Morgunblaðið - 02.03.1990, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTÚDAGUR 2. MARZ 1990
Hafrannsóknastofiiun:
Telur að 4 þús. tonnum
af smáþorski sé fleygt
Hafrannsóknastofhun telur að um 4 þúsund tonnum af smá-
þorski hafí verið fleygt á síðasta ári ef gengið er út frá því að
þorski sem er stærri en 50 sm sé ekki fleygt. Upplýsingar Haf-
rannsóknastoftiunar stangast mjög á við niðurstöður könnunar sem
SKÁÍS framkvæmdi meðal sjómanna að frumkvæði Kristins Péturs-
sonar alþingismanns. Niðurstöður hennar voru birtar í Morgun-
blaðinu 23. febrúar síðastliðinn.
í niðurstöðum könnunarinnar er
gert ráð fyrir að 53.000 tonnum
hafi verið fleygt árið 1989, helm-
ingur þess hafi verið þorskur, mest
undirmálsfiskur og slakur neta-
fiskur.
Á síðasta ári mældu eftirlits-
menn sjávarútvegsráðuneytisins
um 103 þúsund þorska um borð í
togurum á norðvestur-, norður- og
Austfjarðamiðum. Þar af voru um
5% undir 50 sm. Meðalþyngd
þorsks af þessari stærð er um eða
innan við eitt kg. í þyngd var und-
irmálsfískur því um 2,5% af tog-
araaflanum á síðasta ári eða um
4 þúsund tonn. f
Hafrannsóknastofnun kemst að
þeirri niðurstöðu að ef gert er ráð
fyrir að ekki sé fleygt þorski sem
er stærri en 50 sm stangist fram-
angreindar mælingar mjög á við
niðurstöður könnunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Haf-
rannsóknastofnunar hefur stöðugt
dregið úr smáfiskadrápi frá 1984
og lengdarmælingar eftirlitsmanna
um borð í togurum 1989 sýni að
hlutfall undirmálsfísks hafí verið
óvenju lágt, einkum ef miðað er
við árin 1987 og 1988. Árið 1988
var þetta hlutfall 4,5% af heildar-
afla eða um 8.500 tonn. 1987 var
hlutfall undirmálsfisks í afla tog-
ara á norður- og austurmiðum enn
hærra eða um 6%, eða um 12.000
tonn.
Tveir þriðju hlutar undirmáls-
físks er undanþeginn kvóta. Sumir
togarar nýta sér þetta og koma
með talsverðan undirmálsfísk að
landi. Árið 1987 voru þetta rúm
4.000 tonn en aðeins um 2.000
tonn 1989.
Hlutur smáfísks í afla togara-
flotans minnkaði verulega þegar
möskvi í togveiðarfærum var
stækkaður á árunum 1976-1977
og hlutfall smáfisks í afla var í
lágmarki átímabilinu 1978-1981.
Á árunum 1982-1984 jókst hlut-
ur smáfísks og hélst hár til og
með 1987. Eftir það hefur dregið
úr smáfískadrápi, segir í frétt
Hafrannsóknastofnunar. Þar kem-
ur einnig fram að sambærilegar
tölur eru ekki til fyrir bátaflotann.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 2. MARS
YFIRLIT í GÆR: Suðaustankaldi um landið vestan- og norðanvert
en breytileg átt, víðast gola suðaustantil. Vestanlands voru él en
um allt austanvert landið var skýjað en úrkomulaust. Hlýjast var 1
stigs frost á Gufuskálum en á Grímsstöðum var 16 stiga frost.
SPÁ: Sunnan- og suðvestanátt, sums staðar allhvöss, með snjó-
komu eða slyddu suðvestan-, vestan- og norövestanlands, en úr-
komulaust að mestu austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Allhvöss eða hvöss
vestan- og suðvestanátt. Él sunnan-, vestan- og norðvestanlands,
en að mestu úrkomulaust norðaustan- og austanlands. Hiti nálægt
frostmarki.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
f r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
•JO° Hitastig:
10 gráður á Ceisíus
V Skúrir
*
V El
— Þoka
— Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
[~^ Þrumuveður
"§
> T
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri +14 skýjað
Reykjavik r9 skafrenningur
Björgvin 0 úrkoma
Helsinki 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 4 skúr
Narssarssuaq +5 skafrenningur
Nuuk +7 snjókoma
Ósló 3 snjókoma
Stokkhólmur 2 skýjað
Þórshöfn +2 snjókoma
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 5 haglél
Barcelona 17 skýjað
Berlín 4 snjóél
Chicago +4 heiðskírt
Feneyjar 14 léttskýjað
Frankfurt 6 snjóél
Glasgow 3 skýjað
Hamborg 0 snjóél
Las Palmas 20 léttskýjað
Lundúnlr 7 hálfskýjað
Los Angeles 12 þokumóða
Lúxemborg 3 snjóél
Madríd 14 hálfskýjað
Malaga 23 skýjað
Mallorka 21 skýjað
Montreal +14 léttskýjað
New York +4 heiðskírt
Orlando 13 helðskírt
París 6 skýjað
Róm 17 þokumóða
Vín 9 léttskýjað
Washington +1 léttskýjað
Winnipeg 1 alskýjað
Morgunblaðið/Þorkell
Steindór Bjarnason stendur við það, sem eftir er af stofúnni í Þrasta-
lundi.
