Morgunblaðið - 08.09.1989, Qupperneq 29
MORGUNBLABIÐ FÖSTliDAGUR 8. SEFTEMBER 1989
29
Hanna E. G. Páls-
dóttir — Minning
Fædd 25. apríl 1933
Dáin 2. september 1989
í dag kveðjum við Hönnu ömmu
hinstu kveðju. Að hún Hanna amma
sé dáin er erfitt að skilja fyrir okkur
ömmubörnin og sárt til þess að vita
að við getum ekki heimsótt hana á
Grettisgötuna framar. Við vitum líka
að Halldór afi og Eyja langamma
sakna hennar mikið, einnig pabbar
okkar og mömmur. Hún amma var
búin að vera mikið veik og finna til,
en nú er henni batnað, því hún er
hjá Guði, sem læknar alla, sem til
hans koma.
Með þökk fyrir hafa átt hana
fyrir ömmu og við biðjum henni Guðs
blessunar í nýrri tilveru.
Blessuð sé minning elsku ömmu
okkar.
Barnabörn
í dag er tengdamóðir mín, Hanna,
til moldar borin. Kynni okkar voru
stutt, alltof stutt, aðeins þijú ár. Því
ræður sá sem öllu veldur og hvers
vegir eru órannsakanlegir. Á þessum
ámm kom það berlega í ljós að þar
fór kona, sem ekki dæmdi samferða-
menn sína, en sá björtu hliðarnar
fyrst og fremst.
Þegar ég kom inn í fjölskylduna
tók hún mér opnum örmum og á
þann veg að ég fann mig innilega
velkominn, líkt og ég hefði þar alltaf
verið. Þessi ár, sem kynni okkar
stóðu, voru Hönnu þung í skauti hvað
líkamlega heilsu varðar. En aldrei
heyrði ég æðruorð þar að lútandi, og
ef á var minnst, eyddi hún því með
hægð og sló á aðra strengi. Það var
alltaf gott að koma á Grettisgötuna
til Hönnu og Halldórs, ekki fundið
að þó ærslast væri og glatt á hjalla
hjá ömmubörnunum þegar þau hitt-
ust þar. Þá var viðkvæðið hjá Hönnu:
„Leyfið þeim að leika sér, ég held
þeim sé það ekki of gott.“ Þannig
var Hanna, alltaf jákvæð. Á meðan
kraftar entust starfaði Hanna í sjálf-
boðavinnu í sölubúð Rauða krossins
á Landspítalanum og bar hag þess
líknarfélags mjög fyrir bijósti. Það
et- ekki ætlun að get-a lífshlaupi
Hönnu tæmandi skil, til þess voru
kynni okkar of stutt. En minningin
mun lifa um konu, sem bar þjáningar
sínar með æðruleysi og kjarki til
síðasta dags og hugsaði fyrst og
fremst um þá, sem henni voru kær-
astir. Hanna var fædd á Siglufirði
25. apríl 1933, dóttir hjónanna Páls
Stefánssonar, verslunarmanns, sem
nú er látinn, og Einöru Ingimundar-
dóttur, sem er enn á lífi, 78 ára göm-
ul. Hanna giftist ung Pálma A. Ara-
syni prentara, en þau slitu samvist-
um. Þeirra dóttir er Margret Anna,
'fædd 4. júní 1952. Seinni maður
Hönnu er Halldór H. Þorgrímsson
rafvirkjameistari og eignuðust þau
Ijögui' börn. Þau eru: Gyða Sigríður,
fædd 4. nóvember 1957, Hanna
Edda, fædd 15. september 1958,
Páll Einar, fæddur 2. september 1959
og Gunnar Sveinn, fæddur 3. júní
1969.
Um leið og ég kveð hana Hönnu
mína þessum fátæklegu orðum votta
ég móður hennar, eiginmanni, börn-
um og barnabörnum mína dýpstu
samúð og bið almættið að sefa sorg
okkar allra. Með þökk fyrir allt. Guð
blessi minningu hennar.
Hreinn
í dag, 8. september, verður lögð
til hinstu hvílu elskuleg frænka okk-
ar, Hanna Pálsdóttir, sem lést í
Landspítalanum 2. september langt
um aldur fram.
