Morgunblaðið - 20.02.1990, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚÁR 1990
Bretland:
Thatcher vill hægja á
sameiningu Þýzkalands
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Breta, sagði í ræðu sl.
sunnudag að taka yrði tillit til annarra hagsmuna en þýzku þjóðar-
innar við sameiningu þýzku ríkjanna. Leiðtogar stjórnarandstöðunn-
ar hafa sakað hana um að einangra Bretland í Evrópu.
Thatcher kaus að lýsa skoðunum
sínum til sameiningar Þýzkalands_
í ræðu, sem hún hélt á fundi með
leiðtogum gyðinga á Bretlandseyj-
um. Hún sagði aðalatriðið við sam-
einingu þýzku ríkjanna, að hún
ætti ekki að draga úr öryggi neins,
hvorki í Austur- eða Vestur-Evrópu.
Hún sagði: „Það er skiljanlegt
að bitrar minningar sumra úr fortíð-
inni liti skoðanir þeirra á nútíðinni
og framtíðinni." Hún taldi, að sam-
einingin hlyti ekki aðeins að stjórn-
ast af tilfínningum þýzku þjóðarinn-
ar heldur yrði hún að taka tillit til
tilfinninga og hagsmuna annarra í
Evrópu.
Sameiningin yrði að virða gild-
andi milliríkjasamninga, þeirra á
meðal Helsinki-sáttmálann sem við-
urkennir núverandi landamæri ríkja
Evrópu. Hún lagði áherzlu á núver-
andi landamæri og gaf þannig til
kynna andstöðu sína gegn því að
ræða landamæri Evrópu frá 1937,
en þá var stór hluti af núverandi
Póllandi hluti af Þýzkalandi.
Thatcher sagði einnig, að Þýzka-
land yrði að vera áfram í NATO
og bandarískar hersveitir ættu
áfram að vera í Vestur-Þýzkalandi.
Það væri einnig eðlilegt, að sovézk-
ar hersveitir yrðu í Austur-Þýzkal-
andi, að minnsta kosti á meðan
þessar breytingar gengju yfir,
vegna hagsmuna Sovétríkjanna.
Talsmenn stjórnarandstöðunnar
sögðu, að ræða Thatcher hefði ein-
angrað hana í Evrópu og skapaði
hættu á, að sjónarmið Breta yrðu
fyrir borð borin. Það væri þýðingar-
laust að leggjast gegn svo þungum
straumi, sem væri í átt til samein-
ingar þýzku ríkjanna.
Reuter
Toshiki Kaifu, forsætisráðherra Japans, myndar sigurmerki með
fingrunum á sunnudag er ljóst var að stjórnarflokkur landsins hafði
borið sigur úr býtum í kosningum til neðri deildar japanska þingsins.
Stjórnarflokkurinn í Japan ber sigur úr býtum í þingkosningum:
Forsætisráðherrann lof-
ar að auka innflutninginn
Tókíó. Reuter.
FRJÁLSLYNDI lýðræðisflokkurinn í Japan, sem farið hefúr með
völdin í landinu í 35 ár, bar sigur úr býtum í kosningum til neðri
deildar japanska þingsins á sunnudag og hélt öruggum meirihluta
sínum í deildinni. Toshiki Kaifu forsætisráðherra lofaði í gær að
auka innflutninginn til landsins, bæta þannig lífskjör landsmanna
og koma til móts við kröfúr Bandaríkjamanna.
Þetta var tólfti sigur Fijálslynda hveiju hneykslinu á fætur öðru.
lýðræðisflokksins í röð í kosningum
til neðri deildarinnar, sem er mun
valdameiri en sú efri. Flokkurinn
missti meirihluta sinn í efri deild-
inni í júlí í fyrra eftir að forystu-
menn hans höfðu orðið uppvísir að
Ennfremur hafði ríkisstjórnin lagt
á þriggja prósenta söluskatt, sem
reyndist afar óvinsæll á meðal al-
mennings.
Flokkurinn er íhaldsflokkur og
lagði í kosningabaráttunni ríka
Iran-kontramálið:
Reagan segist ekki
hafa heimilað lögbrot
New York. Reuter.
RONALD Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, segir í vitnisburði, sem
tekinn hefúr verið upp á myndband í Los Angeles, að hann hafi
ekki heimilað John Poindexter, fyrrum ráðgjafa sinum í öryggismál-
um, að gerast brotlegur við lög vegna íran-kontramálsins.
Bandaríska dagblaðið New York
Times hefur þetta eftir manni, sem
það segir hafa nákvæmar upplýs-
ingar um málið. Vitnisburður for-
setans fyrrverandi er í samræmi
við flestar fyrri yfirlýsingar hans,
að sögn blaðsins.
Reagan hefur haldið því fram að
hann hafi ekki heimilað starfs-
mönnum Hvíta hússins að bijóta lög
vegna málsins. Hann segist ekkert
vita um málið, sem varðar vopna-
sölu til írans og flutning ágóðans
til kontra-skæruliða í Nicaragua.
Poindexter segir hins vegar að
Reagan hafí fylgst grannt með
gangi málsins.
Forsetinn fyrrverandi vitnaði í
lokuðum réttarsal í Los Angeles á
föstudag og laugardag og verður
myndbandsupptaka af vitnisburðin-
um sýnd við réttarhöld yfir
Poindexter, sem hefjast 5. mars.
■ Dómarinn ákvað að fara ekki fram
á að Reagan bæri vitni við réttar-
höldin heldur lét hann taka vitnis-
burð hans upp á myndband svo
hægt yrði að klippa út kafla þar
sem fram koma upplýsingar um
ríkisleyndarmál. Upptakan verður
sýnd stytt í sjónvarpi í næstu viku.
