Morgunblaðið - 20.02.1990, Page 16

Morgunblaðið - 20.02.1990, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990 Aðalfundur Verslunarráðs íslands; Leitað verði nýrra leiða í útflutningi á þjónustu Efla þarf verslun, þjónustu o g iðnað sem útflutnings- greinar, segir meðal annars í ályktun fimdarins í ályktun aðalfundar Verslunarráðs íslands sem haldinn var í gær er hvatt til þess að leitað verði nýrra leiða í útflutningi. Efla verði verslun, þjónustu og iðnað sem útflutningsgreinar. Fundurinn bend- ir ennfremur á að Islendingar verði á næstu misserum að mæta opnara efnahagslífí erlendra þjóða og aðlagast þeim breytingum sem eru að verða í milliríkjaviðskiptum hjá helstu viðskiptaþjóðum okk- ar. Meginefrii aðalfúndar Verslunarráðs var að þessu sinni útflutning- ur á verslun og þjónustu og skiluðu íjórar nefndir áliti um það efni. í ályktun aðalfundar Verslunar- ráðs er bent á að flestar þjóðir sæki nú framfarir og aukna velmeg- un til aukinnar sérhæfingar, sam- skipta og viðskipta við aðrar þjóðir. Ætla megi að Islendingar þurfi að tvöfalda útflutning sinn fyrir alda- mót ef þjóðin eigi ekki að dragast aftur úr helstu nágrannaþjóðum okkar. Þá segir að íslendingar verði að styrkja stöðu sína sem sérhæfð sjávarútvegsþjóð og treysta með samningum yfirráð sín yfír físki- miðunum í kringum landið. Fundurinn telur að íslensk fyrir- tæki verði að hafa sambærilegan aðgang að lánsfé og áhættufjár- magni og erlendir keppinautar. Ennfremur þurfí að koma á frelsi í gjaldeyrisviðskiptum þannig að unnt sé að nýta ábatasöm tækifæri til viðskipta og samskipta við er- lenda aðila. Þá er nokkuð vikið að nýgerðum kjarasamningum og segir orðrétt um það efni: „Ábyrgðin á því hvort tekst að draga varanlega úr verð- bólgu er nú fyrst og fremst hjá stjórnvöldum sem þurfa að lækka ríkisútgjöld og hætta umframeyðslu til þess að markmið kjarasamning- anna náist.“ Loks er bent á að stjórnendur íslenskra fyrirtækja muni þurfa að standa sig í stórauk- inni samkeppni á næstu árum. Sam- keppnin muni líka ná til íslpnskra stjórnvalda. Verslunarráð íslands leggur áherslu á að ríkið og at- vinnulífíð starfí í sátt hvort við annað og býður upp á samstarf við stjómvöld til þess að finna leiðir til þess að efla atvinnulífið og velmeg- un þjóðarinnar." Skriflegri kosningu til stjómar Verslunarráðs íslands lauk síðast- liðinn föstudag og voru kjörnir 19 menn í aðalstjórn og jafnmargir í varastjórn. Langflest atkvæði hlaut Tryggvi Pálsson, bankastjóri ís- landsbanka. Á aðalfundinum í gær var Jóhann J. Ólafsson, endurkjör- inn formaður Verslunarráðs ís- lands. Hafskipsmál: Greiddar mútur til að liðka fyrir erlendum samningum VIÐ yfirheyrslur yfir Björgólfi Guðmundssyni, fyrrum forstjóra Hafskips, í sakadómi Reykjavíkur í gær kom meðal annars fram að andvirði tveggja tékka, samtals að fjárhæð 274 þúsund krón- ur, sem hann er ákærður fyrir að hafa dregið sér í október og nóvember 1983, hafí verið nýtt til mútugreiðslna í því skyni að greiða fyrir erlendum viðskiptasamningum. Björgólfur svaraði ekki spurn- ingum um til hverra greiðslurnar hefðu runnið en sagði að með því að skoða bækur félagsins á þess- um tíma sæist hvar mest aukning hefði orðið í flutningatekjum fé- lagsins. Múturnar hefðu verið færðar í bókhald félagsins sem afsláttur enda hefðu umræddar tekjur minnkað sem þeim nam. Hinir erlendur viðskiptaaðilar hefðu átt frumkvæði að þessum greiðslum og ekki hefði með öðru móti verið unnt að tryggja um- ræddan -tugmilljóna króna við- skiptasamning. „Þessi viðskipta- heimur var grjótharður,“ sagði Björgólfur. „Við settum ekki leik- reglurnar en við urðum að fylgja þeim til að ná árangri." Björgólfur gerði athugasemdir við það fyrir hvaða ráðstafanir af hinum sérstaka tékkareikningi Kappræðu- fundur í Nor- ræna húsinu Kappræðufúndur á vegum kynningarneftidar Verkfræð- ingafélags Islands