Morgunblaðið - 20.02.1990, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 20.02.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990 37 7. leikvika -17. feb. 1990 Vinningsröðin: X11-X21-X11:2XX 915.894- kr. 0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð 8 voru með 11 rétta - og fær hver: 34.345- kr. á röð Tvöfaldur pottur - um næstu helgi!! Þessir hringdu . . Ráðherrar borgi eins og aðrir Torfi hringdi: Mér fínnst að ráðherrarnir eigi að borga fullt gjald af fínu dýru bílunum sem þeir eru látnir hafa um leið og þeir setjast í stólana. Þeir þurfa ekki einu sinni að borga bensínið sjálfír og eru því ekkert of góðir að borga skatta af þess- um hlunnindum. Seðlaveski tapaðist Svart leður peningaveski tapaðist í eða við Verslunarskóla íslands á miðvikudag/fimmtudag. í því er m.a. ökuskírteini Ólafs Þórs Jóelssonar. Finnandi vinsamleg- ast hafi samband við eiganda í s. 656005. Hnoðað fyrir smáfiiglana Rannveig hringdi Mig langar til að segja frá því hvemig ég gef smáfuglunum. Ég bý til köku handa þeim með því að hnoða saman í skál smjörlíki og maískurl. Hvolfi ég síðan kö- kunni út í snjóinn, slétta auðvitað undir, og þá búa þeir að þessu í marga daga. Falli snjór má auð- veldlega hreinsa ofan af kökunni. Vanti mig kurl fleygi ég nokkrum heilhveitibrauðssneiðum til smá- fuglanna. Hef ég leyft barnabörn- um mínum að fylgjast með því það hefur gott uppeldislegt giidi fyrir þau að sjá að smáfuglunum er sinnt. Frábær matur í Hrísalundi Kvenfélagskona hringdi: Ég var svo undrandi er ég las í blaðinu á dögunum neikvæð skrif um veitingastaðinn Hrísalund í Hrísey. Ég ásamt fleirum kom á umrædda veitingastofu sumar eitt og hef sjaldan mætt slíkri gest- risni og matur og þjónusta í þess- ari veitingastofu var hreint frá- bær. Ég borða alloft úti og tel mig alveg dómbæra á slíkt. Tvö karlmannsúr fundust í Laugameshverfi, annað á Sund- laugavegi en hitt á Hofteigi. Eig- endur geta haft samband í s. 83283. Allt í eldhúsið frá BOSCH MwaatUBNIUfii ® JÓHANN ÓLAFSS0N & C0. HF. 43 Sundaborg 13 -104 Reykjavik - Sími 688 588 Takk fyrir Stundina okkar Til Velvakanda. Okkur langar til að þakka fyrir frábæran barnatíma, Stundina okkar i Ríkissjónvarpinu. Umsjónarmaður- inn Helga Steffensen hefur lag á að blanda saman bæði skemmtun og fróðleik og er mikill menningarbrag- ur á þættinum og ótrúlegt hugmynd- arflug að láta sér detta allt þetta í hug. Þátturinn um málrækt (með brúðum) er gott dæmi um hvemig hægt er að kenna börnum á skemmti- legan máta, kemst hann vel til skila hjá þeim yngstu. Oft er sýnt úr leik- ritum sem eru á fjölunum og t.d. á sunnudaginn var farið í Náttúru- fræðisafnið og skoðaðir ránfuglar, efnafræðingur gerði tilraunir, einnig voru sýnd töfrabrögð og létt um- ferðarkennsla. Allt er þetta við hæfi þeirra yngstu. Brúðurnar eru líka uppáhald krakkanna, sérstaklega Lilli. Þó ég sé fullorðin þá missi ég aldrei af að horfa á Stundina okkar. Haldið áfram á þessum nótum. Ein fyrirsprun. Hvenær ætlar Ríkissjón- varpið að byija með bamatíma á laugar- og sunnudagsmorgnum? Anna. (r o 0 0 0 0 Alltá einum stað 0 0 0 0 0 Komdu með bílinn á staðinn og þeir á verkstæðinu sjá um að setja nýtt pústkerfi undir. 0 PÚSTKERFIÐ FÆRÐU HJÁ OKKUR 0 P Verkstæðiðer opið alla virka daga frá kl. 8.00-18.00 0 p nema föstudaga frá kl. 8.00-16.00. 0 -V____Ath. Verslunin er opin laugardaga kl. 10-13. RbvörubúÓin Skeifunni2 82944 Púströraverkstaði 83466 EVROPA Snæfellingar UPPLYSINGAFUNDUR UM EVRÓPSKA EFNAHAGSSVÆÐIÐ, EES, verðurhaldinnávegum UTANRÍKISRÁÐUNEYTISINS miðvikudaginn 21. febrúar kl. 21.00 í FÉL4GSHEIMILINU í ÓLAFSVÍK Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, hefur framsögu og mun, ásamt embættismönnum- utanríkisráðuneytisins, svara fyrirspurnum um viðræður Fríverzlunarsamtaka Evrópu, EFTA, og- Evrópubandalagsins, EB, um myndun sameiginlegs markaðar í Evrópu. Utanríkisráðuneytið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.