Morgunblaðið - 29.07.1989, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989.
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ...
Myndi ekki auka bjórsölu
Ferðamaður hringdi:
„Það er ekki rétt að það myndi
auka sölu á bjór í Áfengisverslun
ríkisins ef hætt yrði að selja bjór
í fríhöfninni í Keflavík eins og
talað hefur verið um. Farþegar
og flugáhafnir myndu þá kaupa
bjór erlendis í staðinn eins og ég
hef oft séð flugáhafnir gera nú
þegar t.d. við komu frá Luxemb-
urg og mér skilst að svo hafi ver-
ið áður en farið var að selja bjór
í fríhöfninni. Margar fríhafnir er-
lendis selja bjór og það mun mörg-
um þykja fínt að vera með aðrar
tegundir heldur en seldar eru í
áfengisverslunum hér. Yrði hætt
að selja bjór í fríhöfninni myndi
fólk aðeins kaupa meiri bjór er-
lendis og draga myndi úr sölu hér
heima að sama skapi.“
Budda
Budda með snyrtivörum og
gulleynalokkum gleymdist í bún-
ingsklefa Sundlauga Reykjavíkur
í Laugardal, laugardaginn 21. júlí.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 642027
Kettlingar
Tveir fallegir og hreinlegir átta
vikna kettlingar fást gefins. Upp-
lýsingar í síma 622722.
Tveggja mánaða gamalan
fresskettling, sem er mannelskur
og vel vaninn, bráðvantar nýtt
heimili. Upplýsingarí síma 24176.
Köttur
Kötturinn Nikulás, sem er
blágrár með hvítar loppur, fór að
heiman frá sér að Laufásvegi 2a
sunnudaginn 23. júlí. Vinsamleg-
ast hringið í síma 23611 ef hann
hefur einhvers staðar komið fram.
Gæði heilsufæðis og holleftia
Til Velvakanda.
Undanfarin ár hefir talsvert verið
fjallað um gagnsemi heilsufæðis í
fjölmiðlum.
Ég tel áhuga fyrir hollefnum og
heilsurækt til mikilla bóta. Enginn
vafi leikur á því að slík vakning
sparar mikla peninga í útgjöldum
til heilbrigðismála, þegar líða tímar
og fram í sækir. Miklu máli skiptir
fyrir fólk almennt að kynna sér
gagnsemi, gæði og verð á einstök-
um heilsuvörum. Þar gætu neyt-
endasamtök hjálpað með hlutlausar
upplýsingar, til dæmis með gæða-
samanburði. Þá finnst mér ámælis-
vert hvernig sumt starfsfólk heilsu-
fæðisverslana og lyfjaverslana er
fáfrótt um þessa hluti. Verslunin
Frækornið á Skólavörðustíg er t.d.
eina verslunin sem hefir gefið mér
nákvæmar innihaldslýsingu á því
Ginseng sem er til sölu og á verslun-
in þakkir skilið fyrir það.
Ég vil ekki gera lítið úr þörf fyr-
ir að rannsaka innihald kjötfars,
þó ég neiti þess helst ekki ótilneydd-
ur. Mig langar samt að hvetja neyt-
endasamtökin til að taka sig á í
þessum efnum.
Erlendis hafa neytendasamtök
staðið að víðtækum gæðasaman-
burði á einstökum hollefnum. Hefir
þá oft komið í ljós að þau efni sem
mest eru auglýst eru ekki alltaf
best.
Ég þykist vita að dýrt sé að gera
slíkar rannsóknir, en í slíkum tilfell-
um mætti notast við erlendar hlut-
lausar kannanir.
Hvenær megum við neytendur
heilsufæðis vænta gagnlegra hlut-
lausra upplýsinga um þessi mál?
Helgi Jóhannesson
Öllu er afmörk-
uð stund
Kæri Velvakandi.
Fyrir skömmu bárust fréttir af
miklu flugslysi sem varð í Banda-
ríkjum Ameríku er DC-10 þota
fórst og yfir hundrað manns fór-
ust. Þegar ég leit á Morgunblaðið
daginn sem fréttin birtist blasti við
mér vattvangur þessa hörmulega
atburðar eins og mér vitraðist hann
nokkru áður en slysið átti sér stað.
Mér komu í hug eftirfarandi
orð: „Öllu er afmörkuð stund, og
sérhver hlutur undir himninum
hefur sinn tíma.“ (Préd. 3:1) „Eng-
inn maður hefur vald yfir dauða-
deginum." (Préd. 8:8)“ . .. og spor
mannsins eru ákveðin af Drottni.“
(Orðskv. 20:24).
Margir eru þeir menn sem hafa
þann eiginleika að sjá fram til
ókominna tíma og virðist mörgum
mikill leyndardómur. Undrast
margir hæfileika spákvenna sem
segja til um ókomna atburði, oft
árum áður en þeir koma fram.
Efasemdarmenn finnast þó ekki í
hópi þeirra sem trúa á örlög, eða
hafa upplifað mörg áþreifanleg
dæmi sem ekki er hægt að gera
skil í stuttu bréfi. Lifum því í sátt
við alla, tilbúin að mæta dauða
okkar sérhvern dag, og höfum
hugafst að þó: „hjarta mannsins
upphugsi veg hans, stýrir Drottinn
gangi hans.“ (Orðsk. 16:9).
Einar Ingvi Magnússon
Það er ánægjulegt að grilla á góðum degi. Látið ekki
óvarkárni spilla þeirri gleði. Hellið alls ekki uppkveikivök-
vanum yfír grillið eftir að búið er að kveikja upp í því.
©1987 Universal Proas Syndicato
r/ ég Skí&J 5já-urr\gailSíé'inarvx. 'i Ptr~
og fótbrot kbnunnar þlnnar
i siocb\r\r\ fyrir v'mstnx oi)rtxb \ ptr."
TM Reg. U.S. Pal Otl.—all rights reserved
® 1989 Los Angeles Times Syndicate
Þú manst eftir bílskúrnum
hérna...?
Geðlæknirinn reddaði mér
á undraverðan hátt. Konan
mín stakk af með hon-
um...
HÖGNI HREKKVÍSI