Morgunblaðið - 08.09.1989, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 08.09.1989, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691282 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS 110 c MORGUNBLAÐID SUNNUDAGUR 3. SEPTEMBER 1989 I>ýzkar Stuka-steypiíluffvélar: „Leiflurstrlð" tfPRT Póllandl. iÞEGABHGMmi HOF 8TR1Ð Hvers vegna sKall a heimsstyrjöld 1939. I KLUKKAPJntu fyrir hádegi sunnudaginn 3. septem- ko,ti fró hrraku rikÍMti6n,in„i. Joachimvo„ Ribb- Iber 1939, fyrir „kkvremieSobóifriöid. kom Sir Nev ontrop ^>*>“jjgj±gjjgjj^^ Stalín og Hitler Til Velvakanda. í tilefni af þvi, að um þessar mundir er hálf öld liðin frá upp- hafi heimsstyijaldarinnar síðari rifjast upp löngu liðnir atburðir. Eitt af því sem vakir í minningu þeirra, sem nú eru komnir á efri ár, eru deilur nazista og kommún- ista á fjórða áratugnum og síðar sættir 1939. Báðir áttu sér fylgis- menn hérlendis. Nazistar þó mun færri, og hreyfing þeirra var al- dauða 1939, enda höfðu þeir þá þegar séð hvert stefndi. Kommún- istar voru mun öflugri, enda sumir þeirra svo sanntrúaðir, að ýmsir þeirra hafa enn ekki látið af trú sinni, þrátt fyrir sannanir um glæpaverk Stalins. í sambandi við fjöldamorð hans nefna sumir sagn- fræðingar tíu milljónir. En varðandi þesa kumpána rifj- ast einnig upp, að í heimasveit bréfritara voru um þessar mundir bændumr tveir er áttu sinn hund- inn hvor. Annar bóndinn nefndi sinn hund Hitler, en hinn hundur- inn var kallaður Stalín. Báðir voru hundar þessir grimmir. Sá var þó munur þeirra, að Hitier hóf jafnan beinar árásir, en Stalín gerði sínar árásir úr launsátri. Þetta finnst undirrituðum tákn- rænt er Hitler 'réðst á Pólveija 1. september ’39, en Stalín fór þar nokkuð aðra leið, enda hafði hann fáum mánuðum fyrr heitið Pólveij- um hernaðaraðstoð(?). Guðmundur Áhugamaður um málræktarátak sendi meðfylgjandi mynd, sem tekin er á stað, þar sem kjúklingabitar eru seldir. Spyr hann hvort ekki sé ástæða til að vekja athygli á því, Einkenni- legnr sparnaður Til Velvakanda. Um þessar mundir tala fyrir- menn mikið um sparnað í opin- berum rekstri, en einkum ræða þeir þó um, að almenningur verði að spara. Ekki fylgja þeir þó eigin kenningum, því að rétt í þann mund, sem ein af nefndum þeirra leggur til að fækka ráðuneytum er nú efst á baugi hjá ríkisstjórn- inni að fjölga ráðherrum. Það má nefnilega ekki gleyma „honum Katli“, þ.e. leifum Borgaraflokks- ins. Þar um má segja líkt og í auglýsingunni forðum: Gunnlaugs- búð sér um sína. Jón prófessor Helgason í Kaup- mannahöfn bar eitt sinn saman, á vissu sviði, ísland og England, þar sem segir m.a. Eitt er þó nálega álíka veglegt hjá báðum því örlögin veittu oss í smæð voiri dýrmætan frama. Ráðherratalan á íslandi og Engiandi er bráðum orðin hin sama. hve enskan skipar stóran sess á þessu skilti. Ef vel er að gáð má sjá íslensk orð fyrir neðan hin skýru fyrirmæli á ensku neðst á skiltinu. Signrður Guðmundsson Kentucky Fried Chicken I Kentucky Fried Chicken 1-4 híutar kjúklingar 5-14 hlutar kjúklingar 15-21 hlutar kjúklingar PLACE ORDER HERE Franska kílólkí Smal Medun Large Salat.ro Satetstórt KjúkSngasósa UtB Stórt Koktaisósa tteisstönguí 80,- 80,- Gos 130,- Sral m- Meáiii 60,- 50,- Large A 95- W 30,- 50,- 95,- «- to