Morgunblaðið - 08.09.1989, Page 31

Morgunblaðið - 08.09.1989, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ- FÖSTUDAGUR 8. SERTEMBER 1989 31 Ellý Vilhjálms átti hug og hjörtu áhorfenda og ekki þótti þeim verra þegar Ragnar Bjamason tók undir sönginn. T 'P P*•• i • * x * • Lii og rjor hja Jom bankamanni og vinum Skemmtanir eftir Ragnhildi Sverrisdóttur Sett hefur verið saman skemmti- dagskrá í veitingahúsinu Broad- way, sú síðasta sem þar verður flutt áður en Reykjavíkurborg fær húsið afhent. Dagskráin byggir á lögum og textum Jóns Sigurðssonar, sem hefur viðurnefnið bankamaður. Hann hefur samið nokkra tugi laga og á annað hundrað texta eftir hann hafa komið á hljómplötum. Flytjendur laganna eru valinkunn- ir sómamenn og konur, þau Ellý Vilhjálms, Hjördís Geirs, Ragnar Bjarnason, Þorvaldur Halldórsson, Þuríður Sigurðardóttir og Trausti Jónssón Sigurðssonar. Hljómsveitina skipa engu óvanari menn, Jón bassi, Guðmundur Steingríms, Reynir Sig- urðsson, Karl Möller og Þorleifur Gíslason, auk Jóns bankamanns sjálfs. Dagskráin hófst á því að Raggi Bjarna flutti lagið um Óla rokkara og svo stigu þau á svið hvert á fget- ur öðru, Hjördís, Þorvaldur og Þuríð- Morgunblaðid/Einar Falur Jón Sigurðsson lét sig ekki muna um að leika á nikkuna með belg- vettlingum. ur með lög eins og „Ég er kominn heim“ og „Bel Ami“. Jón þandi nikk- una sjálfur af miklum móð og Ragn- ar söng um vorið sem fer á vængjum yfir flóann. Trausti Jónsson var yngstur flytjenda og fékk hann Hjördísi m.a. til liðs við sig í laginu um sunnanvindinn, Svona ieið dagskráin áfram og allii' gestir hússins virtust með á nótunum, hvort s^m sungið var um Edensgarð, kvöldsiglingu, eða Einsa kalda úr Eyjunum. Og Jón skellti upp belgvettlingum við nikkuspilið. Þegar hér var komið sögu voru gestir farnir að velta fyrir sér hvort Ellý ætlaði ekki að láta sjá sig. En hún birtist um síðir og var mjög vel fagnað, bæði þegar hún söng ein og í félagi við Ragnar. Enn voru nokkur lög eftir, s.s. lagið sem Jón samdi þegar hann var á 15. ári, „Komdu í k_völd.“ Ellý og Ragnar sungu síðan „Ég bíð við blá- an sæ“ og Ragnar varð að sjálfsögðu að syngja „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig.“ Þoivaldur rak svo endahnútinn á dagskrána með laginu „Ég fann þig“, sem Björgvin Hall- dórsson flutti hér í eina tíð með að- stoð Fóstbræðra, ef mig minnir rétt. Auk söngvara og hljóðfæraieikara stigu á sviðið dansarar, sém sýndu rétta sveiflu við nikkuspilið hans Jóns. Flutningur dagskrárinnar tók samtals um eina klukkustund, en ekki má gleyma að geta þess, að fyrir skemmtunina var á borð borinn hinn besti kvöldverður. Kynnir kvöldsins var Bjarni Dagur Jónsson. Gestir veitingahússins frumsýning- arkvöldið voru flestir á miðjum aldri og virtust kunna vel að meta skemmtunina. Þeir sungu með í flest- um iögum og klöppuðu flytjendum lof í lófa, enda stóðu þeir sig allir með prýði. Kannski er ekki rétt að nefna einn öðrum fremur, en þó má ég til með að minnast sérstaklega á mitt gamla átrúnaðargoð Ellý Vil- hjálms, sem sýndi enn á ný hversu góð söngkona hún er. PAKKHÚS POSTULANNA KYNNIR: KAOS LAUGARDAGSKVÖLD HAUSTLÍNAN KOMIN XJöfóar til X Afólks í öllum starfsgreinum! Ármúla 29 símar 38640 - 686100 £ Þ0RGRÍMSS0N & C0 Armstrong LOFTAPLÖTUR KDRKDPLAET GÓLFFLÍSAR I^ÁRMáPLAST EINANGRUN GLERULL STEINULL Einstakttilboð! Seljum næstu daga útlitsgallaða skápa og húsgögn á stórlækkuðu verði. Komið á Smiðjuveg 9 í Kópa vogi og gerið hagstæð kaup Síðasti dagur útsölunnar laugardag. Opið til kl. 16. AXIS SMIÐJUVEGI 9, 200 KÓPAVOGI SÍMI 91 43500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.