Okkur systur langar að minnast
hennar í fáum orðum. Hún var fædd
á Siglufirði, dóttir hjónanna Einöru
Ingimundardóttur og Páls Stefáns-
sonar (sem nú er látinn). En þau hjón
ólu einnig upp föður okkar, Sigurð
Jón Ingimarsson
Svo sem fyrr segir tók Jón frá
byijun mikinn þátt í og stjórnaði
löngum lagasmíð á vegum ráðu-
neytisins og í sambandi við það sat
hann í ótal nefndum, svo sem endur-
skoðunarnefndum um almanna-
tryggingakerfið, nefnd til að sam-
ræma iðgjaldaflokka bátaábyrgða-
félaga, nefnd til að semja frumvarp
til tannlæknalaga, nefnd til að
semja og síðar endurskoða lög um
heilbrigðisþjónustu, nefnd til að
semja frumvarp til laga um tækni-
menntaðar heilbrigðisstéttir, svo að
eitthvað sé upp talið af þeim verk-
efnum, sem afgreidd voru frá ráðu-
neytinu á þessum árum.
Auk þess vann hann með öðrum
lögfræðingum ráðuneytisins að
ijöldamörgum öðrum verkefnum og
lagasmíð.
1984 var Jón skipaður formaður
stjórnar þjónustu- og endurhæfing-
arstöðvar sjónskertra og gegndi
þeirri formennsku þar til á síðasta
ári.
Frá upphafi skiptum við Jón á
milli okkar umsjón með erlendu
samstarfi og hafði Jón frá bytjun
umsjón með samvinnu ráðuneytis-
ins við Evrópuráðið í Strassbourg
á sviði félags- og heilbrigðismála.
Hann sat í stjórnarnefnd félags-
mála frá 1971 og í stjórnarnefnd
um félagsmálasáttmála Evrópu frá
1976 og samdi sem slíkur allar fjór-
ar skýrslur íslands um framkvæmd
sáttmálans, sem gerðar hafa verið.
Hann sat í heilbrigðisnefnd stofnun-
arinnar 1970-77 og sérfræðinga-
nefnd um lagaleg málefni á læknis-
fræðilegu sviði frá 1975.
Auk þessa starfs erlendis sat Jþn
í öllum samninganefndum af ís-
lands hálfu við erlend ríki um gagn-
kvæm almannatryggingaréttindi.
Þannig tók hann þátt í gerð samn-
inga við Stóra-Bretland og Kanada,
sem búið er að undirrita, og und-
irbjó væntanlegan samning við
Lúxemborg, sem stendur til að und-
irrita í haust og var rétt nýkominn
frá samningafundi í Quibeck, er
hann lést.
Allt það starf, sem síðast var
rakið hefur verið unnið í nánu sam-
starfi við utanríkisráðuneytið.
Þegar í fyrsta sinn var haldið
norrænt almannatryggingamót á
íslandi 1960, vann Jón í Trygginga-
stofnuninni sem fyrr segir, og var
þá annar af framkvæmdastjórum
mótsins, en síðan hefur hann verið
í undirbúningsnefnd norrænna al-
mannatryggingamóta og sótt flesta
þá fundi og annast bæði erinda-
flutning og fundarstjórn.
Hér hefur að sjálfsögðu verið
stiklað á stóru í sambandi við störf
Jóns í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, en ekkert minnst
á ýmis verkefni, sem dijúgan tíma
taka, svo sem gerð fjárlagatillagna
og eftirlit með fjárreiðum alls kon-
ar, en áðuren sérstök íjármálaskrif-
stofa kom í ráðuneytið voru þau
mál aðallega á hendi skrifstofu-
stjóra og ráðuneytisstjóra og deild-
arstjóra áætlunardeildar.
Ef reyna ætti að gera sér grein
fyrir því, hvaða mál hafa risið hæst
í heilbrigðisráðuneytinu á þessum
tveimur áratugum, er enginn vafi
á því, að þar ber hæst setning laga
um heilbrigðisþjónustu og fram-
kvæmd þeirra laga með uppbygg-
ingu heilsugæslunnar í landinu sem
aðalverkefnið og uppbyggingu
sjúkrahússkerfisins til að sinna
þeirri margflóknu sjúkrahúsþjón-
ustu, sem nútíminn krefst. Þar að
auki má nefna endurskoðun allra
málefna aldraðra, bæði fyrir tilstilli
laga um málefni aldraðra, en ekki
síðúr fyrir þá sífelldu endurskoðun,
sem lög um almannatryggingar
hafa sætt á þessu tímabili og heild-
arendurskoðun allra máía, er snerta
hollustuhætti, heilbrigðiseftirlit og
umhverfisvernd.
