Morgunblaðið - 02.03.1990, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTÍR FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990
HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
MSa90ÉSSfí
■ ALFREÐ Gíslason var kjörinn
besti maður Islands í gær og hlaut
m.a. ísexi í verðlaun, samskonar
og Bjarki eftir fyrsta leikinn.
■ RICARDO Marin var útnefnd-
ur bestur hjá Spánverjum og kom
það mörgum á óvart því Rico mark-
vörður var maðurinn á bak við sig-
urinn.
■ GUÐMUNDUR Guðmunds-
son var tekinn í þvagprufu eftir
leikinn, en prufa úr einum leik-
manni hvors liðs er tekin í leikhléi
og eftir leik. Geir Sveinsson lenti
í úrtakinu í fyrsta leiknum.
■ FYRIR leikina eru leikmenn og
þjálfarar liðanna kynntir, eins og
tíðkast víða. Það hefur vakið at-
hygli að þegar þjálfari Islands hef-
ur verið nefndur þá hefur í bæði
skiptin verið sagt Guðjón Guð-
munndsson. Astæðan mun vera sú
að á leikskýrslu er nafn hans rifað
efst þeirra sem sitja á bekknum.
B BJARNI Felixson, íþróttaf-
réttamaður Sjónvarps, var sam-
bandslaus við Island í hálfleik. Það
kom þó ekki að sök því samband
var komið á aftur þegar seinni hálf-
leikur hófst. Ekki gekk eins vel hjá
Rás 2 á leik íslands og Kúbu. Þá
var sagt að símalína hefði ekki
fengist frá Frankfurt til Zlin og
komst Samúel Örn Erlingsson
ekki „í loftið" fyrr en tólf mín. voru
liðnar af leiknum.
■ KÚBUMENN léku ekki með
auglýsingu á búningum sínum í
leiknum gegn Júgóslövum í gær.
Þeir höfðu betur í baráttunni varð-
andi Opel auglýsinguna, en urðu
að lúta í lægra haldi gegn heims-
meisturunum.
■ VESELIN Vujovic sýndi sínar
réttu hliðar gegn Kúbu og var kjör-
inn bestu leikmaður Júgóslavíu.
Aldursforseti Kúbu, hinn síungi 34
ára Neninger var hins vegar valinn
bestur í tapliðinu.
■ FARARSTJÓRN HSÍ er að
reyna að fá opinberar upptökur af
öllum leikjum í keppninni. Helst
vilja þeir fá upptökurnar daginn
eftir leik og gangi það eftir þurfa
þeir ekki að senda upptökumenn til
Zilina, þar sem D-riðillinn fer fram,
á morgun.
■ TEKKNESKI sendifulltrúinn á
íslandi, George Zeman, ætlar að
fara í skoðunarferð með þá sem
vilja úr íslenska hópnum í dag og
verður m.a. skoðuð verksmiðja þar
sem framleiddar eru krystalvörur.
25% reglan
SVOKÖLLUÐ 25% regla gildir í
undanriðlum heimsmeistarakeppn-
innar eins og venjulega. Hún er
þannig að nái eitthvert lið ekki 25%
stiga, þ.e.a.s 2 stigum, teljast úrslit
hinna liðanna gegn því ekki þegar
í milliriðil kemur; liðin sem fara
áfram taka því ekki með sér stigin
úr leiknum gegn umræddu liði og
markamunurinn fylgir ekki heldur.
Leikimir þurrkast því út — og verð-
ur að reikna með því að svo fari
með leiki Kúbumanna í C-riðli.
Líklegt er að Spánvetjar nái að
sigra þá á morgun.
Því má bæta við að þegar í milli-
riðil kemur gildir 25% reglan ekki
lengur. Verði tvö lið jöfn í honum
gildir markahlutfail úr innbyrðis
viðureign liðanna. Hafi þau hins
vegar skilið jöfn gildir markahlut-
fall þeirra í heild. Sé enn jafnt kom-
ið á með þeim gilda fleiri skoruð
mörk. Sé staðan sú að bæði hafi
skorað jafn mörg mörk skai varpa
hlutkesti tii að fá úr því skorið,
hvort liðið telst ofar!
