Morgunblaðið - 23.08.1989, Qupperneq 1
40 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
189. tbl. 77.árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. AGUST 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
50 ár frá samningum Stalíns og Hitlers:
Pólskir komm-
únistar fordæma
griðasáttmálann
- og litháísk þingneftid lýsir inn-
gönguna í Sovétríkin ógilda
Varsjá, Moskvu. Reuter.
STJORNMÁLARÁÐ pólska kommúnistaflokksins samþykkti í gær
að fordæma griðasáttmála Sovétmanna og nasista frá árinu 1939
en í dag, 23. ágúst, eru liðin 50 ár frá undirritun hans. Þá for-
dæmdi litháísk þingnefhd hernám Rauða hersins og lýsti ógilda
nauðungarsamþykktina um inngönguna í Sovétríkin. I Eystrasalts-
ríkjunum hefiir verið boðað til mikilla funda í dag til að minnast
og mótmæla þessum örlagaríka samningi Hitlers og Stalíns.
í samþykkt pólska kommúnista-
flokksins sagði, að í skjóli griða-
sáttmála nasista og Sovétmanna
hefði Póllandi verið skipt og um
leið troðið á alþjóðalögum og öllu
því, sem tíðkaðist í samskiptum
siðaðra manna. Með honum hefðu
tilveruréttur og sjálfstæði margra
þjóða verið virt að vettugi og Sov-
étmenn ekkert skeytt um samn-
inga sína við ríkin.
Þessi ályktun pólskra kommún-
ista þykir óvenju djarfmannleg því
að þeir komust til valda fyrir til-
verknað Sovétmanna og hafa ver-
ið skjólstæðingar þeirra lengst af
síðan. Flestir líta hins vegar á
yfirlýsinguna í ljósi þeirra að-
stæðna, sem nú eru í Póllandi, en
á fimmtudag mun þingið ræða
traustsyfirlýsingu við Samstöðu-
manninn Tadeusz Mazowiecki sem
nýjan forsætisráðherra. Verði hún
samþykkt sem líklegt má teljast
verður það í fyrsta sinn frá
stríðslokum, að annar en kommún-
isti hafi forystu fyrir austur-evr-
ópskri ríkisstjórn
„Stalín og Hitler upprættu sjálf-
stæð ríki, þar á meðal Litháen,
Lettland og Eistland, og Litháar
voru neyddir til að ganga í Sov-
étríkin,“ ságði í samþykkt lithá
ískrar þingnefndar, sem birt var
í gær og í henni var inngangan í
Sovétríkin lýst ólögmæt. Sovésk
stjórnvöld höfðu lagt að litháískum
stjórnvöldum að bíða með að birta
samþykktina en við því var ekki
orðið. Boðað hefur verið til mót-
mælafunda í Eystrasaltsríkjunum
í dag og var ætlunin að mynda
óslitna mannkeðju milli höfuð-
borga ríkjanna.
Reuter
Sjá
„Sovétmenn
á bls. 16.
viðurkenna
Þessi austur-þýska stúlka komst til Austurríkis með því að synda
yfir Neusiedl-vatn, sem er á landamærunum við Ungverjaland. Hér
er hún að máta skó, sem íbúar í þorpinu Morbisch söfnuðu handa
flóttafólki.
Svíþjóð:
Verkfall veld-
ur umferðar-
öngþveiti
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Mor^unblaðsins.
ÓLÓGLEGT verkfall sænskra
lestarstjóra stendur enn og hefiir
það valdið milljónum manna erf-
iðleikum við að komast til vinnu.
Til þess var efiit i mótmælaskyni
við hugmyndir um að hækka eft-
irlaunaaldur lestarstjóra úr 60
árum í 65.
Verkfallið kemur á mjög slæmum
tíma því að nemendur eru nú að
setjast á skólabekk að nýju og á
mánudag áttu 7.000 ungir Svíar
að gefa sig fram til herskyldu. Var
ekki búist við, að þeir skiluðu séf
allir fyrr en í dag. Á fimmtudag
hefjast viðræður ríkisvaldsins og
bandalags rikisstarfsmanna um
launakjör og eftirlaunaaldur og í
gær voru viðraðar hugmyndir, sem
hugsanlega geta orðið til að leysa
deiluna.
Verkfallið hefur valdið miklum
erfiðleikum og umferðaröngþveiti í
stærstu borgunum, Stokkhólmi,
Gautaborg og Málmhaugum, og í
þeim tveimur fyrrnefndu ætla lest-
arstjórarnir að halda því áfram um
óákveðinn tíma.
Helmut Kohl, kanslari V-Þýskalands:
mm
Orvænting og vonleysi valda
flóttanum frá A-Þýskalandi
Kommúnisminn réttlætir tilvist A-Þýskalands segir a-þýskur hugmyndafræðingur
Bonn, Austur-Berlín, Búdapest. Reuter.
