Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 4
4
'■ ‘ HIJOAaHAOUM QIQMaVÍUOaC
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
Breytingar á stjórnum sjúkrahúsa:
Félagsmálaneftid Alþingis
féllst á óbreytta skipan
- segir Magnús Guðjónsson
MAGNUS Guðjónsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitar-
félaga segir að félagsmálaneíiid Alþingis hafi fallist á óbreytta skip-
an á stjórnum sjúkrahúsa þegar Ijallað var um verkaskiptingu milli
ríkis og sveitarfélga í vor. Sagði hann að frumvarp Guðmundar
Bjarnasonar heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigð-
isþjónustu, þar sem gert er ráð fyrir breytri stjórn spitala og að
starfsfólk verði ríkisstarfsmenn frá og með næstu sveitarstjórnar-
kosningum, sé ekki unnið í samráði við sambandið heldur eingöngu
af ráðherra.
Magnús sagði að umræðan um
verkaskiptingu milli ríkis og sveit-
arfélaga hefði fyrst og fremst beinst
að kostnaðarhliðinni en ákvæði eins
og til dæmis stjómun hefði ekki
borið á góma. „Það er fyrst þegar
frumvarp til laga um breytta verka-
skiptingu kemur fram að þessi
ákvæði sjást,“ sagði Magnús. I
umsögn stjórnar Sámbands
íslenskra sveitarfélaga um frum-
varpið er tekið fram að sambandið
hafi átt fulltrúa í nefndum, sem
unnu að tillögum um breytta verka-
skiptingu. Hins vegar hafi sam-
bandið ekki átt neina aðild að samn-
ingu frumvarpsins, þar sem koma
inn ýmis ný ákvæði meðal annars
um stjómun heilbrigðisstofnanna.
Stjómin lýsir sig í aðalatriðum sam-
mála þeirri stefnumörkun, sem felst
í frumvarpipu varðandi kostnaðar-
skiptin en leggur þunga áherslu á
að óbreytt skipting verði á stofn-
kostnaði sjúkarstofnana, meðal
annars vegna þess hversu sveitarfé-
lögin em misjafnlega á vegi stödd
í þessom málaflokki.
Að öðru leytí leggur stjórnin til
að 7. gr. sem íjallar um skipan
stjórna sjúkrahúsa verði breytt á
þannig að hún verði svohljóðandi:
„Eðlilegast er að halda óbreyttri
skipan á stjórnum sjúkrahúsa, með-
an þau em rekin á nafni sveitarfé-
laga eða sjálfseignarstofnana og
að formaður stjórnar verði úr hópi
fulltrúa þess.“
„Á þetta var fallist í meðförum
félagsmálanefndar Alþingis í
fyrra,“ sagði Magnús. „Síðan gerist
það að fyrir stuttu er lagt fram
frumvarp til laga um breytingu á
heilbrigðisþjónustu þar sem þessu
er breytt og það er auðvitað í engu
samráði við okkur, heldur eingöngu
og einhliða af hálfu ráðherra.“
VEÐUR
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggl á veðurspá kl. 16.15 i gaer)
VEÐURHORFUR íDAG, 2. NÓVEMBER.
YFIRLIT í GÆR: Suðvestanátt á landinu, gola eða kaldi um norð-
vestanvert landið, en allhvasst eða hvasst annars staðar. Á Norð-
vesturlandi var þurrt að kalla, en rigning eða súld í öðrum lands-
hlutum. Hiti 4 til 13 stig, hlýjast á Reyðarfirði.
SPÁ: Suðvestanátt, víða allhvöss og rigning eða súld fram yfir
miðnætti, en síðan kaldi. Skúrir eða slydduél vestanlands, en aust-
anlands léttir smám saman til þegar líður á morguninn. Veður fer
kólnandi, fyrst vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Breytileg átt, víða bjart veður og hiti
nálægt frostmarki í fyrstu en fer að hlýna og þykknar upp vestan-
lands síðdegis, rigning einkum vestanlands undir kvöld.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suðlæg átt og rigning um mestallt land,
þó síst á Norðausturlandi. Hiti á bilinu 4 til 20 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
•| Q° Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
= Þoka
— Þokumóða
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* # *
* * * * Snjókoma
# * *
’ , ’ Súld
OO Mistur
4
K
Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 i gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 13 úrkoma
Reykjavík 9 rigning
Bergen 5 léttskýjað
Helsinki 4 skýjað
Kaupmannah. +2 hrimþoka
Narssarssuaq 3 alskýjað
Nuuk +2 snjókoma
Osló ■»•2 skýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Þórshöfn vantar
Algarve 17 léttskýjað
Amsterdam 0 mistur
Barceiona 16 skýjað
Berlín 0 místur
Chicago +2 heiðskfrt
Feneyjar vantar
Frankfurt 1 mistur
Glasgow 2 þokuruðningur
Hamborg 1 þokumóða
Las Palmas 24 léttskýjað
London 2 mistur
Los Angeles 9 heiðskírt
Lúxemborg vantar
Madrid 12 alskýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 18 léttskýjað
Montreal #18 léttskýjað
New York +2 léttskýjað
Orlando 10 skýjað
París 3 þokumóða
Róm vantar
Vin #2 mistur
Washíngton 0 iéttskýjað
Winnipeg +7 skýjað
Þorgeir og Ellert á Akranesi segja
upp 77 starfsmönnum:
Fyrstu uppsagnir
fyrirtækisins í 61 ár
Morgunblaðið/Rax
50 árfrá upphafí Finnlandsstríðs
í gær voru liðin 50 ár frá því Finnlandsstríðið braust út. Til
að minnast þessa dags hér á landi lagði sendiherra Finna, blóm
á leiði Snorra Hallgrímssonar læknis en hann var herdeildar-
læknir í sjálfboðaliðasveit Svía í Lapplandi. Viðstaddir athöfnina
í Fossvogskirkjugarði voru Guðmundur Benediktsson ráðuneyt-
isstjóri, Sveinn Björnsson siðameistari utanríkisráðuneytisins,
Þuríður Hallgrímsdóttir, Anneli Branders sendiherrafrú, Auður
Snorradóttir, Þuríður Finnsdóttir, ekkja Snorra, Hákan Brand-
ers sendiherra, Snorri Siemsen, Margrét Snorradóttir, Hallgrím-
ur Snorrason og Anna Guðný Hallgrímsdóttir.
