Morgunblaðið - 08.09.1989, Blaðsíða 39
r
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FOSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1989
39
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Sigurður með
gegn Sheffíeld
Sigurður Jónsson skoraði í sínum fyrsta
leik í Arsenalbúningnum
SIGURÐUR Jónsson gerði sitt
fyrsta mark fyrir Arsenal í
fyrsta leik sínum með félag-
inu. Hann lék með varaliði
Arsenal á þriðjudaginn og í
gær valdi George Graham
hann í Arsenalhópinn sem
leikur gegn Sheffield Wed-
nesday á Highbury á morgun.
Fyrsti leikur Sigurðar verður
þvt gegrt gömlu félögunum
hjá Sheffield Wednesday, en Ars-
enal keypti hann frá félaginu á
475 þúsund sterlingspund. Brian
Marwood, útherjinn leikni, sem
lék einnig með Sheffield, kemur
aftur inn í Arsenalliðið, sem hefur
ekki byrjað vörnina á Englands-
meistaratitlinum vel. Arsenal er í
fimmtánda sæti.
Sigurður Jónsson leikur með
Arsenal gegn Sheffíeld Wednesday
á morgun.
keppnina á Spáni sem hefst í næstu
viku. Það verða Páll Guðnason,
Bergsveinn Bergsveinsson og Sig-
tryggur Albertsson. Leifur Dag-
finnsson og Bjarni Frostason verða
hinsvegar eftir.
Mörk fstands: Konráð Olavsson 6/3, Ámi
Friðleifsson 4, Hilmar Hjaltason 4, Halldór
Ingólfsson 4/1, Davíð Gíslason 2, Sigurður
Sveinsson 2, Héðinn Gilsson 2/2 og Júlíus
Gunnarsson 1.
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐ
HANDBOLTI / UNGLINGALANDSLIÐ
Jafnt gegn Banda-
ríkjamönnum
Íslenska unglingalandsliðið, yngri
en 21 árs, gerði jafntefli við
Bandaríkjamenn, 25:25, í fyrsta
leiknum í íþróttahúsinu í Garðabæ
í gær. Þessi úrslit eru nokkuð und-
arleg í því íslendingar sigruðu í
síðustu viðureign liðanna fyrir
tveimur dögum, 34:15.
íslenska liðið lék lék langt undir
getu og var lengst af undir. Liðið
náði þó forystunni í síðari hálfleik
og Héðinn Gilsson gerði 25. markið
skömmu fyrir leikslok. Bandaríkja-
menn byrjuðu með boltann þegar
níu sekúndur voru eftir og sá tími
nægði þeim til að jafna.
Hilmar Björnsson, þjálfari liðs-
ins, ákvað í gær hvaða markverðir
færu með liðinu í heimsmeistara-
faám
FOLK
■ ÍSLANDSMÓTIÐ á seglbrett-
um, brautarkeppni, fer fram á
morgun á Hafravatni. Keppni
hefst kl. 11 en skráning er frá
10-11. Mótið er einnig opið bytjend-
um.
■ BJARNI Sigurðsson, lands-
liðsmarkvörður, sem tognaði á nára
á landsliðshæfingu, er vongóður um
að hann geti leikið með Val gegn
KA á Akureyri á laugardaginn í
1. deildarkeppninni. Leikurinn er
mjög þýðingarmikill fyrir bæði liðin,
KA i meistarabaráttunni og Val í
keppni um UEFA-sæti.
■ LIAM Brady lék á ný með
írum þegar þeir gerðu jafntefli
gegn V-Þjóðveijum, 1:1. Brady,
sem kom inn á sem varamaður,
missti sæti sitt fyrir Evrópukeppni
landsliða í V-Þýskalandi í fyrra,
vegna meiðsla.
I BJARNI Ákason lék sinn
fyrsta leik með meistaraflokki Vals
í handknattleik gegn ÍR i
Reykjavíkurmótinu fyrir skömmu.
