Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 23 Dan Ackroyd, Jessica Tandy og Morgan Freeman í hlutverkum sínum í myndinni „Ekið með Daisy“, sem nú er sýnd í Laugar- ásbíói. „Ekið með Daisy“ sýnd í Laugarásbíói LAUGARÁSBÍÓ hefiir hafið sýningar á myndinni „Ekið með Daisy“, en hún hefur verið út- neftid til níu Óskarsverðlauna. í aðalhlutverkum eru Jessica Tandy, Don Ackroyd og Morgan Freeman. Myndin hefst í Atlanta í Geor- gíu árið 1948 þegar Daisy, 72ja ára fyrrverandi kennslukona, ekur nýja Packard-bílnum sínum upp á bílskúr nágrannans. Búlli, sonur hennar, telur að ekkert trygginga- félag vilji eiga viðskipti við hana og ræður því ekil fyrir móður sína, svertingjann og góðmennið Hoke. Daisy vill ekkert með hann hafa, verður þó að láta í minni pokann um síðir en hefur allt á hornum sér. En árin líða og samlyndið batnar og hún viðurkennir loks að Hoke sé sinn besti vinur og verður því að sætta sig við að hann mati hana þegar hann heimsækir hana, 94ra ára gamla, á elliheimilið. Þjóðleikhúsið: Síðasta ftnmsýning á stóra sviðinu að simii SÍÐASTA firumsýningin á stóra sviði Þjóðleikhússins fyrir lokun verður dagskráin Stefiiumót, en fyrstu sýningar verða á stóra sviðinu 2. og 4. mars. Sýningum verður síðan haldið áfram í Iðnó eftir miðj- an mars. Stefnumót er byggt upp á örstuttum leikritum eftir Peter Barnes, Michel de Ghelderode, Eugene Ionesco, David Mamet og Harold Pinter. Höfundur tón- listar er Jóhann G. Jóhannsson og þýðendur eru Árni Ibsen, Ingunn Ásdísardóttir, Kari Guð- mundsson, Sigríður M. Guð- mundsdóttir og Sigurður Páls- son. Gunnar Bjarnason, yfírleik- myndateiknari Þjóðleikhússins, hannar leikmynd og búninga og Ásmundur Karlsson lýsingu. Tveir leikendanna hættu í vetur sem fastráðnir leikarar við húsið og fóru á eftirlaun, þeir Bessi Bjarnason og Rúrik Har- aldsson. Fjórir þeirra voru með í opnunarsýn- ingum hússins og eiga því 40 ára starfsaf- mæli, þáu Bald- vin Halldórsson, Bryndís Péturs- dóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnf- innsson. Auk þeirra leika Anna Kristín Amgrímsdóttir, Amar Jónsson, Bríet Héðins- dóttir, Gunnar Eyjólfsson og Tinna Gunnlaugs- dóttir. Leikstjórar em fjórir talsins, allt ungt fólk sem nýlega hefur lokið sémámi í leikstjórn og þreytir þama fmmraun sína í Þjóðleikhúsinu. Þar með er stefnt saman þeim leikurum sem verið hafa burðarásar Þjóðleik- hússins í 40 ár og yngstu kyn- slóð leikstjóra, sem vænta má að láti til sín taka í framtíðinni. Leikstjórarnir era Hlín Agnars- dóttir, sem hefur yfímmsjón með dagskránni, Ásgeir Sigur- valdason, Ingunn Ásdísardóttim og Sigríður M. Guðmundsdóttir. Leikþættirnir em: Þrír leikar- ar — eitt drama eftir Gheld- erode, Biðstöðin eftir Pinter, Tilbrigði við önd eftir Mamet, Staður og stund eftir Bames, Leikæfing eftir Barnes, Góð til að giftast eftir Ionesco og Það er nú það eftir Pinter. Róbert Arnfinnsson og Tinna Gunnlaugsdóttir í Þrír leikarar — eitt drama. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM 1. mars. