Morgunblaðið - 20.02.1990, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Reistu þér ekki hurðarás um öxl
í framkvæmdum heima fyrir.
Sinntu mikilvægum undirbúningi
vegna starfs þíns.
Naut
(20. apríl - 20. maí) t/ffi
Þú færð nýjan skilning á tilgangi
ltfsins. Einhveijum sem þú um-
gengst hættir til að ýkja. f kvöld
tekur þú þátt í endumærandi og
skemmtilegum menningarvið-
burði í hópi vina.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Öðru hvoru ykkar hjóna hættir
til að eyða of miklu í dag. Þér
verða boðin sérstök fríðindi í
tengslum við starf þitt. Forsendur
fyrir ákveðinni flárfestingu eru
nú breyttar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) H§8
Stattu við þau ioforð sem þú
hefur gefið. Ferðaáætlanir ganga
upp. Taktu því vel þó að maki
þinn eða vinur viðri sjálfstæði
sitt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Árangur þinn í dag fer eftir því
hversu vel þér tekst að komast
hjá töfum eða breytingum á áætl-
unum. Einbeitingin mætti vera
meiri hjá þér.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Yinir þínir hvetja þig til að
skvetta úr klaufunum. Rómantík-
in birtist þér óvænt og þú ert í
skapi til að skemmta þér öðru
vísi en venjulega.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Eitthvað óvænt kemur upp á.
Sumir fá verkefni sem þeir geta
unnið heima hjá sér. Einhveijum
hættir til að taka of stórt upp í
sig og ýkja.
Sporðdreki
(23. okt. -21. nóvember)
Sóaðu ekki tíma þínum með fólki
sem þykir gaman að heyra sjálft
sig tala. Ef þú ert í skapi til að
gera eitthvað snúðu þér að skap-
andi verkefni. f kvöld færðu frétt-
ir sem vekja undrun þína.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) «0
Varaðu þig á óþörfum og ótíma-
bærum fjárútlátum í dag. Þér
getur opnast ný leið til tekjuöfl-
unar. Nýttu þér hugvitssemi þína
til að ákveða framhaldið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Einhver sem þér er náinn stendur
ekki við fyrirheit sitt. Þú hallast
að því að fara eigin leiðir núna
og ert fús að taka nýja stefnu.
Frumleiki þinn kemur þér vel.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Það getur orðið þrautin þyngri
að standast verkáætlun dagsins.
Reyndu ekki að flýja af hólmi,
heldur taktu þér þann tíma sem
þú þarft.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú nýtur þess að taka þátt í fé-
lagslifinu. Vinsældir þínar fara
vaxandi. Þú ákveður ef til vill að
ganga i eitthvert félag. Það
kunna að verða breytingar á
áætlunum þínum fyrir kvöldið.
AFMÆUSBARNIÐ er sam-
vinnufúst, tilfinninganæmt og
hefur til að bera innsæi og tónlist-
arhæfileika. Það er reiðubúið að
leggja mikið á sig til að öðlast
ijárhagslegt öryggi, en á til að
festast í ákveðnu fari. Það verður
að læra að skapa sér tækifæri
og forðast tilhneigingu til leti.
Mannúðleg sjónarmið laða það
oft til starfa við umönnun. Lög,
stjómmál eða trú gætu einnig
vakið áhuga þess.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vtsindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
GRETTIR
pESSI HLJÓMAR^
Besr {/w íhum e»R-
U/Vtf
j T_,,_ _. lrMM, ♦ ÁK96432
TOMMI OG JENNI ♦?
1- ♦ K65
£/? FVLL AF~
Erouc/.'
LJOSKA
( \>AO EK Í6KAL.T III ||
N-, hérinni.'
FERDINAND
II!!?!!!!?!!!1.!!!!!1.!!!!!!1.!!
SMAFOLK
EACH FAMILY UA5 A CUAIN
OF COMMANR AND DO VOU
KN0U) UJHO'S THE LOWEST
ON THAT CHAIN? GUE55!
