Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 10
I 1 !
10
MÓRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989
í Grafarvogi
eru góðar 118 fm íbúðir til sölu. Stórar suður svalir.
Þvottahús og geymsla eru á hæðinni. Bílskúr 21 fm
fylgir hverri íbúð. Húsið verður tilbúið með vorinu.
Upplýsingar í síma 31104.
Örn Isebarn,
byggingameistari.
ÞU ATT MOGULEIKAAAÐ EIGNAST
ÞETTA EINBÝLISHÚS FYRIR100 KR.
Fannafold 209. Stærö: 200 nrr
Lóð: 670 m . Heildarverð: 15 miíijónír
Þú gætir átt það eftir að hreiðra um þig í þessu
stórglæsilega einbýlishúsi. - Sjoppuferð eftir
sprengimiðanum og framtíð þín getur breyst á einu
augnabliki. Bílarnir, utanlandsferðirnar, vélsleðarnirog
allt hitt er I íka alveg örugglega sjoppuferðarinnar virði.
Freistaðu gæfunnar og fáðu þér miða!
Húsið er til sýnis um helgina milli ki. 10 og 18.
Lukkutríó björgunarsveitanna
011 9197fl LÁRUS Þ. VALDIMARSSON framkvæmdastjóri
L I I vv ' L I 0 I U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. LÖGG. FASTEIGItASr
Til sölu er að koma m.a. eigna:
Nýtt parhús - nýtt húsnlán
Nýtt og glæsil. parhús ein hæð 129,2 fm auk bílageymslu 22 fm. íb-
hæft ekki fullg. á vinsælum stað f Mosbæ. Frág. lóð. Nýtt 40 ára
húsnlán kr. 4,1 millj. Skipti mögul. á góðri 3ja herb. íb. m/bílsk.
Á vinsælum stað í gamla bænum
2ja herb. endurb. íb. á 3. hæð 53,7 fm nettó í reisul. steinh. Laus strax.
Endurnýjuð - hagkvæm skipti
I gamla góða Austurbænum 3ja herb. íb. á 2. hæð í steinh. 72,6 fm
nettó auk risherb. Innr. og tæki að mestu 2 ára. Skuldlaus.
Skipti mögul. á 3ja herb. íb. í lyftuh. í Hólahverfi.
í þríbýlishúsi við Langholtsveg
4ra herb. aðalh. 93,8 fm nettó. Mikið endurn. Rúmg. lóð. Sanngj. verð.
Skipti mögul. á litlu einb. í Smáíbhverfi, Mosbæ eða Kjalanesi.
í tvíbýli - allt sér - bílskúr
5 herb. glæsil. efri hæð í tvíbhúsi við Laufás í Gbæ 136 fm. Innrétting
að mestu ný. Stór og góður bílsk. 36 fm. Ræktuð lóð. Útsýnisstaður.
Eignaskipti möguleg.
Með sérþvottahúsi og miklu útsýni
Stór og góð 4ra herb. íb. 109,5 fm nettó á 3. hæð við Dalsel. Ný-
stands. sameign. Stæði í bílhýsi. Sólsvalir.
Glæsilegt endaraðhús
við Fljótasel með 6 herb. rúmg. íb. á tveimur hæðum. Á jarðh. má
hafa aukaherb. eða litla séríb. Góður sérbyggður bílsk. Eignask. mögul.
Góðar rishæðir óskast
Traustir kaupendur óska eftir rishæðum 2ja, 3ja og 4ra herb. Ennfrem-
ur óskast lítil einstaklíb. í Borginni.
Opið í dag
frákl. 10-16.
Óvenju margir
fjárst. kaupendur.
AiMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
II
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
Stór fyrirsögn í blaði hófst
um daginn á orðunum: „Hund-
arnir slógust". Þá rifjaðist upp
fyrir mér það sem Kristján skáld
frá Djúpalæk sagði í Degi fyrir
nokkrum árum. Það var svo: „í
sögufrægum átökum milli hunda
og lögreglu um daginn var sagt
í fjölmiðlum að hundarnir sjálfir
hefðu „barist“, á öðrum stað
„slegist". í minni sveit höfðu
hundar engin barefli. Þeir „flug-
ust á“. Þeir höfðu heldur ekki
hnefa til að slást með en þeir
rifust „eins og hundar“.“
Þá rifjaðist líka upp limrukorn
sem þættinum var sent með
þakklæti tii'Kristjáns fyrir skrif
hans um íslenskt mál. Limran
var svona:
Spennuhámarkið hlýtur að nást
og þá hnefarnir _gijótharðir sjást, -
allt dauðvona og hiynjandi
af höggunum dynjandi, -
þegar hundarnir fara að slást.
