Morgunblaðið - 08.09.1989, Side 16
16
MORGÚNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989
Fyrstu flárréttir um helgina
BÚNAÐARFÉLAG íslands hefur að venju tekið saman lista yfir
helstu fjárréttir. Fer listinn hér á eftir:
föstudagur 15. sept. og
laugardagur 16. sept.
sunnudagur 10. sept.
mánudagur 18. sept.
sunnudagur 10. sept.
sunnudagur 17. sept.
fimmtudagur 14. sept.
laugardagur 16. sept.
miðvikudagur 13. sept.
sunnudagur 17. sept.
sunnudagur 10. sept.
fimmtudagur 14. sept.
sunnudagur 10. sept.
laugardagur 16. sept.
iaugardagur 16. sépt.
sunnudagur 10. sept.
mánudagur 18. sept.
miðvikudagur 13. sept.
mánudagur 18. sept.
sunnudagur 24. sept.
Auðkúlurétt í Svínadal, A-Hún.
Brekkurétt í Norðurárdal, Mýr.
Dalsrétt í Mosfellsdal, Kjós
Fljótstungurétt í Hvítársíðu, Mýr.
Fossvallarétt v/Lælg'arbotna, (Rvík/Kóp)
Grímsstaðarétt í Álftaneshr., Mýr.
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn.
Hítardalsrétt í Hraunhr., Mýr
HHðarrétt í Bólstaðarhi.hr., A-Hún
Hraunsrétt í Aðaldal, S-Þing.
Hrunar- tt 1 Hrunamannahr., Árn.
Hrútatnngurétt í Hrútafirði, V-Hún.
Húsmi.larétt v/Kolviðarhól, Árn.
Kaldárrétt v/Hafnarfjörð
Káldárbakkarétt í Kolb.st.hr., Hnapp.
Kjósarrétt í Kjósarhr., Kjósarsýslu
Kiausturhólarétt í Grímsnesi, Árn.
Koilaíjarðarrétt, Kjalameshr., Kjós.
Ki ísuvíkurrétt í Krísuvík, Gullbr.
Lr.ngholtsrétt í Miklaholtshreppi, Snæf.miðvikudagur 20. sept.
1-aufskálarétt í Hjaltadal, Skagafirði laugardagur 9. sept.
Miðfjarðarrétt f Miðfirði, V-Hún. sunnudagur 10. sept.
Mælifcllsrétt í Lýtingsstaðahreppi, Skag.sunnudagur 17. sept.
Nesjavallarétt í Grafningi, Árn. laugardagur 16. sept.
Oddsslaðarétt í Lundarreykjadal, Borg. miðvikudagur 13. sept.
Rauðsgilsrétt í Hálsasveit, Borg. föstudagur 15. sept.
Reykjahlíðarétt í Mývatnssveit, S-Þing. mánudagur 11. sept.
Reynistaðarrétt í Staðahr., Skag.
Selflatarétt í Grafningi, Árn.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn.
Silfrastaðarétt í Akrahr., Skag.
Skaftholtsrétt í Gnúpverjahreppi,
Skaftárrétt (Ytri-Dalbæjarrétt)
í Kirkjub.hr., V-Skaft.
Skaftártungurétt í Skaftártungu, V-Skaft.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag.
Skeiðaréttir á Skeiðum, Árn.
Skrapatungurétt í Vindhælishr., A-Hún.
Stafnsrétt f Svartárdal, A-Hún.
Svignaskarðsrétt í Borgarhr., Mýr.
Tungnaréttir í Biskupstungum, Árn.
mánudagur 11. sept.
mánudagur 18. sept.
mánudagur 18. sept.
mánudagur 18. sept.
Árn. fimmtudagur 14. sept.
laugardagur 16. sept.
laugardagur 23. sept.
sunnudagur 10. sept.
föstudagur 15. sept.
sunnudagur 17. sept.
iaugardagur 16. sept.
miðvikudagur 13. sept.
miðvikudagur 13. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A-Hún.
Vogarétt á Vatnsleysuströnd, Gullbr.
Valdarásrétt í Víðidal, V-Hún.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V-Hún
Þórkötlustaðarétt v/Grindavík
Þverárrétt í Þverárhlíð, Mýr.
