Morgunblaðið - 02.12.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 1989 31
mikið og erfitt stríð við erfiðan sjúk-
dóm og var sannarlega oft tvísýnt
hvor hefði betur.
Dvölin á Landspítalanum var
löng og erfið. Það hjálpaði honum
þó mikið að Steinvör sat hjá honum
langdvölum og hjúkraði sem best
hún gat og stytti honum stundir.
Þar kom best í ljós hversu samrýnd
þau voru og samstillt og í raun og
veru háð hvort öðru. Þau höfðu
gengið æviveginn saman og höfðu
stutt hvoit annað í gegnum súrt
og sætt. Steinvör hafði fylgt bónda
sínum eftir nánast til allra verka
og ég er raunar ekki í vafa um að
ef hennar hefði ekki notið við á
spítalanum, þá hefði frændi minn
ekki komið lifandi þaðan út. En
seiglan var mikil og þótt þrekið
hefði næstum þorrið var haldið í
vonina og smám saman kom bat-
inn. _Ég leit nokkrum sinnum inn
hjá Ásgrími þegar hann lá á spíta-
lanum. Oft var þar margt um mar.n-
inn. Eitt skiptið er mér minnisstæð-
ara en önnur. Nokkrir voru í heim-
sókn og var Ásgrímur hinn hress-
asti. Allt í einu segir Ásgrímur við
Steinvöru: „Er ekki eitthvað til að
bjóða gestunum? Er ekki hægt að
sýna gestrisni.“ Þetta var í raun
dæmigert fyrir hann, alltaf boðinn
og búinn að taka vel á móti öllum
enda höfðingi heim að sækja og þau
hjónin bæði. Jafnvel á sjúkrahúsi
var hugsunin um gestrisni efst.
Þegar heilsan skánaði kom hann
stundum í heimsókn og var nú
ýmislegt skrafað. Ég átti harm-
óníku sem ég hafði keypt fyrir um
það bil 10 árum, náði svona rétt
lagi á en hafði endanlega lokað
gripinn í tösku og sett niður í kjall-
ara. Hófst nú smá þref hvort ég
ætti að ná í hljóðfærið og reyna,
sem varð úr. Ásgrímur hafði mjög
gaman af harmóníku músík og
hvatti mig mjög til að æfa. Ég gaf
lítið út á það en mér er minnis-
stætt að þegar við kvöddumst sagði
hann: „Heldurðu nú að þú æfir
ekki svolítið, það er miklu betra en
að hafa hljóðfærið niðri í kjallara!"
Þetta sat í mér og varð raunar til
að eg fór í tíma.
Ásgrímui' kom nú oft við er hann
var hér syðra í eftirliti hjá læknum.
Þá þurfti að sjálfsögðu að taka lag-
ið enda taldi frændi sig eiga nokk-
urn þátt í framförum þótt litlar
væru. Þótt Ásgrímur hafði hætt
vinnu hóf hann að byggja sér sum-
arhús þegar heilsan leyfði. Er það
hið snotrasta hús sem hann reisti
á. ásnum fyrir neðan beitarhúsin í
landi Lindarhóls. Jörðina Lindarhól
seldi hann í fyrra en hélt eftir smá
skika fyrir sumarhúsið. Það er, eins
og allt annað sem Ásgrímur
smíðaði, vandað og traust og ekki
kastað höndum til neins. í Lind-
arbæ, en svo heitir húsið, er ákaf-
lega gestkvæmt. Síðla sumars kom
ég þar og var slegið upp veislu. Þá
höfðu hátt á annað hundrað manna
skrifað þar í gestabók bara sumarið
1989. Allir þökkuðu móttökurnar
og hver einasti talaði um gestrisni.
En nú er komið að leiðarlokum.
Við sem eftir stöndum geymum
minninguna um góðan samferða-
mann. Steinvöru votta ég samúð
og bið guð að styrkja hana í þeim
erfiðleikum sem hún má nú ganga
í gegnum.
Sigurður Guðmundsson
■ KIRKJUDAGUR Kvenfélags
Garðabæjar verður á morgun.
Guðsþjónusta fer fram í Garða-
kirkju kl. 14. Sigríður Halldórs-
dóttir, lektor, prédikar og kvenfé-
lagskonui' lesa texta. Fyrsta að-
ventuljósið verður tendrað. Organ-
isti er Þröstur Eiríksson. Að lok-
inni kirkjuathöfn gengst kvenfélag-
ið fyrir kaffisölu á Garðaholti.
