Morgunblaðið - 20.02.1990, Side 14

Morgunblaðið - 20.02.1990, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990 Minning: Aðalheiður S. Guð mundsdóttír Fædd 18. september 1922 Dáin 14. febrúar 1990 Hún elsku amma mín er dáin og langar mig til að kveðja hana með nokkrum orðum. Amma skipaði stóran sess í lífi okkar fjölskyldunn- ar og voru hún og afi iðin við að heimsækja börnin sín og barnabörn- in. Ömmu var alltaf ákaflega annt um barnabörnin sín og minnist ég margra skemmtilegra stunda með henni frá árum áður. Amma var glaðlynd og höfðum við báðar jafn gaman af því nöfnurnar þegar hún spilaði gamla slagara á munnhörp- una. Ferðalög heilluðu ömmu alltaf mikið og þrátt fyrir veikindi undan- farin ár þá stefndi hugurinn ætíð til fjarlægra landa. Ég minnist þess að þegar ég var 7 ára fór ég í mína fyrstu utanlandsferð og þá með ömmu og afa til Spánar. Voru þau amma og afi óþreytandi í dekri sínu við litlu dótturdótturina. Síðasta utanför ömmu var einmitt til Spán- ar síðastliðið sumar en sú ferð end- aði því miður illa þar sem veikindi ömmu tóku sig upp skyndilega og þurfti hún að liggja á spítala þar í heilan mánuð. Hluta af þessum erf- iða tíma dvaldist ég hjá ömmu og dáðist ég mjög að andlegum styrk hennar í ókunnu landi þar sem hún var ófær um að tjá sig á máli inn- fæddra. Amma naut þess að líta vel út og fátt fannst henni skemmti- legra þarna á sjúkrabeðinu en að ég dundaði við að lakka á henni neglurnar og snyrta hana. A Þorláksmessukvöld var siður að fjölskyldan safnaðist saman heima hjá ömmu og afa og var þar sérstök stemmning og þegar öll bamabörnin voru þar saman komin varð oft æði fjörugt. Við eigum eflaust öll eftir að sakna þessara einstöku kvölda. Ég kveð elsku ömmu mína í þeirri vissu að Guð geymi hana og að nú sé hún fijáls til að láta drauma um fjarlæg ferðalög rætast. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Aðalheiður Hilmarsdóttir Tengdamóðir okkar, Aðalheiður Guðmundsdóttir, lést á Vífilsstöð- um 14. febrúar sl. Heiða fæddist í Hruna í Ólafsvík, 18. september 1922, dóttir hjón- anna Olafíu Sveinsdóttur sem lést fyrir nokkram árum og Guðmundur Þórðarson, skipstjóra, sem lést fermingarárið hennar. Var það mik- ið áfall ungri stúlku sem hafði haft mikið dálæti á föður sínum. Heiða var þriðja í röðinni af sjö systkinum, en þau eru: Þórður, Kristín, María, Nanna, Guðrún Adda og Guðmund- ur yngstur. Éljótlega eftir fráfall Guðmundar flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og var lífið oft erfitt ekkjunni með barnahópinn sinn stóra. Ung fór Heiða því að vinna fyrir sér við ýmis tilfallandi störf. Fyrri eiginmaður Aðalheiðar var Þórarinn Olafsson og eignuðust þau þijú börn: Guðmundur Garðar, f. 29.10.1939, Jóhann Þórir, f. 21.10. 1941 og Guðfinna íris, f. 27.1. 1943. Þau slitu samvistir. Eftirlifandi eiginmanni sínum, Kristjáni Georg Jósteinssyni, renni- smið frá Stokkseyri, giftist Heiða 19. október 1946. Kristján og Heiða byggðu sér hús i Hlíðarhaga 1. Þar komu þau sér upp rómuðu myndarheimili, þar sem snyrtimennska, smekkvísi og gest- risni réðu húsum. Börnin urðu þijú: Ingibjörg, f. 19.7. 1947, gift Hilm- ari Friðrikssyni, Ólav Ómar, f. 2.9. 1948, kvæntur Eddu Kolbrúnu Metúsalemsdóttur og Jósteinn, f. 2.3. 1950, kvæntur Gyðu Brynj- ólfsdóttur. Barnabörn þeirra Krist- jáns og Heiðu eru orðin ellefu tals- ins. Þó ekki væru efnin alltaf mikil var Heiða ávallt glæsileg svo eftir var tekið og lagði hún metnað sinn í að börnin væru fallega klædd. Það var auðvelt að koma sem tengda- barn inn í þessa fjölskyldu og höfum við oft hent að því gaman, tengda- börnin, hversu ánægð hún var með okkur - oft næstum á kostnað sinna eigin barna. í lítilli íbúð í kjallara í Hlíðargerði 1 hófu tvö eldri börn- in búskap sinn. Oft var glatt á hjalla í Hlíðargerð- inu og mikið spilað og sungið og slegið á létta