Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 25

Morgunblaðið - 23.08.1989, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989 25 Minning: Amm M. Guðnadóttir frá Karlsskála Fædd 25. apríl 1906 Dáin 14. ágúst 1989 í dag miðvikudaginn 23. ágúst fer fram frá Dómkirkjunni útför elskulegrar ömmu okkar, Önnu Mörtu Guðnadóttur, en hún andað- ist á Landspítalanum 14. ágúst sl. eftir skamma legu. Hún fæddist á Karlsskála við Reyðarfjörð 25. apríl 1906 og ólst þar upp, fjórða í röð- inni af 7 systkinum og er hún síðust þeirra sem kveður. Foreldrar þeirra voru hjónin Guðni Eiríksson útvegs- bóndi á Karlsskála og Guðrún Jónína Stefánsdóttir ljósmóðir. Árið 1935 giftist hún afa okkar Friðriki Steinssyni frá Biskupshöfða við Reyðarfjörð og hófu þau búskap á Eskifirði og bjuggu þar til ársins 1945 að þau fluttu til Reykjavíkur. Settust þau að í Sjómannaskólanum þar sem afi var húsvörður og kenn- ari um árabil, en áður hafði hann verið skipstjóri og útgerðarmaður á Eskifirði. Þau eignuðust ekki börn, en ættleiddu móður okkar Birnu Gunnhildi sem gift er föður okkar Agli Jónssyni. í Sjómannaskólanum bjuggu og störfuðu amma og afi í 16 ár og var þar oft á tíðum ærið erilsamt hjá þeim báðum. Stóð heimili þeirra ætíð opið fyrir frænd- fólki og vinum sem leið áttu til höfuðborgarinanr um lengri eða skemmri tíma. Árið 1961 fluttu þau á Hagamel 45 og bjuggu þar alla tíð síðan. í nokkur ár vann amma áfram í Sjó- mannskólanum og á skrifstofu hjá Félagi íslenskra kjötiðnaðarmanna og afi vann í Fiskifélagi íslands. Afi lést árið 1976 og bjó amma ein eftir það. Amma okkar var skarp- greind kona, vel lesin og mjög vak- andi og hélt hún því ti! hinstu stund- ar. Margar voru vísumar og þulurn- ar sem hún söng og kenndi okkur, því amma var barngóð. Síðar nutu langömmubömin umhyggju hennar og hugulsemi. Næstum daglega var hringt og spurt um börnin því þau vom hennar líf og yndi. í fjölmörg ár var hún virkur þátttakandi í Bridsfélagi kvenna og em allir hennar verðlaunagripir lýsandi dæmi um velgengni hennar í spila- mennskunni, en spilamennskan var sameiginlegt áhugamál bæði ömmu og afa og áttu þau fasta spilafélaga t Bróðir okkar, EGILL SVAVAR EGILSSON frá Hveragerði, er látinn. Jarðarförin hefurfarið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Systkinin. t GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR kennari, Hamrahlíð 7, lést aðfaranótt mánudags 21. ágúst í Borgarspítalanum. Unnur Kolbeinsdóttir, Kolbeinn Kolbeinsson. t Faðir okkar SIGURÐUR GUÐMUNDSSON ritstjóri, Nökkvavogi 2, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum mánudaginn 21. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Ingólfur Sigurðsson, Ragnar Sigurðsson. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRHALLA ÓLÖF GUÐLAUGSDÓTTIR, Hverfisgötu 57 a, lést á heimili sínu 15. þ.m. Hún verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 25. ágúst kl 10.30. Kristín Kristmundsdóttir, Guðjón Bergsson, Guðlaugur H. Kristmunds., Jónina Þórðardóttir,' Halla Ó. Kristmundsdóttir, Magnús Þórðarson, Sigriður A. Kristmundsd., Guðmundur Guðmundsson, Hugrún A. Kristmundsd., Lárus G. Birgisson og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, E. ARNÓR SVEINBJÖRNSSON fv. kaupmaður á Akranesi, Kleppsvegi 18, Reykjavík, lést í Borgarspítalanum miðvikudaginn 16 ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Guðrún Sigurðardóttir, Erna Arnórsdóttir, Þór Jóhannsson, Aöalheiöur Arnórsdóttir, Óskar Jónsson, Sigurður E. Arnórsson, Margrét Jónsdóttir og barnabörn. árum saman. En þegar sjónin brást hjá ömmu, gat hún hvorki spilað né stytt sér stundir við hannyrðir en margar flíkurnar frá henni hafa yljað okkur systkinum og bömum okkar. Síðustu ár átti hún við mikla sjóndepru að stríða og hafði geng- ist undir erfiðar aðgerðir vegna þess, síðast núna í vor. Batt hún miklar vonir við þá aðgerð, örlítið birti til en því miður ekki nóg. Þá var það sem hennar góða skaplyndi kom henni vel því kjarkurinn brást aldrei. Nú þegar komið er að leiðarlok- um er okkur efst í huga hjartans þakklæti fyrir allt sem hún var okkur og fjölskyldum okkar. Veri elsku amma okkar Guði falin. Jón Friðrik, Anna Birna og Örn. Fyrir um fimmtíu árum kynntist ég Önnu Mörtu eða löngu litlu eins og börnin mín kölluðu hana til að aðgreina hana frá lang-ömmum sínum. Alltaf fannst þeim gott að koma til hennar, hún hafði tíma og þolinmæði til að spila og spjalla. Hún passaði son