Morgunblaðið - 08.09.1989, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.09.1989, Qupperneq 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 203. tbl. 77. árg. FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989 Prentsmiðja Morgunblaðsins Beðið í frumskóginum rveuter REYNT var í gær að bjarga farþegum Boeing 737 þotu brasilíska flugfélagsins Varig, sem brotlenti í Mato Grosso, þéttum frumskógi í Brasilíu á sunnu- dag. Yfirvöld segja að siglingatæki vélarinnar hafi bilað. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef heyrt um að öll siglingatæki flugvélar hafi bilað. Menn geta gert mistök, en það er fátíðara að tækjabúnaður bregðist svo,“ sagði flugmálaráðherra Brasilíu, Otavio Lima. „Ef farþegunum hefði ekki auðnast að komast út úr þykkninu og ganga að sveitabæ, hefðum við aldrei fundist í frumskóginum," sagði Solange de Mello flugfreyja. Á myndinni sjást nokkr- ir þeirra, sem komust lífs af, bíða þess gð verða fluttir á sjúkrahús frá bóndabæ skammt frá slys- staðnum. 41 maður komst lífs af úr slysinu og 13 fórust. Kosningarnar í Suður-Afríku: Tutu spáir gífurleg- um flöldamótmælum Jóhannesarborg, Höfðaborg. Reuter, Daily Telegraph. ÞJÓÐARFLOKKURINN sem hefúr farið með völd í Suður-Afríku frá 1948, hélt þingmeirihluta í þingkosningum sem fram fóru á miðviku- dag þrátt fyrir mikið fylgistap. Til mikilla átaka kom á milli lögreglu og blökkumanna er mótmæltu kosningunum. Kirkjuleiðtogar hafa sak- að lögregluna um að hafa myrt 23 mótmælendur. Þjóðarflokkurinn hlaut 93 þing- sæti, af 166 mögulegum, en hafði 133 þingsæti fyrir kosningarnar. Þingmeirihluti Þjóðarflokksins féll úr 80 þingsætum í 21 þingsæti. 12 sætum af 178 á suður-afríska þing- inu er úthlutað stjórnmálaflokkum í samræmi við fjölda unninna þing- sæta. F.W. de Klerk, forseti landsins, hét því að beita sér fyrir stjórn- málaumbótum í landinu. De Klerk sagði að hin sterka útkoma Þjóðar- flokksins og Demókrataflokksins, sem berst gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda, veitti sér „skýlaust um- boð“ til að hefjast handa við valda- jöfnun í landinu. Þótt íhaldsflokkurinn, sem vill við- halda kynþáttaaðskilnaðarstefnunni, hafi næstum tvöfaldað þingmanna- fjölda sinn í kosningunum, úr 22 í 39, þá vann Demókrataflokkurinn einnig mikið á. Hann hlaut 33 þing- menn kjöma en hafði 21. Suður-afrískir kirkjuleiðtogar hafa sakað lögregluna um að myrða Pólland: Samstöðumeim í meinhluta í ríkissljórn Mazowieckis Varsjá. Reuter. TADEUSZ Mazowiecki, forsæt- isráðherra Póllands, hefiir myndað ríkisstjórn fjögurra flokka. Mazowiecki sagði á fiindi þingfulltrúa Samstöðu í gær að samstöðumenn myndu fara með sex ráðuneyti og Qög- ur mikilvæg embætti að auki í hinni nýju ríkisstjórn sem skip- uð verður 22 mönnum. Komm- únistar, sem hafa farið með völd í landinu frá 1940, hljóta Qögur ráðuneyti, Bændaflokk- urinn fjögur og Demókrata- flokkurinn þrjú. Auk fær þess hver flokkanna einn aðstoðar- forsætisráðlierra. Pólska þingið þarf að samþykkja ráðherra- lista Mazowieckis og verður gengið til atkvæða um hann nk. þriðjudag. „Fyrir höndum eru tvö mikil- væg verkefni en þau eru að koma á stjórnmálaumbótum í landinu og að leiða það út úr efnahagsleg- um ógöngum,“ sagði Mazowiecki á fundi sínum með samstöðu- mönnum. Mest kom á óvart val Mazowi- eckis á utanríkisráðherra, en emb- ættið féll í skaut Krzysztofs Skub- iszewskis. Hann er sá eini í hinni nýju ríkisstjórn sem stendur utan flokkanna fjögurra. Hann er 62 ára lagaprófessor við háskólann í Poznan. Mazowiecki sagði að samstöðu- menn myndu fara með öll helstu efnahagsmálaembættin. Leszek Balcerowicz, 42 ára háskólakenn- ari frá Varsjá, verður fjármálaráð- herra og aðstoðarforsætisráð- herra, Tadeusz Syryjczyk, tölvu- fræðingur við einkafyrirtæki í Kraká, iðnaðarráðherra og próf- essor Witold Trzeciakowski, helsti efnahagssérfræðingur