„Besti leikur-
inn í ríðlinum“
- sagði Bogdan Kowalczyk eftir tapið í gær
„ÞETTA var mjög góður leikur,
besti leikurinn í okkar riðli til
þessa," sagði Bogdan Kowalc-
zyk við Morgunblaðið eftir tap-
ið gegn Spánverjum í gærvöldi.
Bogdan sagði að áætlunin hefði
gengið út á að sigra Spánveija.
„Við áttum alltaf möguleika en
fórum illa að ráði okkar er við töp-
uðum niður tveggja marka forystu
í fyrri hálfleik. Sigurinn gat lent
hvorum megin sem var en við vorum
lánlausir og dómararnir voru hlið-
hollir Spánveijum. Þetta var 100%
vítakast í lokin.“ Bogdan sagði að
Spánveijarnir væru með mjög gott
lið og úrslitin í þessum leik eins og
öðrum í keppninni sýndu að allt
getur gerst. „En markvörður þeirra
vann leikinn — hann bjargaði hvað
eftir annað.“
Landsliðsþjálfarinn sagði að
vinnan héldi áfram en leikurinn
gegn Júgóslövum yrði erfiður. Hann
hefði sætt sig við eitt stig gegn
Spáni, en nú kæmi ekkert nema
sigur til greina á laugardag þó svo
hann teldi ekki lýkur á að Kúba
ynni Spán. „Keppnin heldur áfram,
þetta er rétt að byija.“
Hef mikla trú
á íslendingum
- gegnJúgóslövum, sagði Javier
Garcia þjálfari Spánverja
„VIÐ erum í mjög þægilegri aðstöðu með fjögur stig og síðasti
leikur okkar í riðlinum skiptir okkur kannski ekki neinu máli.
Ég á eftir að gera upp hug minn en það er sennilegt að ég
hvíli nokkra lykilmenn fyrir átökin í milliriðlinum,'1 sagði Javier
Garcia þjálfari Spánar við Morgunblaðið eftir leikinn.
Þ jálfarinn sagði að leikurinn í
gær hefði verið mjög góður,
mikil barátta og skemmtileg
keppni. „En heppnin var með okk-
ur. Það er alltaf gaman að leika
gegn íslandi og það er viss heið-
ur. Leikmennirnir eru bæði heið-
ursmenn og miklir íþróttamenn.
Og ég hef mikla trú á þeim gegn
Júgóslövum. íslenska liðið er í
betri líkamlegri æfingu, leikmenn-
irnir eru hraðari og þeir eru sam-
hæfðari."
Spánveijar hafa unnið tvo
fyrstu leikina með einu marki og
sagðist þjálfarinn vera mjög án-
ægður með þann árangur. „Við
erum afslappaðir en ætlum okkur
langt. Vörnin hjá okkur var ekki
góð í fyrri hálfleik gegn Júgó-
slavíu en stóð sig mun betur allan
leikinn gegn íslandi.“
„Ekki nógu gott
- sagði júgóslavneski landsliðsmaðurinn
Zlatko Portner eftir nauman sigur á Kúbu
„ÞETTA var ekki nógu gott,“
sagði júgóslavneski landsliðs-
maðurinn Zlatko Portner við
Morgunblaðið eftir nauman
ií
sigur Júgóslava gegn Kúbverj-
um, 28:27. Portner lék ekki
með en hann tognaði á ökkla
ítapleiknum við Spán ífyrra-
kvöld.
Bæði lið voru mjög taugaóstyrk
í byijun og leikmenn gerðu
ótrúlegustu mistök, einkum fyrstu
fimm mínúturnar. Leikurinn var
mjög jafn lengst af.