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 112,00 70,00 80,66 63,426 5.116.265 Þorskur(óst) 72,00 72,00 72,00 0,300 21.600 Ýsa 143,00 92,00 111,94 7,719 864.072 Karfi 45,00 39,00 43,55 22,524 980.913 Ufsi 40,00 20,00 36,87 26,757 986.609 Steinbítur 36,00 36,00 36,00 0,223 8.028 Langa 55,00 32,00 52,14 1,720 89.673 Lúða . 470,00 280,00 348,04 0,107 37.240 Keila 22,00 22,00 22,00 0,194 4.268 Keila(ósl.) 22,00 22,00 22,00 0,212 4.664 Skötuselur 220,00 210,00 211,88 0,064 13.560 Rauðmagi 86,00 86,00 86,00 0,044 3.784 Hrogn 228,00 213,00 225,75 0,612 138.156 Samtals 66,74 123,902 8.268.832 I dag verður selt óákveðið magn úr Ljósfara, Stakkavík og bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 98,00 54,00 76,40 20,835 1.591.861 Þorskur(ósl.) 79,00 45,00 62,08 1,777 110.312 Ýsa 134,00 101,00 113,19 8,134 920.679 Ýsa(ósl.) 106,00 80,00 101,10 0,536 54.192 Karfi 42,00 38,00 41,65 3,255 135.562 Ufsi 52,00 42,00 48,33 68,445 3.308.090 Hlýri+steinb. 30,00 30,00 30,00 1,168 35.040 Langa 59,00 52,00 54,33 1,413 76.777 Lúða 380,00 285,00 318,99 0,169 53.910 Grálúða 49,00 49,00 49,00 0,183 8.967 Skarkoli 50,00 37,Ó0 45,16 0,118 5.329 Keila 28,00 28,00 28,00 1,564 43.792 Rauðmagi 100,00 80,00 88,33 0,467 41.250 Hrogn 170,00 95,00 103,35 0,799 82.580 Samtals 59,40 108,936 6.470.591 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 100,00 80,00 83,64 5,916 494.794 Þorskur(ósL) 86,00 66,00 75,26 47,341 3.562.898 Ýsa 148,00 78,00 116,79 2,653 309.854 Ýsa(ósL) 147,00 104,00 136,19 5,923 806.675 Karfi 41,00 40,00 40,40 0,621 25.089 Ufsi 31,00 31,00 31,00 0,532 16.492 Ufsi(ósL) 38,00 15,00 35,42 9,104 322.465 Steinbítur 57,00 33,00 39,73 11,552 458.924 Hlýri 37,00 37,00 37,00 0,468 17.316 Langa 45,00 39,00 42,46 0,356 15.114 Skarkoli 62,00 58,00 60,11 0,318 ' 19.117 Saltfiskur 181,00 181,00 181,00 0,703 127.243 Rauömagi 110.Q0 80,00 104,53 0,159 16.620 Hrogn 204,00 204,00 204,00 0,218 44.472 Samtals 72,44 87,081 6.308.454 í dag verða meðal annars seld 40 tonn, aðallega af þorski, úr Þresti KE, 3 tonn af karfa og óákveðið magn úr dagróðrabátum. Æskulýðs- dagur Þjóð- kirkjunnar LÍF OG FRIÐUR er yfirskrift Æskulýðsdags Þjóðkirkjunnar næstkomandi sunnudag, 4. mars. Þessi yfirskrift „tekur mið af tíma- bærri umræðu um umhverfismál, ábyrgð manna í sköpunarverkinu og framtíðarýn til lífsins á jörð- inni,“ segir í frétt frá fræðsludeild Þjóðkirkjunnar. í tilefhi dagsins verður á nokkrum stöðum fluttur söngleikurinn Líf og friður eftir Per Harling og Lars Collmar. í fréttinni segir ennfremur: „Við mennirnir erum hluti af lífríkinu og höfum mikil áhrif á það með athöfnum okkar og ákvörðunum - gjarnan til ills - en getum engu að síður notað hæfni okkar og hugvit til góðs fyrir alla guðs skepnu.