minn Hilmar Egil um tíma þegar hann var á þriðja ári og voru ófá spilin sem þau spiluðu þá. Þegar dætur mínar Elsá og Marta fæddust var sjón og heyrn hennar farin að daprast mjög mikið en það aftraði henni ekki að fylgj- ast með öllu sem gerðist hvort sem það var innan fjölskyldu eða annars staðar. Hún hringdi næstum á hveijum degi til að athuga með börnin og okkur hjónin. Og það var eins og minnið skerptist hjá henni þegar sjón og heyrn dvínuðu. Þegar við fórum í bíltúr báðu börnin mín um að fá að fara til löngu litlu- þar sem þeim var tekið opnum örmum og svo var mjög oft til ís í fryStinum. Börnin skynjuðu örugglega þá lífsorku, kraft og góðmennsku sem streymdi frá Onnu Mörtu og fannst gott að vera hjá henni þrátt fyrir að þau þyrftu að tala hátt svo hún heyrði til þeirra. Alltaf var hún að hugsa um böm- in og margar lopapeysur pijónaði hún handa þeim svo þeim væri hlýtt. Við biðjum góðan Guð að fylgja löngu litlu og þökkum fýrir að hafa fengið að njóta samvista með henni. Jóhanna, Hilmar Egill, Elsa og Marta. Kveðja frá bróðurdóttur í dag kveðjum við hinstu kveðju mína kæru föðursystur Önnu Mörtu Guðnadóttur sem lést 14. ágúst sl. Anna Marta fæddist 25. apríl 1906 á Karlsskála við Reyðarfjörð, dóttir hjónanna Guðna Eiríkssonar út- vegsbónda og Guðrúnar Jónínu Stefánsdóttur ljósmóður. Hún var fjórða í röðinni af sjö systkinum og em þau nú öll látin. Anna ólst upp á Karlsskála á margmennu heimili, en þar bjó einnig Bjöm bróðir Guðna, ásamt konu sinni og 6 börn- um þeirra. 13 börn á eínu heimili þætti dágóður hópur í dag, en með þolinmæði og samvinnu gengu hlut- imir upp og minntist frænka mín oft á þessa daga. Hún stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík í 2 vetur og árið 1935 giftist hún Frið- riki Steinssyni skipstjóra og útgerð- armanni á Eskifirði. Hann lést árið 1976. Þau eignuðust ekki böm, en ættleiddu frænku Friðriks, Birnu Gunnhildi sem gift er Agli Jónssyni og eiga þau 3 börn og 5 barnabörn. Á Eskifirði bjuggu Anna og Frið- rik í 10 ár. Þar var Anna ein af stofnendum slysavarnadeildarinnar Hafrúnar og gegndi hún for- mennsku deildarinnar á meðan hún bjó fyrir austan. Á 40 ára afmæli deildarinnar árið 1975 var hún gerð að heiðursfélaga. Hér í Reykjavík var Anna líka ein af stofnendum Eskfirðinga- og Reyðfirðingafé- lagsins, formaður félagsins um tíma og einnig gerð að heiðursfélaga þar. Til Reykjavíkur fluttu þau hjónin árið 1945 er Friðrik gerðist húsvörður og kennari við Sjó- mannaskólann. Þar var þeirra starfsvettvangur og heimili í 16 ár. Ég minnist þess sem barn, þegar ég kom til þeirra hversu stór mér fannst skólinn vera, gangarnir vom freistandi til eltingaleiks, turninn dálítið ógnvekjandi og klukkurnar háværar er þær byijuðu að hringja. Þegar þau hættu störfum í Sjó- mannaskólanum fluttust þau á Hagamelinn og þar hefur frænka mín búið ein eftir lát mahns síns. Síðustu árin hefur sjónin brugðist. Það fellur mér verst af öllu að geta ekki lesið lengur sagði hún oft. En dugnaðurinn var mikill, hún lét engan bilbug á sér finna, gekk að hveijum hlut sem alsjáandi mann- eskja. Á þessari skilnaðarstundu er mér efst í huga þakklæti til kæm frænku minnar. Þakklæti fyrjr allt sem hún gerði fyrir mig og böm mín. Hún átti mikið í okkur. Þau voru ófá skiptin sem hún tók að sér barnagæslu er lasleiki var annars vegar. Heimili hennar var ávallt opið. Við voram rík að eiga hana að. Nú er löngu ævistarfi lokið. Hvíli hún í friði. Dóttur hennar og fjölskyldu votta ég mína innilegustu samúðarkveðjur. áEG. canera oiywip'* yerökÁ -margar vélar í einni Carrera er fullkomin ritvél með ótal sjálfvirkum vinnslum. Virkar einnig sem gæðaletursprentari sem tengja má við allar samhæfðar IBM-tölvur. Sannkölluð atvinnu-, heimilis-, ferða- og skólavél sem notuð er við kennslu í fjölmörgum skólum landsins. Carrera og Carrera S i eru fisléttar og fjölhæfar ritvélar sem hlotið hafa hin alþjóðlegu [ffj-hönnunarverðlaun fyrir útlit og notagildi. E KIARAN Síðumúla 14,108 Rvfk, s: 83022 Útsölustaðlr: Bókabúð Bryniars, Sauðárkróki. Bókabúð Böðvars, Hafnarfirði. Bókabúðin Edda, Akureyrí. Bókabúð Jónasar, Isafirði. Bókaskemman, Akranesi. Fyrirtækjaþjónustan, Hvolsvelli. Kaupf. A-Skaftfellinga, Höfn. Kaupf. Árnesinga, Selfossi. Kaupf. Borgflrðlnga, Borgarnesi. Pennlnn, Hallarmúla 2, Austurstræti 10 og Kringlunni, Rvik. Prentverk Austurlands, Egilsstöðum. Stapafell, Keflavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.