Júgóslavar náðu
tveggja marka for-
ystu, 4:2, eftir tíu
mínútur og aftur
undir lok fyrri hálfleiks, 16:14, en
annars var munurinn aldrei meiri
en eitt mark í hálfleiknum.
Heimsmeistararnir byijuðu betur
í seinni hálfleik og eftir sex mínút-
ur leit út fýrir að þeir væru að
stinga af — staðan 21:18. En þá
riðlaðist sóknarleikur þeirra og
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
fráZlin
Kúbveijar jöfnuðu á næstu sex
mínútum 22:22. Júgóslavar náðu
sér á strik á ný og voru ýmist einu
eða tveimur mörkum yfir til leiks-
loka.
Duranona minnkaði muninn úr
vítakasti, 28:27, er tæpar tvær
mínútur vorú til leiksloka en Júgó-
slavar héldu knettinum út leiktím-
ann.
Leikurinn var hraður og sóknir
stuttar. Markvarsla var nánast eng-
in hjá Júgóslövum en Rivero varði
ágætlega mark Kúbu í fyrri hálf-
leika. Vujovic var bestur hjá
Júgóslövum. Hornamaðurinn Sma-
ilaigic var mjög góður og Isakovic
átti góðan kafla í fyrri hálfleik en
naut sín ekki í hlutverki leikstjórn-
anda. Neninger, sem er 34 ára, var
kjörinn besti maður Kúbu en mað-
urinn sem allt byggist á er Duran-
ona. Hann virðist geta'skorað þegar
hann vill, gerði tólf mörk, en var
ekkert með í sókninni fyrsta stund-
arfjórðunginn.
Morgunblaðið/Július
Bogdan landsliðsþjálfari fómar höndum í leiknum í gær — sennilega í
eitt skipti af mörgum er Rico markvörður Spánveija varði úr dauðafæri.
Island - Spánn
18 : 19
íþróttahöllin í Zlin, heimsmeistarakeppnin í handknattleik, C-riðill, miðvikudaginn 1.
mars 1990.
Gangur leiksins: 0:2, 2:2, 2:3, 3:3, 4:4, 4:5, 6:6, 8:6, 9:7, 10:10, 10:11, 11:11, 11:12,
12:12, 13:13, 14:14, 15:16, 16:16, 16:17, 17:17, 17:19, 18:19.
ísland: Alfreð Gíslason 6/1, Bjarki Sigurðsson 3, Sigurður Gunnarsson 3, Þorgils Óttar
Mathiesen 2, Kristján Arason 1, Geir Sveinsson 1, Guðmundur Guðmundsson 1, Sigurð-
ur Sveinsson 1/1, Héðinn Gilsson, Valdimar Grímsson.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 7. Einar Þorvarðarson 5 (þar af tvö til mótheija).
Utan vallar: 12 mínútur.
Spánn:Serrano 5/1, Caralda 4, Marin 3, Franch 3, Hermita 2, Melo 1 og Garcia 1.
yarin skot: Rico 18/1 (þar af fimm til mótheija).
Áhorfendur: 1.100.
Dómarar: Hofmann og Prause frá V-Þýskalandi.
Morgunblaöið/Júlíus
Veselin Vujovic sýndi sínar réttu hliðar gegn Kúbu. Hér er hann kominn í
gegn um vömina. Til vinstri er Duranona, besti maður Kúbu.
A-RIÐILL
ALSÍR- UNGVERJALAND........16:22
FRAKKLAND - SVlÞJÓÐ........18:25
ÁMORGUN:
ALSÍR — FRAKKLAND
SVÍÞJÓÐ - UNGVERJALAND
Fj.leikja U J T Mörk Stig
SViPJÚÐ 2 UNGVERJAL. 2 ALSlR 2 FRAKKLAND 2 2 O 0 45:37 4 2 0 0 41:34 4 0 0 2 35:42 0 0 0 2 36:44 0
B-RIÐILL
SVISS- SUÐUR-KