Morgunblaðið - 20.02.1990, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1990
38
ILLVIÐRIÐ U M HELGINA
Flutninga-
bíll valt í
• •
Oræfasveit
Hnappavölluni, Öræfasveit.
MJÖG vont veður var í Öræfa-
sveit laugardaginn 17. febrúar.
Var vindhraðinn 12 vindstig á
Fagurhólsmýri í 8 klukkustund-
ir, og fór mest í 72 hnúta.
Skyggni var innan við 100 metra
hluta úr deginum. Ekki er vitað til
að eignartjón hafi orðið, nema hvað
fulllestaður flutningabíll frá Egils-
stöðum fauk útaf og valt við Svína-
fell er bílstjórinn beið þar vegna
veðurs.
- S.G.
Páll Magnússon á Hvassafelli
neglir fyrir glugga á húsi sínu.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Þorsteinn Birgisson stendur við stórskemmdan bíl sinn.
Enn fárviðri undir Eyjafjöllum;
Smásteinar flugn í gegnum
járnklæðningu og glugga
Holti undir EyjaQöllum.
ÓVÆNT gerði mikið norðaustan veður hér undir Eyjafjöllum sem
varð harðast hjá Steinabæjum. Þar varð veðurofsinn með því mesta
sem menn minnast og mun verra en jólaveðrið. Það fauk af húsum á
öllum Steinabæjunum, vélar og annað sem fokið gat og er mildi að
mannskaði verði ekki í svona óskaplegum veðurofsa.
Aðfaranótt laugardags 17. febrú-
ar byrjaði veðrið og kom með hviðum
alla nóttina og hélst fram eftir
degi. Jámplötur fuku og smásteinar
flugu um eins og úr haglabyssu,
inn um járnklæðningar á húsum og
gegnum rúður. Rafmagnsstaurar
brotnuðu og var rafmagnslaust
undir A-Eyjafjöllum frá kl. 2 til 10
um kvöldið. Einnig varð símasam-
bandslaust. Að Steinum 3 hjá Kristj-
áni Guðmundssyni og Ólöfu Bárðar-
dóttur fauk sami hluti af fjósinu og
fauk í jólaveðrinu, að viðbættum
stærri hluta þaksins, auk þess sem
rúður í húsum og vélum fuku. Að
Steinum 2 hjá Jónínu Jónsdóttur
fauk útihurð inn í húsið á karmi
eins og um innbrot væri að ræða.
Að Steinum 1 hjá Sigurbergi Magn-
ússyni og Elínu Siguijónsdóttur
brotnuðu allar rúður í ytra gleri á
norðurhlið íbúðarhúss, stór gluggi í
verzluninni brotnaði inn og allt innan
dyra eins og eftir sprengingu. Elín
lét þess getið að hún myndi ekki
eftir öðru eins veðri í Steinum.
Sogið sem kom í kjölfar hverrar
vindhviðu hafí verið verra en höggið
sjálft undan veðurhamnum. Gamla
húsið þeirra hefði látið undan eins
og á sjó væri og ljósakrónurnar
hefðu sveiflast til. Þegar síðan raf-
magn ög sími færi og snjóskafl
lokaði útidyrum, væri lítið hægt að
að gera nema biðja og vona að ekki
færi illa. Hjá Geir Tryggvasyni og
Þórönnu Finnbogadóttur í Hvolt-
ungu (Steinum) fuku þök af bílskúr
og hlöðu. Á Hvassafelli hjá Páli
Magnússyni og Vilborgu Siguijóns-
dóttur fauk af þökum útihúsa, flest-
ar rúður íbúðarhússins brotnuðu,
m.a. fóru gluggar í heilu !agi með
gluggakarmi en við það sogaðist
nær allt út úr því herbergi. Rúður
í bílum og dráttarvélum ýmist brotn-
uðu eða fuku á braut. í Hlíð urðu
einnig skemmdir undan veðrinu og
hjá viðgerðarverkstæðinu Faxa fauk
stór og þung bifreið á hliðina.
Bifreiðir sem áttu leið um voru í
mikilli fokhættu og reyndu bílstjórar
að aka í var. Þannig beið alla nótt-
ina og fram eftir degi bílstjóri á
flutningabifreið með aftanítengdan
vagn og þurfti aftur og aftur að
færa bifreiðina sem fauk til og frá.
Mestan skaða bflstjóra fékk Þor-
steinn Birgisson úr Reykjavík sem
var að koma úr Reykjavík um mið-
nættið. Honum segist svo frá að
þegar hann var að aka hjá Steinum,
þá hafi allt í einu komið mikil vind-
hviða sem tók bílinn heljartökum og
svipti honum af veginum. Með hjálp
bílasíma hafi hann fengið hjálp frá
Steinum til að komast þangað heim.
