Morgunblaðið - 20.02.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990
19
Styrkir til A-Evrópuríkja:
A-Þjóðverjar sækja
um íjárhagsstuðning
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Austur-þýsk stjórnvöld lögðu á föstudag fram minnisgrein fyrir
fund 24 ríkja, sem sameinuðust um aðstoð við Pólland og Ung-
verjaland á síðasta ári. Þar er farið yfir helstu breytingar sem
fyrirhugaðar eru á umhverfi fólks og fyrirtækja í Austur-Þýska-
landi á næstunni.
Minnisgreinin er lögð fram til
að rökstyðja umsókn Austur-
Þjóðveija um að njóta samskonar
aðstoðar og Pólverjar og Ungveij-
ar. Búlgarar, Tékkar og Júgósla-
var hafa lagt fram svipuð plögg.
Aðild að þeim áætlunum sem
fyrirhugaðar eru vegna aðstoðar
við ríkin í Mið- og Austur-Evrópu
er skilyrt m.a. hvað varðar lýðræð-
islegar stofnanir og virðingu fyrir
mannréttindum.
í minnisgrein Austur-Þjóðveija
er lögð áhersla á tíu atriði sem
varða mannréttindi og eru sögð
forgangsverkefni. Opna eigi
landamæri Austur-Þýskalands og
tryggja þegnunum fullt ferðafrelsi
með lagasetningu. Heimila starf-
Kúba:
Láta undan þrýst-
ingi Sovétmanna
Havana. The Daily Telegraph.
LITIÐ er á stefhuyfirlýsingu kommúnista á Kúbu sem birt var um
helgina sem viðleitni til að friða Sovétmenn sem hafa sýnt merki
óþolinmæði að undanförnu vegna andstöðu Fídels Kastrós Kúbuleið-
toga við umbætur í Austur-Evrópu. Sovétmenn sem löngum hafa
veitt Kúbumönnum gífurlega efnahagsaðstoð hafa látið á óánægju
sinni bera með því að svíkja loforð um hveitisendingar sem leitt
hefur til brauðskorts á Kúbu.
í yfirlýsingu frá miðstjórn kúb- Lögð er áhersla á sérstöðu Kúbu
verska kommúnistaflokksins segir og að ekki sé fyrirhugað að leggja
að flokkurinn þurfi að herða sókn- niður einsflokkskerfi né apa eftir
ina og ná betur til almennings. erlendar fyrirmyndir.
semi ólíkra stjórnmálaflokka og
hreyfinga jafnframt þvi að efna
til fijálsra kosninga 18. mars.
Leggja á kröfur um vegabréfsárit-
anir vegna ferðalaga til Vestur-
Þýskalands og Vestur-Berlínar.
Erlendum blaðamönnum verði
veitt fullt frelsi til að starfa í
landinu og allri ritskoðun aflétt
jafnframt því sem aðgangur þegn-
anna að erlendum fjölmiðlum verði
óhindraður. Skapað verði með
lagasetningu umhverfi sem hvetur
til fijáls markaðar. Greitt verði
fyrir birtingu upplýsinga um um-
hverfisspjöll og mengun. Þá er því
lýst yfir að niðurstöður viðræðna
á ráðstefnunni um öryggi og sam-
vinnu í Evrópu verði endurbirtar
án breytinga.
Noregur:
Meirihluti hlynntur EB-aðild
Ósló. Reuter.
FYLGISMENN aðildar að Evr-
ópubandalaginu eru nú í meiri-
hluta meðal Norðmanna í fyrsta
skipti síðan snemma á áttunda
áratugnum. Kemur þetta fram í
skoðanakönnun í dagblaðinu Ar-
beiderbladet.
Samkvæmt könnuninni eru
43.4% Norðmanna hlynnt aðild að
Evrópubandalaginu en 32,9% eru
andvíg. Afgangurinn er óákveðinn.
Norðmenn höfnuðu EB-aðild naum-
lega í þjóðaratkvæðagreiðslu árið
1972. I skoðanakönnun sem gerð
var stuttu eftir atkvæðagreiðsluna
var meirihlutinn hins vegar hlynnt-
ur aðild. Skoðanakannanir síðan þá
hafa ætíð bent til að minnihluti
Óman:
Reis upp frá
dauðum!
