Morgunblaðið - 20.02.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRUAR 1990
23
NÁMSTEFNA um aðhlynningu dauðvona fólks og aðstandenda svo
og um stuðning við fagfólk sem vinnur með dauðvona fólk á stofiiun-
um og í heimahúsum verður haldin laugardaginn 3. mars í ráðsteftm-
sal A á Hótel Sögu. Til námstefnunnar er boðað að frumkvæði
Krabbameinsfélagsins en auk þess standa að námstefnunni Félag
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga, Hjúkrunarfélag íslands, Fé-
lag áhugamanna um heimspeki, Þjóðkirkjan og Læknafélag íslands.
Á námstefnunni mun Vilhjálmur
Árnason heimspekingur sjá um
heimspekilegt forspjall. Séra Frank
M. Halldórsson fjallar um jákvætt
afl sálgæslu. Sigurður Árnason
krabbameinslæknir talar um óttann
við dauðann. Rúnar Matthíasson
gerir grein fyrir stöðu aðstandenda
dauðvona sjúklinga. Ema Haralds-
dóttir hjúkrunarfræðingur fjallar
um aðhlynningu á sjúkradeildum.
Lilja Þormar hjúkrunarfræðingur
ræðir um aðhlynningu í heimahús-
um. Nanna K. Sigurðardóttir fé-
lagsráðgjafi fjallar um stuðning við
aðstandendur og Högni Óskarsson
geðlæknir talar um stuðning við
starfsfólk.
Ljós í leikhúsi
LJÓSTÆKNIFÉLAG íslands
heldur í dag, þriðjudag írá klukk-
an 16-18, fræðslufúnd um „Lys-
ingu í leikhúsi". Fundurinn verð-
ur haldinn í Borgarleikhúsinu en
til hans boðað í samvinnu við það.
Frummælendur verða Ólafur Sig-
urðsson arkitekt, Eyjólfur Johanns-
son tæknifræðingur, Steinþór Sig-
urðsson leiksviðshönnuður og Lárus
Björnsson ljósameistari sýnir ljósa-
kerfi hússins. Fundi stjórnar Áðal-
steinn Guðjohnsen formaður Ljós-
tæknifélagsins.
INNLENT
Fundarstjórnar verða Guðrún
Agnarsdóttir læknir og alþingis-
maður og Alda Halldórsdóttir
hj úkrunarfræðingur.
Innritun á námsstefnuna fer
fram alla virka daga fyrir hádegi í
síma 36284. Upplýsingar gefur
framkvæmdastjóri námsstefnunn-
ar, Ásgeir R. Helgason hjá Krabba-
meinsfélgi íslands. Fjöldi þátttak-
enda verður takmarkaður við 150
en stefnt verður að því að endur-
taka námstefnuna ef þátttakan
verður mjög mikil.
Morgunblaðið/Pétur Friðgeirsson
Björg Jónsdóttir ÞH 231 í ritugeri á loðnumiðunum út af Alviðru. Mokveiði hefúr verið á þeim slóðum
undanfarið. Á sunnudag hélt Björg Jónsdóttir inn til Hafnar í Hornafirði með 540 tonn en er væntan-
lega komin á miðin aftur.
íslensk skip búin að veiða
um 483 þúsund tonn af loðnu
ÍSLENSK skip höfðu síðdegis í
gær, mánudag, tilkynnt um veið-
ar á um 483 þúsund tonnum af
loðnu á haust- og vetrarver-
tíðinni, þar af um 428 þúsund
tonn frá áramótum. Mokveiði
hefúr verið út af Alviðru undan-
farið og Háberg GK fékk 300
tonn rétt fyrir utan Grindavík í
gær. Loðnukvóti islenskra skipa
er nú 662 þúsund tonn, svo og
hafa Islendingar keypt 31 þúsund
tonna loðnukvóta af Grænlend-
ingum. Islensk skip áttu því
síðdegis í gær eftir að veiða um
210 þúsund tonn af loðnu á vetr-
arvertíðinni.
Síðdegis í gær höfðu þessi skip
tilkynnt um loðnuafla: Örn 750 tonn
óákveðið hvert, Hákon 980 óákveð-
ið hvert, Huginn 580 óákveðið
hvert, Kap II 300 til FIVE, Sjávar-
borg 750 óákveðið hvert, Rauðsey
300 til ýmissa aðila, Sunnuberg 600
til FES, Gígja 250 til FES, Fífill
650 til Faxamjöls hf., Háberg 300
til ýmissa aðila, Svanur 660 til
Faxamjöls, Albert 750 óákveðið
hvert, Dagfari 520 til Njarðar hf.
og Gullberg 620 til FIVE.
Á sunnudag tilkynntu eftirtalin
skip um loðnuafla: Grindvíkingur
1.000 tonn til Hafsíldar, Víkurberg
570 til Grindavíkur, Jón Finnsson
1.120 til Noregs, Keflvíkingur 450
til Hafnar í Hornafirði, Guðrún
Þorkelsdóttir 720 til Eskifjarðar,
Þórður Jónasson 700 til SR á Seyð-
isfirði, Súlan 800 til SR á Seyðis-
firði, Hilmir 1.300 til SR á Seyðis-
firði, Björg Jónsdóttir 540 til Hafn-
ar í Hornafirði, Júpíter 1.200 til
Siglufjarðar, Guðmundur 900 til
Siglufjarðar, Harpa 620 til Hafnar
í Hornafirði, Bjami Ólafsson 900
óákveðið hvert, Höfrungur 890 óá-
kveðið hvert, Sigurður 1.400 til SR
á Siglufirði, Hólmaborg 1.350 til
Eskifjarðar og Skarðsvík 620 óá-
kveðið hvert.
