Morgunblaðið - 23.08.1989, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ iÞROTrmmmim 23. ÁGÚST 19B9!
35 *
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Pressaner
ölláþeim
- segirSigi Held landsliðsþjálfari
„LEIKURINN leggst mjög vel í
mig og ég hef enga ástæðu til
að vera taugaóstyrkur. Ég held
að ég geti látið Austurríkis-
menn um það, enda er pressan
öll á þeim,“ sagði Sigi Held
landsliðsþjálfari.
Eg veit að þeir munu leggja
r áherslu á sóknina en það
skiptir ekki máli hvort þeir nota
tvo, fjóra eða sex sóknarmenn, við
munum mæta þeim með sterkum
varnarleik.
Við munum að sjálfsögðu gera
allt sem í okkar valdi stendur til
að sigra og kannski er kominn tími
til þess að við höfum heppnina með
okkur. En hvernig sem leikurinn
þróast getum við verið öruggir um
það að við vinnum ekki nema allir
leikmenn ieggi sig alla fram og leiki
eftir bestu getu.“
Morgunblaöið/Bjarni Eiriksson
„Svíarnir" Gunnar Gíslason og Ágúst Már Jónsson verða báðir með í dag, en Ágúst Már tekur stöðu Alla Eðvaldsson-
ar sem er meiddur. Gunnar Gíslason svalar hér þorstanum og Ágúst Már bíður óþreyjufullur eftir vatnsflöskunni. Hitinn
í Salsburg í gær var 35 gráður og er búist við svipuðu hitastigi í dag.
Verðum að byija vel
Morgunblaöiö/Bjarni
Jónsson og Jónsson. Sævar gerir
að gamni sínu, og fellur það augljós-
lega Sigurði í geð. Á minni myndinni
sést Guðni Bergsson vígreifur á lands-
Hðsæfingu í gærdag, og er greinilegt
að hann verður liarður í horn að taka
í íslensku vöminni í dag.
Sigurður Jónsson:
Verðum að
halda okkur
»V
1 ið verðum að halda okkur
við jörðina og megum ekki
gera okkur of miklar vonir fyrir
þennan leik. Við verðum að muna
að þeir eru á heimavelli og allar
aðstæður eins og þeir vilja hafa
þær, lítill völlur og án efa mjög góð
stemmning," sagði Sigurður Jóns-
son._
„Ég er þó alls ekki að segja að
við eigum ekki möguleika. Ef við
náum góðri baráttu og náum vel
saman á vellinum, þá er allt opið.
Það verður ekki fyrr en eftir þenn-
an leik að við förum að velta stöð-
unni i riðlinum fyrir okkur og því
hvaða möguleika við eigum á að
komast áfram,“ sagði Sigurður.
STAÐAN
Fj.lelkja U J T Mörk Stig
SOVÉTRÍKIN 5 3 2 0 8:2 8
TYRKLAND 5 2 1 2 8:6 5
AUSTURRlKI 4 1 2 1 4: 5 4
ISLAND 5 0 4 1 3:5 4
A-ÞÝSKAL. 5 1 1 3 4:9 3
- segir GuðmundurTorfason sem þekkir vel til austurríska liðsins
Ragnar kemur
inn í liðið
Sigurðurkláríslaginn
Ragnar Margeirsson mun koma
í stað Ásgeirs Sigurvinssonar
í íslenska landsliðinu sem mætir
Austurríkismönnum í kvöld. Ragn-
ar mun leika á miðjunni ásamt Sig-
urði Jónssyni og Pétri Amþórssyni.
Tvær breytingar hafa því verið
gerðar á liðinu síðan í fyrri leiknum.
Ragnar kemur í stað Ásgeirs og
Ágúst Már Jónsson kemur inn í lið-
ið í stað Atla Eðvaldssonar.
Sigurður Grétarsson mun leika
með í kvöld en hann lék ekki með
liði sínu, Luzern, í Sviss vegna
meiðsla. Hann hefur nú gefið
ákveðið svar og er klár í slaginn.
HVALEYRARHOLTSVÖLLUR
Undanúrslit í 4. deild:
Haukar - Ármcmn
í kvöld, miðvikudagskvöld 23. ágúst, kl. 19.00.
