Morgunblaðið - 08.09.1989, Síða 12

Morgunblaðið - 08.09.1989, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGlM -8.’ SKPTKMI-IkR- í Minning: Jón Ingimarsson skrifstofiisijóri Fæddur27. októberl923 Dáinn 2. september 1989 Vinarkveðja Minningar eru okkur hugstæðar á mjög mismunandi vísu. Sumt verður ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum okkar í ákveðnu umhverfi, í samvistum við ákveðinn hóp, í tengslum við tónlist, ljóð eða mynd- list. Ég hygg þó, að mörgum sé svo farið, að ákveðnar minningar kalli fram mynd af mönnum og atburða- rásum, sem beinlínis tengjast þeim. Það er ekki aðeins nú á þessum tímamótum, heldur ávallt, að um- hugsun um vin minn, Jón Ingimars- son, kalla fram í hugskoti mínu óvenju glöggar myndir af stað og stund. Af nógu er að taka. Feður okkar voru vinir og samstarfsmenn og enda þótt ekki væri daglegur samgangur, hittust þó fjölskyldur okkar oftar en ekki, og ein fyrsta ljóslifandi minningin sem ég sé skýrt fyrir mér er að Jóni og Lalla flatmagandi á gólfinu á Seljavegin- um í tindátaleik. Það eru nú fimmtíu og fimm ár síðan. Á sama hátt minnist ég líka heimsókna á Vita- stíginn, þar sem nóg var til af alls- konar dóti og blöðum; ég man aðal- lega eftir Familie Journal hinum danska og svo Fálkanum sem til var í þykkum bókum. Annars var í þá daga drjúg bæjarleið af Selja- veginum á Vitastíg, og því ekki hlaupið oft á milli. Nokkrum árum síðar settumst við samtímis í fyrsta bekk Gagnfræðaskóla Ingimars, í sömu bekkjardeiid, og hófst þá sam- eiginleg skólaganga og samvist, sem stóð allt frám á annað háskóla- ár. Ekki vorum við þó í sömu bekkj- ardeild í menntaskólanum, nema í fjórða bekk, en þar skildu leiðir er ég hrökklaðist í máladeildina og Jón hélt áfram á stærðfræði- og raun- vísindabraut. Hvað kemur upp í hugann frá gagnfræðaskólaárun- um? Ég sé þá fyrir mér allskonar sakleysisleg strákapör en skýrastar eru útlínurnar á frímerkjasafni og frímerkjasöfnun Jóns. Margir strákarnir þóttust eitthvað vera að safna frímerkjum, en safnið hans Jóns var það eina, sem ég man eft- ir að væri skipulega upp sett og nostursamlega raðað. Eg sé enn fyrir mér hvernig bækurnar litu út, og sérstaklega skiptimerkjaalbúm- ið. Það lærði ég nokkuð af Jóni, en brast fljótlega þolinmæði og þrautseigju til að halda söfnun áfram. Það gerði Jón hinsvegar um margra ára skeið. Menntaskólaárin liðu, við vorum svo iánsamir að tilheyra þar bekkj- arsamfélagi, sem í þráð og lengd hefur haldið hópinn, vináttu og samgangi í ríkara mæli en flestir aðrir slíkir hópar, sem ég hefi haft spurnir af. Myndir sem tengjast Jóni þar eru margar í huga mínum, en skýrt mótuð er fimmtabekkjar- ferðin _ okkar til Akureyrar vorið 1942. í bekkjarlífinu komu stundum upp smá atvik, að menn urðu lítil- lega saupsáttir, en slíkt stóð skammt, tíðum vegna ljúflegrar milligöngu og sáttargerðar Jóns. Þar kemur fyrst ljóslega í minning- ar mínar, myndin af hinum milda, þægilega og mjúka félaga, sem við öll bekkjarsystkini hans þekkjum svo vel, stendur okkur nú svo ljós fyrir sjónum, og við þökkum fyrir. Jón innritaðist með allmörgum bekkjarbræðrum sínum í læknis- fræði að afloknu stúdentsprófi, en á þeim tfma gat berklaveikin enn verið raunverulegur ógnvaldur, og á öðru ári veiktist Jón all hastarlega af brjósthimnubólgu ásamt berkla- lungnabólgu. Hann tapaði það miklu