Skipasmíðastöðin Þorgeir og
Ellert á Akranesi hefúr sagt upp
77 af 121 starfsmanni frá 1.
desember vegna verkefnas-
korts. „Það er ekki okkar háttur
að segja mönnum úpp þó syrti
í álinn og hefúr reyndar aldrei
verið gert í þessu fyrirtæki og
það er þó sextíu og eins árs
garnalt," sagði Jósef Þorgeirs-
son, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins, í samtali við Morgun-
blaðið um ástæðurnar.
Hann sagði að ekki hefði verið
um annað ræða, því það hefði orð-
ið algert hrun í verkefnum. Stöðin
væri með Breiðafjarðarfetju í
smíðum, sem lyki í desembermán-
uði, og tvo lóðsbáta. Smíði annars
þeirra lyki einnig í desember, hins
í byrjun næsta árs og önnur verk-
efni væru ekki vís.
Jósef sagði að sagt hefði verið
upp jámsmiðum, trésmiðum, skrif-
stofu- og tæknimenntuðu fólki, en
rafvirkjum og lærlingum haldið
áfram. Nóg verkefni væru fyrir
rafvirkja. Flestir hefðu þriggja
mánaða uppsagnafrest, • nokkrir
tveggja mánaða og fáeinir eins
mánaðar uppsagnafrest. Stöðin
hefði gert tilboð í tvö verkefni og
verið lægst, en ákvarðanir hefðu
ekki verið teknar um smíðina.
Annars vegar væri um fiskibát að
ræða og hins vegar væri viðgerðin
á Áma Friðrikssyni. Fengi skip-
asmíðastöðin annað hvort verkef-
nið yrði hægt að endurráða flest
starfsfólkið.
Norskur
loðnubátur:
Riðm í sam-
ræmi við
íslenzk lög
LANDHELGISGÆZLAN
hefúr mælt riðil í nót eins
af norsku loðnuskipunum,
sem komin eru til veiða hér
við Iand. Mælingin leiddi í
ljós að stærð riðilsins var í
samræmi við íslenzk lög, 21
til 23 millimetrar.
Árni Kolbeinsson, ráðuneyt-
issljóri í sjávarútvegsráðu-
neytinu, sagði í samtali við
Morgunblaðið, ótvírætt væri
að yfir veiðar og veiðarfæri
norskra loðnubáta næðu
íslenzk lög meðan þeir væru
innan lögsögu okkar. Því væru
norsku skipin skyldug til að
hafa jafnstóran riðil í nótinni
og þau íslenzku. Árni sagði
að eftirlit væri í okkar höndum
og væri stefnt að því að það
yrði skilvirkt.
Mælingabátur Landhelgisgæslunnar:
Skipasmiðjan Hörð-
ur með lægsta tilboðið
TIU tilboð hafa borist í smíði mælingabáts fyrir Landhelgisgæsluna.
Lægsta tilboðið átti Skipasmíðastöðin Hörður í Njarðvík og hljóðaði
það upp á 43 milljónir króna. Alls munaði 25 milljónum á hæsta og
lægsta tilboðinu. Áð sögn Gunnars Bergsteinssonar gáfú tilboðsaðil-
ar upp misjafnar forsendur í tilboðum sínum og verður ekki tekin
ákvörðun um að hvaða tilboði verður gengið fyrr en einhvern tíma
í næsta mánuði.
Gunnar sagði að flest hefðu til-
boðin verið á bilinu 53-70 milljónir
króna en í tilboðunum hefði verið
gengið út frá mismunandi forsend-
um eins og til dæmis hvað vélar-
útbúnað og annað slíkt áhrærir.
Væri rnargt eftir að athuga í þess-
um tilboðum.
Eftirtalin fyrirtæki gerðu tilboð
í smíði mælingabátsins: Þorgeir og
Ellert hf. á Akranesi, Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur hf., Skipasmiðjan
Hörður hf. í Njarðvíkum, Skipavík
hf., Stykkishólmi, Vélsmiðja Seyðis-
fjarðar hf., Skipasmíðastöð Marsel-
íusar hf. á ísafirði og Trefjaplast
hf., Blönduósi, sem buðu sameigin-
lega í verkið, og Slippstöðin hf.,
Akureyri.