verður í Nor- ræna húsinu þriðjudaginn 20. febrúar kl. 20.30. Varpað verður fram spuming- unni: Á að halda öllu landinu í byggð? Frummælendur eru Jónas Kristjánsson ritstjóri og Sveinn Þórarinsson verkfræðingur á Egils- stöðum. Að loknum framsöguerind- um gefst fundarmönnum kostur á að tjá sig í örstuttu máli um efnið. Fundarstjóri verður Tryggvi Sigur- bjamarson, verkfræðingur. sérstakur saksóknari hefði valið að ákæra. Hann fór yfir yfirlit eigin tékkareiknings Ragnars Kjartanssonar og benti á fjölmörg dæmi þar sem fylgiskjöl eða skrif- legar skýringar með tékkum skorti en samt væri ekki ákært. Hann taldi vinnubrögð ákæruvaldsins að þessu leyti handahófskennd og ekki byggjast á neinni sjáanlegri vinnureglu. í tveimur ákæruliðum er fjallað um að Björgólfur hafi látið Haf- skip annars vegar kosta 500 þús- und króna lán eða aukningu á hlut- afé hans í húsgagnafyrirtækinu Bláskógum og hins vegar að hann hafí látið gefa Bláskógum eftir 1,6 milljóna króna viðskiptaskuld við Hafskip. Hann mótmælti þessu, sagði ávallt hafa verið ætl- unina að 500 þúsund króna lán til Bláskóga teldist honum sjálfum til gjalda út af sérstökum tékka- reikningi sínum enda hefði hann þar átt ærnar innistæður vegna ógreiddrar ágóðaþóknunar og ónýttrar launauppbótar. Fram- burður vitnis, sem byggt er á í ákæra, um að þetta lán hefði síðar verið gjaldfært í bókhaldi Hafskips að fyrirmælum Björgólfs væri rangur. Um eftirgjöf viðskipta- skuldarinnar sagði hann að fyrir- tækið Bláskógar, sem hann átti '/i hlut í, hefði í raun notið mun verri kjara hjá félaginu en mörg önnur í sömu grein. Fyrirtækið hefði á þessum tíma, í nóvember 1984, verið í mjög erfiðri stöðu og eins og hjá öðrum slíkum hefðu mál þess því komið inn á sitt borð sem forstjóra Hafskips og verið meðhöndluð þar á sama hátt og önnur hliðstæð mál. Gagnvart við- skiptaaðila sem stæði frammi fyr- ir gjaldþroti væri oft og iðulega samið um lækkun skuldar gegn greiðslu eða tryggingu og það hefði verið gert þarna með eftir- gjöf á pakkhúsleigu, afskriftum dráttarvaxta og afslætti á farm- gjöldum, sem í raun hefði þó ekki verið meiri en samkeppnisfyrir- tæki Bláskóga hefðu mörg notið. í ákæranni er Björgólfi gefið að sök að hafa tæpri viku áður en Hafskip var veitt greiðslustöðv- un látið fjármálastjóra félagsins afhenda sér níu víxla í eigu Haf- skips, samtals að fjárhæð rúmlega 1,4 milljónir króna, sem hann hefði fénýtt sér í eigin þágu. Björgólfur mótmælti því að í þessu hefði fa- list sviksamlegt athæfi. Hann sagði að þessi aðferð hefði oft verið notuð til að láta andvirði innheimtuvíxla ganga inn á sér- tékkareikninga forsvarsmanna. Hann hefði tekið við víxlunum, kvittað fyrir móttöku þeirra en skömmu síðar látið þessar ráðstaf- anir ganga til baka án þess að fyrirtækið yrði fyrir tjóni, þegar honum var bent á á hve óheppileg- um og viðkvæmum tíma fyrir fé- lagið þetta hefði verið gert. Morgunblaðið/Bj arni Shirley Temple Black sendiherra Bandarílganna í Tékkósló- vakíu kemur í Þjóðleikhúsið með Charles Cobb starfsbróður sínum á Islandi. Shirley Temple Black sendiherra: Eg vandist því svo snemma að vinna ALLAR íslenskar stelpur söfiiuðu og skiptust á myndum af fal- legu, litlu kvikmyndastjömunni Shirley Temple á fjórða áratug aldarinnar. Blaðamaður Morgunblaðsins sagði henni þetta, þar sem ambassador Shirley Temple Black var við hátíðarsýningu á leik- riti Vaclavs Havels forseta Tékkóslóvakíu, þar sem hún er nú sendi- herra Bandaríkjanna. Svaraði hún að hvar sem hún kæmi fengi hún að vita að svona hefði þetta einmitt verið þar í landi. Og hún brosti þessu sama bjarta brosi, sem litla telpan heillaði alla með á kvikmyndatjaldinu fyrir meira en hálfri öld. En hún hafði sýni- lega mun meiri áhuga á því, þegar sami aðdáandi litlu stúlkunnar Shirley Temple kvaðst alltaf hafa fúrðað sig á því og dáðst að því, hvernig litla