Það væri líklega ekki ýkja merki-
legt nema vegna þess að Bjarni
er 27 ára og byijaði að æfa í fyrsta
sinn í haust! Bjami er stjómarmað-
ur í Val og veðjaði við félaga sinn
í stjórninni Svein Dal Sigmarsson
um að hann kæmist í lið. Þess má
geta að nokkra leikmenn vantaði í
lið Vals.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐ
Greinileg batamerki
skrifar
ÍSLENSKA landsliðið í hand-
knattleik hefur ekki byrjað vel
ífyrstu leikjum sínum ísumar
en í gær sýndi liðið greinileg
batamerki gegn Austur-Þjóð-
verjum í nýja og glæsilega
íþróttahúsinu í Garðabæ. ís-
lenska liðið lék lengst af mjög
vel en náði ekki að fylgja góðri
byrjun eftir og varð að sætta
sig við tap, 26:29.
Islendingar byijuðu vel og náðu
strax forystunni. Þar var fremst-
ur í flokki Guðmundur Guðmynds-
son sem gerði þijú fyrstu mörkin.
■■■■ Kristján Arason tók
LogiBergmann svo við af honum,
Eiðsson óð í gegnum aust-
ur-þýsku vömina og
gerði mörg lagleg
mörk. Austur-Þjóðveijum gekk
hinsvegar illa að komast í gegngum
þétta vörn íslendinga sem var mjög
frískleg og hreyfanleg.
íslendingar náðu svo góðum
kafla í lok fyrri hálfleiks og mest
varð forystan fimm mörk. I síðari
hálfleik gekk hinsvegar ekki jafn
vel. Ótímabær skot og úrræðaleysi
þegar íslendingar vom einum færri
kom þeim í koll og gestirnir gengu
á lagið. Um miðbik síðari hálfleiks
áttu þeir mjög góðan kafla og
breyttu stöðunni úr 19:18 í 23:28.
Þar með var sigur þeirra í höfn.
íslenska liðið þarf að laga ýmis-
legt en það er greinilegt að liðið
hefur leikgleði og baráttuvilja. Út-
haldið virðist hinsvegar af skornum
skammti. Kristján Arason fór á
kostum og Guðmundur Guðmunds-
son var mjög sprækur. Atli Hilm-
arsson og Geir Sveinsson áttu einn-
ig góðan leik.
Islenska landsliðið hefur góðan
Morgunblaðið/Júlíus
Kristján Arason átti mjög góðan
leik og hér veður í gegnum vörn Aust-
ur-Þjóðveija með tvo varnarmenn á
bakinu.
tíma til undirbúnings fyrir heims-
meistarakeppnina í Tékkóslóvakíu
á næsta ári og ef liðið heldur áfram
á sömu braut er engin ástæða til
að örvænta.
26 : 29
íþróttahúsið í Garðabæ, vináttulands-
leikur í handknattleik, fimmtudaginn
7. september 1989.
Gangur leiksins: 2:0, 3:2, 5:2, 6:4,
8:4, 9:8, 13:8, 13:11, 15:12, 15:14,
19:17, 19:21, 22:22, 23:28, 25:28,
26:29.
ísland: Kristján Arason 10/5, Guð-
mundur Guðmundsson 6, Atli Hilmars-
son 4, Óskar Ármannsson 2, Geir
Sveinsson 2, Þorgils Óttar Mathiesen
1, Valdimar Grímsson 1. Bjarki Sig-
urðsson, Óskar Ármannsson, Gunnar
Gunnarsson, Jakob Sigurðsson.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 11,
Páll Guðnason.
Utan vallar: 4 mínútur.
Austur-Þýskaland: Holger Winsel-
mann 11, Frank Wahl 5, Stephan Hauk
5, Heiko Triepel 3, Maik Handschke
2, Jan Baryth 1, Mikhael Futtrig 1,
Holger Schneider 1.
Varin skot: Jens Kiirbis 14/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Peter Molnar og Josef Korec
frá Tékkóslóvakíu dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: 700.
Ugla sat á kvisti...
VIÐ hverju er búist þegar Is-
land mætir milljónaþjóðinni
Austur-Þýskalandi í knatt-
spyrnu? Við hverju er búist
þegar vestur-þýskur þjálfari
kemur frá Tyrklandi, landi
sem er meðisiendingum í
riðli, og hefur vart séð
ísienskan fótboltaleik allt
sumarið? Við hverju er búist
þegar frammistaða leik-
manna á íslandi hefur ná-
kvæmlega ekkert að segja,
heldur stólað á að leikmenn
„detti niður" á stórleik eftir
afleitt sumar? Svar: SIGRI!
Það er ekki ætlun mín að gagn-
rýna Siegfried Held persónu-
lega. Það má jafnvel vera að hann
sé ágætur þjálfari. Hinsvegar má
af ýmislegt setja út á
INNLENDUM það hvernig hann
velur landsliðið.
Hann virðist hafa
gefið sér ákveðinn
hóp og gengið á
röðina; ugla sat á
kvisti...
Það er hægt að
nefna mörg dæmi
um leikmenn sem
ættu að vera í landsliðinu. Leik-
menn sem farið hafa á kostum
hér heima og verið máttarstólpar
í iiðum sínum. Og það má einnig
telja upp menn sem ættu að vera
í einhveijum öðrum búningum en
íslenska landsliðsins. Vissuiega
hafa allir þessir leikmenn ein-
hvern tímann leikið vel og því
sjálfsagt að þeir hafi verið valdir
í landsliðið. En það er jafn sjálf-
VETTVANGI
EftirLoga
Bergmann
Eiðsson
Morgunblöðið/Sverrír
Siegfried Held, ásamt Guðna Kjartanssyni, í einni af fáu og stuttu heim-
sóknum sínum til íslands.
sagt að þessir leikmenn missi
sæti sín í liðinu þegar þeir leika
ekki eins landsliðsmönnum sæmir
með félagsliðum sínum. En það
virðist vera álíka erfitt að komast
úr landsliðinu og í það.
Liðið gegn Austur-Þýskalandi
kom á óvart. Þar vantaði marga
sterka leikmenn og það vissu allir
nema Held. Hann hefur líklega
haldið að Pétur Ormslev gæfi
ekki kost á sér, Pétur Péturssoin
væri enn í brúðkaupsferð, Þor-
valdur Örlygsson einn af þessum
Júgóslövum fyrir norðan og búið
að loka símanum hjá Sigurði Jóns-
syni!
En gæti það kannski verið að
KSÍ sé sökudólgurinn en ekki
Held. Má ekki búast við því að
KSÍ, eða að minnsta kosti aðstoð-
arþjálfarinn, geti haft áhrif á val-
jð. Aðstoðarþjálfarinn er hér
heima og sér leikina og ætti að
að minnsta kosti að geta sagt
Held frá því hvaða leikmenn hafa _
skarað framúr. En kannski hefur
hann ekki tíma til þess þvi heim-
sóknir Held eru víst hvorki tíðar
né langar.
111 að bæta gráu ofaní svart
fer Held áður en verkefni lians
er jokið. Og þá kemur í ljós að
KSÍ hefur ekki gert skriflegan
samning og getur ekki einu sinni
farið fram á skaðabætur. Gera
má ráð fyrir því að sú athygli sem
árangur landsliðsins hefur vakið
hafi fært honum þjálfarastöðu hjá
Galatasaray Istanbúl. Ofan á allt
er liðið tyrkneskt og Tyrkir með
okkur í riðli!
Það hefur ekki fengist uppgefið
hvað Held hefur fengið í laun og,
almenningur mun líklega aldrei
komast að því. En það má búast
við því að tímakaup hans geri
allar ævintýrasögur af tímakaupi
iðnaðarmanna að smáaurum.
Ekki aftur
Nú má gera ráð fyrir því að
KSÍ ráði annan þjálfara. Að vísu
geta strákarnir líklega sjálfir skipt
í lið á þessum 10-15 árlegu lands-
liðsæfingum og nota má gamlar
ræður frá Held fyrir leiki. En við
skulum gera ráð fyrir því að ann-
ar þjálfari verið ráðinn.
Það er því ekki nema eðlilegt
að íslenskir knattspyrnuáhuga-
menn biðji um það að næsti þjálf-
ari þekki að minnsta kosti helstu
leikmenn hér heima, viti jafnvel
með hvaða liðum þeir spila og
hvar þau eru á landinu og sjái sér
kannski fært að eyða aðeins meiri
tSma á Islandi en Siegfried Held.