Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 32
B8 • - C8GÍ ÍJÍJl. .«2 asaAOHÁDlIAJt ®CtóJ®ei3HOK
32 ;:::::: morgunblaðið laugardagur 29. júlí 1989
*
Sveinn Isleifsson
fv. lögregluvarð-
sijóri — Minning
Þegar við hjónin komum heim
úr ferðalagi að kvöldi laugardagsins
22. júlí sl. var það fyrsta sem við
fréttum við heimkomuna að fyrrver-
andi starfsfélagi og •vinur, Sveinn
ísleifsson fyrrverandi lögregluvarð-
stjóri, hefði látist snögglega fyrr
um daginn á leið heim frá Reykjavík
í bifreið með dóttur sinni.
Það dimmdi yfir við að heyra
þessa frétt, en þannig er lífsins
saga, að hryggjast og gleðast hér
um fáa daga. Við sem starfað höf-
um með Sveini síðustu árin vissum
vel hvernig heilsu hans var varið
og því átti þessi andlátsfregn ekki
að koma okkur alveg á óvart, en
það er alltaf sárt þegar góðir vinir
kveðja í hinsta sinn.
Sveinn fæddist að Miðkoti í
Fljótshlíð 22. ágúst 1923. Foreldrar
hans voru hjónin Ingibjörg Krist-
jánsdóttir frá Auraseli og ísleifur
Sveinsson, trésmíðameistari og
bóndi í Miðkoti, og var Sveinn
einkasonur þeirra, en alsystur hans
voru fimm og ein hálfsystir. í Mið-
koti ólst Sveinn upp við öll venjuleg
bústörf á glaðværu og snyrtilegu
heimili.
Árið 1940 hættu foreldrar Sveins
búskap og fluttu að Hvolsvelli, þar
sem Isleifur faðir hans reisti sér
eitt af fyrstu íbúðarhúsunum í þorp-
inu og vann þar síðan að iðn sinni.
Sveinn hóf störf hjá Kaupfélagi
Rangæinga árið 1942 sem vörubif-
reiðastjóri og vann við það í mörg
ár uns hann gerðist verslunarmaður
og síðar deildarstjóri hjá sama fyrir-
tæki.
Á Hvolsvelli kynntist Sveinn
konu sinni, Gunnþórunni Sigurðar-
dóttur, f. 10. febrúar 1924, er kom-
ið hafði úr Reykjavík til verslunar-
starfa hjá kaupfélaginu. Þau giftu
sig 7. febrúar 1948 og fluttu um
sama leyti í nýbyggt hús sitt á
Hvolsvegi 17. Böm þeirra eru þijú:
Margrét fædd 14. nóvember 1948,
Inga Kristín fædd 14. ágúst 1953,
gift Rúnari Kristjánssyni frá Hellu,
og ísleifur fæddur 22. janúar 1958,
sambýliskona hans er Ólöf Tómas-
dóttir frá Hveragerði. Öll eru böm-
in búsett í Reykjavík. Til fósturs
tóku þau hjónin dóttur Margrétar,
Þómnni Grétarsdóttur f. 26. októ-
ber 1968 og hefur hún alist upp
hjá þeim. Árið 1973 flutti fjölskyld-
an í nýtt og vandað hús í Öldu-
gerði 15 á Hvolsvelli. Þar hafa þau
búið sér fallegt heimili og þangað
var gott að koma í heimsókn, vel
tekið á móti öllum og húsráðendur
alltaf kátir og hressir.
Árið 1960 hófu ijórir menn störf
sem héraðslögreglumenn í Rangár-
vallasýslu og var Sveinn einn þeirra
og fyrirliði frá upphafi. Þetta vora
aukastörf og að mestu unnin um
helgar, á samkomum og í öðram
sérstökum tilfellum. Árið 1966 kom
ný lögreglu- og sjúkrabifreið í sýsl-
una og sá Sveinn um hana og sinnti
jafnframt sjúkraflutningum. Þetta
gerði hann með sínu starfi hjá kaup-
félaginu til ársins 1972 að hann
réðst í fullt starf við löggæsluna
og _þá skipaður varðstjóri.
Á þessum áram var margt sem
kallaði á aukna löggæslu í hérað-
inu. M.a. hafði umferð aukist mikið
með vaxandi bílaeign og bættu
vegakerfi, mikil aðsókn var að sam-
komum og virkjunarframkvæmdir
voru hafnar á hálendinu með stór-
virkum vélum og miklum mannafla.
