Morgunblaðið - 08.09.1989, Síða 17

Morgunblaðið - 08.09.1989, Síða 17
17 L MORGVNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989 Michael Keaton í hlutverki Batmans og Jack Nicholson sem Gárungi takast á. Batman í Bíóborg- inni og Bíóhöllinni Kvikmyndin Batman verður frumsýnd í Bíóborginni og Bíóhöllinni í dag, föstudag og er Island þriðja landið til að taka myndina til sýning- ar. Hérlendis verður kvikmyndin bönnuð innan 10 ára, en í Bretlandi fá börn yngri en 12 ára ekki aðgang að sýningum. Athugasemd frá Lúðvík Jósepssyni VEGNA ummæla í Morgunblaðinu í gær, höfð eftir Kristni Finn- bogasyni, varaformanni í banka- ráði Landsbankans um „að ekki hafi tekist að ná í Lúðvík, þar sem hann hafi verið á laxveiðum á þessum _tíma“ vil ég taka þetta fram: „Ég var þijá virka starfs- daga bankans fjarverandi, mánu- dag, þriðjudag og miðvikudag, ég hafði gert bankastjóra og Kristni Finnbogasyni nákvæma grein fyrir ijarveru minni og ég þá fullvissað- ur af þeim, að ekki yrði um neinn fund að ræða þessa daga. Ég kom í bæinn klukkan 7 á miðvikudag og mætti að venju í bankanum á fimmtudag og föstu- dag. Ég var því í bankanum þegar umræddur „óformlegur fundur" þriggja bankaráðsmanna með Sverri Hermannssyni var haldinn. Ég var aldrei boðaður og enginn tilraun gerð til að boða mig á þann fund. Ég var einnig staddur í bankan- um á föstudag þegar Sverrir gerði hið umtalaða samkomulag um kaup á Samvinnubankanum. Eng- in tilraun var gerð til að hafa sam- band við mig. 7. sept. 1989 Lúðvík Jósepsson Mikil aðsókn hefur verið að mynd- inni í Bandaríkjunum og Bretlandi og í Bandat'íkjunum hefur myndin skilað 240 milljónum dollara í tekjur frá því að hún var frumsýnd í júní. Á boðstólum vestan hafs eru um 400 tegundir af alls kyns varningi og hefur hann skilað framleiðendum um 240 milijónum dollara. Þess má geta að kostnaður við gerð myndarinnar og markaðssetningu nam um 70 milljónum dollara. Vertshúsið á Hvammstanga leigt út Hvammstanga. SKIPTARAÐANDI Húnavatns- sýslu hefur leigt rekstur Verts- hússins hf. til Egils Egilssonar matsveins, til eins árs, frá 1. sept- ember að telja. Egill hefúr áður unnið við ýmis veitingastörf. Mun rekstur hótelsins verða með líku sniði og undanfarið. Breytingar hafa orðið í liði for- svarsmanna hjá fleiri fyrirtækjum á staðnum, nú um mánaðamótin. Hjá saumastofunni Drífu hf. réðst til starfa sem framkvæmdastjóri Þorsteinn Guðjónsson rekstrar- og tæknifræðingur, en hann kom beint frá námi í Tækniskólanum í Óðinsvé- um. Nýr verslunarstjóri tók við störfum hjá Vöruhúsi Hvammstanga, Guðný Sigurðardóttir, en hún er stúdent frá Samvinnuskólanum á Bifröst. Bjarki Tryggvason réðst í sumar til Meleyrar hf. sem framkvæmda- stjóri og útgerðarstjóri. Hann er út- gerðartæknifræðingur frá Tækni- skóla íslands. - Karl Ævilöng réttindasvipting, óbærileg niðurstaða í fáum orðum sagt er þessi dóm- ur ekki studdur neinu lagaákvæði, heldur byggður á persónulegu mati dómaranna á siðferði. Slík viðmiðun getur ekki verið grundvöllur dóms. Siðferðilegt mat er svo einstaklings- bundið og um það er enginn algild- ur tilfinningalegur mælikvarði. Til þess að telja að eitthvert athæfi bijóti í bága við siðferðilegt mat, þarf rök. 1 dóminum er.engin til- raun gerð til þess að rökstyðja nið- urstöðuna. Spurningin er líka þessi: Ef það telst siðferðilega rétt að dómsfor- setar Hæstaréttar megi nota laun sín sem forsetavaldshafa til að kaupa á.fengi á sérverði í íjarveru forseta íslands, hvers vegna verður notkun þessarar heimildar brot á siðferði við það, að hið keypta magn eykst í samræmi við fjölda utan- landsferða forseta Islands? í þessu sambandi má bæta því við, að skírskotun til almennings- álits í þessu máli er með öllu út í hött, eins og málið var í pottinn búið, þar sem villt hafði verið um fyrir fólki strax í upphafi ijölmiðla- fársins. Þá