Um nóttina versnaði enn veðrið og
fram eftir degi þannig að enginn
möguleiki var að komast að bílnum.
Þegar lægði um miðjan dag kom
hann að bílnum sínum, sem þá
hafði fokið um 200 metra, gjörónýt-
um, allar rúður farnar og bókstaf-
lega allt innan úr bílnum, meira að
segja bílasíminn sem hafði verið
vel niður skorðaður. Dekkin höfðu
farið undan bílnum í veltunum. Það
versta væri að engin trygging virtist
ná yfir svona skaða sem væri til-
finnanlegur. „Mér er sagt,“ sagði
Þorsteinn, „að Kaskótrygging bæti
ekki svona skaða af völdum roks
og Viðlagatrygging ríkisins geri
það ekki heldur. Hvers á ég að
gjalda að hafa verið þama á ferð í
svona ógnar veðri og tapa öllu
mínu?“
- Fréttaritari
Vegurinn með
suðurströnd-—
inni ruddur
HRINGVEGURINN frá Vík og
austur á firði er ófær en verður
niddur í dag að sögn Karls
Ásgrímssonar vegaeftirlits-
manns. í dag verður opnað til
Hólmavíkur og einnig til Siglu-
fjarðar ef mögulegt reynist
vegna veðurs.
I gær var leiðin frá Reykjavík
til Víkur í Mýrdals opnuð. Illfært
var í uppsveitum Ámessýslii.
Austan við Vík var vegurinn ófær
á köflum og jeppafær á öðram
stöðum. Á Austfjörðum var mikil
ófærð, en hægt að komast með
ströndinni frá Egilsstöðum suður
til Breiðdalsvíkur. Reynt var að
opna leiðina frá frá Þórshöfn til
Húsavíkur, en vegaeftirlitsmenn
vissu ekki hvort það hefði tekist.
Frá Húsavík var orðið fært til
Akureyrar og þaðan til Reykjavík-
ur. Vegurinn til Ólafsfjarðar var
opnaður og einnig til Siglufjarðar,
en síðdegis í gær var veður að
versna á þessum slóðum og búist
við að færð spilltist aftur. Ófært
var til Hólmavíkur, en þangað 'áT"
að opna í dag, og ófært er yfir
Steingrímsfjarðarheiði. Vegir á
milli þéttbýlisstaðanna við ísa-
fjarðardjúp vora opnaðir en Vega- .
gerðarmenn urðu að hætta
mokstri á Breiðadalsheiði. Fært
var orðið frá Patreksfirði á Bfldud-
al og Bijánslæk. Vegir á Snæfells-
nesi vora hreinsaðir og vegurinn
í Dali og þaðan vestur í Gufudals-
sveit.
Fjöldi fólks í erfið-
leikum í Svínahrauni
20-30 bílar skildir eftir utan vegar
FJÖLDI fólks lenti í vandræðum í Svínahrauni og á Hellisheiði
vegna ófærðar og lítils skyggnis síðastliðinn laugardag. Björgunar-
sveitir frá Reykjavík og nágrenni fóru á fjórum snóbílum til að ná
í fólk í fasta bíla á þessari leið, mest við Litlu kaffistofuna, og
björgunarsveitir frá Hveragerði og Selfossi náðu í fóik upp á
Hellisheiði.
Kristján Kristinsson í Litlu
kaffístofunni í Svínahrauni segist
ekki hafa lent í jafn slæmu veðri
og var á laugardag. Þá var snjó-
koma og rok og sagðist hann hafa
orðið að fara út á hálftímafresti
til að moka frá dyranum þannig
að fólk kæmist inn og um kvöldið
hefði verið kominn tveggja metra
skafl við húsið. Hann sagði að
margt fólk hefði lent í vandræðum.
Það hefði byijað snemma dags,
þá hefðu starfsmenn Vegagerðar-
innar bjargað fólki úr bíl. Það
hefði misst upp bílhurðina þannig
að bíllinn hefði verið orðinn hálf-
fullur af snjó og fólkið því orðið
gegnblautt eftir fimm og hálfan
í níu klukkustundir milli Reykjavíkur og Selfoss:
„Þetta var band-
brjálað veður“
Selfossi.
FJÖLDI fólks lenti í erfíðleikum á Hellisheiði á laugardagskvöld og
aðfaranótt sunnudags. Farþegar í tveimur fólksfíutningabílum, um
80 manns, voru níu klukkustundir á leið til síns heima. Björgunar-
sveitarmenn frá Selfossi og Reykjavík aðstoðuðu fólkið í óveðrinu.
Ekki er vitað um nein alvarleg óhöpp af völdum veðursins. Fólk
lagði á Hellisheiði þrátt fyrir að blikkljós sýndu að hún væri ófær.
