Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 35
eseí ijúi. .es HuoAmíAöUAj gktaj8vtjoííom
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
Hulda Jensdóttir. Morgunbiaðið/Sverrir
breyting til. „Áður en ég fór að
vinna á Fæðingarheimilinu tók
ég á móti börnum í heimahús-
um,“ segir Hulda. „Yfirleitt var
því þannig farið að þegar ég kom
inn á heimilið fóru feðurnir út.
Mér leiddist þetta og bað menn-
ina að vera inni á heimilinu. Sum-
ir voru viðstaddir fæðinguna.
Þegar Fæðingarheimilið tók til
starfa hélt ég þessum sið. Nú er
meirihluti feðra
viðstaddur fæð-
ingu barna sinna.
Þessi breyting er
að mínu mati
afar jákvæð.
Fæðingin verður
stór stund í lífi
feðranna og gerir
það að verkum
að þeir fá tilfinn-
ingu fyrir barn-
inu frá upphafi,
verða betri feð-
ur._“
í nágranna-
löndum okkar
hefur þróunin
orðið sú undan-
farin ár að fleiri
og fleiri konur
velja að fæða
heima eða á litlum stofnunum. Á
íslandi er þróunin öfug. Hvernig
ætli standi á því? „Staðreyndin
er er að margar konur fá þær
upplýsingar að að sjúkrahús séu
öruggari stofnanir en lítil heimili
eins og þetta. Þetta er ekki rétt,
við höfum fyrsta flokks tækja-
búnað og sérmenntað starfslið
engu síður en spítalarnir. Einu
munurinn er sá að hér rekum við
heimili, ekki sjúkrahús.“
Það hefur valdið nokkrum deil-
um að undanförnu að í sumar
verður Fæðingarheimilinu lokað
frá 24. júlí til 4. september í
sparnaðarskyni. Þess má geta að
í vor var hluta heimilisins lokað
um stundarsakir af sömu ástæð-
um. „Mér finnst ekki eðlilegt að
sparnaður hjá ríkinu bitni á
íslenskum mæðrum og börnum
þeirra,“ segir Hulda um lokunina.
„Með því að loka Fæðingarheim-
ilinu er tekinn frá konum sá sjálf-
sagði réttur að fá að velja um
tvær ólíkar stofnanir. Lokunin í
mars var ekki gerð í samráði við
starfsfólk Fæðingarheimilisins.
Þá var m.a. lokað skurðstofu sem
við höfum verið að byggja upp
síðustu ár.“
Að lokum er Hulda spurð að
því hvað hún ætli að taka sér
fyrir hendur í framtíðinni. „Ég á
í raun ekkert svar við þessari
spurningu að svo stöddu. Gott
að byija á því að rækta sinn eig-
in garð sem hefur orðið útundan
í dagsins önn. Lífverndarmálin
eiga mikið í mér og að sjálfsögðu
einnig mæður og börn, sem ég
mun trulega alltaf starfa fyrir,
þó það verði í breyttri mynd.“
4990,-
Nýjung á íslandi! Undrahjólið LALA BIKE hefur farið sigurför
um heiminn og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga.
LALA BIKE er hannað með öryggi barna, unglinga og fóiks allt
að 75 kg. að þyngd. LALA BIKE má nota til æfinga
og leikja jafnt inni sem úti.
LALA BIKE fer hægt, fer hratt og tekur krappar beyjur; þú stýrir
og bremsar með fótunum.
LALA BIKE er knúið handafli og þú ræður hraðanum.
Verð kr.
Kynningarsala í
Kolaportinu í dag.
Sendum í póstkröfu (EURO - VISA)
Pöntunarsímar621607 og 671441
Útsölustaður:
AAAnvlís SVEINSSON,
yKMKlVlU heildverslun,
Ármúla40, sími 35320. pósthólf 485,121 Reykjavík.