Morgunblaðið - 25.11.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.11.1989, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1989 Við íþróttahús íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík. Á myndinni eru talið frá vinstri: Leifúr Gíslason arkitekt, Sigurður Magnússon fram- kvæmdastóri Iþróttasambands Islands, Magnús Á. Sigtryggsson vara- formaður Iþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, og Guðni Þór Arnórs- son, Jón Sigurðsson, Ásgeir B. Guðlaugsson og Geir Björgvinsson, sem allir eru í byggingarnefnd íþróttaússins. Landssamband fískeldis- og hafbeitarstöðva: Kostnaður við af- urðalán fiskeldis 32% Tillögur til breytinga á Trygginga- sjóðnum til umflöllunar í ríkisstjórn KOSTNAÐUR fiskeldisstöðva við þau afurðalán sem Tryggingasjóð- ur fiskeldislána ábyrgðist er 32,25% að mati Landssambands fiskeld- is- og hafbeitarstöðva. Þar af eru almennir vextir afurðalánanna allt að 12% en kostnaður vegna ábyrgðar og trygginga allt að 20% til viðbótar. Ríkisstjórnin er þessa dagana að fjalla um tillögur til breytinga á sjóðnum sem meðal annars miða að því að minnka þenn- an kostnað. ■ ÍÞRÓTTAFÉLAG fatlaðra í Reykjavík hefur efnt til skyndi- happdrættis í formi gjafahapp- drættisbréfa í þeim tilgangi að grynnka á skuldum félagsins vegna byggingar íþróttahúss við Hátún 14. Utgefnir miðar eru aðeins 1.500 talsins, og er verð hvers miða 5 þúsund krónur. Vinningar eru Citroen Ax 1989 sportbifreið að andvirði 925 þúsund krónur og sjö ferðavinningar að andvirði um 350 Vþúsund krónur. Dregið verður í happdrættinu 16. desember. ■ KOLBEINN Bjarnason flautuleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari halda tónleika í Lista- safhi Sigurjóns Ólafssonar í Lau- garnesi þriðjudaginn 28. nóvember klukkan 20.30. Á þessum tónleikum munu þeir frumflytja stutt verk eftir ungt íslenskt tónskáld, Svein Lúðvík Björnsson, og túlkun þeirra á verkinu Dýrahringur eftir . jKarlheinz Stoskhausen er einnig frumflutningur. Önnur verk á efnis- skránni eru eftir japanska tónskáld- ið Toru Takemitsu og svissneska tónskáldið Willy Burkhard. Þeir Páll og Kolbeinn héldu fyrst sam- eiginlega tónleika árið 1984, en síðan hafa þeir leikið saman við ótal tækifæri. Með þessum tónleik- um halda þeir upp á fimm ára starfsafmæli sitt. Páll Eyjólfsson gítarleikari og Kolbeinn Bjarnason flautuleikari ■ UNDIRBÚNINGSHÓPUR um bætta aðstöðu sængurkvenna boðar til baráttufunds á Hótel Borg mánudaginn 27. nóvember kl. 16.30. Tilefni fundarboðsins pr að meirihluti borgarráðs hefur ákveðið að ganga til viðræðna við lækna um leigu á 1. og 2. hæð Fæðingar- heimilisins í Reykjavík. I fréttatil- kynningu undirbúningshópsins seg- ir að undanfarin ár hafi barns- fæðingum fjölgað verulega, ekki bara á íslandi heldur einnig í flest- um löndum hins vestræna heims. Þessari staðreynd hafi nágrannlönd okkar mætt með aukinn þjónustu við verðandi foreldra. Á sama tíma hafi þjónusta við fæðandi konur hér á landi verið stórlega skert. Ávörp á fundinum flytja Sólveig Þórðar- dóttir forstöðukona Fæðingar- heimilis Reykjavíkur, Margrét Guðmundsdóttir formaður Ljós- mæðrafélags Islands og Elín V. Ólafsdóttir kennar. ■ SA GNFRÆÐINGA FÉLA G Islandsefnir í dag til opinnar ráð- stefnu um upphaf byggðar á Is- landi. Ráðstefnan hefst í dag, laug- ardag, kl. 14 í stofu 101 í Lög- bergi á Háskólalóð. Til skamms tíma hefur ríkt samstaða meðal fornleifafræðinga og sagnfræðinga um að ritheimildum og fornminjum beri vel saman um tímasetningu landsnáms