Morgunblaðið/Halldór
Undir EyjaQöllum varð veðrahamurinn mestur og þar var þessi
mynd tekin af tveimur bilum sem fuku og stórskemmdust.
Veðrið fór versnandi þegar leið
á laugardaginn. Þá var ákveðið að
síðasta ferð Sérleyfisbfla Selfoss
yrði klukkan 18.30. Þá lögðu tveir
bflar af stað, annar úr Reykjavík
og hinn frá Selfossi, báðir með 40
farþega. Þeir mættust svo í skafli
á Hellisheiði, á móts við björgunar-
skýlið sem þar er. Þar festist önnur
rútan og hinni tókst ekki að ná
henni upp. Með aðstoð trukks frá
Sérleyfísbílunum og bíla björgunar-
sveitarmanna frá Selfossi tókst að
losa rútuna sem var á leið til
Reykjavíkur. Björgunarsveitar-
menn veittu mikla aðstoð við að
draga upp bíla og feija fólk á milli
bíla.
Rútan sem var á leið til
Reykjavíkur sneri við og fór um
þrengsli áleiðis þangað. Hún stöðv-
aðist við Litlu kaffistofuna þar sem
björgunarsveitarmenn úr Reykjavík
komu til aðstoðar og fluttu fólkið til
Reykjavíkur.
Fólkið sem var á leið á Selfoss
var flutt ofan af heiðinni um nótt-
ina og var það komið á Selfoss um
þijúleytið um nóttina, á sama tíma
og þeir sem voru á leið til
Reykjavíkur komu þangað.
„Það var bandbijálað veður
þarna uppi á Heiði og varla stætt
úti,“ sagði einn farþeganna í rútun-
um. „Þær stóðu þarna hvor á móti
annarri, rútumar, kolfastar en það
var allt í lagi með okkur farþeg-
ana. Fólk var mjög þolinmótt og
börnin voru ótrúlega góð,“ sagði
þessi farþegi.
„Þegar bílarnir festust þá fennti
allt í kaf,“ sagði Steinn Hermann
Sigurðsson hjá Sérleyfisbílum Sel-
foss. Hann sagði það alltaf spum-
inguna í svona tilfellum hvenær
ætti að hætta við ferðir. Það hefði
ekki annað Verið sýnt en þetta
gengi því bflar hefðu farið um heið-
ina um sexleytið. „Við vonum að
það hafi ekki orðið neinum til vera-
legs tjóns að tefjast þetta. Og við
þökkum þeim sem sýndu okkur
þolinmæði, þeim sem voru í bílun-
um, þeim sem biðu eftir þeim og
svo þeim sem veittu okkur aðstoð."
- Sig. Jóns.
tíma í bílnum. Vegagerðarmenn-
imir hefðu komið með fólkið í
kaffistofuna og það fengið far
með rútu i bæinn.
Þorsteinn Þorkelsson starfs-
maður björgunarsveitarinnar Ing-
ólfs í Reykjavík sagði að um
klukkan 20 á laugardag hefði^
lögreglan óskað eftir aðstoð björg-
unarsveitanna í Reykjavík og ná-
grenni þar sem vitað hefði verið
af fólki í vandræðum í Svína-
hrauni og víðar. Fjórir snjóbflar
frá jafn mörgum sveitum fóra á
staðinn. Þorsteinn sagði að reynt
hefði verið að aðstoða fólk eftir
föngum og koma þeim í bæinn
sem þurftu að skilja bíla sína eft-
ir. Meðal annars var náð í 35
manns í rútu sem sat föst og var
fólkið flutt til Reykjavíkur. Taldi
Þorsteinn að 20-30 bílar hefðu
verið fastir utan vegar á þessari
leið, en flestir hefðu verið búnir
að yfirgefa bílana þegar björgun-
arsveitarmenn komu. Ekki -wssi
hann til þess að fólk hefði Tent í
alvarlegum hrakningum.
Tveir menn ætluðu á vélsleðum
frá Litlu kaffistofunni til
Reykjavíkur. Þeir urðu viðskila og
annar féll af sleðanum og fann
hann ekki aftur vegna veðursins,
en komst gangandi að kaffistof-
unni.
Veginum var lokað síðdegis en
eftir það vora menn að reyna að
komast austur fyrir fjall. Meðal
annars þurfti að kalla út björgun-
arsveit um nóttina til að kotna
fólki til aðstoðar á Hellisheiði.
Þorsteinn sagði að fólk virtist
halda af stað í svona tvísýnu með
því hugarfari að það hlyti að
bjarga sér.
20-30 menn úr björgunarsveit-
unum á Reykjavíkursvæðinu tóku
þátt í hjálparstarfinu á laugar-
dagskvöldið. Þeir vora á 4 snjóbíl-
um og tveimur fjallabílum.