Ölfusrétt í ölfusi, Árn.
föstudagur 15. sept. og
laugardagur 16. sept.
mánudagur 18. sept.
föstudagur 15. sept.
laugardagur 16. sept.
sunnudagur 17. sept.
þriðjudagur 12. sept. og
miðvikudagur 13. sept.
þriðjudagur 19. sept.
Helstu réttir í landnámi Ingólfs
Laugardagur 16. sept. upp úr hádegi:
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit.
Húsmúlarétt við Kolviðarhól.
Nesjavallarétt í Grafningi.
Kaldárrétt við Hafnarljörð.
Sunnudagur 17. september síðdegis:
Fossvallarétt við Lækjarbotna.
Sunnudgur 17. september að kvöldi:
Þórkötlustaðarétt í Grindavík.
Mánudagur 18. september árdegis:
Selvogsrétt í Selvogi.
Selflatarétt í Grafningi.
Dalsrétt í Mosfellsdal.
Vogarétt á Vatnsleysuströnd.
Mánudagur 18. september skömmu fyrir hádegi:
Kjósarrétt í Kjós.
Mánudagur 18. september upp úr hádegi:
Kollafjarðarrétt í Kollafirði.
Þriðjudagur 19. september árdegis:
Ölfusrétt í Ölfusi.
Sunnudagur 24. september upp úr hádegi:
Krísuvíkurrétt í Krísuvík.
Seinni réttir verða dagana 14.-17. október á öllu svæðinu.
Helstu stóðréttir
Skarðsrétt í Gönguskörðum, Skag.
Reynistaðarrétt i Staðarhr., Skag.
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag.
Hlíðarrétt í B6Ist.hl.hr., A-Hún.
Víðidalstungurétt í Víðidal, V-Hún.
sunnud. 17. sept. upp úr hádegi.
sunnud. 17. sept. síðdegis.
laugard. 30. sept. upp úr hádegi.
sunnud. 24. sept. upp úr hádegi.
laugard. 30. sept. upp úr hádegi.
Mikil endurskipulagning á rekstri S AA
MIKIL endurskipulagning hef-
ur farið íram á rekstri SAA að
undanförnu. Með henni er fyrst
og fremst verið að efla og sam-
eina fjármáiastjórnun hinna
ýmsu deilda og stefnt er að því
að félagið geti hægt og sígandi
unnið sig út úr fjárhagserfið-
Ieikum undanfarinna ára. Um
fimm þúsund manns leituðu til
SÁÁ á síðasta ári og segir í frétt
frá SÁÁ að róðurinn hafi
„þyngst til muna með tilkomu
bjórsins".
Búið er að tölvuvæða allt starfs-
mannahald og bókhald félagsins
og fer nú allt ijárstreymi í gegnum
aðalskrifstofuna í Síðumúla. Hefur
þessi breyting þegar skilað miklum
árangri og auðveldað bæði dagleg-
an rekstur og gerð langtímaáætl-
ana. Fyrir liggur að auka þarf
þjónustu SÁA með ýmsum hætti,
til stendur að stórefla göngudeild-
ina, í Síðumúla og þegar er búið
að taka upp svonefnda vinnustaða-
þjónustu.
Alls eru um hundrað manns á
launaskrá hjá hinum ýmsu deild-
um og stofnunum en SÁÁ rekur
sjúkrastöðina á Vogi, meðferðar-
heimilin á Sogni í Ölfusi og Staðar-
felli, auk göngudeildar fyrir alkó-
hólista og fjölskyldudeildar að
Síðumúla 3-5 í Reykjavík.
U mdeilanlegur dómur
eftir dr. Gunnlaug
Þórðarson
Svo sem kunnugt er, vék forseti
Islands samkv. tillögu dójnsmála-
ráðherra Magnúsi Thóróadsen úr
starfi um stundarsakir, þar til dóm-
ur gengi í máli hans.
í framhaldi af því var máli hans
stefnt tii borgardóms til staðfest-
ingar. Að mínu mati er þar um
ranga málsmeðferð að ræða.