HELMUT Kohl, kanslári Vestur-
Þýskalands, sagði í gær, að fólk
flýði í þúsundatali frá Austur-
Þýskalandi og vestur yfir vegna
þess, að það örvænti um, að
nokkrar breytingar gætu orðið á
Geimkönnun:
Voyager nálg-
ast Neptúnus
Pasadena, Kaliforníu. Reuter.
VOYAGER-2 könnunarfarið bandaríska steftiir óðfluga til reiki-
stjörnunnar Neptúnusar. Á morgun verður farið næst stjörnunni
eða í 4.800 km íjarlægð. Hefur Voyager verið á ferð um óra-
víddir sólkerfisins í 12 ár og aukið talsvert vitneskju manna um
það. Hefur farið lagt að baki 4,5 milljarða kílómetra vegalengd
á ferð sinni. Takist ferðin að óskum hefiir maðurinn rannsakað
úr nálægð allar reikistjörnur sólkerfísins nema Plútó.
Vísindamenn sögðust í gær ótt-
ast aðstæður í nágrenni Néptún-
usar. Talin var hætta á að rykagn-
ir sem fara með miklum hraða á
braut um stjörnuna rækjust á
Voyager og yllu skemmdum á -
farinu. Einnig að það kynni að
fara inn i efstu lög gufuhvolfsins
þar sem er að finna sprengifimar
gastegundir. Ennfremur var ótt-
ast að Voyager svifi inn á geisla-
virk svæði í segulsviði Neptúnasar
sem kynni að trufla tæki farsins.
Rannsóknarfarið hefði uppgötvað
Reuter
Neptúnus eins og hann Ieit út
úr 7,5 milljón km tjarlægð frá
Voyager 16. ágúst. Greina má
tvær undarlegar skýjamyndan-
ir, sem ganga umhverfis reiki-
stjörnuna.
þessa geislavirku bletti í segul-
sviði reikistjörnunnar í síðustu
viku. Sögðust vísindamenn þó lifa
í voninni um að Voyager væri
nógu langt frá Neptúnusi til þess
að verða ekki fyrir skakkaföllum.
hinu kommúníska kerfi þar í
landi. Samskipti þýsku ríkjanna
eru nú stirðari en um margra
ára skeið enda þyngist flótta-
mannastraumurinn ineð hverjum
degi og aðeins í gær komust 500
manns um Ungveijaland til Aust-
urríkis. Helsti hugmyndafræð-
ingur austur-þýskra kommúnista
sagði í gær, að kommúnisminn
væri það eina, sem réttlætti til-
veru Austur-Þýskalands sem
ríkis.
Kohl kanslari sagði á blaða-
mannafundi í Bonn í gær, að flótta-
mannastraumurinn frá Austur-
Þýskalandi stafaði af því, að al-
menninguf þar í landi væri búinn
að gefa upp alla von um aukið
frelsi undir stjóm kommúnista.
Hafði verið búist við, að kanslarinn
styngi upp á nýjum viðræðum milli
stjórnvalda í ríkjunum en hann
ítrekaði aðeins, að hann væri reiðu-
búinn til að ræða við Erich Honeck-
er, leiðtoga Austur-Þýskalands,
hvenær sem væri.
Mörg hundmð Austur-Þjóðveija
hafast nú við í sendiskrifstofum
Vestur-Þýskalands í Austur-Evr-
ópu og hefur orðið að loka tveimur,
í Austur-Berlín og Prag, vegna þess
að fleira fólk kemst ekki fyrir í
húsunum. I síðustu viku komust
rúmlega 1.000 manns um Ung-
verjaland og yfir járntjaldslaus
landamærin til Austurríkis og
stefnir í enn meiri fjölda í þessari
viku því að í gær fóru 500 manns
þá leiðina. Segir í ungverskum fjöl-
miðlum, að flóttafólkið beiti öllum
ráðum til að komast vestur og
skeyti oft ekkert um nálægð landa-
mæravarðanna.
Otto Reinhold, hugmyndafræð-
ingur austur-þýska koinmúnistá-
flokksins, sagði í útvarpsviðtali í
gær, að grundvallarmunur væri á
Austur-Þýskalandi og öðrum Aust-
ur-Evrópuríkjum. Þau hefðu öll ver-
ið til áður en sósíalisminn kom til
sögunnar en Austur-Þýskaland aft-
ur á móti verið stofnað sem sós
íalskt ríki.
„Hver væri tilveruréttur kapit-
alísks Austur-Þýskalands við hlið
kapitalísks Vestur-Þýskalands?
Enginn, auðvitað," sagði' Reinhold
og bætti þvi við, að þess vegna
mætti hvergi frá kommúnismanum
víkja. Þykir þessi yfirlýsing merki-
leg fyrir þá sök, að á Vesturlöndum
hafa menn lengi haldið þessu fram.
Með því að viðurkenna þetta nú eru
austur-þýsk stjórnvöld hins vegar
að leitast við að réttlæta andstöðu
sína við umbætur og aukið frelsi.