Morgunblaðið - 20.02.1990, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRUAR 1990
33
félk í
fréttum
Nancy áritar bók sína í Harrods.
ATHAFNAGLEÐI
Nancy fylgir
bók sinni eftir
Tracy Raymond þá og nú.
MEGRUN
55 kg fuku
á einu ári
Tracy Raymond, 26 ára göm-
ul ensk stúlka, hefur sann
arlega ástæðu til að gleðjast.
Hún var akfeit fyrir rúmu ári
og þjakaði það hana svo að hún
sór þess að fara í ærlega megrun
og helst að slá einhver met í
árangri. Ári eftir að megruna-
rkúrinn mikii hófst hafði hún
lést um 55 kílógrömm!
Ungfrú Raymond var um 110
kg, en er nú 55 kg. Fyrir vikið
var hún tilnefnd „Ungfrá megr-
un“ af samtökum í Englandi.
Hreppti hún glæsilega litla
sportbifreið að launum, og tók
hún fram við afhendingu bifreið-
arinnar, að inn í hana hefði hún
aldrei komist í sínum gamla
ham.
Á meðfylgjandi mynd má
glöggt sjá hver árangur ungfrá
Raymond hefur verið í raun, en
í tilefni megrunarinnar fyrir
rámu ári lét stúlkan mynda sig
og þegar kílóin voru fokin og
bíllinn var afhentur, lét hún
stækka myndina. Er með ólík-
indum að þarna fari sama konan.
au Ronald og Nancy Reagan,
fyrrum forsetahjón Banda-
ríkjanna, hafa verið eins og flær á
skinni allar götur síðan Ronald lét
af forsetastörfum og George Bush
tók við. Hafa margir undrast út-
hald og líkamlegt þrek þeirra hjóna,
því að þau eru orðin roskin og Ron-
ald hefur þar að auki átt við krabba-
mein að stríða. Nancy hefur í fæstu
verið eftirbátur bónda síns í at-
hafnagleði að undanförnu. Þannig
sendi hún nýlega frá sér bók, ævi-
minningar sínar, og hefur hún fylgt
ritinu eftir hvenær sem færi hefur
gefist.
Fyrir skömmu var henni boðið
að sitja dagsstund í stórversluninni
Harrods í London og árita bók sína.
Hún þekktist boðið og var húsfyllir
meðan hún sat við. Ekki gat hún
hugsað sér að hverfa frá Englandi
og London án þess að sækja heim
Margaret Thatcher sem hún og
gerði og tók jámfrúin vel á móti
henni eins og vænta mátti.
VAKORT
Númer eftirlýstra korta
4507
4507
4507
4507
4548
4548
4548
4200
4300
4400
4500
9000
9000
9000
0002
0007
0001
0010
0023
0027
0028
9009
4376
7234
3074
4376
8186
0984
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ISLAND
-K-
Kappræðufundur á vegum
kynningarnefndar Verkfræðingafélags fslanús
Á að halda öllu
landinu í byggð?
Já eða nei!
Kappræðufundur á vegum kynningarnefndar Verk-
fræðingafélags íslands verður haldinn í Norræna
húsinu í kvöld, þriðjudaginn 20. febrúar kl.20.30,
þar sem fjallað verður um ofangreinda spurningu.
Frummælendur:
Sveinn Þórarinsson,
verkfræðingur á Egilsstöðum, og
Jónas Kristjánsson, ritstjóri.
Byggð og byggðaþróun hafa verið mjög í sviðsljós-
inu undanfarna mánuði og menn ekki á eitt sáttir.
Atvinnumál og félagslegir þættir hafa verið í brenni-
depli. Tvö andstæð megin sjónarmið eru ríkjandi,
sem spurning fundarins snýst um.
Að lokinni framsögu frummælenda verður mæl-
endaskráin opnuð og gefst þá fundarmönnum tæki-
færi til að láta skoðun sína í Ijós.
í lokin verður gengið til atkvæða um fundarefnið.
Fundarstjóri verður Tryggvi Sigurbjarnarson, verk-
fræðingur.
Fundurinn er öllum opinn.
KAFFIRJÓMI ■ GEYMSL UÞOLINN RJÓMl
f
þegar þú vílt rjómabragð
af kaffinu þínu
■ Ka
riómi
Utri
/
Rjómabragðið er á sínum stað þótt fitu-
innihaldið sé aðeins 12%.
Kaffirjóminn er G-vara og geymist
mánuðum saman utan kælis.
Vel kældur bragðast hann
sem besta rjómabland
út á skyr og
ávaxtagrauta.
D
<
• KAFFIRJÓMI ■ GEYMSLUÞOLINN RJÓMI ■