■ KIRKJUDAGUR verður í
Víðistaðakirkju á morgun. Við
hátíðarguðsþjónustu klukkan 14
verða afhent hátíðamessuklæði,
sem unnin eru af Sigrúnu Jóns-
dóttur og eru gjöf frá Hafharfjarð-
arsókn. í guðsþjónustunni verður
flutt Missa Piccola eftir Gunnar
Reyni Sveinsson. Kór Víðistaða-
sóknar syngur. Aðventusamkoma
verður í kirkjunni kl. 20.30. Ræðu-
maður kvöldsins er Gunnar Rafn
Sigurbjörnsson. Kór Flensborg-
arskóla syngur undir stjórn Est-
herar H. Guðmundsdóttur. Lús-
íur koma í heimsókn. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn
Kristínar Jóhannesdóttur. Kaffi-
sala og basar Systrafélags Víði-
staðasóknar verður að lokinni hát-
íðarguðsþjónustu og aðventusam-
komu. Meðan á kaffisölunni stendur
mun barnakór kirkjunnar syngja
jólalög.
■ KIRKJUNEFND kvenna
Dómkirkjunnar verður með sitt
árlega aðventukvöld í kirkjunni á
morgun klukkan 20.30. Aðalræðu-
maður kvöldsins er Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra.
Kór Melaskóla syngur nokkur lög
undir stjórn Helgu Gunnarsdótt-
ur, tónmenntakennara. Tvær ungar
stúlkur, Vigdís Klara og Arna
Kristín, leika á blásturshljóðfæri.
Dómkórinn syngur undir stjórn
Marteins H. Friðrikssonar, dó-
morganista og Marteinn leikur ein-
leik á orgelið. Þá flytja dómkirkju-
prestarnir ávörp við upphaf og lok
samkomunnar og einnig verður al-
mennur söngur.
■ AÐVENTUKVÖLD Breið-
holtssafnaðar verður að þessu
sinni haldið í Breiðholtskirkju á
morgun kl. 20.30. Kór Öldutúns-
skólans í Hafnarfirði og Kór
Breiðholtskirkju syngja aðventu-
og jólasöngva undir stjórn Egils
Friðleifssonar og Daníels Jónas-
sonar, Sigrún Hjartarsdóttir les
stutta jólafrásögu, hópur ferming-
arbarna flytur helgileik og sr. Lár-
us Halldórsson, fyrrverandi sókn-
arprestur Breiðholtssóknar, flytur
aðventuhugleiðingu. Kvöldið verður
svo endað með stuttri helgistund
við kertaljós og á eftir býður kven-
félag Breiðholts kirkjugestum að
þiggja veitingar.
M KIRKJUDAGUR Árbæjar-
safnaðar verður haldinn hátíðlegur
í Árbæjarkirkju á morgun. Kl.
10.30 verður barnasamkoma í kirkj-
unni og eru foreldrar velkomnir
með börnum sínum. Kl. 14 verður
guðsþjónusta- í kirkjunni fyrir alla
fjölskylduna. Sérstaklega er vænst
þátttöku fermingarbarna og for-
eldra þeirra í guðsþjónustunni.
Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Jóns Mýrdals organista, Fríður
Sigurðardóttir og Halla Jónas-
dóttir syngja tvísöng í messunni.
Að guðsþjónustunni lokinni hefst
kaffisala Kvenfélags Árbæjar-
sóknar í safnaðarheimili kirkjunnar
og verður veislukaffi á borðum fram
eftir degi. Jafnframt verður efnt til
glæsilegs skyndihappdrættis með
fjölmörgum góðum gagnlegum
vinningum.
t
Þökkum samúð og hlýhug vegna fráfalls systur okkar,
SIGURLAUGAR E. GUNNLAUGSDÓTTUR,
og virðingu sýnda minningu hennar.
Sérstakar þakkir flytjum við öllum þeim, sem sýndu henni hlýju
og góða umönnun.
Árni Gunnlaugsson, Stefán Gunnlaugsson.
ULTRA
GLOSS
Okkar albesta
vetrarbón!
Þolir tjöruþvott!
ESSO
utsöiustaðir: i Tri’j stöðvamar
Olíufélagið hf.
Nú fást jólastjörnur í blómaverslunum um allt land.
Blómaframlelðendur