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Farmiðar við
bíl. Frítt fyrir börn.
Ferðafélag islands.
Auðbrekku 2.200 Kópavogur
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Samkoma á morgun kl. 14.00.
Ath. breyttan samkomutíma.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn bænasamkoma kl.
20.30.
ISÍj Útivist
Sunnudagsferðir
30. júlí:
Kl. 08.00 Þórsmörk - Goðaland.
Stansað 3-4 klst. í Mörkinni.
Verð kr. 1.500,-
Kl. 13.00 Landnámsgangan 16.
ferð Heiðarbær - Nesjar. Fróð-
leg og skemmtileg ganga með
strönd Þingvallavatns. Spenn-
andi jarðfræði og þjóðsöguc við
hvert fótmál. Verð kr. 1.000,-
Sjáumst!
Útivist, ferðafélag.