Morgunblaðið - 29.07.1989, Side 44
Á ÞJÓÐVEGI1
SUMARÞÁHURKL. 13.30
RAS I
l UTVARPID
Efstir á blaði
FLUGLEIDIR
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Forsætísráðheira er
svartsýnn á samninga
við Borgaraflokkinn
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætísráðherra hélt leynilegan fund
með þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar í sumarbústað forsætísráð-
herra á Þingvöllum, síðdegis í gær, þar sem m.a. var rædd staðan
i viðræðum rikisstjórnarinnar við fúlltrúa Borgaraflokksins. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins ríkir ekki mikil bjartsýni meðal
ráðherra rikisstjórnarinnar á að samningar takist við Borgaraflokk-
inn og staðfestí forsætisráðherra
blaðið í gærkveldi.
Þeir ráðherrar sem funduðu með
forsætisráðherra á Þingvöllum voru
Jón Baldvin Hannibalsson, utanrík-
isráðherra, Jón Sigurðsson, iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra, og Svavar
Gestsson, menntamálaráðherra.
„Þetta var almennur fundur um
ýmis málefni og meðal annars
ræddum við stöðuna í viðræðum
okkar við Borgaraflokkinn," sagði
Steingrímur. Hann sagði útilokað
að fara út í þá stöðu í smáatriðum,
að svo væri í samtali við Morgun-
að svo komnu máli. „Ég tel reyndar
að mörgu leyti heldur ólíklegt að
það náist samkomulag við Borgara-
flokkinn,“ sagði forsætisráðherra.
Hann sagði að viðræður við Borg-
araflokkinn myndu a.m.k. frestast
eitthvað um sinn. Utanríkisráðherra
færi utan í dag og fjármálaráðherra
kæmi ekki hingað til lands fyrr en
8. ágúst. Ekki væri hægt að taka
afgerandi ákvarðanir í þessu máli,
með formenn samstarfsflokkanna
stadda erlendis.
Helgarveðrið:
Léttskýjað verður á
Suður- og Vesturlandi
VEÐURSTOFAN spáir hægri norðvestanátt með sólskini á Suður-
og Vesturlandi um helgina. Hitinn gæti orðið um 12 til 15 stig, hlýj-
ast á Suðausturlandi.
Að sögn Magnúsar Jónssonar
veðurfræðings, er veðurútlit helgar-
innár mun betra en undanfarnar
helgar á Suður- og jafnvel Vestur-
landi. Er útlit fyrir þurrt veður um
allt land í dag, léttskýjað verður á
40 ára stúdentar
frá MR:
Forseti Is-
lands með
í för til Sov-
étríkjanna
VIGDÍS Finnbogadóttir, for-
setí Islands, fer ásamt bekkj-
arfélögum úr Menntaskólan-
um í Reykjavík í þriggja daga
ferð til Sovétríkjanna 12.
ágúst næstkomandi.
Kornelíus Sigmundsson for-
setaritari staðfesti þetta í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
Ferðin til Sovétríkjanna er farin
í tilefni 40 ára stúdentsafmælis
hópsins frá Menntaskólanum í
Reykjavík.
Suðausturlandi en skýjað á Norð-
vesturlandi. Þó mun víða sjást til
sólar inn til landsins.
Búast má við að heldur fari hlýn-
andi en aðfaranótt föstudags snjó-
aði víða í Ijöll á Vestfjörðum og á
vestanverðu Norðurlandi. Hiti fór
þá niður í eitt stig á Hveravöllum
og þar var slydda.
„Sunnudagurinn sýnist mér ætla
að verða nokkuð góður dagur um
allt land, en það er alltaf spurning-
in um blessað sólskinið sem allir
em að bíða eftir,“ sagði Magnús.
„Ég held að það fari að létta til
sunnanlands og ég hef spáð sólskini
í Reykjavík og á Suðurlandi meiri-
hluta dagsins. Hitinn ætti að potast
eitthvað upp á við og hann gæti
orðið 12 til 15 stig í dag og á morg-
un á Suðvesturlandi en væntanlega
eitthvað hærri á Suðausturlandi."
/ sumarskapi
Morgunblaðið/RAX
Gjaldþrot hjá Hraðfrysti-
húsi Patreksflarðar hf.
Skuldir fyrirtækisins voru 660 milljónir um áramót
FRÁ OG með 1. ágúst verð-
ur verðlag Morgunblaðsins
sem hér segir:
Mánaðaráskrift kr. 1000.
Grunnverð dálksentimetra
auglýsinga kr. 660 á virkum
dögum, en kr. 690 á sunnu-
dögum. í lausasölu kr. 90
eintakið.
STJÓRN Hraðfrystihúss PatreksQarðar hf. hefiir ákveðið að óska
eftir gjaldþrotaskiptum hjá fyrirtækinu eftir að ljóst er að Hlutaijár-
sjóður hefúr hafnað beiðni um aðstoð. Að sögn Sigurðar Viggósson-
ar, stjórnarformanns Hraðfrystihússins, samþykkti Byggðastofiiun
áætlun, sem gerð var til að bjarga fyrirtækinu en Fiskveiðasjóður
hafnaði henni. Ekki er vitað hver var afstaða viðskiptabankans,
Landsbanka Islands.
Stærsti hluthafi í Hraðfrystihús-
inu er Samband íslenskra sam-
vinnufélaga, sem á um 75%. Auk
þess er ljóst að Fiskveiðasjóður tap-
ar verulegum íjármunum.Um ára-
mót vom skuldir fyrirtækisins tald-
ar vera um 660 milljónir króna sem
síðan hafa bætt á sig dráttarvöxt-
um. Fyrirtækið á frystihús og gerir
út tvö skip sem em með rúmlega
50% af aflakvóta staðarins. Vinna
lagðist niður hjá frystihúsinu í októ-
ber á síðasta ári en 140 manns
unnu hjá fyrirtækinu þegar það var
í fullum gangi.
Sigurður sagði, að ekki væri eft-
ir neinu að bíða þegar Hlutafjár-
sjóður hefur neitað fyrirtækinu um
aðstoð. Ákvörðun sjóðsins hefði
komið á óvart miðað við yfirlýsing-
ar stjórnvalda á undanförnum miss-
emm. „Þetta er undirstöðufyrirtæki
hér á staðnum og miklir hagsmunir
í húfi fyrir fólkið sem hér býr og
sveitarfélagið," sagði Sigurður.
„Okkur finnast þetta heldur kaldar
kveðjur frá þessum opinbem sjóð-
um og ég er hættur að skilja hvað
þessum sjóðum ber að gera.“ Sagði
hann að stærsti hluthafinn, Sam-
bandið, hefði verið tilbúið að styðja
við áætlun um að bjarga fyrirtæk-
inu en eftir að Fiskveiðasjóður hafn-
aði þátttöku í björgunaraðgerðum
hefði verið ljóst hvert stefndi.
Ákveðið hefur verið að sveitar-
stjórn komi saman til fundar, þar
sem kannaðir verða möguleikar til
að bjarga byggðarlaginu. „Aðalat-
riðið er að heimamenn standi saman
og reyni að safna fé til kaupa á
skipunum með aðstoð opinberra
aðila,“ sagði Sigurður.