Nikósíu. Reuter.
SÁ atburður átti sér stað á
sunnudag skammt frá Múscat í
Óman að rétt áður en jarðsetja
átti þarlenda konu reis hún upp
og sagðist vera lifandi.
Að hætti múslima skvetti sonur
konunnar vatni yfir líkið rétt fyrir
lokaathöfnina. Viðstöddum á óvart
rankaði hún þá við sér og sagðist
aldeilis ekki vera dauð. Að sögn
ómanskrar fréttastofu mun konan
hafa legið í dái í nokkra daga og
hélt fjölskylda hennar að hún væri
látin.
þjóðarinnar væri fylgjandi aðild að
EB.
Honda 00
Civic
Shuttle 4WD
116 hestöfl
M)MA
Verð fró 1180 þúsund.
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIRALLA.
W HONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SlMI 689900
Lögregla fellirfimm íNepal
Stjórnvöld í Nepal létu til skarar skríða í gær ir námsmanna í höfuðborginni Kathmandu hófust.
gegn þúsundum manna sem kröfðust lýðræðis á Voru það fyrstu mótmælin í ellefu ár í landi þar
götum úti. Fimm manns féllu fyrir kúlum lög- sem starfsemi stjórnmálaflokka er bönnuð.
reglu. Myndin var tekin á sunnudag þegar aðgerð-
Bandaríkin:
Reykbann í nær öllu flugi
Washington. Reuter.
UM næstu helgi gengur í gildi bann við reykingum á nær öllum
flugleiðum í Bandarikjunum sem samþykkt var á Bandaríkjaþingi
sl. nóvember. Verða síreykingamenn því að láta sér duga nikótín-
tyggjó eða treysta á viljastyrk sinn meðan á flugferðinni stendur.
Frá og með 25. febrúar verður
einungis heimilt að reykja ef flug-
ferð tekur meira en sex klukku-
stundir. Bannið nær til alls innan-
landsflugs og til flugs til Jómrú-
reyja og Puerto Rico. Flugfélögum
er í sjálfsvald sett hvort þau leyfa
reykingar um borð taki ferðin
lengri tíma en sex stundir. Það á
einungis við á nokkram leiðum til
og frá Hawaii og Anchorage í
Alaska, eða í samtals 24 fiugferð-
um á dag af um 18.000 sem farn-
ar eru daglega milli borga í Banda-
ríkjunum.
Útlend flugfélög sem fljúga til
Bandaríkjanna geta leyft reyking-
ar um borð en þó ekki í flugi milli
borga í Bandaríkjunum. Sömuleið-
is geta bandarísk flugfélög leyft
reykingar í millilandaflugi. Mörg
þeirra hafa þó ákveðið að heimila
ekki reykingar um borð á leiðum
til Kanada, Mexíkó og Karibahafs-
ms.
ERLENT
KRYNINGARHATIÐ
HÓTEL ÍSLANDI 25, FEBRÚAR
Kosnar verða
ungfrú
Hollywood,
sólarstúlka
Úrvals/Útsýnar
og Ijósmynda-
fyrirsæta
Samúels
Húsiö opnar
meö fordrykk
kl. 19.00
Matseðill:
Rjómasúpa
Agnes Sorelle
og nauta-
barbeque
ungu
kynslóðarinnar.
Glæsileg kvöldskemmtun
Keppendurnir koma fram í Cosmo-klæðum og sundbolum.
HLH-flokkurinn flytur sín vinsælustu lög.
Ruth Reginalds syngur
Módel 79 með enn eina stórsýninguna.
Frumsýning á mögnuðu, suðrænu dansatriði, Mambo Jambo.
Kynnir: Bjarni Haukur Þórsson.
SAMÚEL • HOLLYWOOD • STJARNAN • ÚRVAL/ÚTSÝN
FLUGLEIÐIR • KRISTA • SEBASTIAN • BUDWEISER
COSMO • SÓLBAÐSTOFA REYKJAVÍKUR • HÓTEL ÍSLAND
STÚDÍÓ JÓNÍNU OG ÁGÚSTU