Það var því í ýmsu að snúast og
oft mikið að gera hjá einum manni,
en á árinu 1974 var maður ráðinn
til viðbótar í fullt starf við löggæsl-
una.
Sveinn lauk prófi frá Lögreglu-
skóla ríkisins árið 1975. Það var
hans hlutverk að leiða og móta störf
lögreglunnar í Rangárvallasýslu frá
upphafi og ég held að það sé álit
manna að vel hafi tekist og lög-
reglumenn og sýslubúar muni njóta
þess um ókomna tíð. Merkið stend-
ur þótt mennirnir falli.
Sem lögreglumaður var Sveinn
sanngjarn 'og réttsýnn í störfum
sínum, vildi öllum vel, og að mildum
höndum væri farið um smærri af-
brot manna. Ég held að honum
hafi alltaf allið betur sá hluti starfs-
ins sem fólst í aðstoð við samborg-
arana er urðu fyrir óhöppum eða
leituðu til lögreglunnar af ýmsum
öðram ástæðum. Hann var vinsæll
í starfi og eignaðist ekki óvildar-
menn, en ef um alvarlegri mál var
að ræða, var hann traustur og
ákveðinn og þá gott að starfa með
honum.
Við Sveinn voram samstarfs-
menn í 35 ár. Fyrst hjá Kaupfélagi
Rangæinga og síðan við lögreglu-
störf í sýslunni. Margs er að minn-
ast frá þessum árum og var sam-
starf okkar alltaf með ágætum, að
vísu voram við ekki alltaf sammála
um öll mál, en þau vora þá rædd
og komist að þeirri niðurstöðu sem
best hentaði á hveijum tíma.
Meðan Sveinn hafði fulla heilsu
var hann glaðvær og léttlyndur og
næmur fyrir því spaugilega í tilver-
unni og minnist ég margra
skemmtilegra stunda frá liðnum
áram. Hann var ákaflega hagvirk-
ur, smiður góður og viðgerðarmað-
ur á hin ýmsu tæki nútímans.
Snyrtimenni í allri umgengni og
vildi hafa alla hluti á sínum stað.
Sveinn gaf sig ekki mikið að fé-
lagsmálum, en var virkur í þeim
félögum sem höfðu forvarnir, að-
stoð og mannúð á stefnuskrá sinni.
Hann var um árabil formaður Slysa-
varnadeildarinnar Dagrenningar í
Hvolhreppi og vann mikið starf við
að koma upp húsnæði deildarinnar
og að uppbyggingu á björgunar-
sveit hennar, sem hann starfaði í
frá upphafi. Hann var stjórnarmað-
ur í Rauðakrossdeild Rangárvalla-
sýslu og sá lengi um sjúkraflutn-
inga á hennar vegum. Fyrir hönd
stjórnar Rauðakrossdeildarinnar
færi ég honum bestu þakkir fyrir
öll störf á þeim vettvangi.
Um sl. áramót hætti Sveinn lög-
reglustörfum af heilsufarsástæðum
og hugðist nú sinna sínum áhuga-
málum í rólegheitum. Á yngri árum
mun hann hafa haft áhuga á því
að læra að fljúga, en átti ekki kost
á því. Þegar hann var kominn á
sextugsaldur rættist sá draumur
hans og tók hann þá einkaflug-
mannspróf og átti hlut í fjögurra
sæta flugvél. Með félögum sínum í
fluginu hafði hann komið upp flug-
skýli við flugvöllinn á Hellu. Þetta
veit ég að veitti honum miklar
ánægju- og gleðistundir. Frá sl.
áramótum hafði hann tekið að sér
að sjá um eignir Flugmálastjórnar
og eftirlit með flugvellinum á Hellu.
Að leiðarlokum þakka ég Sveini
góð kynni, tryggð, vinsemd og gott
samstarf á liðnum árum og ég hef
verið beðinn að færa honum kveðjur
og þakkir fyrir leiðsögn og gott
samstarf, frá lögreglumönnum í
Rangárvallasýslu.
Við hjónin sendum Gunnþórunni,
börnum, tengdabörnum, barna-
börnum, systkinum og öðram
vandamönnum innilegar samúðar-
kveðjur.
