Morgunblaðið - 23.08.1989, Síða 33
33
MORGUNBLAblí) tóÍJWlK&KAGUR 23. ÁÖÖST Íöá§H
V VELVAKANDI
£ SVARAR í SÍMA
3 691282 KL.10-12
£ FRÁ MÁNUDEGI
n TIL FÖSTUDAGS
Iur ll >-ri u. /rrf *LJ lli
Þessir hringdu . . .
Reiðhjól
Hvítt Euro-Star kvenhjól með
kappakstursstýri hvarf frá
Efstasundi 31 aðfaramótt
sunnudags. Finnandi er beðinn
um að hafa samband við eiganda
í síma 6852?8.
Týnd læða
Droplaug, þrílit læða (hvít,
svört og rauð), tapaðist frá Alfa-
heiði 22 í Kópavogi síðastliðinn
föstudag. Hún er með svart og
gult nef og rauða hólsól. Þeir,
sem hafa orðið hennar varir, eru
beðnir að hringja í síma 36239
eða 642033.
Peningaveski
Bandarískur ferðamaður týndi
veski með peningum og skilríkj-
um s.l. föstudag í nágrenni Þórs-
merkur. Skilvís finnandi er beð-
inn um að hringja í síma 83948
eftir kl. 16.
Hringur
Kvengiftingarhringur úr gulli
fannst við Seljaveg 33 í Vest-
urbæ. Á hringinn eru grafin orð,
sem eigandi ætti að þekkja. Eig-
andinn er beðinn að hafa sam-
band við Rúnar í síma 79925.
Úr
Svart karlmannsúr af gerðinni
Orient týndist á laugardags-
kvöldið á Akureyri. Aftan á því
era grafm nokkur orð. Finnandi
er beðinn um að hafa hringja í
síma 96-23303 eða 91-685578.
Hver á köttinn?
Gulur og grábröndóttur kettl-
ingur fannst á Sólvallagötunni á
föstudag. Hann er ómerktur og
var fluttur á Dýraspítalann. Eig-
endur era beðnir um að vitja
hans þar hið fyrsta.
Gleraugu
Huldís hringdi og bað konu,
sem hringdi í númerið hennar
vegna týndra gleraugna, en tal-
aði ekki við hana sjálfa, að
hringja aftur í síma 39068.
Jakki
Tíu ára stúlkatýndi jakkanum
sínum, líklega á leikvellinum við
Vesturgötu, mánudaginn 14.
ágúst. Jakkinn er bleikur með
blágrænum rennilás. Fóðrið er
gult með bleikum og blágrænum
stjörnum. Finnandi er beðinn um
að hringja í síma 619614. Fund-
arlaun!
Týndur köttur
Snælda, sem er hvít læða með
svörtum doppum, týndist fyrir
mánuði í Laugaráshverfí. Hún
er merkt. Þeir sem vita um ferð-
ir hennar era beðnir um að hafa
samband við Guðmund eða Unn-
ar í síma 685102.
Leðurjakki
Rauðbrúnn leðuijakki tapaðist
í skemmtistaðnum Tunglinu fyrir
rúmlega tveimur vikum.
Finnandi hringi í síma 73559.
Skrifstofutækni
Hagnýtt nám í góðum
^ félagsskap
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590
Skrifstofutækni
Skemmtilegt og fræðandi
nam
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590
Skrifstofutækni
Nám sem styrkir stöðu
þína
Tölvufræðslan
Borgartúni 28, sími 687590
Mikíl hækkun inn-
heimtukostnaðar
Til Velvakanda.
Óvíða hef ég fengið betri þjón-
ustu en í Iðnaðarbankanum.
Starfsfólkið er háttvíst og veitir
góða þjónustu. Þetta er meðal ann-
ars árangur mikillar þjálfunar, sem
starfsfólk bankans fær.
Bankinn fylgir sömu reglu og
IBM, þ.e.a.s. regla nr. 1: Virðing
fyrir starfsfólkinu. Regla nr. 2:
Frábær þjónusta við viðskiptavin-
ina.
Nýlega fékk ég tilkynningu frá
bankanum um afborgun af láni
mínu hjá bankanum, sem ekki er í
frásögur færandi. Það sem vakti
athygli mína var innheimtukostnað-
urinn, kr. 750,00. Árið 1988 var
innheimtukostnaður af sama láni
kr. 380,00. Hækkun er tæplega
100%. Hækkun launa á sama tíma
var um 10-15%. Fylgir frelsinu eng-
in ábyrgð?
Launamaður
★ 3,5“, 2S/2D og 2S/HD
★ 51/4“, 2S/2D og 2S/HD
★ TEFLON vörn gegn kaffi,
ryki og öðrum óhöppum
★ Forsniðnir
★ Hagkvæmustu kaupin
Verbatim, einu disklingarnir
með TEFLON vörn.
\feibatim.
Verbatim
hágæða TEFLON disklingar
disklingar
(
(
(
i
Af gefnu tilefni er vert að minna á hina mikla slysahættu, sem skap-
ast þar sem heitir pottar í görðum eru hafðir án loka eða hlífa milli
notkunar.
Lítil börn geta hæglega farið sér að voða, falli þau ofan í þá. Því
er nauðsynlegt að setja tryggilegt lok eða segl yfir til að koma í
veg fyrir slys.
h ÞÖRf
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11
Ký úrvals-mynd komin
á myndbandaleigur
Eric’s new in
the neighborhood.
Mac’s new on
theplanet.
Bráðskemmtileg úrvalsmynd fyrir alla aldurshópa.
Eric er nýfluttur í hverfið og Mac er nýkominn til jarðar. Mynd sem snertir fólk og sýnir
að ævintýrin gerast enn. Leikstjóri: Stewart Rafill. Framleiðandi: R.J. Louis (Karate Kid
I - III). Kvikmyndatóniist: Alan Silvestri (Aftur til framtíðar) Aðalhlutverk: Jade Caleg-
ory, Jonathan Ward, Christine Ebersole og Lauren Stanley. Ein vinsælasta mynd sum-
arsins á bandanska myndbandamarkaðnum. Ein af 10 vinsælustu myndum breskra
kvikmyndahúsa um þessar mundir.
EIHKARÉTTUR 06 ÐREIFIHG: ARNAR - VIOEO.