áherslu á að ný ríkisstjórn, undir
forystu sósíalista, myndi grafa und-
an efnahagslegri velgengni Japana
eftir heimsstyijöldina síðari. Flokk-
urinn fékk 275 þingsæti, ívið færri
en í síðustu kosningum árið 1986,
en þá fékk hann 295 sæti. Helsti
stjómarandstöðuflokkurinn, Sósíal-
istaflokkur Japans, bætti við sig
51 þingsæti og fékk 136. Aðrir
flokkar töpuðu fylgi. Komeito
(„Óspillt stjórn") fékk 45 þingsæti
en hafði áður 56. Kommúnista-
flokkurinn hlaut 16 sæti en var
með 26. Lýðræðislegi sósíalista-
flokkurinn fékk 14 og hafði 26.
Kaifu forsætisráðherra kvaðst í
gær vera reiðubúinn að ræða breyt-
ingar á söluskattinum. Stjórnarand-
stöðuflokkamir höfðu lýst því yfir
að þeir hygðust leggja fram frum-
varp um afnám skattarins og þar
sem þeir eru í meirihluta í efri deild-
inni gæti slíkt orðið afdrifaríkt fyr-
ir stjórnarflokkinn.
Bandaríkjastjórn hefur hótað að
grípa til refsiaðgerða auki Japanir
ekki innflutning sinn og Kaifu sagð-
ist vilja heimsækja George Bush
Bandaríkjaforseta í Washington til
að ræða viðskipti landanna. „Við
ættum að grípa til frekari ráðstaf-
ana til að auka neyslu landsmanna
og innflutning,“ sagði forsætisráð-
herrann ennfremur.
Fréttaskýrendur kváðust þó efins
um að stjórninni tækist að aflétta
viðskiptahömlum til að auka inn-
flutninginn. Muneyuki Shindo, próf-
essor í stjórnmálafræðum við
Rikkyo-háskóla, sagði að stjórnar-
flokkurinn hefði fengið 30 milljarða
ABANDERADO
Herranærfatnaður
100% bómull
allar stærðir - Frábært verð
Munstraöir og
einlitir sokkar,
sokkabuxur, gammosíur,
Allar stærðir
Heildsölubirgðir
HNOÐRIHFBíldshöfða 16, sími 687744.
jena (12,8 milljarða ísl. kr.) í kosn-
ingasjóði sína frá japönskum fyrir-
tækjum og gæti því ekki sniðgeng-
ið hagsmuni þeirra. „Fijálslyndi lýð-
ræðisflokkurinn getur ekki opnað
japanska markaðinn jafn mikið og
önnur ríki vilja,“ sagði hann. Eitt
af kosningaloforðum stjórnar-
flokksins var að innflutningur á
hrísgijónum yrði ekki heimilaður.
Bandaríkjamenn hafa meðal annars
krafist þess að japönsk stjórnvöld
leyfi fijálsan innflutning á
hrísgijónum.
Ekki er.talið að miklar breyting-
ar verði á fjármálastefnu ríkis-
stjórnarinnar, einkum vegna þess
að 11 af 13 frambjóðendum stjórn-
arflokksins, sem viðriðnir eru fjár-
málahneyksli, náðu kjöri í kosning-
unum. Nöburu Takeshita og Sosuke
Uno voru báðir kjörnir á þing, en
þeir höfðu látið af embætti forsætis-
ráðherra vegna hneykslismála.
Fréttaskýrendur telja að úrslit
kosninganna hafi verið persónuleg-
ur sigur fyrir Kaifu. Hann tók við
embætti forsætisráðherra í ágúst í
fyrra og talið var að hann myndi
aðeins gegna því til bráðabirgða.
Fimm fylkingar beijast um völdin
innan flokksins. Kaifu er í þeirri
fámennustu og hún hefur aðeins
33 þingsæti í báðum deildum þings-
ins. Margir fréttaskýrendur telja
kosningarnar hafi aukið líkurnar á
því Shintaro Abe, fyrrum utanríkis-
ráðherra, taki við embætti forsætis-
ráðherra af Kaifu. Fylking Abe
hefur 86 þingsæti eftir kosningarn-
ar og er hún nú sú næststærsta.
Fylking Noboru Takeshita er enn
stærst en tapaði tveimur þingsæt-
um og fékk 104.
Tólf konur voru kjörnar á þingið
og þótt þær hafi aldrei verið fleiri
frá 1946 er hlutfall þeirra lágt þar
sem þingmennirnir eru alls 512. Sjö
þeirra eru í Sósíalistaflokknum en
engin úr Fijálslynda lýðræðis-
flokknum.
Vestrænir fjölmiðlar furðuðu sig
á því hversu fljótir Japanir eru að
fyrirgefa stjórnmájamönnum
sínum. „Japanskir kjósendur hafa
misst af besta tækifærinu sem þeir
hafa fengið frá heimsstyijöldinni
síðari til að stuðla að umbótum á
hinu pólitíska kerfi í landinu,“ sagði
í breska dagblaðinu Times. Sviss-
neska dagblaðið La Suisse sagði
að Sósílistaflokknum hefði ekki tek-
ist að bera sigurorð af Fijálslynda
lýðræðisflokknum vegna þess að
peningar drottnuðu yfir japönskum
stjórnmálum. Franska dagblaðið Le
Monde sagði að Japan væri „efna-
hagslegur risi en pólitískur dverg-
ur“.