Morgunblaðið - 03.09.1989, Síða 36

Morgunblaðið - 03.09.1989, Síða 36
0HITACHI J/f RÖNNING ^ KRINGLUNNI/SÍMI (91)685868 __ ÆPÆFÆFÆAfJEr Efstir á blaði FLUGLEIÐIR ^ MORGUNBLAÐIÐ, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 6S1811, POSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: IIAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Grímsey: Blindur fálki íheimsókn FÁLKAR eru ekki daglegir gestir í Grímsey, en einn slíkur fékk þó áhuga á að sækja eyjar- skeggja heim á miðvikudag. Það var Hulda Einarsdóttir sem fyrst kom auga á fálkann þar sem hún var á göngu um eyna. Er hún ásamt móður sinn ætlaði að nálgast gestinn flaug hann upp, en fipaðist flugið og lenti á girðing- arstaur. Er Einar Þorgeirsson fað- ir Huldu náði að handsama fáikann kom í ljós að hann var blindur á öðru auga og illa á sig kominn. Fálkinn var tekinn í hús þar sem xriMÉiann fékk í svanginn og braggað- ist hann þá furðu fljótt. Á fimmtu- dagsmorgun fékk hann flugfar með Flugfélagi Norðurlands frá Grímsey til Akureyrar og þaðan fór hann til Reykjavíkur og var komið til Náttúrufræðistofnunar. Borgardómur tryggingar- víxils leystur undan ábyrgð BORGARDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt að maður, sem aft- urkallaði með símskeyti ábyrgð sína á tryggingarvíxli vegna greiðslukortaúttektar annars manns, sé einungis ábyrgur fyr- ir úttektum fram að afturköllun- l^pinni. Vanskil urðu á greiðslum úttekta og steftidi greiðslukorta- fyrirtækið korthafa og tveimur ábyrgðarmönnum á tryggingar- víxli sem lagður hafði verið fram vegna viðskiptanna til greiðslu skuldar að fjárhæð um 400 þús- und krónur. Annar ábyrgðarmannanna, út- gefandi víxilsins sem afhentur hafði verið óútfylltur, hafði aftur- kallað ábyrgð sína með símskeyti til greiðslukortafyrirtækisins þeg- ar tekið hafði verið út á kortið fyrir um 177 þúsund krónur. Þeg- ar innheimtutilraunir báru ekki árangur útfyllti fyrirtækið víxilinn 'r~*Ff'yrir heildarskuldinni og stefndi samþykkjanda, útgefanda og ábekingi til greiðslu skuldarinnar í heild þrátt fyrir fyrirvara útgef- andans. Dómarinn, Hjördís Hákonar- dóttir, komst að þeirri niðurstöðu að ábyrgð útgefandans hefði fallið niður með símskeyti hans en féllst ekki á þá kröfu útgefandans að ábyrgðin yrði einungis látin ná til úttektar innan samþykktrar út- tektarheimildar til korthafans, sem var 50 þúsund krónur. Hinn "^Kibyrgðarmaðurinn, ábekingur víxilsins, hafði hvorki afturkallað ábyrgð sína, né sótt þing meðan á öllum rekstri málsins stóð og var hann því dæmdur ásamt sam- þykkjanda tryggingarvíxilsins, korthafanum, til að greiða alla kröfu fyrirtækisins en útgefandinn _^/ar, sem fyrr segir, gerður ábyrgur fyrir greiðslu 177 þúsunda í félagi við hina tvo. JReykjavíkur: Utgefandi Morgunblaðið/Bjarni Bannað að leggja Myndir Erró á sýningu í Moskvu FYRSTA yfirlitssýningin á al- þjóðlegri 20. aldar list var opnuð fyrir nokkrum vikum í Moskvu. Meðal þeirra sem eiga verk á sýn- ingunni eru Matisse, Picasso, Braque, Leger, Chagall og Erró. A Ifrétt frá Kjarvalsstöðum kemur fram að sýningin er fyrsta stóra yfirlitssýningin með verkum 20. ald- ar meistara, sem haldin er í Moskvu. Á kápu sýningarskrárinnar er mynd af hinu þekkta málverki eftir Erró. „The Background of Pollock", sem hann málaði árið 1967. Sýningin, sem fengið hefur góðar viðtökur, er sett saman af franska listfræðingnum Daniel Abadie og hefur hann valið að vinna út frá afgerandi myndrænum hugtökum og skiptist sýningin í eftirfarandi flokka: liturinn, formið, draumurinn, áferðin,. minnið, vitnisburðurinn, of- beldið, strangleikinn, skrif, raun- veruleikinn, myndin og er Erró þar á meðal, byggingin, rýmið og goð- sögnin. Selfoss: Féll niður afhúsþaki Selfossi. UNGUR húsasmiður féll niður af húsþaki á Selfossi um klukkan hálf fjögur aðfaranótt laugardags og hlaut slæm meiðsl í baki. Mað- urinn var fluttur með þyrlu Land- helgisgæslunnar á Borgarspítal- ann í Reykjavík. Smiðurinn vann ásamt öðrum við það á föstudag að skipta um þak á einbýlishúsi að Víðivöllum 22. Um nóttina unnu mennirnir við að gera þakið vatnshelt og við þá vinnu steig smiðurinn afturábak út af þakinu og kom niður á steypta stétt fyrir neð- an. Fallið var um þrír og hálfur metri. — Sig. Jóns. Framleiðsla kindakjöts skert um 1.000 eða 300 tonn á ári? Ágreiningur ráðherra um framkvæmd búvörusamnings: Útflutningsbætur vegna 1.000 tonna 350 milljónir kr. ÁGREININGUR er á milli Qár- málaráðuneytis og landbúnaðar- ráðuneytis um úthlutun fúllvirðis- réttar sauðfjár þau tvö ár sem eftir eru af gildistíma núverandi búvörusamnings. Fjármálaráð- herra vill fella niður allar úthlut- anir umfram verðábyrgð búvöru- samnings ásamt því að skerða framleiðsluna sem nemur auka- úthlutunum undanfarin ár. Alls þyrlti að skerða fúllvirðisréttinn um 1.000 tonn af kindakjöti hvort ár eða rúm 10% af framleiðslu. Landbúnaðarráðherra leggur til að slegið verði striki yfir aukaút- hlutanir undanfarin ár, viss atriði sett í gerðardóm ef ekki næst sam- staða um lausn en aukaúthlutanir felldar niður næstu tvö ár, þannig að framleiðslan verði skert um 300 tonn á ári eða 2-3%. Útflutnings- bætur með 1.000 tonnum af kinda- kjöti eru um 350 milljónir kr. Um miðjan síðast- liðinn vetur óskuðu fulltrúar ríkisins í framkvæmda- nefnd búvöru- samninga eftir fyr- irmælum frá yfir- mönnum sínum um hvernig taka ætti á ýmsum álitamálum varðandi framkvæmd búvörusamninganna. Landbúnaðarráðherra óskaði eftir .úttekt Ríkisendurskoðunar á fram- kvæmdinni og í skýrslu stofnunar- innar var yfirlit um úthlutun verð- ábyrgðar umfram búvörusamninga. sem var allt að 500 tonnum á ári. 1 síðustu viku svöruðu ráðherrarnir erindi fulltrúa sinna í framkvæmda- nefndinni. Svarið var sameiginlegt, þar sem segir að skerða þurfi fram- leiðslurétt það sem eftir er samn- ingstímans en með svarinu fylgdu bókanir þar sem fram kemur ágrein- ingur um hvernig það skuli gert. Steingrímur J. Sigfússon land- búnaðarráðherra telur erfitt að skerða framleiðslu allra sauðfjár- bænda næstu tvö ár vegna leiðrétt- inga og aukaúthlutana til einstakra manna undanfarin ár. í ræðu sinni á aðalfundi Stéttarsambands bænda sagðist hann hafa sett fram þá skóð- un að óhjákvæmilegt væri að gera greinarmun á þeirri framleiðslu sem þegar er til komin eða væntanleg á grundvelli útgefinna reglugerða og hins vegar þeim árum sem eftir lifa samningstímans og ekki hafa verið settar reglugerðir um. í greinargerð fjármálaráðuneytisins er hins vegar sett fram sú skoðun að líta beri á heildarframleiðslumagn samnings- tímans sem eina heild og tryggja að framleiðslan verði ekki meiri en samningurinn gerir ráð fyrir. Þetta mál var til umfjöllunar á Stéttarsambandsfundinum. Fram- leiðslunefnd fundarins lagði til að við úthlutun fullvirðisréttar fyrir nýbyij- að framleiðsluár yrði haldið eftir að minnsta kosti 2% til að mæta skerð- ingu vegna niðurfellingar auka- úthlutana. Hins vegar var ekki fallist á skerðingu vegna aukaúthlutunar samkvæmt reglugerðum undanfarin tvö ár, enda hafi þar verið um ein- hliða stjórnvaldsákvörðun að ræða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.