Á laugardag tilkynntu Skarðsvík
um 450 tonn til Eskifjarðar og
Börkur 1.150 til Neskaupstaðar.
Síðdegis á föstudag tilkynntu
þessi skip um loðnuafla: Sigurður
700 tonn til FES, Þórshamar 500
til Þórshafnar, Hilmir 1.100 til
Reyðarfjarðar, Helga II 1.000 til
Siglufjarðar, Harpa 450 til Eski-
fjarðar og Bergur 150 til FIVE.
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM
Karl Símon-
arson átt-
ræður í dag
Krabbameinsfélag íslands;
Námstefiia um að-
hlynningu dauðvona
19. febrúar.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) . verð (kr.)
Þorskur 87,00 53,00 83,39 19,893 1.658.784
Ýsa 109,00 89,00 103,31 9,791 1.011.522
Steinbítur 74,00 30;00 44,83 4,824 216.250
Steinbítur(óst) 45,00 30,00 40,78 4,115 167.826
Hrogn 239,00 229,00 233,50 0,231 53.939
Samtals 78,34 43,025 3.370.620
FAXAMARKAÐUR hf. f Reykjavík
Þorskur 80,00 80,00 80,00 3,683 294.654
Þorskur(ósl.) 86,00 75,00 80,41 7,983 641.968
Ýsafósl.)
Karfi 42,00 29,00 •40,69 169,875 6.912.608
Ufsi 57,00 4,00 50,48 16,320 823.855
Samtals 45,18 212,606 9.607.552
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 96,00 65,00 87,72 22,474 1.971.508
Þorskur(3.n.) 92,00 60,00 71,66 32,206 2.308.008
Ýsa 97,00 73,00 94,46 2,424 228.972
Karfi 42,00 30,00 41,72 7,343 306.344
Ufsi(3.n.) 36,00 21,00 35,89 13,053 468.408
Samtals 66,54 83,746 5.572.245
• i dag verður m.a. seldur þorskur úr Skarfi GK, svo og 8 tonn af ufsa.
SKIPASÖLUR í Bretlandi 12. til 16. febrúar.
Þorskur 139,08 116,415 16.191.377
Ýsa 152,31 6;840 1.041.823
Grálúða 134,45 4,420 594.280
Samtals 139,62 127,695 17.828.193
Selt var úr Ottó Wathne NS í Grimsby 15. febrúar.
GÁMASÖLUR Bretlandi 12. til 16. febrúar.
Þorskur 134,18 704,785 94.569.152
Ýsa 144,46 344,007 49.696.447
Ufsi 92,96 12,660 1.176.817
Karfi 91,23 11,578 1.056.196
Koli 169,31 46,764 7.917.516
Grálúða 144,36 11,885 1.715.761
Samtals 137,39 1.263,67 173.613.351
SKIPASÖLUR í Vestur-Þýskalandi 12. til 16. febrúar.
Þorskur 87,52 13,261 1.160.591
Ýsa 76,72 2,653 203.540
Ufsi 81,84 20,913 1.711.428
Karfi 94,79 439,425 41.651.911
Samtals 91,11 503,955 1.282.485
Selt var úr Ásbirni RE 12. febrúar, Dagrúnu (S 14. febrúar og Drangey SK
16. febrúar. Selt var úr öllum skipunum í Bremerhaven.
Kristján Þ. Sigfússon og Óskar Finnsson veitingamenn á Argentinu.
Argentínsk vikaá veit-
ingahúsinu Argentínu
ARGENTINSK vika verður á
veitingahúsinu Argentíu, Bar-
ónsstíg lla dagana 21. til 27.
febrúar. Argentínska vikan er*
haldin í samvinnu við Los Gauc-
hos veitingastaðina í Hollandi.
Frá Hollandi kemur glóðari með
nýjan matseðil þar sem nauta-
og lambakjöt er eldað að hætti
Leiðrétting
Rangt var farið með föðurnafn
Áma Finnbjörnssonar viðskipta-
fræðings og fyrrverandi ræðis-
manns í grein um viðskipti íslands
og Tékkóslóvakíu á bls. 2 sunnu-
daginn 18. febrúar og er beðist
velvirðingar á því.
KARL Símonarson, fyrrverandi
forstjóri Vélsmiðju EskiQarðar,
er áttræður í dag.
Karl rak Vélsmiðju Eskifjarðar
um árabil. Þá gegndi hann
margvíslegum trúnaðarstörfum
fyrir byggðarlag sitt, var meðal
annars í hreppsnefnd og síðar
bæjarstjóm Eskifjarðar sem full-
trúi Sjálfstæðisflokksins. Karl er
kvæntur Ann Britt Símonarson,
fæddri í Svíþjóð og eiga þau tvær
dætur á lífi. Karl dvelur í dag að
heimili dóttur sinnar að Mávahlíð
26 í Reykjavík.
argentínumanna.
Kynntur verður nýr hanastéls-
seðill og sérstakur tónlistarseðlill
þar sem gestir geta valið sér lag
og landsþekktir tónlistarmenn
leika fyrir matargesti eftir þeirra
ósk. Á boðstólum verður arg-
entínskt rauðvín sem ekki hefur
verið til hér á landi og á vel við
þær steikur sem veitingahúsið
býður, segir í frétt frá veitingahús-
inu Argentínu.
Veitingahúsið Argentía er að
Barónsstíg lla. Það er rekið af
Kristjáni Þ. Sigfússyni og Óskari
Finnssyni matreiðslumönnum og
Ágústu Magnúsdóttur og Mariu
Hjaltadóttur eiginkonum þeirra.
Allt nauta- og lambakjöt veitinga-
staðarins er valið af Jónasi Þór.
Karl Símonarson.