í 61. gr. stjórnarskrárinnar seg-
ir: „Þeim dómendum, sem ekki hafa
að auk umboðsstörf á hendi, verður
ekki vikið úr embætti nema með
dómi.“ Hér er átt við að ekki megi
víkja hæstaréttardómara úr emb-
ætti nema með dómi. Því hefði verð
eðlilegast að tilboði hæstaréttar-
dómarans um að víkja sæti hefði
verið tekið og þannig komist hjá
stjórnarskrárbroti.
Slíkt mál, þar sem starfsmanni
er vikið úr starfi um stundarsakir
fyrir meintar misfellur, skal fara
með að hætti opinberra mála. Um
það eru ákvæði í 8. gr. laga nr.
38/1954 svohljóðandi: „Nú hefur
starfsmanni ríkisins verið veitt
lausn um stundarsakir fyrir meintar
misfellur í starfi, og skal þá þegar
mál hans rannsakað af kunnáttu-
mönnum eða fyrir dómi að hætti
opinberra mála, ef ástæða þykir
til, svo upplýst verði, hvort rétt er
að veita honum lausn að fullu eða
láta hann taka við starfinu að nýju.“
í 139. gr. alm. hegningarlaga eru
ákvæði um refsiverða verknaði op-
inbers starfsmanns og er þar gert
ráð fyrir að höfðað skuli mál á hend-
ur honum til sviptingar starfinu,
ef hann telst ekki lengur hæfur."
Frávísun ef ekki sýkna
Hér er berlega talað um að víkja
manni úr starfi og að jafnaði miðað
við, að með mál skuli fara að hætti
opinberra mála, sem hlýtur að þýða
að þannig skuli rannsókn máls hag-
að, hver sem ávirðing hans kynni
að vera, ef það telst vafasamt að
hann gegni starfmu áfram.
í máli dómsforsetans hefði verið
eðlilegast að það hefði sætt opin-
berri rannsókn eins og á stóð og
að því búnu tekin ákvörðun um að
málinu skyldi fylgt eftir, ef að því
ráði yrði horfið. Á meðan hefði
dómarinn vikið úr réttinum. Þá
hefði málið fengið annan og
mennskari blæ og lyktir orðið aðrar.
Samkvæmt því hefði átt að vísa
málinu frá dómi, ef ekki hefði orðið
um sýknudóm að ræða.
Sönnunarskortur hefði átt
að leiða til sýknu
í stefnu málsins á hendur dóms-
forsetanum var endurtekin hin
sama firra, um að hann hefði brot-
ið reglur um áfengiskaup sem hand-
höfum forsetavalds væru heimil.
Þá var því og haldið fram að
áfengiskaup dómsforsetans hefðu
verið með öllu heimildarlaus.
Höfuðið var bitið af skömminni
með því að halda því fram að dóms-
forsetinn hefði flekkað mannorð
sitt með áfengiskaupum sínum.
Mannorðsflekkun er lögfræðilegt
hugtak, sem aðeins á við refsiverð-
an verknað. Enda var því ekki hald-
ið til streitu, þegar á herti.
Að vonum komst dómstóllinn að'
þeirri niðurstöðu, að til væru reglur
um rétt forseta Hæstaréttar sem
handhafa forsetavalds til áfengis-
kaupa á sérverði. Orð réttarins um
þetta atriði eru athyglisverð:
„Óupplýst er með hvaða hætti þær
reglur um áfengiskaup á sérsviði
sem um er deilt í málinu voru sett-
ar ... Engu að síður verður að telja
að reglurnar hafi haft það gildi...
að þeim sem þær náðu til hafi ver-
ið heimil kaup áfengis til einka-
nota, þ. á m. handhöfum forseta-
valds." . . . í reglunum var ekki
að finna ákveðin takmörk á því
magni sem .. .var heimilt að
kaupa, en þrátt fyrir það verður
að líta svo á að þeir... hafi ekki
getað nýtt þær takmarkalaust."