Að öllum þessum verkefnum
auðnaðist okkur Jóni að vinna sam-
an með öðru starfsliði í ráðuneytinu.
Frá því fyrsta var Jón Ingimars-
son mjög virkur í ýmiss konar fé-
lagsstarfi. Hann var á yngri árum
í stjórn Félags ungra jafnaðar-
manna og Sambands ungra jafnað-
armanna og var formaður Stúd-
entafélags lýðræðisjafnaðarmanna
1945-46. Það skólaár var hann
kosinn í Stúdentaráð. Hann sat í
miðstjórn Alþýðuflokksins 1946-48
sem annar tveggja fulltrúa Sám-
bands ungra jafnaðarmanna. í há-
skóla tók Jón virkan þátt í starfi
Orators, félags laganema, var vara-
formaður félagsins og ritstjóri Úl-
fljóts, blaðs laganema 1949-50.
Af öðru félagsstarfi má nefna,
-að Jón var á yngri árum mjög virk-
ur sundmaður og var varaformaður
Sundfélagsins Ægis 1941-49 og
formaður 1952-60, hann var stofn-
andi og lengi í stjórn Félags
íslenskra frímerkjasafnara og
stofnandi og fyrsti gjaldkeri Ár-
manna, félags áhugamanna um
stangveiði á flugu. Hann var vara-
formaður stjórnar Bandalags æsku-
lýðsfélaganna í Reykjavík 1952-55
og stofnandi og fyrsti formaður
Félags háskólamenntaðra starfs-
manna stjórnarráðsins.
Eins og fram kemur af þessri
upptalningu kom Jón víða við í fé-
lagsmálum, en síðustu árin voru
helstu áhugamál hans og tóm-
stundastörf garðyrkja og tijárækt,
ættfræði, skíðaferðir og stanga-
veiði.
Fyrir félagsstörf voru Jóni veittar
margvíslegar viðurkenningar, heið-
ursgullstjörnu Sundfélagsins Ægis
fékk hann 1959, heiðursgullmerki
Félags íslenskra frímerkjasafnara
1979, heiðursgullmerki íþróttasam-
bands íslands 1983.
í einkalífi sínu var Jón mikill
hamingjumaður. Hann kvæntist 17.
ágsut 1951 Eiínu Guðmannsdóttur
tannlækni í Reykjavík og eiga þau
þijú börn: Þóru Björk kennara, sem
gift er Sveini Allan Morthens fé-
lagsmálastjóra, eiga þau eitt barn;
Reyni tannlækni, sem kvæntur er1
Ingibjörgu Georgsdóttur barna-
lækni og eiga þau tvö börn; Ingi-
mar Örn viðskiptafræðinema, sem
enn er í heimahúsum.
Jón og Elín voru samhent hjón
og höfðu sömu áhugamál. Þau
bjuggu sér fagurt heimili að Vestur-
brún 12 þar sem allt innanstokks
og utan vitnar um snyrtimennsku
þeirra, iisthneigð og ræktunar-
áhuga.
Foreldrar Jóns höfðu átt sumar-
bústað við Þingvallavatn. Við þess-
um bústað tók Jón , breytti, stækk-
aði og endurbætti og þar veit ég,
að þau hjónin og Ijölskyldan öll
áttu margar yndisstundir.
Enginn í heilbrigðisráðuneytinu
gerði ráð fyrir svo snöggum um-
skiptum og að starfslok Jóns Ingi-
marssonar bæru að með þessum
hætti. Því eru ailir hér í ráðuneyt-
inu harmi slegnir.
Fyrir hönd allra starfsmanna
heilbrigðisráðuneytisins færi ég
þakkir fyrir þau ár, sem við höfum
átt hér saman.
Við Guðrún færum Elínu og fjöl-
skyldunni innilegar samúðarkveðjur
og biðjum góðan Guð að styrkja
þau og blessa um alla framtíð.