af námsárinu, að hann tók þann kost að skipta yfir í lögfræði- nám. í þeirri grein haslaði hann sér síðan völl og vann sitt megin lífsstarf. Það er Ijóst, að Jón hefði áreiðanlega orðið góður læknir í orðsins allra beztu merkingu, og stundum fannst mér á honum sem hann hefði gjarnan valið sér þann starfsvettvang. Hitt er, að svo sem ávallt er með alla góða og farsæla menn, þá skilaði hann góðum og árangursríkum starfsdegi í grein sinni, og nú um áratuga skeið ein- mitt í nánum tengslum við læknis- fræðileg og heilbrigðisleg viðfangs- efni. Mjög skýrar minningamyndir eru í huga mér frá heimsóknum til Jóns á Vitastíginn í veikindum hans, og ég man sérstaklega eftir von- brigðum mínum, er hann sagðist vera hættur við að fara í próf með okkur hinum. En allt snerist til besta vegai', hann náði fullri heilsu. Myndirnar streyma að. Ein er ógleymanleg. Bláskógar á páskum 1942. Jón býður okkur nokkrum félögunum þangað til dvalar ásamt pabba sínum. Allir þekktum við séra Ingimar, flestir verið í skóla hjá honum, en vissu ekki allir fyrri en nú hvað hann gat verið bráð- fyndinn og skemmtilega ræðinn. Það voru ekki sömu kræsingarnar á Bláskógum og oft voru framborn- ar á saman stað þijátíu til ljörutíu árum síðar, en kjarngóð íslenzk bjúgu í alla mata. Minnisstæðasta og skemmtilegasta ijallganga sem ég hefi komizt í um ævina. Upp Bláskógaheiðina og upp á Kjöl, al- veg fram á brún. Utsýni um mest- allt Vesturland og allt norður til móðurbyggða Jóns, því Mælifells- hnjúkur blasti við af þessari há- bungu. Að loknu háskólanámi skiljast Ieiðir nokkuð, svo sem oft verður, en ég veit alltaf af Jóni og ég sé hann og Lalla fyrir mér á gólfinu á Seljaveginum. Von bráðar liggja leiðir saman á ný. Við kvæntumst um svipað leyti sitt hvorri vinkonunni, börnin koma, eru á svipuðu reki, samgangur er aftur tryggður. Vetrarheimsókn til Jóns og Illu á Noregi, skíðagöngur og bílferðir, ásamt skemmtilegum samvistar- og_ samræðustundum. Heimkoma til íslands og hjálp og gestrisni þeirra hjóna við aðlögun og nýjum heimilisstófnun. Góðar stundir á Birkimel, síðar Vestur- brún, svo ekki sé minnst á minn- ingamyndir af Þingvallavatni í öll- um veðrum eins og það blasir við manni af svölum Bláskóga. Fjallaferðir, skíðaferðir, skemmtilegar samverur við söng og spil; allar þessar myndir sækja á og standa fyrir mér ljóslifandi. Samhugur og návist vina í Lund- únaborg á erfiðum dögum í mínu lífi. Loks áttum við nýlega saman ógleymanlega langferð, sem við vorum alls ekki búnir að melta eða ræða nóg. Framar öllu stendur þó myndin af Jóni, þar sem hann á ljúfan og hógværan hátt segir skoðanir slnar, eða útskýrir bókband, málaralist sína og garðyrkju, ekki með há- stemmdum orðum, heldur með þeirri mýkt og eintegni, sem honum var svo eiginleg. Á merkisdegi í lífi flölskyldunnar fyrir skömmu talaði Jón nokkur orð til gesta og þá um vináttuna. Þau orð og einlægni þeirra munu verða með mér alla tíð og minna mig á eðliseigindir Jóns, vammleysi, aiúð og einlægni. Ásmundur Brekkan Jón Ingimarsson er látinn. Bh'egnin kom yfir okkur sem reiðar- slag. Við eigum erfitt með að skilja að einn af okkar bestu vinum er horfinn af sjónarsviðinu, þessi háttvísi og prúði maður, hvers manns hugljúfi, sem allir dáðu og elskuðu er voru svo lánsamir að kynnast honum. Elínu konu hans hef ég þekkt frá unga aldri, faðir