“ Guðsþjónustur Æskulýðsdagsins verða í flestum söfnuðum ásamt kvölddagskrám. Flóahrina hjá FEF FELAG emstæðra foreldra eftiir til flóamarkaðshátíðar í Skeljanesi 6 n.k. laugardag og síðan næstu laugardaga á efitir. Opnað er kl 2 e.h. Á boðstólum er mikið af skrautmunum, búsáhöldum og myndum, bókum og húsgögnum og fatnaður á flesta aldurshópa. Allur ágóði rennur til að standa straum af kostnaði við breytingar á neyðarhúsi FEF að Öldugötu 11. Þar er nú verið að setja upp þijú eldhús í íbúðir á miðhæð en sams konar endurbætur voru gerðar á fyrstu hæð í fyrra - einkum fyrir flóamarkaðsfé. Guðni Þ. Guðmundsson og Esther Helga. Tónleikar í Hafiiarborg TÓNLEIKAR á vegum Tónlistarskóla Haftiarfjarðar og Haftiarborg- ar verða haldnir í Hafharborg á sunnudaginn kl. 15.30. Hér er um að ræða aðra tónleika í tónleikaröð sem þessir aðilar standa saman að. Aðgangur er ókeypis. Á tónleikunum á sunnudag munu koma fram þau Ester Helga Guð- mundsdóttir, sópran og Guðni Þ. Guðmundsson, píanóleikari. Munu þau flytja nokkur lög úr söngleikj- um á borð við Porgy og Bess, Show- boat, Cats og Sound of Music. Ester Helga Guðmundsdóttir stundaði nám við söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófí árið 1984. Á árunum 1984-1985 var hún við nám í Bandaríkjunum í Indi- ana-Háskóla. Auk þessa hefur Esther sótt fjölda námskeiða, m.a. hjá Erik Werba og Glenda Maurice. Esther hefur haldið ijölmarga tón- leika jafnt hér á landi sem erlendis. Guðni Þ. Guðmundsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hann lauk tón- menntakennaraprófí. Síðan hélt hann til Kaupmannahafnar þar sem hann var við orgelnám við Konser- vatoríið og lauk þaðan A-prófí. Guðni Þ. Guðmundsson organisti við Bústaðakirkju hefur komið fram bæði sem kórstjóri og einleikari á flölda tónleika á íslandi jafnt sem erlendis. Esther Helga og Guðni eru bæði kennarar við Tónlistarskóla • Hafn- arijarðar. Söngleikurinn Líf og friður í Langholtskirkju SÖNGLEIKURINN Líf og friður eftir Per Harling og Lars Collmar verður sýndur í Langholtskirkju að kvöldi Æskulýðsdags Þjóðkirkj- unnar 4. mars. Það er Æskulýðssamband Kirkjunnar í Reykjavíkur- prófastsdæmi, ÆSKR, sem sýnir verkið. Leikurinn gerist meðal dýranna í Örkinni hans Nóa, eftir að mann- kynið hefur eyðilagt lífsskilyrðin á jörðinni, segir í frétt frá ÆSKR. „Umhverfismálin eru í brennidepli og ábyrgð okkar mannanna og ráðsmennska í sköpunarverki guðs. Leikurinn fjallar um von andspænis vonleysi - og lífstrú andspænis upp- gjöf og örvæntingu," segir í frétt- inni. Félagar úr æskulýðsfélögum safnaðanna í Reykjavík leika og syngja. Leikstjóri er Rúnar Reynis- son, Gyða Þ. Halldórsdóttir stjórnar kór og hljómsveit. Sýningin hefst klukkan 20.30. Rúnar Reynisson leiksljóri leðbeinir leikendum í söngleiknum Lífi og friði. DAGBÓK ARNAÐ HEILLA /» A ára aftnæli. í dag, 2. ÖU mars, er frú Guðlaug Guðjónsdóttir, Brautar- landi 2, hér í Rvík. Eigin- maður hennar er Einar G. Gunnarsson málarameistari. Þau eru að heiman í dag. P A ára afinæli. í dag, 2. ÖU mars, er sextugur Jón Hjörleifsson rafvirki, Ara- túni 19, Garðabæ. Kona hans er Lilja Jónsdóttir. Þau taka á móti gestum í Drang- ey, Síðumúla, 35 í dag, af- mælisdaginn, kl. 16-19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.