Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 15

Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989 -----------------—--ri-?—--——— Síðasta bindi bóka- flokks um Reykjavík Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefiir gefið út fjórða og síðasta bindið í bókaflokknum Reykjavík — Sögustað við Sund. Höfundur þessa bindis, sem nefiiist Lykilbók, er Einar S. Arnalds. Eiríkur Jónsson var honum til aðstoðar og Örlygur Hálfdánarson sá um myndval. Páll Líndal er höfundur þriggja fyrstu bindanna. Örlygur Hálf- dánarson kynnti eftii bókarinn- ar við athöfix í Höfða á afmælis- dag borgarinnar, 18. ágúst, og afhenti borgarstjóra, Davíð Oddssyni, fyrsta eintak hennar. í máli Örlygs kom fram að þótt fjórða bókin sé lykilbók er hún þó alveg sjálfstætt verk því hún geymir annál borgarinnar frá því Ingólfur steig á land. Hún sýnir allar jarðir sem voru í ábúð 1703, þróunarsaga borgarinnar er rakin og allur fjallahringurinn er sýndur með örnefnum. Ýmis kort eru í bókinni, m.a. af öllum vörum og uppsátrum í borgarlandinu, leiðakort SVR árið 1932, örnefnakort og skrá yfir allt borgarlandið og kort yfir hverfi borgarinnar. Sérstakur kafli er um Viðey og aftast eru manna- nafna-, örnefna- og staðanafna- skrár. Ótalmargar ljósmyndir eru í borginni, m.a. af gömlum og fal- legum húsum, loftmyndir af borg- inni teknar af dönskum landmæl- ingamönnum árið 1937 og myndir teknar af sömu stöðum 1987 til samanburðar. Örlygur gat þess að starfsfólk Árbæjarsafns hefði verið bókaútg- áfunni ákaflega hjálplegt við efni- söflun og að án aðstoðar þess hefðu bækurnar aldrei komið út. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Grétar Unnsteinsson útskýrir sýningarsvæðið og aðstæður á Reykjum fyrir hátíðargestum. Garðyrkjuskóli ríkisins: Aftnælishátíð og sýning í tileftii 50 ára aftnælis Morgunblaðið/Ámi Sæberg Örlygur Hálfdánarson bókaútgefandi og Einar S. Arnalds höfundur Lykilbókar afhenda Davíð Oddssyni borgarsljóra fyrsta eintak Lykil- bókar sem er Qórða bindi í bókaflokknum Reykjavík — Sögustaður við sund. Selfossi. FJÖLDI gesta sótti afinælishátíð Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykj- um í Hveragerði sem haldin var á laugardag í tilefni 50 ára af- mælis skólans. Á aftnælishátíðinni var opnuð vegleg afinælissýning sem verður opin almenningi fram til 27. ágúst. Meðal gesta á af- mælishátíðinni voru forsætisráð- herra og landbúnaðarráðherra. I ávarpi sínu á afmælishátíðinni tilkynnti landbúnaðarráðherra að samþykkt hefði verið að verða við ósk skólans um að hefja kennslu á blómaskreytinga- og markaðsbraut við skólann. Séra Tómas Guðmundsson flutti hugvekju við upphaf afmælishátíð- arinnar. Grétar Unnsteinsson minnt- Þing SUS: Þátttaka Islands í vörn- um landsins verði aukin UNGIR sjálfstæðismenn samþykktu á þingi sínu á Sauðárkróki um síðustu helgi ályktun um utanríkismál þar sem segir að auka beri þátttöku Islands í varnar- og öryggismálum. Stefiia eigi að því að ísland verði í stakk búið að taka þátt í stjórnkerfisæfingum NATO. Um öryggis- og varnarmál seg- ir í ályktun þings ungra sjálfstæð- ismanna: „Islendingar geta verið stoltir af því að hafa verið meðal stofnaðila Atlantshafsbandalags- ins. Nauðsyn á stofnun varnar- bandalags vestrænna ríkja gegn útþenslustefnu kommúnismans verður ekki véfengd í dag. Á und- anförnum árum hefur festa NATO og eining aðildaríkja þess leitt til mikilsverðs árangurs í afvopnun- arsamningum við Sovétríkin. Að- ild íslands að Atlantshafsbanda- laginu er sem fyrr hornsteinninn í íslenskri utanríkisstefnu. Áfram- haldandi varnarsamstarf vest- rænna rikja er og verður leiðin til frekari gagnkvæmra afvopnun- arsamninga. Þótt mönnum sýnist nú minni ógn stafa af Sovétríkjun- um en áður, minnir SUS á að hernaðaruppbygging Sovétmanna á Kó'.askaga á undanförnum árum á hvergi sinn líka og er þar nú kominn mesti herafli veraldar. íslendingum ber að axla þá ábyrgð sem fylgir því að vera aðili að varnarsamstarfi. Ungir sjálfstæðismenn leggja áherslu á aukna þátttöku íslands í öryggis- og varnarmálum. Efla verður þekkingu í íslenska stjórnkerfinu á hernaðaráætlunum er varða Is- land og Norðurslóðir. Stefna skal að því að ísland verði í stakk búið að taka þátt í stjórnkerfisæf- ingum NATÓ.“ Einnig er í ályktuninni vikið að lagningu varaflugvallar. Segir að heimila beri lagningu slíks flugvallar eða aðrar þær fram- kvæmdir sem nauðsynlegar eru vörnum landsins og sameiginleg- um hagsmunum Atlantshafs- bandalagsríkj anna. Um verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli segir að „ungir sjálfstæðismenn leggja sem fyrr til að ríkisvernduð einokun á framkvæmdum fyrir varnarliðið verði afnumin og útboð eigi sér stað í anda fljálsrar samkeppni." Frjáls alþjóðaverslun Um viðskiptamál segir m.a. í utanríkisályktun þings Sambands ungra sjálfstæðismanna: „íslend- ingum ber að styðja frjálsa sam- keppni og fijálsa verslun í heimin- um og leggjast gegn hvers kyns höftum. íslendingar eiga að vinna í þágu þessara hugmynda á al- þjóðavettvangi, einkum innan GATT, þar sem samið er um regl- ur í milliríkjaverslun. íslendingum ber að styðja tilraunir til þess að koma á fijálsri verslun og afnám niðurgreiðslna á landbúnaðarvör- um. Sú þróun, sem á stér stað innan Evrópubandalagsins með tilkomu innri markaðarins 1992, á eftir að hafa áhrif langt út fyrir banda- lagið sjálft. Mikilvægt er að EB loki ekki mörkuðum sínum fyrir öðrum þjóðum. Fijáls verslun er allra hagur. Þess vegna verða ís- lendingar, líkt og aðrar Evrópu- þjóðir utan bandlagsins, að fylgj- ast grannt með þróun mála innan EB og gera upp hug sinn varð- andi framtíðartengsl við banda- lagið.“ Meðal annarra mála sem er að finna í ályktun ungra sjálfstæðis- manna um utanríkismál er kafli um mannréttindi þar sem Sov- étríkin eru hvött til að gera opin- beran griðasáttmála sinn við naz- istaríki Hitlers ásamt öllum leyni- legum ákvæðum hans um skipt- ingu Póllands og innlimun Eystra- saltsríkjanna. Þá er tekið undir sjálfstæðiskröfur Eistlendinga, Letta og Litháensbúa. ist frumkvöðla skólans í hátíðarræðu sinni og rakti menningarsögu staðar- ins. Garðyrkjuskóli ríkisins var stofn- aður með lögum nr. 91 23. júní 1936. Hann tók síðan til starfa í ársbyijun 1939. Fyrsti skólastjóri var Unn- steinn Stefánsson og gegndi því starfi til ársins 1966 er Grétar Unn- steinsson tók við skólastjóm. Á afmælishátíðinni voru skólanum færðar fjölmargar gjafir. Þar á með- al var 600 þúsund króna fjárframlag frá ríkisstjórninni og sjö þemagarðar voru formlega afhentir skólanum. Garðarnir eru gjöf frá Félagi íslenskra landslagsarkitekta, Félagi skrúðgarðyrkjumeistara og Félagi garðplöntuframleiðenda. Garðarnir eru á heimasvæði skólans og bera eftirfarandi nöfn: Fjótandi list, Fenjagarður, Spíralagarður, Sólúr, Barnagarður, Dvalargarður og Lysti- garður. Þá afhenti Bjarni Helgason formaður Sambands garðyrkju- bænda skólanum að gjöf útskorna hurð í væntanlega tilraunastöð á Reykjum. Við afhendinguna lét hann þess getið að á Reykjum væri vagga íslenskrar garðyrkju. Afmælissýning Garðyrkjuskólans er mjög viðamikil. Markmið sýning- arinnar er að sýna almenningi hvað áunnist hefur á liðnum árum og á hvern hátt unnt er að hagnýta tækn- ina í þjónustu íslenskrar garðyrkju. Að lokinni hátíðardagskrá að Reykjum var gestum boðið upp á afmæliskaffi í boði skólans á Hótel Örk. Nemendamót og uppskeruhátíð garðyrkjumanna fór síðan fram á Hóýel Örk um kvöldið. í tengslum við afmælishátíðina fer fram garðyrkjuþing fyrir allar grein- ar garðyrkjunnar, með innlendum og erlendum fyrirlesurum, en aðalmál þingsins verður staða og framtíð íslenskrar garðyrkju. Þing þetta er haldið í minningu Unnsteins Ólafs- sonar fyrsta skólastjóra Garðyrkju- skólans. — Sig. Jóns. Rangt nafti leiðrétt í frétt Morgunblaðsins í gær frá afmælishátíðinni á Skriðuklaustri var ranglega farið með nafn einleik- arans á flautu. Rétt nafn er Krist- rún Helga Björnsdóttir og er hún skólastjóri Tónlistarskólans á Seyð- isfirði. Tónleikar í Tón- skóla Sigursveins STYRKTARFÉLAG Tónskóla Sig- ursveins D. Kristinssonar mun í vetur efiia til nokkurra tónleika í tileftii af 25 ára afmæli skólans 30. mars sl. Tónleikarnir verða í Tónskólasalnum við Hraunberg 2. Fyrstu tónleikarnir verða fimmtudaginn 24. ágúst nk. kl. 20.30. Einleikari á tónleikunum verð- ur Arnaldur Arnarson gítarleik- ari. Arnaldur Arnarson fæddist í Reykjavík árið 1959. Hann hóf gítarnám í Svíþjóð tíu ára gamall og hélt því síðar áfram í Tónskóla Sigur- sveins D. Kristinssonar hjá Gunnari H. Jónssyni þar sem hann lauk námi árið 1977. Hann tók lokapróf -frá Royal Northern College of Music í Manchester árið 1982. Kennarar hans þar voru Gordon Crosskey, George Hadjinikos og John Williams. Hann var eitt ár við framhaldsnám hjá José Tomás í Alicante á Spáni og hefur sótt námskeið hjá Alirio Díaz, Oscar Ghiglia, David Russell Arnaldur Arnarson og Hopkinson Smith. Arnaldur hefur haldið tónleika í Engiandi, á Spáni og flestum Norð- urlandanna. Hann er nú kennari og aðstoðarskólastjóri við Luthier-tón- listarskólann í Barcelona.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.