minn var forstjóri Hampiðjunnar hf. og faðir hennar . lengstum stærsti hluthafinn. Valdís kona mín og Elín voru æskuvinkon- ur, báðar Vesturbæingar úr næsta nágrenni. Síðar bjuggum við öll í Kaupmannahöfn við nám. Þegar heim kom frá námi kynntist hún og giftist Jóni. Það var gæfa þeirra beggja. Þau studdu hvort annað og voru samhent svo af bar. Gæfa, barnalán, gagnkvæm virðing, skiln- ingur og hjálpsemi var aðalsmerki þeirra góða hjónabands. Jón var mjög ijöihæfur, ég öfund- aði hann oft af þeim flölda tóm- stundaáhugamála sem hann átti. Gróðurrækt stundaði hann af kost- gæfni og þekkingu, söfnun ýmiss konar, bókband og einnig málaði hann myndir. Hann var mjög lif- andi persónuleiki og einstaklega þægilegur og skemmtilegur í allri umgengni. Hann var hið mesta snyrtimenni, sem aldrei féll verk úr hendi, t.d. endurbyggði hann nánast alveg sumarbústað foreldra sinna við Þingvallavatn og. er það nú hið myndarlegasta bú með rafmagni, vatni, bátaskýli, góðri girðingu og mikilli ræktun. Þar var þeirra annað heimili og ávallt mjög gestkvæmt, enda staðurinn og húsið mjög heill- andi. Gestrisnin svo höfðingleg að sjálfsagt þótti að ijölskyldumeðlimir og góðir vinir gistu þar á sumrin. Hús sitt í Vesturbænum höfðu þau endurbætt verulega í áranna rás og húsið og garðurinn bar snyrti- mennsku fagurt vitni. Jón var lögfræðingur að mennt- un. Hann flutti fyrir mig tvö mál áður en hann hóf störf í heilbrigðis- málaráðuneytinu og vann þau bæði ' af slíkri snilld, að í báðum tilfellum höfðu lögfræðingar mótaðilans orð á því, að þá hafði aldrei dreymt um að tapa málunum svo afgerandi. Oft leitaði ég til vinar míns með ýmis vandamál og alltaf var hann svo vel að sér um hin margvísustu mál að góð lausn eða hollar leið- beiningar fundust, ávallt málefna- legar og sanngjarnar. Við Valdís vottum Elínu og Ijöl- skyldunni allri okkar innilegustu samúð og munum ávallt í hjörtum okkar geyma minninguna um góðan vin,og góðan dreng. Blessuð sé minning hans. Birgir Frímannsson Vöxtur og þroski hvers einstakl- ings mótast að miklu leyti af þeim manneskjum, sem standa honum næst. Við hittum fyrir á lífsleiðinni mikinn fjölda samferðamanna, sem á einhvern hátt hafa áhrif á líf okkar og störf. Þessi áhrif eru mis- mikil og misgóð. Það er mikil gæfa að hitta gott fólk, sem vill um- hverfi sínu vel og hefur þannig já- kvæð áhrif á líf allra í kringum sig. Fyrir börn, sem eru að þroskast, er ómetanlegt að fá að kynnast slíku góðu fólki. Það verður ógleym- anlegt og stendur fölskvalaust í endurminningum bernskuáranna. Ég kynntist Jóni Ingimarssyni ung að árum, þar sem hann og kona hans Elín Guðmannsdóttir voru nánir vinir foreldra minna. Jón var hæglátur maður og seintekinn en eftir því sem tíminn leið fór ég að hænast að honum og skildi með vitund barnsins þá mannkosti, sem hann bjó yfir. Hann var hægur í allri framkomu en ávallt hlýr og ástúðlegur og ég skynjaði þá miklu festu sem innra bjó. Tíminn leið, ég óx úr grasi og áfram hélt Jón Ingimarsson að vera óaðskiljanlegur hluti þess umhverf- is, sem ég lifði í, vegna vináttu hans við foreldra mína. B’aðir minn mat Jón mjög mikils og oftsinnis sátu þeir lengi og skeggræddu rök tilverunnar og daglegt amstur og brauðstrit. Ég fann vel, hve vænt föður mínum þótti um Jón, og það hafði að sjálfsögðu áhrif á mína afstöðu og mér þótti enn vænna um