Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 24
■MURGUyfíliAfólÐ, jLAUGAiqiAC.UK 2. DESKMHKK :19R9
m
Francis Ford Coppola, Woody Allen og Martiii Scorsese koma allir
við sögu myndarinnar New York-sögur.
Bíóborgin sýnir
New York-sögur
BÍÓBORGIN hefur tekið til sýn-
inga kvikmyndina New York-
sögur (New York Stories) í leik-
stjórn Martins Scorseses. Sög-
urnar eru þrjár, hver með sjálf-
stæðum söguþræði. Með aðal-
hlutverk fara Nick Nolte, Heath-
er McComb, Woody Allen og
.margir fleiri.
Fyrsta sagan ijallar um lista-
manninn Lionel Dobbie og baráttu
hans við að endurheimta vinstúlku
sína, Paulette, sem ekkert vill með
hann hafa lengur. Önnur sagan
fjallar um Zoe sem er tíu ára göm-
ul, býr á hóteli og er yfirleitt ein
því foreldrar hennar eru alltaf á
ferðalögum, um samband hennar
við ráðsmanninn Hektor, skólafé-
laga hennar Abú og ýmislegt sem
drífur á daga hennar. Þriðja mynd-
in fjaliar um Sheldon, fimmtugan
lögfræðing, og samband ifáns við
móður sína, sem ekki vill sleppa
af honum hendinni, og gerir honum
lífið leitt á ýmsan hátt.
■ NORRÆNA félagið í Kópa-
vogi efnir til „Haustvöku" í Þing-
hól, Hamraborg 11 á morgun,
sunnudag kl. 15. Efnið verður að
þessu sinni bókmenntakynning í til-
efni af aldarafmæli Gunnars
Gunnarssonar skálds fyrr á þessu
ári. Hjörtur Pálsson talar um höf-
undinn og „fjallkirkjuna", sem sér-
staklega verður kynnt, og tengir
kafla sem hann hefur valið úr sög-
unni. kaflana lesa Ólöf Ýr Atla-
dóttir, Sigurður Grétar Guð-
mundsson og Valdimar Lárusson.
■ KVENSTÚDENTAFÉLAG ís-
lands hefur hafið vetrarstarfsemi
með fjáröflun fyrir styrktarsjóð með
kökusölu í Blómavali og sölu í
Kolaporti. Jólafundur verður 4.
desember nk. í Matreiðsluskólan-
um okkar þar sem verður sýni-
kennsla í konfektgerð og skreyting-
um. Veittir verða námsstyrkir fé-
lagsins fyrir vormisseri á aðalfundi
í janúar á næsta ári. Umsóknir
þurfa að berast fyrir 15. janúar.
FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM
1 1. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í I Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 76,00 35,00 72,20 27,517 1.986.780
Þorskur(óst) 79,00 49,00 68,29 3,84 1 260.256
Smáþorskur 39,00 39,00 39,00 0,183 7.137
Smáþorskur(ósl) 39,00 39,00 39,00 0,135 5.265
Ýsa 129,00 91,00 101,35 13,680 1.386.473
Ýsa(ósl.) 101,00 35,00 82,07 6,060 497.295
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,175 3.490
Ufsi 33,00 33,00 33,00 0,130 4.274 \
Steinbítur 68,00 46,00 65,75 11,049 726.543 ‘
Langa 52,00 52,00 52,00 1,970 102.439
Langa(óst) 39,00 39,00 39,00 0,208 8.112
Lúða 425,00 205,00 267,93 0,537 143.976
Samtals 76,59 67,485 5.168.871
Á mánudag verður seldur hluti af afla Sigureyjar BA, svo og verður selt
úr Stakkavík ÁR og fleiri bátum.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 102,00 30,00 76,63 14,231 1.090.500
Ýsa 107,00 49,00 99,38 16,324 1.622.176
Karfi 36,00 36,00 36,00 2,374 85.457
Ufsi 48,00 34,00 46,95 6.793 318.931
Hlýri+steinb. 60,00 47,00 56,96 15,151 863.031
Langa 20,00 20,00 20,00 0,120 2.400
Lúða 370,00 180,00 288,57 0,098 28.280
Skarkoli 42,00 40,00 40,45 0,484 19.580
Keila 12,00 12,00 12,00 0,164 1.968
Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,214 3.210
Samtals 71,47 56,618 4.046.287
Selt var úr Jóni Baldvinssyni RE og bátum. Á mánudag verður selt úr línu-
og netabátum.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf
Þorskur 87,00 55,00 73,45 43,639 3.205.089
Þorskur(umál) 20,00 20,00 20,00 0,040 800
Ýsa 122,00 30,00 101,90 4,417 450.084
Karfi 20,00 20,00 20,00 0,028 560
Ufsi 20,00 15,00 19,51 0,112 2.185
Steinbítur 47,00 47,00 47,00 0,061 2.867
Hlýri 46,00 46,00 46,00 0,056 2.576
Langa 40,00 40,00 40,00 0,514 20.560
Lúða 280,00 115,00 254,27 0,302 76.790
Keila 16,00 16,00 16,00 0,462 7.392
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,005 175
Skötuselur 142,00 118,00 138,65 0,022 2.981
Samtals 75,96 49,657 3.772.059
Selt var úr Skarfi GK, Happasæli KE, Hafborgu KE, Hópsnesi GK og Ægi
Jóhannssyni GK.