Fyrstu 50 gestimir fá RC Cola og Stjömupopp.
A
b\IBYGGÐAVERK HF.
ÁIRAIH HAUKAR
’l
Það sem er númer eitt hjá
okkur er að byija vel. Ef
kur tekst að halda hreinu fram
að hálfleik þá eigum við mjög góða
möguleika,“ sagði Guðmundur
Torfason. „Austurrískir áhorfendur
hafa takmarkaða þolinmæði og ef
illa gengur eru þeir ekki lengi að
snúast gegn sínum mönnum. Ef svo
færi yrði það mikil hjálp,“ sagði
Guðmundur sem lék með Rapid Vín
í Austurríki. „Þrátt fyrir að lið
þeirra sé svipað og í fyrri leiknum
megum við búast við því mun sterk-
ara. Það er á heimavelli og mun
haga leik sínum á annan veg en
það gerði í Reykjavík. •
Þetta er mikilvægur leikur og
þegar honum er lokið getum við
farið að spá í stöðuna. Þá fyrst
getum við farið að velta því fyrir
okkur hvort við komumst lengra."
Einvígi framherjanna
Austurrísk blöð hafa gert mikið
úr því sem þau kalla „Einvígi fram-
heijanna". Þar er átt við Guðmund
Torfason og Hemo Pfeifenberger
en þeir voru báðir framheijar í liði
Island
Leikaðferð: 5-3-2
Markvörður: Bjarni Sig-
urðsson
Varnamienn: Óiafur Þórð-
arson, Sævar Jónsson, Guðni
Bergsson, Ágúst Már Jóns-
son, og Gunnar Gíslason.
Miðvailarleikmenn: Ragnar
Margeirsson, Sigurður Jóns-
son og Pétur Amþórsson,
Framheijar: Sigurður Grét-
arsson og Guðmundur Torfa-
son.
Varamenn: Guðmundur
Hreiðarsson, Rúnar Kristins-
son, Ómar Torfason, Viðar
Þorkelsson og Gunnar Odds-
son.
Ekkert annað en sigur
- segir Hickersberger þjálfari Austurríkis
Ef við vinnum íslendinga í
þessum leik þá er ég sann-
fsérður um að við förum til Ítalíu.
Með sigri hér myndum við mæta
Sovétmönnum fullir sjálfstrausts og
jafnvel ná stigi af þeim. Þar með
væri staða okkar mjög góð og raun-
hæfur möguleiki á sæti í lokakeppn-
inni. Þessi leikur hefur gífurlega
þýðingu og það kemur hreinlega
ekkert annað tii greina en sigur,“
sagði Hickersberger.
„Við fengum meira en við áttum
skilið í fyrri leiknum en nú vona
ég.að við náum tveimur stigum og
getum sagt að við höfum átt þau
skilið,“ sagði Hickersberger. „Það
er gífurlega mikilvægt að byija
vel. Austurrískir áhorfendur eru
mjög óþolinmóðir og ef við náum
ekki marki i fyrri hálfleik munu
þeir baula látlaust á okkur. Við
megum ekki við slíkri pressu því
verðum við að gera út um leikinn
sem allra fyrst. Þó veit ég að það
verður ekki auðvelt og til þess að
sigra verðum við að ná okkar besta
leik.“
Austurríki
Leikaðferð: 4-3-3
Markvörður. Linden-
berger
Vamarmenn: Russ, We-
ber, Pecl og Pfeffer
Miðvallarleikmenn:
Linzmaier, Zsak og
Herzog
Framherjar: Rodax,
Pfeifenberger og Ogris
Varamenn: Konsel,
Polster, Streiter, Hort-
nagl, Artner og Aigner.
Rapid Vín. Dagblaðið Kurier segir
í fyrirsögn „Torfason ætlar sér að
gera upp gamlar skuldir". Blöðin
velta því einnig fyrir sér hvor þeirra
verði fyrri til að skora.
„Vissulega væri gaman að skora
hér í Salzburg en það er ekki aðal-
atriðið. Það sem mestu máli skiptir
er að ná góðum úrslitum og þá
skiptir engu máli hver það er seiri
skorar.
Logi B. Eiðsson
skrifar frá
Austurríki
■r
r