á íslandi. Elstu mann- vistarmerki finnast víða rétt fyrir neðan öskulag sem hefur hlotið nafnið landnámslag og jarðfræðing- ar hafa tímasett á síðari hluta 9. aldar. Nú hefur Margrét Her- manns-Auðardóttir fornleifafræð- ingur varpað fram þeirri kenningu að landnámslagið sé allt að 200 árum eldra en áður var talioð. Það þýðir að stórir hlutar landsins hafa verið byggðir fólki strax á 7. öld. Úm þetta efni fjallar ráðstefna Sagnfræðingafélagsins. Auk Margrétar flytja eftirtaldir erindi: Margrét Hallsdóttir jarðfræðing- ur, Sveinbjörn Rafhsson prófessor og Árný E. Sveinbjörnsdóttir frá Raunvísindastofnun. ■ W. Keith Reed, bass-bariton- söngvari heldur ljóðatónleika _ í Norræna húsinu við undirleik Ól- afs Vignis Albertssonar, pianó- leikará, á morgun, sunnudag. Tónleikarnir heljast klukk- an 20.30. Á efnisskrá eru meðal ann- ars ljóð Heine úr Svanasöng Schu- berts, frönsk ljóð eftir Fauré og amerísk ljóð eftir Ned Rorem. Reed kennir söng við Söngskólann í Reykjavík og kórstjórn við Kenn- araháskóla íslands, en þar stjórn- ar hann einnig kór skólans. SÝNING á starfsemi Nordvision í 30 ár hefur verið sett upp í anddyri Norræna hússins og dag- skrá um Nordvision verður í húsinu um þessa og næstu helgi. í dag klukkan 15 mun Pétur Guðfinnsson, framkvæmdastjóri sjónvarpsins, og formaður Nordvisi- on ræða um norrænt sjónvarpssam- starf í framtíðinni. Þá munu Sveinn Einarsson, dagskrárstjóri, og Steen Priwin, framkvæmdastjóri sænska sjónvarpsins í Gautaborg, ræða hvernig bæta megi norrænt sam- starf á sviði leiklistar, tónlistar og hvað snertir skemmtiefni. Á sunnudag á sama tíma mun Sigríður Ragna Sigurðardóttir, umsjónarmaður barnaefnis Ríkis- GENGISSKRÁNINQ Nr. 226 24. nóvember 1989 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi Dollari 62,67000 62,83000 62.76000 Sterlp. 97,85900 98,10900 97,89800 Kan. dollan 53,70200 53,83900 52,86600 Dönskkr. 8,93370 8,95650 8,70500 Norsk kr. 9,13960 9,16290 9,03680 Sænsk kr. 9,78340 9,80800. 9,71840 Fi. mark 14,86830 14.90630 14,65900 Fr. franki 10.18200 10,20800 9,98070 Belg. franki 1,65270 1,65690 1,61420 Sv. franki 38,87720 38,97640 38,74610 Holl. gyllim 30,76510 30,84360 30,02590 V-þ. mark 34,70960 34,79830 33.89360 ít. líra. 0,04709 0,04721 0,04614 Austurr. sch. 4,92590 4,93850 4,81490 Port. escudo 0,40030 0,40130 0,39510 Sp. peseti 0,54230 0,54370 0,53360 Jap. yen 0,43589 0,43700 0,43766 írskt pund 91,40700 91,64100 89,99700 SDR (Sérst.) 80,30220 80,50720 79,47600 ECU, evr.m. 70,73250 70,91310 69,33650 Tollgengi fynr nóvember er sölugengi 30. október Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. Guðmundur G. Þórarinsson, for- maður LFH, segir að sumarið 1988 hafi skapast vandi í fiskeldinu vegna þess að erlendir seiðamark- aðir brugðust óvænt. Þá hafi með samþykki stjórnvalda verið ákveðið að hefja eldi á þessum seiðum, frek- ar en að láta þau fara í súginn, enda gríðarleg verðmæti í seiða- birgðunum. Ákveðið hefði verið að heimila fiskeldisstöðvum að taka lán til að flýta uppbyggingu stöðv- anna. Að öllu eðlilegu hefði verið hægt að slátra átta til tíu þúsund tonnum af laxi á næsta ári, að verð- mæti íjögur til fimm þúsund millj- ónir kr. Guðmundur sagði að fiskeldis- menn hefðu treyst þeim fyrirheitum sem þeir fengu og væru nú að súpa seyðið af því. Stofnlánin hefðu ekki fengist nema að hluta og með afar- kostum og rekstrarfjármögnunin væri í ólestri. Sagði hann að ríkis- sjóður hefði tekið 6% lántökugjald af erlendu ljárfestingalánunum, auk venjulegs lántökugjalds og stimpilgjald. Sem dæmi nefndi hann að af 25 milljón króna láni hefði ríkið tekið 2 milljónir. Guðmundur sagði að Tryggingasjóður fiskeld- islána hefði ekki fengið viðurkenn- ingu bankanna og væri nú verið að vinna að tillögum til breytinga á sjóðnum og afurðalánakerfinu í heild. „Fiskeldið hefur aldrei þegið neina ríkisstyrki, það er frekar að ríkið haldi fyrir okkur peningum, sjónvarpsins, kynna átta þætti sem unnir hafa verið fyrir börn á vegum Nordvision og eru fyrstu sjö þætt- irnir með íslensku tali. Sunnudaginn eftir viku verður rætt um tæknimál, fréttasamband milli Norðurlanda og íþróttasam- vinnu. Eyjólfur Valdimarsson, Bogi Ágústssqn og Ingólfur Hannesson munu fjalla um þessi mál og sýnd verða sýnishorn af myndböndum. eins og til dæmis uppsöfnuðum söluskatti sem aðrar. útflutnings- greinar hafa fengið en fiskeldið ekki,“ sagði Guðmundur. Trygg- ingasjóður fiskeldislána er þannig uppbyggður að fiskeldisfyrirtækin bera saman alla ábyrgð, þannig að ef ábyrgðir falla á sjóðinn lendir tjónið á öðrum stöðum. Sjóðurinn tekur um það bil 7% fyrir að taka ábyrgð á viðbótar afurðalánum, sem stöðvarnar greiða fyrirfram auk þess sem þær taka á sig ábyrgð á um 7% til viðbótar sem faila á fyrirtækin ef sjóðurinn verður fyrir skakkaföllum. Stöðvarnar þurfa að vera með svokallaða umframskaða- tryggingu, með 5% iðgjaldi, til að fá þessi lán og segir Guðmundur að í mörgum tilvikum væru stöðvarnar að taka þessa tryggingu í þeim eina tilgangi að fá lánin. Afurðalána- vextirnir eru allt að 12% í útreikn- ingi LFH. Að auki koma ýmis smærri lántökugjöld, eins og til dæmis 0,25% til Framkvæmdasjóðs vegna milligöngu hans, þannig að í heildina er kostnaður vegna við- bótarafurðalána (yfirleitt umfram 37,5%) 32,25% samkvæmt útreikn- ingi fiskeldismanna. Allt er þetta kostnaður sem kemur ofan á doll- aragengi. „Þetta er allt of dýrt kerfi sem engin atvinnugrein getur staðið undir,“ sagði Guðmundur. Hann sagði einnig: „Við höfum verið leiddir I gildru. Við vorum settir af stað en getum ekki snúið við því fiskurinn heldur áfram að vaxa og þarf sitt eldisrými, orku, umönnun og fóður, hvernig starfs- skilyrði sem greininni eru búin,“ spgði Guðmundur. Tillögurnar sem eru til umijöllun- ar í ríkisstjórninni beinast að því að minnka kostnaðinn við afurða- lánin, að sögn Guðmundar. Fallið verði frá sameiginlegri ábyrgð fisk- eldisstöðvanna og tekin upp ríkis- ábyrgð á Tryggingasjóðnum sem þó á áfram að standa undir sér, sjóðnum verði heimilað að veita afurðalán beint til fiskeldisfyrir- tækja að uppfylltum ákveðnum skil- yrðum,-stöðvarnar þurfi ekki um- framskaðalryggingu og að ábyrgð Framkvæmdasjóðs falli niður. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 24. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. i Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 85,00 40,00 57,95 84.855 4.917.497 Þorskur(smár) 35,00 25,00 30,00 1.097 32.911 Þorskur(smár/ósl.) 35,00 29,00 32,46 0,541 17.561 Þorskur(ósL) 70,00 40,00 61,52 5.587 343.727 Steinbitur 55,00 20,00 47,88 1.392 66.690 Ýsa 93,00 20,00 76,77 16.434 1.261.654 Ýsa(ósl.) 88,00 40,00 60,59 8.459 512.496 Ýsa(smá) 16,00 16,00 16,00 0,027 432 Ýsa(smá/ósl.) 16,00 16,00 16,00 0,661 10.576 Karfi 20,00 20,00 20,00 0,126 2.520 Skata 89,00 89,00 89,00 0,016 1.408 Langa 42,00 42,00 42,00 1.027 43.174 Lúða 350,00 200,00 295,85 1.026 303.588 Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,097 1.455 Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,124 24.900 Lax 210,00 200,00 203,33 0,150 30.701 Koli 50,00 50,00 50,00 0,266 13.300 Samtals 62,17 122.161 7.594.532 I gær var selt úr Núpi ÞH, Þorláki ÁR og bátum. Á mánudag verður seldur afli úr Stakkavík, áætlað magn 40 tonn. Einnig verður landað úr Hjalteyri og selt um 20 tonn af karfa en mestur afli Hjalteyrinnar verður seldur á þriðjudag. Þá verða seld 60-70 tonn af bátafiski. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 66,00 39,00 58,39 45.343 2.647.541 Þorskur(ósL) 68,00 30,00 50,01 10.452 522.655 Þorskur(stór) 93,00 83,00 83,00 0,902 Ýsa 92,00 30,00 74,87 8.137 609.215 Ýsa(ósL) 81,00 4,00 46,77 13.426 627.931 Ýsa(smá) 20,00 20,00 20,00 0,143 2.860 Grálúða 40,00 40,00 40,00 0,194 7.760 Karfi ' 38,00 20,00 29,19 6.524 190.436 Undirrnál 10,00 7,00 2.900 23.486 Ufsi(ófL) 60,00 20,00 58.472 Keila(ósL) 9,00 9,00 9,00 0,789 7.101 Langa 31,00 31,00 31,00 0,513 15.903 Blálanga 34,00 34,00 34,00 0,375 12.750 Steinbítur(ófL) 50,00 31,00 45,08 0,170 7.664 Steinbiturjósl.) 54,00 39,00 41,50 0,120 4.980 Steinbítur/Hlýri 54,00 39,00 42,77 6.409 274.119 Skarkoli 35,00 29,00 34,51 0,616 21.260 Lúða 500,00 170,00 475,09 0,212 100.720 Lúða(stór) 490,00 490,00 490,00 0,025 12.250 Lúða(smá) 210,00 100,00 125,87 0,654 82.320 Samtals 47,61 159.106 7.575.206 SeltvarúrÁsbirni RE og ýmsum bátum. Á mánudag verður selt úrbátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 79,50 31,00 60,77 26.475 1.608.949 Ýsa 87,00 40,00 64,90 17.462 1.133,238 Karfi 36,00 15,00 25,95 0,146 3.789 Ufsi 20,00 5,00 17,33 1.279 22.163 Steinbítur 34,00 . 25,00 31,20 0,492 15.351 Langa 30,00 29,00 29,22 1.596 46.630 Lúða 275,00 65,00 201,58 0,257 51.805 Keila 15,00 6,00 10,37 7.260 75.312 Láx 160,00 160,00 160,00 0,029 4.640 Skarkoli 12,00 12,00 12,00 0,014 168 Síld 9,69 9,29 9,51 192.520 1.830.741 Samtals 19,30 250.012 4.824.635 í dag verða seld 25 tonn af þorski, ' 15 tonn af ýsu og fleiri tegundum úr línu- og netabátum. Á mánudag verður selt úr Gnúp GK 65 tonn af karfa. Einnig verður selt úr línu- og netabátum, 35 tonn af þorski, 20 tonn af ýsu og fleiri tegundir. Líkkistuvinnustofa Eyvindar Arnasonar: 90 ára afinæli í dag Líkkistuvinnustofa Eyvindar Árnasonar við Laufásveg á 90 ára starfsafmæli í dag, laugar- daginn 25. nóvember, og verð- ur þá tekin fyrsta skóflustung- an að nýrri byggingu fyrirtæk- isins í Öskjublíð. Eyvindur Árnason fæddist og ólst upp að Akurey í Vestur-Land- eyjum. Hann þurfti snemma að fara að vinna fyrir sér, og eftir að hann fluttist til Reykjavíkur hóf hann trésmíðanám hjá Jakobi Sveinssyni trésmíðameistara. Ey- vindur lauk við að reisa Laufásveg 4 þann 25. nóvember 1899, og þá flutti hann þangað ásamt konu sinni, Sophie Heilmann. Þar hóf hann rekstur trésmíðavinnustofu, þar sem hann smíðaði meðal ann- ars glugga, hurðir og húsgögn fyrir ýmsa aðila. Á næstu árum reisti hann einnig Laufásveg 2, og var þar sett á stofn verslun sem meðal annars seldi legsteina og kransa. Eyvindur sérhæfði sig í líkkistusmíði, og árið 1915 smíðaði hann líkvagn. Hann keypti síðan fyrsta líkbílinn hér á landi vorið 1931. Eyvindur Árnason lést árið 1950 og tók þá sonur hans, Os- vald, við rekstri jarðarfaraum- sjónarinnar. Undir forsjá hans stækkaði fyrirtækið enn frekar, og voru ráðnir nokkrir fastráðnir starfsmenn til þess að annast kist- usmíði og aðra vinnu. Osvald lést árið 1963, og hefur Davíð sonur hans séð um jarðar- faraumsjón síðan. Starfsemi Nordvision kynnt í Norræna húsinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.