hann fyrir vikið. Þeir voru líkir um margt og bjuggu yfir mörgum eiginleikum, sem ég dáði hjá báð- um. Árin héldu áfram að líða; ég fór til útlanda og dvaldist þar um skeið. Þá var gaman að koma heim aftur í gamalkunnugt umhverfi og sjá gömlu andlitin og vinina, sem voru hluti þess að koma heim til íslands. Jón var einn af þeim, sem alltaf var jafn gaman að hitta. Hann var mjög fróður og fylgdist vel með og hafði góð tök á íslensku máli, en það sem laðaði mig mest að honum var sú hlýja sem mér ávallt fannst stafa frá honum. Mér leið vel í návist hans og fann, að Jón var maður sem ég gat treyst til fulln- ustu. Mannkostir Jóns komu skýrt í ljós, þegar faðir minn dó 1986. Þá var Jón ómetanlegur styrkur flöl- skyldu minni og hjálpaði okkur með ráðum og dáð, og lagði sig allan fram til að létta okkur þá miklu erfiðleika, sem blöstu við. Þá sýndi hann, hversu heill og óskiptur hann gekk að hveiju verki og lagði sál sína og krafta til að gera allt sem gera þurfti. Svo reyndist Jón mér áfram. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd og aðstoða ef eitt- hvað bjátaði á. Mér fannst stundum, að hann teldi sig eiga að koma í stað föður míns og liðsinna mér eftir bestu getu. Nú er Jón allur og þeir báðir horfnir yfir móðuna miklu, vinirnir, faðir minn og hann. Jón féll skyndi- lega frá á ágætum aldri, þegar allt virtist leika í lyndi og miklir erfið- leikar í ijölskyldunni sakir veikinda Ingimars virtust að baki. Ég var viðstödd, þegar Jón fékk aðkenn- ingu að þeim sjúkdómi, sem síðar dró hann til bana, fyrir nokkrum mánuðum síðan. Hann fékk skyndi- lega mikinn hjartaverk og varð að flytja hann þá sjúkrahús. Fáa menn hef ég séð bera sig jafnvel og af slíku æðruleysi og Jón þá. Hann virtist skynja að eitthvað alvarlega var að, en hafði mestar áhyggjur af þeirn, sem umhverfis hann stóðu. I íslendingasögum er stundum sagt um menn, að þeir hafi orðið vel við dauða sínum. Það voru oft þeir, sem tóku raunum lífsins með karlmennsku og rólyndi og virtust vaxa með hverri raun. Jón var slíkur maður, hann hélt ávallt ró hugans á hveiju sem gekk, en undir niðri bjó sú seigla og æðruleysi sem gerði hann að þeim ágæta manni, sem hann var. Ég sakna mjög Jóns Ingi- marssonar, og votta aðstandendum hans mína dýpstu samúð. Erna Einarsdóttir Það var komið R í mánuðinn föstudaginn 1. september. Ég var farinn að hlakka til þess að hitta spilafélagana að nýju eftir sumar- hléið. Hringdi því til Jóns Ingimars- sonar, sem var ókrýndur foringi hópsins. Hann var þá nýfarinn til helgardvalar í sumarhúsi þeirra hjóna við Þingvallavatn. Þann sama dag veiktist hann og daginn eftir var hann allur. Jón var einn af fjórum, sem hófu að spila brids reglubundið fyrir um það bil 45 árum. Úr þeim hópi hafa tveir látist á undan honum síðustu 4 árin. Sá sem lengst hefui' verið í þessum hópi með Jóni er Sveinn K. Sveinsson, sem hefur verið þar í 40 ár. Sá sem línur þessar skrifar kom inn í hópinn fyrir 26 árum. Hinir eru Bjarni Guðnason og Ró- bert Sigmundsson, sem báðir hafa bæst í hópinn á síðustu 4 árum. Þegar ég fór að spila við þá fé- laga, endurnýjast kunningsskapur- inn við Jón Ingimarsson. Ég kynnt- ist honum 1937 í Ingimarsskólanum eins og skólinn var kallaður þá og kenndur við Ingimar föður Jóns — síðai’ nefndur Gagnfræðaskóli Austurbæjar — Við urðum síðar bekkjarbræður í MR í 4 