Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.12.1989, Blaðsíða 36
MOÁGbNBÍAÐta IjÍuGÁKDÁGÍ'R i Nýkomnir í öllum stærðum Gód greióslukjör PELSINN 4 Kirkjuhvoli sími 20160 Opið í dag laugardag fró kl. 10-1 ó. félk í fréttum Morgunblaðlð/Benedikt Guðmundsson \ TÓNLIST Megas til Norðurlanda Listamaðurinn Megas hélt kveðjutónleika á Hótel Borg fyrir nokkru áður en hann hélt til Norðurlanda, þar sem hann kemur fram á mótum íslendinga. Söng hann þar og lék úrva! sinna helstu verka í gegn um tíðina. Meðal þeirra sem einnig komu fram má nefna Bubba Morthens, en þeir Megas hafa lengi haft ánægju af því að syngja saman. Á meðfylgjandi myndum má sjá Megas á tónleikun- um. Húsfyllir var og gerður góður rómur að skemmtuninni. Myndbandstceki HQ Með fjarstýrin Verð frá: 48. Með fjarstvriit^i^Vstöðva minnt Sjónvarp 21 “ með fjarstýringu ogflatskjá Verð frá: 62.600 RONNING Stereo sjónvarp 25“ með fjarstýringu- og flatskjá Verð frá: 99.600* Stereo sjónvarp 28“ með farstýringu viifljwfl02.100* * Miðað við staðgreiðslu. Vió erum ekki bara HagsUeðir... KRINGLAN ~.við erum betri S: 68 58 68 Juan Zarraga stendur stoltur við hlið „Mazingers“, þyngsta uxa Spánar. ÞRÆTUR Þyngsti uxi Spánar Uti í hinum stóra heimi er það plagsiður manna að inetast um allt milli himins og jarðar en á Spáni eru menn hins vegar á einu máli um að uxinn hans Juans Zarraga sé öidungis einstakur. Ný- verið leiddu menn saman uxa sína í borginni Bilbao og var tilgangur- inn sá að sæma þyngsta uxa lands- ins sérstökum heiðursverðlaunum. Mikill fögnuður greip um sig er í ljós kom að „Mazinger“, uxinn hans Juans, var hvorki meira né minna en 1522 kíló. Gamlir menn ærðust af fögnuði og rifu í hár sitt og skegg því þyngri uxi hefur fram til þessa ekki fundist þar í landi. „Mazinger" fékk einnig sérstaka viðurkenningu sökum geðprýði sinnar en hann þvkir sérlega yfirvegaður í fram- göngu allri. Juan Zarraga er sann- færður um „Mazinger" slái ekki aðeins út keppinauta sína á Spáni heldur sé hann þyngsti uxi heims og hyggst freista þess að fá metið skráð í Heimsmetabók Guiness.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.