Páll Sigurðsson
t
Hjartkær móðir okkar,
SÓLVEIG HALLDÓRSDÓTTIR,
Kirkjubraut 18,
Njarðvík,
sem lést 31. ágúst verður jarðsungin frá Keflavikurkirkju laugar-
daginn 9. september kl. 14.00.
Börnin.
Ingimundarson, eftir að móðir hans
dó. Hanna og faðir okkar voru því
uppeldissystkini.
Það er erfitt að sætta sig við að
hún „Hanna frænka" skuli vera horf-
in. Því það eru ekki nema 10 dagar
síðan við heimsóttum hana á spítal-
ann og áttum við þar góðar stundir
sarnan, hlógum og minntumst
skemmtilegra atvika frá bernsku
okkar systranna, sem hún ein kunni
að segja svo skemmtilega frá með
sinni kímnigáfu og stálminni. Við
vissum að hún var helsjúk og háði
hetjulega baráttu við hinn hræðilega
vágest, en hún kvartaði aldrei og
alltaf var hún svo innilega þakklát
fyrir það litla sem við gátum gert
fyrir hana. Hún var félagslynd og
mjög sterkur persónuleiki, hreinskipt-
in og sagði sínar skoðanir umbúða-
laust.
Það má segja að við finnum
samtímis til sársauka og léttis, þar
sem við vitum, að henni líður nú vel
og er laus við ailar þjáningar.
Við systurnar, foreldrar okkar og
systkini, sendum móður hennar, sem
nú sér á bak sinnar einkadóttur, inni-,
legar samúðarkveðjur og eiginmanni
hennar, Halldóri Þorgrímssyni, börn-
um og barnabörnum, sem öli reynd-
ust henni svo vel í hennar erfiðu veik-
indum, vottum við okkar dýpstu sam-
úð og biðjum góðan Guð að styrkja
þau öll í sorg sinni.
Við þökkum elsku Hönnu frænku
öll liðnu árin.
Þó augun okkar sofni aftur hér
í þér mín sálin vaki.
Guðs son, Jesú, haf gát á mér,
geym mín svo ekkert saki.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sigurður Jónsson)
Guð blessi minningu hennar.
Lilja og Anna
t
Tengdamóðir okkaf, amma og langamma,
ÁSLAUG ÁLFSDÓTTIR,
sem andaðist 1. september, verður jarðsungin frá Flateyrarkirkju
laugardaginn 9. september kl. 14.00.
Ása Helgadóttir,
Kristín Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir sendi ég öllum, er auðsýndu mér og fjölskyldu
minni samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar,
MÖRTU BJÖRNSDÓTTUR.
Fyrir mína hönd, barna okkar, tengdabarna, barnabarna og systk-
ina hinnar látnu,
Magnús H. Magnússon.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og útför
SVEINS TRYGGVASONAR.
Gerður Þórarinsdóttir,
Auður Sveinsdóttir,
Einar Valur Ingimundarson,
Valgerður Einarsdóttir,
Bergþóra Einarsdóttir,
Þórarinn E. Sveinsson,
Inga Einarsdóttir,
Atli Sveinn Þórarinsson,
Kjartan Páll Þórarinsson,
Þórdis Inga Þórarinsdóttir.
t
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR ANDERSEN.
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks, elliheimilis og sjúkra-
húss Siglufjarðar.
Agnar Jónsson,
Hertha Andersen,
Sofffa Andersen,
Sigriður Andersen,
Guðrún Andersen,
Kristín Andersen,
Þórður Andersen,
Kristbjörg Elfasdóttir,
Baldur Guðjónsson,
Ragnar Helgason,
Rögnvaldur Gfslason,
Lárus Guðmundsson,
Ingvar Guðmundsson,
Birgitta Pálsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir eru þeim færðar er
sýndu samúð og hlýhug við andlát og
útför
KLÖRU RÖGNVALDSDÓTTUR,
Furugerði 1,
Reykjavík.
Kristrún Skúladóttir,
Skúli Eggert Þórðarson,
Helgi Skúli Skúlason,
Gunnar Þorsteinsson,
Klara Lísa Hervaldsdóttir,
Hervald Eiríksson,
Dagmar Elín Sigurðardóttir,
Daði Rúnar Skúlason,
Gísli ívarsson.