vetur. Kunningsskapurinn treystist, eftir því sem við spiluðum lengur saman og varð brátt að vináttu. Jón var sá sem kunni „kerfið" og kunni til verka við úrspilið. I formála áð Bridgebókinni, sem gef- in var út 1957 þakkar Zóphónías Pétursson Jóni fyrir „ómetanlega hjálp við lestur handrits og fyrstu prófarkar" og tekur fram að kaflinn um Stayman-kerfið sé að öllu leyti verk Jóns. Það var því ekki að ófyr- irsynju að ávallt voru borin undir Jón álitamál um úrspil og sagnir. Þrátt fyrir yfirburða kunnáttu á þessu sviði, var hann hógvær í dóm- um. Og þegar gert var hlé á spila- mennskunni til þess að spjalla yfir kaffibolla hafði hann gjarnan yfir hnyttnar stökur, en þær frumsömdu fengum við sjaldan að heyra, nema frá öðrum. Ég hef aðeins íjallað um lítinn þátt í fari þessa háttprúða öðlings sem við nú höfum misst, enda þótt margs sé að minnast, en það munu aðrir gera. Þessar línur eru einkum til þess ætlaðar að þakka fyrir hönd okkar spilafélaganna fyrir óteljandi ánægjustundir og frábæra viðkynn- ingu. Ég get ekki stillt mig um að vitna í grein, sem er að finna í riti, sem gefið var út 1971 í tilefni 60 ára afmælis knattspyrnufélagsins Vals. Hún er eftir Frímann Helgason, þar sem hann endursegir sögu, sem Róbert Sigmundsson, einn af spila- félögunum, sagði honum löngu áð- ur. Honum segist svo frá: „Á þessum árum, þegar ég æfði með Val, hafði Grímar Jónsson ákveðið að við skyldum keppa við Hauka. Sagði hann okkur öllum að koma með skó og jafnframt það, að hann myndi ekki velja í liðið, fyrr en rétt fyrir leikinn. Mikill fjöldi mætti til leiks og vafalaust margir, sem höfðu von um að velj- ast í liðið og voru til þess útbúnir með skó, eftir því sem efni leyfðu svo og búning. Þegar Grímar hafði gert heyrin kunnugt um liðskipan, kom í ljós að ég hafði verið valinn. Kom þá til mín drengur úr hópn- um, en sá hafði ekki varið valinn í liðið og segir „ég á svo til nýja skó. Fáðu þá og kepptu á þeim“. Auðvitað vissi Nonni, en svo var hann kallaður að ég átti lélega skó. Ég kunni ekki við að taka við nýjum skóm og ata þá út, en Nonni gaf sig ekki og fullyrt að ég mundi leika betur á góðum skóm. Innst inni fannst .mér að það hlytu að vera dásamlegt að leika á svona fallegum fótboltaskóm og fór svo, að ég þáði boðið og bauðst Nonni til þess að geyma gömlu skóna mína á meðan og ég keppti á nýju skónum hans. Leikurinn hófst og skora Haukar fyrst 1:0. Albert Guðmundsson jafnar, 1:1. Fyrir leikslok hafði ég heppnina með mér og skora sigur- markið. Þetta atvik er mér ógleym- anlegt.“ Og síðar segir Róbert: „Auðvitað hafði Nonni komið á nýjum skóm með þá von í bijósti að vera valinn í liðið. Endurminn- ingin um þessa framkomu Nonna hefur oft yljað mér og aldrei hef ég orðið jafn glaður, eftir að hafa skorað mark, eins og í þessum leik, enda fannst mér eins óg ég væri að þakka Nonna fyrir lánið á nýju skónum hans.“ Grein þessari (1971) lýkur á þessum orðum: „Nonni var Jón Ingi- marsson, þekktur sundmaður á sínum tíma. Nú deildarstjóri í heil- brigðisráðuneytinu." Nú þegar Jón er fallinn frá, verð- ur okkur hinum erfitt um vik og finnst missir okkar vera mikill. Fyrst svo er um okkur, má leiða getum að því, hversu þungbært það hlýtur að vera fjölskyldu hans og samstarfsfólki. Fyrir hönd spilafélaganna, Hannes Finnbogason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.