m- í tilefiii málræktarátaks Víkverji skrifar ©1987 Unlvr—I Priu Syndiote /t NJú €5 held ah «9 c& 9e^ (tldesilegan úhwpsCesiLl uppo. báti/rn.'1 Reyndu að segja eitthvað við hundinn. Löggan fann hann. Með mor^unkaffinu Ég var ofsalega duglegur í gær. Skellti öllu í þvotta- vélina og setti svo í gang. Ég slekk svo á henni þegar þú kemur heim? HÖGNI HREKKVÍSI Víkveiji hnaut um orðalag í frétt á baksíðu Morgunblaðsins í gær. Þar var frá því skýrt, að Útgerðarfé- lag Akureyringa vantaði um 50 manns í vinnu. -Síðan var bætt um betur og tekið fram, að aðallega vanti konur. Nú hefur Víkveiji dagsins starfað í frystihúsi og skildi þessa athugasemd þannig, að starfsfólk vantaði í snyrt- ingu og pökkun á fiski, sem er hefð- bundið „kvennastarf" innan frystihú- sanna. Hins vegar kemur það spánskt fyr- ir sjónir, þegar kvartað er undan manneklu, að forráðamenn fyrirtækis skuli greina á milli kyr\janna með þess- um hætti. Leiti karlmenn í þessi störf verður þeim varla vísað frá hjá Útgerð- arfélagi Akureyringa, af því að það vanti konur til starfa, eða hvað? XXX Skrifari frétti af dögunum af manni nokkmm sem reynt hafði árangurslaust að ná sambandi við slökkviliðið í Reykjavík. Eldur hafði komið upp á verkstæði þar sem maðurinn vinnur og reyndi hann í tvígang að hringja í slökkviliðið, en segir að í hvomgt skiptið hafí verið svarað. Honum tókst síðan sjálfum að ráða niðurlögum eldsins á 15 mínútum. Þegar ekki svaraði við fyrstu hringingu taldi maðurinn að hann hefði valið vitlaust númer í fátinu, sem á hann kom er eldurinn kvikn- aði. Hann hringdi því aftur í 11100 en í það skiptið hringdi út án þess að svarað væri. Þá var bálið orðið svo mikið á verkstæðinu, að maður- inn gafst einfaldlega upp á að reyna að ná sambandi við slökkviliðið og sneri sér að því að reyna að slökkva eldinn sjálfur. Það tókst á 10-15 mínútum, en ekki mátti miklu muna að illa færi. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á að vera útilokað að ekki náist samband þangað á þann hátt sem maðurinn segir frá. Þar séu ávallt tveir menn á vakt við símann, og nýtt og fullkomið skiptiborð hafi verið tekið í notkun síðastliðið vor. Engar kvartanir hafi borizt um að ekki hafí tekist að ná þangað sam- bandi fyrr en í umræddu tilviki. Von- andi er það líka í síðasta skiptið, sem slíkt gerist. XXX Meira um eldsvoða. Víkveiji dagsins var staddur á Eskifírði á dögunum er mikið tjón varð þar í eldi. Það var sérstakt að fylgjast með viðbrögðum heimamanna, sem reyndar höfðu ætlað sér að eyða kvöldinu á talsvert annan hátt. Þenn- an dag var nefnilega haldið upp á það með pompi og pragt að í ár er liðin hálf öld frá stofnun Ungmenna- félagsins Austra á staðnum. Fjöldi manns hafði safnast saman á túninu fyrir neðan gamla Eskifjarðarbæinn og hátíðin, sem þar átti að halda, fékk eðlilega talsvert annan blæ með reyksúlurnar í baksýn. Mannfjölda dreif að bninastaðnum eftir að fólk hafði hrokkið illilega við er brunalúðurinn ómaði. Fólkið fylgd- ist með baráttu slökkviliðsmannanna eins og gerist og gengur. Allir vora boðnir og búnir til að rétta hjálpar- hönd og einhvem veginn var eins og allir Eskfírðingar ættu hlut í fyrir- tækinu, sem þama varð eldinum að bráð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.