þarf siðferðilegt mat og almenningsálit ekki að fara saman, enda er það sérstaklega áberandi í okkar þjóðfélagi. Þá er þess að gæta, að sönnunarbyrðin um spillt álit dómarans hvíldi á sækjanda málsins og sem fyrr segir var engin tilraun gerð til þess að færa neinar sannanir fyrir því. Að öllu þessu samanlögðu er það ótvírætt að sýkna bar af kröfum ráðherrans um að dómsforsetinn yrði rekinn úr Hæstarétti. Svipting dómaraskilyrða með slíkum dómi á grundvelli siðferði- legs álits er miklu alvarlegri en refsidómur, sem hefði mannorðs- flekkun í för með sér. Allir sak- felldir geta fyrr eða síðar fengið uppreisn æru. Hins vegar er ekki mögulegt- ævilangt að ná aftur sið- ferðilegu áliti, ef það hefur í eitt sinn verið dæmt af manni líkt og hér hefur átt sér stað. Þar með er um ævilanga sviptingu dómaraskil- yrða að ræða. Þess vegna má og með fullum rétti halda því fram, að dómur þessi sé miklu harðari refsing en dæmi sé til áður. Meiri kröfiir gerðar til löglærðra en annarra Mér þótti merkilegt, að heyra af vörum hins grandvara deildarfor- seta lagadeildar Sorbonne-háskól- ans í París, prófessors Marchels Siberts, kennara míns, eitt sinn er ég átti samtal við hann, þá skoðun hans að lögmenn og dómarar væru síst siðspillta stéttin í Frakklandi og sennilega ætti það sama við um starfsbræður þeirra í Vestur-Evr- ópu og á Norðurlöndum. Hann hélt því líka fram, að gerð- ar væru aðrar og meiri kröfur til þeirra en t.d. stjórnmálamanna. Hann taldi að það, væri ekki aðeins starfið heldur líka hugsjón,, sem gerði það að lögmenn og dómarar gerðu meiri kröfur til sjálf sín. Hins vegar væri með öllu ósanngjarnt að stjórnmálamenn slyppu stundum frá hneyksli, þar sem dómari yrði að láta af embætti fyrir sams konar atferli. Skoðun mín er sú, að siðferðilegt mat í hinum siðmenntaða heimi, teldi það ósanngjarnt að einn maður yrði tíndur út úr og dæmdur fyrir verknað, sem aðrir hafa staðið í óátalið. Fyrir utan þá, sem fengju vínið útlátalaust eftir krókaleiðum sbr. risna ráðherranna, sem yh'ðist takmarkalaus og ekki háð neinu siðfei’ðismati. I þessu sambandi ber og að hafa í huga, að með þessurn fríðindum, var á vissan hátt mögulegt fyrir dómsforsetgann að drýgja launin lítillega, en þau eru fremur lág miðað við menntunarkröfur og vanda þann, sem embættinu fylgir. Þess er og að gæta að hæstaréttar- dómarar hafa enga bitlinga gagn- stætt því, sem gerist einkum um hærra setta embættismenn. Mér hefur alltaf fundist að laun hæstaréttardómara ættu að vera há meðan þeir eru í starfi, en ekki meiri en 75% á eftirlaunum. Þá myndi starfsorka þeirra og reynsla endast lengur og vera þjóðhagslega eðlilegra. Auðvitað gera allir lögfræðingar miklar kröfur til Hæstaréttar ís- lands og vilja að dómurinn hafi það álit með íslensku þjóðinni að hann láti aðeins frá sér fara rétta og sanngjarna dóma. Enginn þeirra mörgu lögmanna, sem ég hef rætt um þetta mál við, hefur frekar en undirritaður því misst trú á Magnúsi Thóroddsen sem dómara, þótt hann hafi að einu leyti, ekki sem dómari, heldur sem handhafi forsetavalds ef til vill um of fylgt fordæmum annarra, sem hafa með réttu neytt slíkra fríðinda. Engan kollega hef ég hitt að máli, sem leggur blessun sína yfir dóm- inn. Dómur borgardóms yfir dóms- forsetanum fær hvorki staðist út frá lögfræðilegu sjónarmiði né held- ur eftir siðferðilegu mati. Hitt má vera ljóst að dómararnir í málinu hafa bersýnilega talið sér skylt að taka meira tillit til þess, sem þeir kalla siðferðilegt mat og þá í villu sinni miðað við almenn- ingsálit á æsingastund, byggðu á alröngum fullyrðingum af vörum sjálfs fjármálaráðherrans. Höfiindur er hæstaréttarlögmaður. J a, h ver þrefaldur! Þrefaldur fyrsti vinningur á laugardag! Þreföld ástæða til að vera með! Bladk) sem þú vaknar vió!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.