Því verður ekki neitað, að það
er furðuleg staðhæfing og með öllu
órökstudd, að dómsforsetinn hafi
„nýtt heimildina tii áfengiskaupa
takmarkalaust", þegar það er at-
hugað, að heimildin var aðeins nýtt
meðan forseti íslands var í útlönd-
um og mér reiknast til að í ekki
eitt einasta skipti hafi dómsforset-
inn nýtt heimildina að fullu miðað
við launin, samkvæmt þeirri reglu,
sem hafði myndast um þessi
fríðindi.
Þannig hafði dómsforsetinn ekki
gerst brotlegur við neinar reglur
og því voru orð fjármálaráðherrans
í fjölmiðlum ekki rétt sem fyrr seg-
ir. Engin fyrirmæli voru um magn,
sem fríðindi þessi veittu. Engin
lagagrein hafði verið brotin.
Ekki miðað við
hið keypta magn
Það er athyglisvert að dómurinn
„í fáum orðum sagt er
þessi dómur ekki studd-
ur neinu lagaákvæði,
heldur byggður á per-
sónulegu mati dómar-
anna á siðferði. Slík við-
miðun getur ekki verið
grundvöllur dóms. Sið-
ferðilegt mat er svo ein-
staklingsbundið og um
það er enginn algildur
tilfinningalegur mæli-
kvarði. Til þess að telja
að eitthvert athæfi
bijóti í bága við sið-
ferðilegt mat, þarf rök.
í dóminum er engin til-
raun gerð til þess að
rökstyðja niðurstöð-
una.“
lagði ekkert upp úr því að dóms-
forsetinn skilaði aftur rúmum helm-
ingi hins keypta víns. Vissulega bar
að meta að dómurinn skyldi með
því móti vilja taka tillit tii hvaða
augum þessi kaup væru litin af al-
menningi.
Því má segja að á þessu dóms-
stigi hafi kaupin ( raun réttri snúist
um 900 flöskur. 1 útreikningi, sem
dómurinn gerði, var einungis miðað
við heildarmagnið, en ekki hið raun-
verulega magn. Með réttum út-
Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Skáldsagnasamkeppni
Stórstúku íslands:
„Fjallar um
lífshlaup átta
vinkvenna“
-segir höfundurinn
Dómnefhd Stórstúku Islands,
sem valin var vegna skáldsagna-
samkeppni stúkunnar, tilkynnti í
vikunni, að Sigríður Gunnlaugs-
dóttir hefði ritað besta handritið
af tíu sem bárust. Saga Sigríðar
nefnist Lífsþræðir og verður hún
ein af jólabókum Æskunnar í ár.
Sigríður sagði í samtali við Morg-
unblaðið, að sagan fjailaði um dag-
legt líf kvenna, það væri engin sér-
stök söguhetja, heldur rifjuðu átta
vinkonur, skólasystur, upp lífshlaup
sitt. Dómnefndin taldi Sigríði hafa
ritað handritið á „lifandi og mynd-
rænan hátt“.
Þetta er frumraun Sigríðar á rit-
vellinum að því undanskildu að birst
hefur eftir hana smásaga í smá-
sagnasafni sem Almenna Bókafélag-
ið hefur gefið út. Sigríður starfar
hjá Sjálfsbjörg og er auk þess hús-
móðir. Hún var rúmt ár að ljúka
handriti sínu og vann aðeins í
frístundum.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
reikningi hefðu fríðindin, sem
dómsforsetinn nýtti sér talist vera
jafnvirði u.þ.b. kr. 42.000,- á mán-
uði þann tíma sem um er að ræða.
Dómurinn taldi að í ljósi þeirrar
niðurstöðu, er fyrr greinir hefðu
kaup dómsforsetans verið langt
fram úr því sem hæfilegt gat talist
og samboðið virðingu hans sem for-
seta Hæstaréttar og eins af liand-
höfum forsetavalds án þess að nein
rök væru færð fyrir þessari stað-
hæfingu, en aðeins stuðst við per-
sónulegt mat.
Síðan segir í forsendum dómsins:
„Telja verður að stefndi hafi með
þessum áfengiskaupum rýrt svo
mjög álit sitt siðferðislega að hann
megi ekki lengur gegna dómara-
embætti.
Samkvæmt þessari niðurstöðu
ber að víkja stefnda úr embætti
dómara við Hæstarétt íslands.“