Guðjón Einarsson
t
SIGURMUNDUR EINARSSON,
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
andaðist 19. júlí. Útförin verður gerð frá Fíladelfíukirkjunni í
Reykjavík, þriðjudaginn 1. ágúst kl. 13.30.
Barnabörnin.
t
Móðir mín og tengdamóðir, amma okkar, tengdaamma og langamma,
KLARA RÖGNVALDSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
andaðist í Borgarspítalanum miðvikudaginn 26. þ.m.
Kristrún Skúladóttir,
Hervald Eiriksson,
Skúli Eggert Þórðarson,
Gunnar Þorsteinsson,
Klara Lísa Hervaldsdóttir,
Dagmar Sigurðardóttir,
Gfsli ívarsson
og barnabarnabörn.
t
GUÐJÓN M. PÉTURSSON,
fiskmatsmaður,
Þykkvabæ 1, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn 31. júlí kl. 13.30.
Aðstandendur og vinir.
t
Útför systur okkar og mágkonu,
HELGU MAGNÚSDÓTTUR
kennara,
fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 31. júlí nk. kl. 13.30. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á sumarstarf KFUK og Kristni-
boðið.
Kristfn Magnúsdóttir Möller,
EinarTh. Magnússon,
Petrína H. Steinadóttir,
Guðmundur Óli Ólafsson.
t
Móðir okkar, tengamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. ágúst nk.
kl. 13.30.
Hreggviður Stefánsson,
Þórunn Björgúlfsdóttir,
Guðbjörg Jónsdóttir,
Stefán Már Stefánsson,
Kristfn Ragnarsdóttir,
Guðrún Hreggviðsdóttir, Anna Sigrfður Stefánsdóttir,
Þórunn Hreggviðsdóttir, íris Guðrún Stefánsóttir,
Ása Hreggviðsdóttir, Kristín Stefánsdóttir,
Jón Hrafnkelsson, Jakob Már Stefánsson,
Ragnheiður Hrafnkelsdóttir, Ragnar Már Stefánsson,
Sigrfður Hrafnkeisdóttir, Hrafnkell Már Stefánsson,
Stefán Hrafnkelsson,
Hannes Hrafnkelsson,
Guðrún Hrafnkelsdóttir,
og langömmubörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför
GERÐAR RAFNSDÓTTUR,
Vogabraut 16,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til Kirkjukórs Akraness, Skagaleikflokksins og
Tónlistarfélags Akraness fyrir aðstoð og hluttekningu.
Bent Jónsson og fjölskylda,
Áslaug Rafnsdóttir og fjölskylda.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug vegna andléts og jarðarfarar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
INGIMUNDU ÞORBJÖRGU GESTSDÓTTUR,
Austurtúni 2, Hólmavík.
Jóhann Guðmundsson, Soffía Þorkelsdóttir,
Ingimundur Guðmundsson, Ásdís Ólafsdóttir,
Halldór Guðmundsson, Sóley Tómasdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Guðmundur R. Jóhannsson,
barnabörn, barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför móður minnar, dóttur, systur, mágkonu og frænku,
KRISTÍNAR J. HJALTADÓTTUR,
Sæviðarsundi 31,
Reykjavík.
Marsibil S. Gísladóttir,
Marsibil S. Bernharðsdóttir, Hjalti P. Þorsteinsson,
Þorsteinn Hjaltason, Jónfna Arnardal,
Kristján Óli Hjaltason, Helga Benediktsdóttir,
og bræðrabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og velvild vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, tengdasonar og afa,
SVAVARS HALLDÓRSSONAR,
Breiðvangi 20,
Hafnarfirði.
Kristín Ingvarsdóttir,
Sigrfður I. Svavarsdóttir, Steingrímur Guðjónsson,
Ólöf Svavarsdóttir, Garðar Flygering,
Halldór Svavarsson, Jóseffna V. Antonsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og
jarðarfarar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
RANNVEIGAR RÖGNVALDSDÓTTUR,
Hólavegi 12,
Sauðárkróki.
ísak Árnason,
Sigríður Árnadóttir,
Rögnvaldur Árnason,
Sigurlfna Árnadóttir,
RagnhildurÁrnadóttir,
Trausti H. Árnason,
Jón H. Jóhannsson,
Lfna Þorkelsdóttir,
Kári Hermannsson,
Páll Halldórsson,
Margrét Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.