strengi. Mikið yndi hafði hún af ferðalögum og fóru þau hjónin erlendis hvenær sem færi gafst. Við erum öll búin að upplifa skemmtilegar ferðir með þeim á erlendri grund. Hennar mesta ánægja var að kaupa gjafir fyrir börn og barnabörn, svo að stundum sat hún sjálf á hakanum. Fyrir um það bil tíu árum fóru veikindi Heiðu að ágerast og smám saman að hafa meiri og meiri áhrif á líf hennar. Það sem hélt henni gangandi var óbilandi kjarkur og óþijótandi lífsgleði. Reyndi mikið á tengdaföður okkar, Kristján, í þess- um löngu veikindum og stóð hann eins og klettur við hlið hennar þar til yfír lauk. Við tengdabörnin þökkum elsku tengdamömmu fyrir allar samveru- stundirnar í gegnum tíðina. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Elsku Kristján, við vottum þér okkar dýpstu samúð og biðjum þér Guðs blessunar. Hilmar Friðriksson, Gyða Brynjólfsdóttir og Kolbrún Metúsalemsdóttir. í dag verður kvödd frá Bústaða- kirkju amma okkar, Aðalheiður Sigríður Guðmundsdóttir, en hún lést í Vífilsstaðaspítala að morgni 14. febrúar eftir langvarandi veik- indi. Það er erfitt að hugsa sér að við sjáum Heiðu ömmu ekki aftur. Við voram samt svo heppnin að hún komst til okkar á aðfangadagskvöld eins og hún var búin að gera í sautj- án ár og erfitt verður að hugsa sér jólin án hennar. Við viljum þakka ömmu fyrir yndislegt ferðalag sem við fóram sumarið 1987. Það byijaði í Svarta- skógi sem við yfirgáfum vegna rigningar og þá ákváðum við að finna sólina. Við ókum gegnum Sviss og í svissnesku ölpunum fann Kristján afi sína paradís. Síðan lá leiðin niður til Ítalíu þar sem við fundum loks sólina. Margur hefði átt von á að á svona langri leið kæmi þreyta í fólk en svo var ekki. Við vorum sex fullorðin og átta börn í einum bíl og var sungið alla leið og þegar best lét tók amma upp munnhörpuna sína og spilaði. Þrátt fyrir þrengsli og langt ferða- lag skemmtu allir sér konunglega. Nú er stríði ömmu Heiðu lokið. Hún komin í annan og betri heim. Við þökkum henni fyrir allt. Hin langa þraut er liðin nú loksins hlaustu friðinn og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem) Kristján Georg, Brynjólfur, Eva, Tryggvi og Trausti. r VELA-TENGI 7 I 2 Allar gerðir Öxull - í - öxul. Öxull - í - flans. Flans - í - flans. Hhwtaigpr Jémss©irii & M. Vesturgötu 16 - Slmar 14680-132» Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga Almenningshlutafélög og þátttaka fyrirtækja á hlutabréfamarkaði Morgunverðarfundur á Hótel Sögu í Skála, 2. hæð, kl. 8.00, 21. febrúar 1990. Frummælendur: Svanbjörn Thoroddsen, umsjón- armaður með rekstri Hluta- bréfamarkaðarins hf., fjallar um fyrirsjáanlegar laga- og reglu- gerðarbreytingar á hlutabréfa- viðskiptum og fjármögnun fyrir- tækja á hlutabréfamarkaði. Ragnar Önundarson, stjórnar- formaður Draupnis hf. og fram- kvæmdastjóri hjá íslandsbanka hf., fjallar um reynslu Iðnaðar- bankans hf. af þátttöku á al- mennum hlutabréfamarkaði, en í starfi sínu hjá Iðnaðarbankan- um sá Ragnar um samskipti við hluthafa Iðnaðarbankans og mótun hluthafastefnu bankans. Fræðslunefnd. HAGSTJEDIISTU BILAKAUP ARSINS AÐEINS KR. 795.000 31/2 árs lánstimi Sjálfskiptur m/2,0l vél stgr. Nú veitum við handhöfum öryrkjaleyfa sérstakan aukaafslátt kr. 35.000 frá ofangreindu verði til mánaðamóta. Auk hagstæðs verðs, auðveldum við kaupin með því að lána hluta eða jafnvel alit kaupverð Pílsins í 31/2 ár á hagstæðum bankalánum.** Komdu í reynsluakstur strax og kynntu þér frábæra aksturseiginleika Chevrolet Monza. BíLVANGURsf Höfðabakka 9, símar 687300 - 674300 (bein lína) 9 ,19 Í9 Ódýr hádegismatur alla virka daga frá kl. 12—2. 1. Hamborgari dagsins m/frönskum og salati kr. 490 2. Samloka dagsins m/frönskum og salati kr. 395 3. Kjötréttur kr. 580 4. Fiskréttur kr. 580 Súpa fylgir. N Elskum alla þjónum öllum s. 689888

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.