Þetta er allt meira
og minna ónýtt
- segir Steindór Bjarnason í Þrastalundi
„Ég trúði ekki eigin augum þeg-
ar ég koma að þessum ósköpum.
Mér fínnst þetta enn jafhótrú-
legt. Hér hefur aldrei áður fallið
snjóflóð svo vitað sé og svo dynja
þessi ósköp með þessum óskap-
lega krafti. Flóðið þeytti véla-
geymslunni niður á tún og fór
bókstaflega í gegn um stofuna,“
sagði Steindór Bjarnason, sem
ásamt foreldrum sinum öldruð-
um hefur búið að Þrastalundi þar
til í haust.
Steindór hefur að undanförnu
verið að lagfæra íbúðarhúsið og
hafði því fært nánast öll húsgögnin
inn í stofuna, sem er eins konar
viðbygging við austurenda hússins.
Þar var meðal annars töluvert bóka-
safn. „Þetta er vafalaust allt meira
og minna ónýtt,“ sagði Steindór.
„Vélageymslan er í tætlum, verk-
stæðið ónýtt svo og fjárhúshlaðan
og íbúðarhúsnæðið sýnist mér ónýtt
líka. Hér voru margir bílar og eru
5 þeirra ónýtir, reyndar er ekki
búið að fínna þá alla. Þá fóru líka
tveir bátar og dráttarvél. Ég býst
við því að viðlagatrygging bæti
skaðann, sem er umtalsverður.
Okkur þykir sárt að líklega eru
bækumar ónýtar. Þær eru kannski
ekki verðmætar, ekki endilega
gamlar eða merkilegar. Einfaldlega
bækur, sem fólk les og þykir vænt
um. Við ætluðum líka að flytja hing-
að inn aftur með vorinu. Þess vegna
var ég að dútla þetta í íbúðarhúsinu
og hafði ætlað mér inn eftir um
kvöldið. Þrátt fyrir þetta get ég vel
hugsað mér að búa hér áfram, verði
húsinu komið í lag. Maður veit aldr-
ei hvar og hvenær maður er óhlut-
ur,“ sagði Steindór.
Hækkun á innfluttum
gúrkum og sveppum
Tómatarnir lækka í verði
TÖLUVERÐ hækkun hefur orð-
ið á innfluttum gúrkum og
sveppum undanfarna daga en
tómatar hafa lækkað í verði.
Verðhækkunin stafar af litlu
framboði um þessar mundir en
búist er við að verð lækki afitur
þegar uppskeran eykst.
Heildsöluverð á gúrkum sem
Sölufélag garðyrkjumanna-Ban-
anasalan er að flytja inn þessa
dagana er 338 krónur kílóið.
Líklegt er að útsöluverð á þessum
gúrkum verði 540 til 550 krónur.
I byijun febrúar, þegar upplýsing-
um var safnað vegna útreiknings
framfærsluvísitölunnar, var út-
söluverð á gúrkum að meðaltali
tæpar 470 krónur kílóið. Líklegt
útsöluverð næstu daga er því 16%
hærra en það var að meðaltali fyr-
ir mánuði. Níels Marteinsson sölu-
stjóri hjá Sölufélaginu segir að lítið
sé til af gúrkum á markaðnum,
þær séu hættar að berast frá Spáni
og uppskeran í Hollandi ekki orðin
nógu mikil og það virðist hafa
hækkað verðið í bili. Hann sagði
að útlit væri fyrir að fyrstu
íslensku gúrkurnar kæmu á mark-
aðinn eftir tíu daga.
Ferskir innfluttir sveppir hafa
hækkað mikið. Heildsöluverðið er
nú 507 krónur á kíló hjá Sölufélag-
inu og er líklegt útsöluverð rúmar
800 krónur. Lítið er til af íslensk-
um sveppum en þeir eru mun ódýr-
ari en þeir innfluttu, kosta að
líkindum 570 til rúmlega 600 kr.
kílóið. Meðalverð sveppa var í byrj-
un febrúar rúmar 530 krónur kíló-
ið.
Innfluttu tómatarnir hafa aftur
á móti lækkað í verði. Heildsölu-
verðið er 198 krónur kílóið, og
útsöluverðið þá nálægt 320 krón-
um. Er það 21% lægra verð en var
að meðaltali í byijun febrúar.
Tjón varð á
raftækjum
vegnaof
hárrar spennu
TJÓN varð á raftækjum í 13
húsum við Álftanesveg í
Garðabæ á þriðjudaginn, þegar
380 volta spennu var hleypt á
húsin vegna mistaka starfs-
manna Rafveitu Hafharfjarðar.
Að sögn Jónasar Guðlaugssonar
rafveitustjóra átti þetta sér stað
þegar verið var að skipta um
spennir á þessum slóðum.
„Þetta voru mannleg mistök
sem þama urðu, en tjón varð sem
betur fer minna en hefði mátt
ætla, og flest tæki í húsunum
sluppu án skemmda. Það hefur þó
komið í ljós að öryggi hafa bilað
í tækjum sem voru í gangi, og í
öðrum bilaði eitthvað meira, en það
tjón sem við höfum haft fregnir
af er flest minniháttar. Við munum
bæta allan viðgerðarkostnað á
þessum tækjum, og einnig höfum
látið rafverktaka fara í öll húsin
og laga það sem hann hefur getað
lagað,“ sagði Jónas.
-r: