Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 16
16
MORGÚNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989
50 ár liðin frá undirrítun griðasáttmála Sovétmanna og nasista:
Sovétmenn viðurkenna
tilvist leyniákvæða um
innlimun Eystrasaltsríkja
50 ÁR eru í dag liðin lrá því griða-
sáttmáli þýskra nasista og Sovét-
manna var undirritaður í Moskvu.
Sáttmálanum fylgdi leynilegur
viðauki og var þar meðal annars
kveðið á um skiptingu Eystrasalts-
landanna í áhrifasvæði nasista og
Sovétmanna. Þjóðernissinnar í
Eystrasaltsríkjunum og sagnfræð-
ingar á Vesturlöndum hafa haldið
því fram að leynileg ákvæði sátt-
málans hafi orðið til þess að
Eystrasaltslöndin Eistland, Lett-
land og Litháen voru innlimuð í
Sovétríkin. Sovésk sljórnvöld hafa
nú loksins viðurkennt að leyni-
ákvæðin hafí fylgt sáttmálanum
eftir að hafa áratugum saman
vísað því algjörlega á bug.
Alexander N. Jakovlev, félagi í
stjórnmálaráði sovéska kommúnista-
flokksins, sagði í viðtali, sem birtist
í Prövdu, málgagni sovéska komm-
únistaflokksins, á föstudag að enginn
vafi léki á því að leyniákvæðin hefðu
fylgt griðasáttmálanum frá 23. ágúst
1939. Jakovlev er náinn samstarfs-
maður Míkhaíls Gorbatsjovs Sovét-
forseta og formaður nefndar, sem
sovésk stjómvöld skipuðu til að rann-
saka sáttmálann.
Teikning, sem birt var í bresku blaði eftir að griðasáttmáli þýskra
nasista og Sovétmanna var undirritaður.
að griðasamningur Sovétmanna og nasista var undirritaður í Moskvu.
Stalín kvaðst vilja drekka minni Hitlers þar sem sér væri kunnugt
um hversu annt þýsku þjóðinni væri um leiðtoga sinn.
völd viðurkenni nú loksins tilvist
Beitt þvingunum
Jakovlev fordæmdi sáttmálann
„fortakslaust" en vísaði því hins veg-
ar á bug að leyniákvæðin hefðu leitt
til ólöglegrar innlimunar Eystrasalts-
landanna í Sovétríkin, eins og þjóð-
emissinnar í Eystrasaltslöndunum
hafa haldið fram. Þótt sovésk stjórn-
FRAMKVÆMDASTJORI
VERÐBREFAMARKAÐAR
LANDSBANKA
ISLANDS
Lanclsbréf hf. er nýstofnaður verðbréfamarkaður
Landsbankans. Auglýst er eftir umsóknum um
starf framkvœmdastjóra. Umsœkjandi þarf að
hafa viðskiptafrœði-, hagfræði- eða aðra
sambœrilega menntun. Frumkvœði og sjálfstœði
í starfi er ruiuðsynlegt. Umsóknir ásamt
upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf
berist fyrir 1. september n.k. stílaðar á:
Stjóm Landsbréfa hf,
do Landsbanki íslands,
Austurstrœli 11, 3■ hœð,
Pósthólf 170,
155 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið veita
Bjöm Líndal og Brynjólfur Helgason
aðstoðarbankastjórar.
LANDSBREF HF.
Verðbréfamarkaður Landsbankans
nu
leyniákvæðanna líta þau svo á að
þing Eystrasaltslandanna hafi sam-
þykkt inngöngu í Sovétríkin með
miklum meirihluta og það hafi ráðið
mestu um innlimunina. Þjóðernis-
sinnar í Eystrasaltslöndunum haida
því hins vegar fram að mikill liðsafli
Rauða hersins í löndunum hafi orðið
til þess að þingin hafi neyðst til þess
að fallast á innlimunina.
Niðurstaða Jakovlevs hefur valdið
mikilii reiði á meðal þjóðernissinna í
Eystrasaltslöndunum, sem kreijast
þess að sáttmálinn verði úrskurðaður
ómerkur. Fjöldamótmæii eru fyrir-
huguð í löndunum þremur í dag í
tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því
griðasáttmálinn var undirritaður.
Félagar í óháðum stjórmálahreyfing-
um í Lettlandi, Eistlandi og Litháen
segjast meðal annars ætla að mynda
600 kílómetra langa keðju við landa-
mæri landanna að Rússlandi með því
aðhaldast í hendur.
Griðasamningar fyrirmynd
í grein, sem birtist í sovéska viku-
ritinu Moskvufréttum á sunnudag er
fjallað um griðasáttmálann. Þar er
farið hörðum orðum um stefnu
Stalíns í innanríkis- og utanríkismál-
um og hann sakaður um að hafa
stuðlað að því að heimsstyijöldin
síðari braust út aðeins viku eftir að
griðasáttmálinn var undirritaður.
í greininni er birt skeyti sem
Friedrich von Schulenburg, sendi-
herra Þýskalands í Moskvu, sendi til
þýska utanríkisráðuneytisins þar
sem fjallað er um undirbúning griða-
sáttmálans við Sovétmenn. Þar kem-
ur meðal annars fram að Molotov,
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
lagði til að í sáttmálanum yrði tekið
mið af griðasamningum sem Sovét-
menn höfðu áður gert við Pólveija,
Letta og Eista. Þykir greinarhöfundi
hlálegt að örlög þessarra þjóða
skyldu vera ráðin af griðasamning-
um, sem gerðir voru við þær, og
þeir þannig notaðir til að ijúfa grið
á þeim.
NAUÐSYNÁ HVERJU HEIMILI
1 . I— /
JP, TIWIA OG FYRS1H0FH
1000 BLAÐSÍÐUR AF ÓTRÚLECU VÖRUÚRVALI
Verókr. 190,-
ón bgj.
W BM B.MAGNOSSON
Sími 52866
Moskvufréttir birta einnig enska
þýðingu á leyniákvæðunum, þar sem
Eystrasaltsríkjunum Finnlandi,
Eistlandi, Lettlandi og Litháen er
skipt í áhrifasvæði nasista og Sovét-
manna. Þar er kveðið á um að áhrifa-
svæðin skuli afmarkast af norður-
landamærum Litháens, þannig að hin
ríkin þijú faili undir Sovétmenn, sem
síðar fóru hrakfarir í vetrarstríðinu
við Finna.
Rúmum mánuði síðar, eða 28.
september, undirrituðu nasistar og
Sovétmenn vináttu- og landamæra-
samning sinn, þar sem sú breyting
er gerð að Litháen skuli einnig falla
undir áhrifasvæði Sovétmanna.
í leyniákvæðum griðasáttmálans
er ennfremur kveðið á um að áhrifa-
svæðin skuli afmarkast af fljótunum
Narev, Vistula og San í Póllandi.
Tekið er fram að síðar verði sérstak-
lega samið um það hvort Pólland
skuii vera sjálfstætt ríki. Aðeins viku
eftir að griðasáttmálinn var undirrit-
aður hófst innrás Þjóðveija í Pólland
og heimsstyijöldin síðari braust út
með hörmulegum afleiðingum.
Heimildir: Washington Post og
Moskvufréttir.
Slysið á Thamesá;
Allir starfs-
menneinnar
skrifstofii
taldir af
London. Reuter, Daily Telegraph.
LEITARMENN slæddu í gær
upp lík eins af fórnarlömbum
harmleiksins á Thamesá að-
fararnótt sunnudags þegar
1.500 tonna sandprammi og
skemmtibáturinn Marchio-
ness (Markgreifafrúin) rákust
saman með þeim afleiðingum
að báturinn sökk. Að sögn lög-
reglunnar er talið að 57
manns hafi farist og þegar
hafa 26 lík fúndist. 79 manns
komust lífs af. Verið var að
halda upp á 26 ára afinæli
kaupsýslumannsins Antonios
de Vasconcellos þegar slysið
varð og sökk báturinn á innan
við tveimur mínútum.
Umboðsskrifstofa fyrir ljós-
myndara og sýningarfólk, sem
stóð fyrir afmælisfagnaðinum
um borð í skemmtibátnum, er í
eigu Jonathans Phangs. Phang,
sem er 26 ára gamall og stofn-
aði fyrirtækið fyrir tveimur
árum. Nú er allra starfsmanna
hans, fimm að tölu, saknað eða
þeir taldir af.
Fjárhagslegur bakhjarl fyrir-
tækisins var Antonio de Vascon-
cellos af portúgölskum ættum
frá gömlu nýlendunni frá
Mósambík, en verið var að halda
upp á afmæli hans um borð í
Markgreifafrúnni. Hans er einn-
ig saknað. De Vasconcellos var
aðeins 17 ára þegar hann fékk
inngöngu í Cambridge-háskóla.
Var honum spáð bjartri framtíð
í enskum ijármálaheimi vegna
þess hve honum vegnaði vel sem
starfsmaður banka og fjármála-
stofnana.
Margir starfsbræður Phangs
hjá Synchro-sýningarsamtökun-
um voru gestir um borð í bátnum
og er fimm þeirra saknað.