Samstöðu, verður ráðherra án ráðuneytis, en hann mun jafnframt verða yfir- maður Efnahagsmálaráðs lands- ins. Aðrir ráðherrar Samstöðu verða Henryk Samsonowicz, fyrr- um rektor Varsjárháskóla sem fer með menntamál, og Izabella Cyw- inska, leikhússtjóri frá Poznan, sem fer með menningarmál. Hús- næðismálaráðuneyti verður í höndum Aleksanders Paszynskis og Jacek Kuron verður vinnu- málaráðherra. Kommúnistaflokkurinn fær ut- anríkisviðskipta- og samgöngu- málaráðuneyti. Czeslaw Kiszczak, leiðtogi pólska kommúnistaflokks- ins, sem í síðasta mánuði var til- nefndur forsætisráðherra en varð að segja af sér er honum mistókst að mynda ríkisstjórn, verður inn- anríkisráðherra, og Florian Siv- wicki varnarmálaráðherra, en þeir hafa gegnt þeim embættum frá 1981. 23 mótmælendur á kosningadaginn. Desmond Tutu erkibiskup spáði því að til gífurlegra mótmæla myndi koma gegn „fjöldamorðum“ á blökkumönnum og kynblendingum sem mótmæltu kosningunum. „Ég er þess fullviss að útför fórnarlamb- anna verði ógnvænleg stund,“ sagði Tutu. Ný aðferð til að ráða kyni barna Lundúnum. Daily Telegraph. Læknar við Hammersmith- sjúkrahúsið í Lundúnum hafa kynnt nýja aðferð til að ráða kyni barna. Robert Winston, sem stjórnað hef- ur rannsókninni, segir að þessi að- ferð sé flókin og dýr. Henni verði aðeins beitt þegar hætta sé á alvar- legum arfgengum sjúkdómum, sem aðeins leggjast á annað kynið, svo sem dreyrasýki og vöðvarýrnun hjá drengjum. Læknarnir í Hammersmith beita fyrst sömu aðferðum og við glasa- barnaftjóvgun. Ein fruma er síðan fjarlægð úr fósturvísinum tveimur dögum eftir fijóvgun og er deoxyrí- bósa-kjarnsýran, eða efni genanna, rannsökuð. Athugað er hvort í henni finnist y-litningur, eða kynlitningur karla. Á meðan heldur fósturvísirinn áfram að þroskast í tilraunaglasinu. Fósturvísinum er að lokum komið fyrir í móðurinni reynist hann af því kyni sem óskað er. Þjóðernisvakningin í Litháen: Almennur ótti við valdbeitingri sameinar kommúnista og Sajudis Vilnius. Reuter. TILRAUNIR Moskvusfjórnar- innar til að kveða niður þjóðern- isvakninguna í Eystrasaltslönd- uin hafa meðal annars valdið því, að Litháum finnst sem um þá sé setið. I landinu ríkir al- mennur ótti við, að sovétstjórnin láti brátt til skarar skríða og frammi fyrir þeirri ógn hafa kommúnistaflokkurinn og fiöldahreyfingin Sajudis, sem krefst fulls sjálfstæðis, tekið höndum saman. Umsátursástandið, sem ríkir í hugurn Litháa, kom vel fram á fundi, sem . 300 Sajudis-félagar héldu í Vilnius nú í vikunni. Fund- arsalurinn var skreyttur gulum, grænum og skarlatsrauðum fána sjálfstæðs Litháens og hver ræðu- maðurinn á fætur öðrum lýsti yfir, að hann óttaðist ekki íhlutun sovét- stjórnarinnar, jafnvel ekki þótt hún birtist í líki hervalds. „Við skulum ekki óttast efna- Reuter Sovéskir heriögregiumenn á tali við litháíska mótmælendur. hagslegar refsiaðgerðir. Litháar hafa fyrr orðið að þjást. Fólk var sent til Síberíu og sumir lifðu það af. Við getum einnig lifað af,“ sagði Kazimeras Antanavicius, þingmað- ur á sovéska fulltrúaþinginu. Jafnvel formaður litháíska kommúnistaflokksins, Algirdas Brazauskas, sem hefur áunnið sér virðingu og stuðning Sajudis með lýðræðislegum umbótum, segist ekki geta útilokað, að Moskvu- stjórnin beiti að lokum hervaldi í Eystrasaltsríkjunum. Hann lagði þó áherslu á, að á þingi yrði áfram fjallað um ný lög um borgararétt og um skýrslu þingnefndar, sem segir, að innlimun Litháens í Sov- étríkin árið 1940 hafi verið ólögleg. Olli skýrslan sú miklum áhyggjum og reiði í Moskvu. Vytautas Landsbergis, formaður Sajudis, segir, að sú ákvörðun að halda áfram þingumræðunni sýni, að kommúnistar í landinu hafi tek- ið sér stöðu með þjóðinni — og Sajudis. „Kremlarstjórnin vildi reka fleyg á milli okkar en reyndin er sú, að nú stöndum við sanian."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.