Morgunblaðið - 08.09.1989, Síða 7
Páll Bergþórsson.
Páll Bergþórs-
son ráðinn veð-
urstofiistjóri
PALL Bergþórsson deildarstjóri
veðurfarsrannsókna hjá Veður-
stofu íslands hefur verið ráðinn
veðurstofustjóri frá og með 1.
október næstkomandi til ársloka
1993.
Páll Bergþórsson fæddist í Fljótst-
ungu í Hvítársíðu árið 1923. Hann
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík árið 1944 og nam
veðurfræði við sænsku veðurstofuna
og Stokkhólmsháskóla. Auk þess
dvaldi hann við rannsóknir á Eng-
landi.
Páll var fastráðinn hjá Veðurstofu
íslands árið^949 og árið 1982 tók
hann við starfi deildarstjóra veður-
farsrannsókna. Hann hefur einnig
sagt veðurfréttir í Sjónvarpinu frá
stofnun þess árið 1966.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Páll að starfið legðist afskaplega vel
í sig. „Veðrið er mitt eina sanna
áhugamál," sagði hann. „Fyrirrenn-
arar mínir hafa aðeins verið þrír í
þau 70 ár sem Veðurstofan hefur
starfað og þeir hafa markað stefnu
sem ég vil gjarnan reyna að fylgja."
Ekki sagðist Páll hafa breytingar
í huga aðrar en þær sem ný tækni
kallar á. „Tæknin og þekkingin á
þessu sviði hefur breyst geysilega á
síðustu fjörtíu árum og alltaf hefur
verið reynt að nota nýja þekkingu
til að bæta þjónustu við landsmenn.
Því myndi ég vilja halda áfram eftir
því sem ijárhagur og mannval ieyfir.
En á Veðurstofunni er afskaplega
gott starfslið og ef það er eins gott
á öðrum ríkisstofnunum þá eru þær
ekki illa staddar," sagði Páll að lok-
Elín Heiðarsdóttir við afgreiðslu-
störf.
ÁTVR opnar
útsölu á Höfii
Höfn.
ÁFENGIS- og tóbaksverslun
ríkisins opnaði útsölu á Höfn,
þriðjudaginn 5. september.
Hún er til húsa á Víkurbraut 5
í húsnæði HP og sona, en fyrirtæk-
ið sem er flutningafyrirtæki sér um
reksturinn. Einn starfsmaður mun
annast afgreiðsluna.
Verslunin er opin milli klukkan
2 og 6 virka daga.
- JGG
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989
7
Verslanir
ganga í lið með
Endurvinnslunni
Móttaka Endurvinnslunnar á einnota öl- og gosdrykkjaumbúðum færist nú smám saman í
varanlegt horf. Móttökustöðum Endurvinnslunnar á höfuðborgarsvæðinu fækkar og að sama skapr
fjölgar þeim verslunum sem taka við áldósum.
Nítján vers/anir taka við dósum
Kaupmenn hafa verið fljótir að bregðast við og sýna áhuga sinn á umhverfisvernd í verki.
Nú þegar hafa verið teknar í notkun í nítján verslunum vélar sem taka við áldósum. Vélarnar
prenta út inneignarnótu í viðkomandi verslun fyrir andvirði dósanna.
Þessar verslanir eru:
Á höfuðborgarsvæðinu:
Mikligarður við Sund, Reykjavík.
Mikligarður við Hringbraut, Reykjavík.
Mikligarður við Engihjalla, Kópavogi.
Kaupstaður í Mjódd, Reykjavík.
Kaupstaður, Eddufelli, Reykjavík.
Miðvangur, Hafnarfirði.
Verslunin Bónus, Skútuvogi 13, Reykjavík.
Verslunin Bónus, Faxafeni 14, Reykjavík.
Verslunin Austurstræti 17, Reykjavík.
Söluturninn Bræðraborg, Hamraborg, Kópavogi.
Snævarsvídeó, Höfðatúni 2, Reykjavík.
Á landsbyggðinni:
Skagaver, Miðbæ 3, Akranesi.
Söluskáli KASK, Höfn.
Matvörumarkaður OLÍS, Hveragerði.
Kaupfélag Árnesinga, Vöruhús, Selfossi.
Kaupfélag Vestmannaeyja,
Verslun Goðahrauni 1, Vestmannaeyjum.
Verslunin Bára, Grindavík. „
Verslunin Veiðibær, Sandgerði.
Samkaup, Keflavík.
Eftir um það bil hálfan mánuð munu verslanir Miklagarðs, Kaupstaða og Miðvangur einnig
taka á móti einnota plast- og glerumbúðum.
Eftir því sem verslunum sem taka á móti umbúðum fjölgar loka upphaflegir móttökustaðir
Endurvinnslunnar. Móttökustöðunum í Breiðholti og Kópavogi hefur þegar verið lokað og innan
skamms verður einnig lokað við Eiðisgranda og í Hafnarfirði. Áfram verður opið í Dugguvogi 2 og
þangað er hægt að skila beygluðum og illa leiknum umbúðum. Opnunartími í Dugguvoginum er frá
kl. 13 - 18 mánudaga til föstudaga.
Söfnunarstaðir eru áfram um allt land.
Endurvinnsla er þáttur í sjálfsagðri umhverfisvernd og stuðlar að lieilbrigðara verðmæta-
mati. Þar við bætist að hún er dágóð búbót fyrir duglega safnara.
imnvimuK Hf
Nýtt úr notuðu!
YDDA Y30. 4/SÍA