IT 5 THE DOG! THE DOG
15 THE L0WE5T! DO
VOU UNPER5TAND THAT?
I 5AIRDOYOUYTHEYHATE IT^
UNPER5TANP I UIHENY0UJU5T
THAT? A STAREAT'EM
UKETHI5..
z-</
Sérhver fjölskylda hefur valdaröð, Það er hundurinn! Hundurinn er sá
og veist þú hver er neðstur í þeirri neðsti. Skilurðu það?
röð? Gettu!
Ég sagði, skilurðu það? Þeim er
bölvanlega við það ef maður starir
svona á þá...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Breska parið Tony Forester
og hinn kornungi Andrew Rob-
son unnu óvænt eitt sterkasta
tvímenningsmót heims í síðasta
mánuði, Staten Bank keppnina,
sem bankinn hefur undanfarin
ár staðið fyrir og haldið í Haag.
í öðru sæti var ekki lakara par
en núverandi heimsmeistarar í
sveitakeppni, Brasilíumennimir
Gabriel Chagas og Marcello
Branco, en þriðju urðu Pólveij-
amir Martens og Szymanowsky,
núverandi Evrópumeistarar.
Lítum á spil þar sem að Robson
hefur betur í viðureign við Chag-
as.
Vestur gefur; enginn á hættu.
Norður
♦ Á1062
▼ -
♦ K843
♦ Á9873
Vestur
♦ 8
♦ D875
♦ ÁDG10962
♦ G
Suður
♦ 53
Austur
♦ KDG974
♦ G10
♦ 5
♦ D1042
4 tíglar
Pass
Pass
Pass
Pass
Útspil: spaðaátta.
Þegar áhorfendur skoðuðu
spilið á sýningartjaldi voru þeir
fljótir að dæma það einn niður:
tapslagur á spaða, tveir á tromp
og einn á tígul. En Robson var
á öðm máli. Hann drap á spaða-
ás, fór heim á laufkóng og spil-
aði trompinu þrisvar. Chagas, í
vestur, vissi vel að hann var í
vanda og gerði sitt besta með
því að taka hinn trompslaginn
og spila tíguldrottningu! Mjög
góð vörn, en hún dugði ekki til,
því Robson stakk upp kóng, spil-
aði tígli og henti laufi heim!
Þannig bjó hann í haginn fyrir
kastþröngina á austur í svörtu
litunum.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á meistaramóti sænska skák-
félagsins Malmö SS kom þessi
staða upp í skák Svíans Olle Pers-
son og Sævars Bjarnasonar
(2.325), sem hafði svart og átti
leik. Hvítur lék síðast 21. f2-f3
og hugðist vinna peðið á c5. En
svarti riddarinn þarf ekki að hörfa:
21. - Rg3!, 22. Kxg3 - e4!, 23.
Rxf4 - exf4, 24. Bxf4 - Bh4+!,
25. Kxh4 (25. Kh2 hefði fresfað
ósigrinum) 25. — Dxf4+, 26. g4
— He5 og hvítur gafst Upp. Sæv-
ar sigraði örugglega á mótinu og
hefur átt góðu gengi að fagna í
Svíþjóð, síðan hann flutti út í
haust. Nokkrir íslenskir skák-
menn eru búsettir á Skáni. Þeir
eru flestallir í Malmö SS og má
segja að þeir séu uppistaðan í
aðalliði félagsins. Sævar teflir þar
á öðru borði á eftir Svíanum
Ahlander, en af öðrum íslending-
um í liðinu má nefna þá Gunnar
Finnlaugsson, Arnþór Sævar Ein-
arsson og Þráin Vigfússon. Jón
Garðar Viðarsson, sem teflt hefur
á fyrsta borði fyrir Skákfélag
Akureyrar er einnig á fömm til
Svíþjóðar og gengur þá væntan-
lega til liðs við Malmö SS.