dekraða telpan óx upp úr öllu gliti og yfirborðs- lífi kvikmyndanna í Hollywood og fór að leggja lóð sitt á vogar- skálarnar hjá Sameinuðu þjóðúnum, Menningarstofúun Sameinuðu þjóðanna og sem sendiherra lands síns í Afríku. Hvemig fór hún að þessu? Hún sagði að við skyldum tala aðeins betur saman þarna inni í móttökuathöfninni í hléinu. „Þetta gerist með mikilli vinnu, ef maður hefur áhuga á málun- um,“ sagði hún og tók upp þráðinn að nýju. „Sjáðu til, ég vandist því svo snemma að leggja hart að mér. Ég var ekki nema hálfs fjórða árs þegar ég var komin í fulla vinnu í kvikmyndunum. Og alla ævi hefi ég svo unnið að því að þroskast og bæta við mig. Ekkert hefst án þess að leggja sig fram og því vand- ist ég snemma. Nú er ég búin að vera í þessum alþjóðlegu og diplo- matísku störfum í 21 ár. Hvenær varst þú hjá Sameinuðu þjóðunum? Ég kom þangað fyrst í sendinefnd Bandaríkjanna 1969. Ég er orðin 61 árs, áttaðu þig á því. Og vona að ég eigi enn eftir að bæta mig.“ Ekki er hún að fela aldurinn þessi glæsilega, unglega kona í hárauða kjólnum, sem enn fær gamalkunna spékoppa og fjörlegan glampa í augun þegar hún brosir. Minnir ótrúlega mikið á litlu kvik- myndastjömuna. Hún segir mér að hún sé mjög stolt af því að hafa verið boðið að ferðast með Havel forseta í flugvél hans og að það komi í hennar hlut að bjóða hann velkominn á bandaríska grund, þegar hann stígur fæti á ættland hennar. Hún kveðst aðeins hafa verið sendiherra Bandaríkjanna í Tékkóslóvakíu undanfarna sex mánuði. Um starf sitt talaði hún ekki og tók það fram að í þessari heimsókn á Islandi væri hún bara aukanúmer. Það er lítill friður til að tala sam- an þama í hléinu í Þjóðleikhúskjall- amum, því alltaf er verið að kynna fólk fyrir Shirley Temple Black sendiherra. Raunar hafði öllum blaðaviðtölum við hana verið hafn- að og hún er minnt á það. En hún er svo elskuleg að svara: Það er allt í lagi. Þetta er okkar í milli og fer vel á með okkur! En slík elskulegheit má ekki ofnota, þann- ig að látið er nægja að óska Shir- ley Temple Black góðrar áfram- haldandi ferðar. E.Pá. Bankamenn semja á sömu nótum og ASÍ og BSRB KJARASAMNINGAR tókust milli Sambands íslenskra bankamanna og bankanna um eitt leytið á sunnudag og eru þeir í flestum atriðum á sömu nótum og þeir samningar sem Alþýðusamband íslands og Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hafa gert við sína viðsemjendur, en auk þess eru ákvæði um nokkur fjérmál. Gert er ráð fyrir allsherjaratkvæða- greiðslu um samningana í næstu viku, en rúmlega 3.500 manns eru í SÍB. Sömu launahækkanir e_ru í samn- ingnum og í samningi ASÍ og BSRB og einnig eru sömu ákvæði um lág- launabætur. Samningurinn gildir til 31. ágúst 1991 og sömu verðtrygg- ingarákvæði eru í honum og í samn- ingi BSRB. Þá felur samningurinn í sér svipaðar breytingar á fæðingar- orlofi og samningur ASÍ, auk bókana um nefndarskipun til að athuga breytingar á launakerfínu, um endur- skoðun á starfsemi bankamannaskól- ans og um atvinnuleysistrygginga- mál. „Við erum að gera svipaða samn- inga og aðrir hafa gert á vinnumark- aðanum hingað til og tökum því þátt í þessari tilraun, sem verið er að gera,“ sagði Yngvi Orn Kristinsson, formaður SÍB. „Við frestum sérmál- um okkar eins og aðrir hafa gert fram að næstu samningum, þó við eigum smávon um leiðréttingu rétt fyrir lok samningstímans. Vegna þessa reynir náttúrlega á að þær forsendur sem menn gáfu sér við gerð þessara samninga standist og verðlagsþróun verði innan þeirra marka sem menn hafa sett sér. Meg- inþátturinn í því er eftirspurnar- stjórnin af hálfu hins opinbera. Með þessum samningum er verið nokkuð einhliða að halda aftur af hækkun veigamikils kostnaðarþáttar sem eru launin. Ef eftirspurnarstjórnin fer úr böndunum, þá er ljóst að grund- völlur' samningana er brostinn."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.