Ljósmynd/Guðbrandur Öm Arnarson
Hátíðahöld stúdenta 1. desember
Stúdentar við Háskóla fslands héldu 1. desember
hátíðlegan í gær. Hátíðahöldin hófúst með því
að lagður var krans að leiði Jóns Sigurðsonar í
kirkjugarðinum við Suðurgötu, en að því loknu'
var messa í Háskólakapellunni. A hátiðarsam-
komu í Háskólabíói voru flutt ávörp og Háskóla-
kórinn söng nokkur lög. Málþing var haldið í
Odda undir yfirskriftinni „Er menntun of dýr?“,
og sérstök menningarvaka var í Norræna hús-
inu, en hátíðahöldunum lauk með dansleik. Á
myndinni sést Háskólakórinn syngja á hátíðar-
samkomunni í Háskólabíói.
Tekj uskattsbr eytingar
kjarabót fyrir lágtekjuhópa
- segir í frétt frá fjármálaráðuneytinu
MORGUNBLAÐINU hefúr borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
fjármálaráðuneytinu:
í þessu minnisblaði eru rakin
nokkur dæmi um fyrirhugaðar
breytingar á tekjuskatti í tengslum
við upptöku 24,5% virðisaukaskatts
um áramótin og sýnd áhrif þeirra
á fjárhag nokkurra fjölskyldugerða.
Persónuafsláttur og barnabætur
hækka um tæp 7 % og kemur því
þessi hækkun tekjuskatta fyrst og
fremst við fólk með tekjur vel yfir
meðallagi. Lágtekjufólk og barna-
fjölskyldur borga svipað eða ívið
minna eftir breytinguna en fyrir
hana. Þegar miðað er við væntan-
lega vöniverðslækkun vegna lækk-
unar skatthlutafalls virðisauka-
skattsins frá söluskatti hafa breyt-
ingarnar í för með sér nokkra kjara-
bót fyrir þess hópa.
Eins og kunnugt er ákvað ríkis-
stjórnin í gær að leggja fram á
Alþingi frumvarp um breytingar á
lögunum um virðisaukaskatt. Gert
er ráð fyrir að skatturinn verði lagð-
ur á í einu þrepi með 24,5% skatt-
hlutfalli, eða 1,5% lægra en áður
var ákveðið. Einnig er lagt til að
helstu innlend matvæli, nýmjólk,
dilkakjöt, fiskur og grænmeti beri
ígildi 14% skatts með endurgreiðslu
sem bundin er í virðisaukaskatts-
lögunum.
Breytingin úr 25% söluskatti í
24,5% virðisaukaskatt lækkar al-
mennt vöruverð um 1%, en endur-
greiðslan hefur í för með sér um
7-8% verðlækkun eftir áramótin á
helstu innlendum matvælum.
GENGI OG GJALDMIÐLAR
GENGISSKRÁNING
Nr. 231 1. desember 1989
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 62.53000 62,69000 62.82000
Sterlp. 97.95000 98,20100 98,12800
Kan. dollari 53.68500 53.82300 53.84200 -
Dönsk kr. 9.06890 9.09210 9,00970
Norsk kr. 9,20510 9.18900 9.17080
Sænsk kr. 9,82250 9.84760 9.80180
Fi. rnark 14.95580 14.99400 14.86860
Fr. franki 10.28920 10.31550 10.24630
Belg. franki 1.67300 1.67730 1.66590
Sv. franki 39.27270 39.37320 39.05380
Holl. gyllmi 31.16760 31.24740 31.00610
V-þ. mark 35.15/90 35.24780 34.97190
*t. líra 0.04766 0.04778 0.04740
Austurr. sch. 4.98940 5.00220 4.96700
Porl. escudo 0.40370 0.40470 0.40110
Sp. peseli * 0.54480 0,54620 0.54450
Jap. yen 0.43605 0.43717 0.43696
' írskt pund 92,76000 92.99700 92.29200
SDR (Sérst.) 80.59740 80.80360 80,63320
ECU.evr.m, 71.31860 71,50110 71.16560
Tollgengi fyrir desember er sölugengi 28. nóvember.
Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70.
Ríkisstjórnin ákvað einnig að
leggja til breytingar á öðrum þátt-
um skattalaga og munar þar mest
um hækkun tekjuskattshlutfalls um
2% frá áramótum, úr 30,8% í 32,8%.
Jafnframt var ákveðið að hækka
persónuafslátt og barnabætur um
tæplega 7% í stað þeirrar 3% hækk-
unar sem gert er ráð fyrir í fjárlaga-
frumvarpinu.
Persónuafsláttur hækkar við
þessar breytingar úr 19.419 í
20.850 krónur og skattleysismörk
úr 51.455 í 52.466 krónur.
Að þessum breytingum sam-
þykktum verður skattbyrði lág-
tekjufólks og barnafjölskyldna svip-
uð á fyrri helmingi næsta árs og
hún er nú, jafnvel ívið lægri. Hlut-
fall tekjuskatta af heildartekjum
launafólks verður samkvæmt þessu
um 0,9% hærra en í ár. Skattbyrðin
þyngist mest hjá fólki með háar
tekjur, alit upp undir 2%. Hins veg-
ar lækkar skattbyrðin beinlínis hjá
lágtekjufólki, en auk þess kemur
lægra matvöruverð þessu fólki sér-
staklega til góða.
Hér verða sýnd dæmi um þessar
breytingar hjá einstaklingum, ein-
stæðum foreldrum og barnafjöl-
skyldum, og er annarsvegar miðað
við 65 þúsund króna laun á mánuði
á hvern fullorðinn, og hins vegar
150 þúsund krónur á mánuði á
hvern fullorðinn.
Skattbyrði tekjuskatts
fyrir og efitir breytingu
65 þús. króna
mánaðarlaun
Desember Janúar
150 þús. króna
mánaðarlaun
Desember Janúar
I. Einstaklingar 1989 1990 1989 1990
Tekjuskattur ríkisins, brúttó 20.020 21.320 46.200 49.200
Persónuafsláttur -19.419 -20.850 -19.419 -20.850
Tekjuskattur til ríkis, nettó 601 470 26.781 28.350
Útsvar sveitarfélaga 4.511 4.511 10.410 10.410
Tekjuskattur og útsvar 5.112 4.981 37.191 38.760
Skattbyrði sem % aftekjum 7,8 7,6 24,8 25,8
- Tekjuskattur ríkisins 0,9 0,7 17,9 18,9
- Útsvar sveitarfélaga 6,9 6,9 6,9 6,9
65 þús. króna 150 þús. króna
mánaðarlaun mánaðarlaun
Desember Janúar Desember Janúar
II. Einstætt foreldri 1989 1990 1989 1990
Tekjuskattur ríkísins, brúttó 20.020 21.320 46.200 49.200
Persónuafsláttur -19.419 -20.850 -19.419. -20.850
Barnabætur* -21.273 -22.841 -13.694 -14.704
Tekjuskatturtil ríkis, nettó -20.672 -22.371 13.087 13.646
Útsvar sveitarfélaga 4.511 4.511 10.410 10.410
Tekjuskattur og útsvar** -16.161 -17.860 23.497 24.056
Skattbyrði sem % af tekjum -24,9 -27,5 15,6 16,0
- Tekjuskattur ríkisins -31,8 -34,4 8,7 9,1
- Útsvar sveitarfélaga 6,9 6,9 6,9 6,9
130 þús. króna 300 þús. króna
mánaðarlaun mánaðarlaun
Desember Janúar Desember Janúar
III. Iljón 1989 1990 1989 1990
Tekjuskattur ríkisins, brúttó 40.040 42.640 92.400 98.400
Persónuafsláttur -38.838 -41.700 -38.838. -41.700
Barnabætur* -9.686 -10.400 -6.847 - 7.352
Tekjuskatturtil ríkis, nettó - 8.484 - 9.460 46.715 49.348
Útsvar sveitarfélaga 9.022 9.022 20.820 20.820
Tekjuskattur og útsvar** 538 -438 67.535 70.128
Skattbyrði sem % af tekjum 0,4 -0,4 22,5 23,3
- Tekjuskattur ríkisins -6,5 -7,3 15,6 16,4
- Ötsvar sveitarfélaga 6,9 6,9 6,9 6,9
* Tvö börn, annad yngra en sjö ára.
** Mínusiölurnar iákna að fólk fær greitt
frá ríkinu í stað þess að borga til þess.