■k
Mér finnst að orðið jákvæður
sé ofnotað til mikilla muna um
þessar mundir, jafnvel svo að
hið ágæta og yfirlætislausa lýs-
ingarorð góður megi fara að
vara sig. Sama er að segja um
viðbrögð í óeiginlegri merk-
ingu. Ef ég flyt ræðu og henni
er vel tekið, þá finnst mér að
ég (eða efni ræðunnar) hafi
fengið góðar undirtektir, ekki
,jákvæð viðbrögð“, á ensku
positive reaction(s).
★
I Orðabók Menningarsjóðs
(OM) segir um orðið boldang:
„þykkt léreftsefni (t.d. röndótt
utan um undirsængur o.fl.);
segldúkur.“
Um samsetninguna bold-
angskvenmaður: „stór, fyrir-
ferðarmikil kona, dugnaðar-
kvendi.“
Islensk samheitaorðabók
(ÍS) þýðir boldang segldúkur,
og boldangskvenmaður er þar
dugnaðarkvendi, hörkukven-
maður, stólpakvenmaður, val-
kyrja, brikk.
I Blöndal er boldang þýtt á
dönsku Bolster, en í Dansk-ís-
lenskri orðabók Freysteins
Gunnarssonar er það orð þýtt:
sængurdúkur, púði, koddi, hæg-
indi, bólstur. Þar (í Blöndal) er
engin samsetning gefin nema
boldangsbuxur.
Uppruni orðsins boldang
leynir á sér. Það er hvorki hjá
dr. Alexander né Jan de Vries.
í stóru sænsku orðabókinni fékk
ég loks vitneskju undir orðinu
buldan sem þeir segja að sé
sama og okkar orð boldang.
Buldan er svo talið: „grófur
tvískeftuvefnaður úr líni, hamp-
garni o.fl., sem notaður var í
poka, segl og annað, t.d. fatnað,
og var þá helst röndótt.“ Svíar
telja þetta orð komið úr hol-
lensku.
Þá er hér annar pistill frá rit-
stjóra Flugorðasafhs, Jónínu
Margrétu Guðnadóttur: „Stilli-
blökur og stýriblökur. Flug-
orðanefnd starfar af fullum
krafti og eru fundir hennar nú
hálft hundrað. Um þessar mund-
ir er verið að fást við orðaforða
úr loftaflfræði, flugvélasmíði og
vélfræði.
Orðanefndin tók nýlega fyrir
orðaforðá um stjórntæki loft-
fara, jafnt þau sem flugmaður
handleikur inni í stjórnklefa og
hina hreyfanlegu stýrisfleti á
vængjum eða stéli er stjórna
hreyfingum loftfars og hraða.
Föst hefð er komin á ýmis heiti
ytri stjórntækja, svo sem halla-
stýri, hæðarstýri og hliðar-
stýri, en um önnur er oftast
notast við enskar slettur. Er þá
gjarnan talað um „flapsana",
„trimrnið" eða „steibilæserinn"
o.s.frv.
Reyndar var fyrir löngu farið
að kalla flaps íslenska heitinu
vængbörð enda lýsir það fyrir-
515.þáttur
bærinu ágætlega, en orðanefnd-
in hefur iíka rætt um nýyrðið
flapi (í flt. flapar). Ekki er frá-
leitt að ætla að starfsfólki við
flug gengi betur að temja sér
notkun þess.
Á vængjum og stéli eru litlir
stýrisfletir sem ýmist eru til að
fínstillá sjálf aðalstýrin eða létta
flugmanni stjórnun þeirra, á
ensku kallaðir tabs. Nefndin
kom sér saman um að kalla þá
einu nafni blökur og auðkenna
þær síðan eftir hlutverki. Blökur
þær er á ensku nefnast trim
tabs verða þannig stilliblökur,
en control tabs heita þá stýri-
blökur.
Hingað til hafa „trim tabs“
stundum verið nefndir stýris-
stillar, en rökréttara er að nota
það um stjórntæki stilliblakanna
inni í vélinni, þ.e. fyrir enska
hugtakið trim control.
Lipur heiti hefur vantað um
hinn lárétta og lóðrétta hluta
stélsamstæðunnar, á ensku
stabilizer og vertical stabilizer
eða fin. Orðanefndin leggur til
að nota orðið kambur um þessa
stélfleti. Lárétti flöturinn ber
hæðarstýrið og því eðlilegt að
kalla hann hæðarstýriskamb, en
kannski mætti nota orðið þver-
kambur sem samheiti. Lóðrétti
flöturinn hefur hingað til verið
kallaður stélkambur og er ekki
ástæða til að hrófla við því, en
nota mætti samheitið hliðar-
stýriskambur þegar samhengi
krefst aðgreiningar frá lárétta
kambinum.“
Nikulás norðan kvað:
’ Er ég heilann í rakspírarús skerpi,
þá ræðst ég nú ekki á nein músgerpi,
heldur stimpast við bola
sem bágt fær að þola,
sagði Kolgrímur heitinn frá Kúskerpi.
Spurning í lokin: Hefur orða-
sambandið að vera í slagtogi
með einhvetjum hlutlausa eða
niðrandi merkingu?
■ LIKAMSÞJALFUN með vöð-
vateygjum heitir bók eftir dr.
Sven-A. Sölveborn sem Orn og
Örlygur gefur út í þýðingu lækn-
anna Boga Jónssonar og Guð-
mundar Arasonar. í kynningu út-
gefanda segir m.a.: „Á síðari árum
hefur ný aðferð við að þjálfa upp
hreyfigetu rutt sér til rúms, svokall-
aðar vöðvateygjur, sem leysa hinar
hefðbundnu sveifluæfingar alveg
af hólmi.“ Árið 1982 kom út í
Svíþjóð bók eftir Sven-A. Sölveborn
um vöðvateygjur. Bókin hefur síðan
verið ein söluhæsta bók þessa ára-
tugar þar í landi. Þessi íslenska
útgáfa er sautjánda erlenda út-
gáfan.
■ STAFIRNIK OKKAR heitir
bók, sem Mál og menning gefur
út og er ætluð fyrir ung börn sem
vilja læra að þekkja stafina. Mynd-
ir í bókinni eru eftir Rod Campell.
■ TRILLURNAR ÞRJÁR er
bókaflokkur, sem Fjölvi/Vasa gef-
ur út. Nú kemur bókin Trillurnar
skeinmta sér og fjórar bækur í
nýrri ritröð, sem heitir Ævintýr-
abækur Trillanna . í þessum bók-
um lenda stelpurnar í ævintrýrun-
um Rauðhettu, Prinsessunni á
bauninni, Nýju fötum keisrarans
og Alí Baba og 40 ræningjum.
Siggi og Vigga heitir önnur teikni-
myndasöguröð, sem Fjölvi/Vasa-
gefur.út. Höfundur þessara bóka
er Willy Vandersteen og fyrstu
fjórar heita: Puti Kuti, Víkingur-
inn voðalegi, Fákurinn fljúgandi
og Hamagangur á hafsbotni. Og
teiknisögudeild Fjölva er líka með
Prins Valiant á sinni könnu og nú
er sjötta heftið komið út. Það heit-
ir Sigling til Svartálfii.
Jólaskraut
Gjafavörar
Búsáhöld
Leikföng
Peysur
RYMINGARSALAN
LAUGAVEGI91, í KJALLARA OG Á 2. HÆÐ
SÚ BESTA í BÆNUM • STÓRKOSTLEGT ÚRVAL
HLÆGILEGT VERÐ
Skyrtur
Dragtir
Sængurverasett
Ferðatöskur
Svartar gallabuxur kr. 1.390
Herraúlpur kr. 2.900
Gallapokapils kr. 990
Krampugallar í „neon“litum kr. 2.900
OPIÐ 13-18 VIRKA DAGA 10-16 LAUGARDAGA
SIMI 1 32 85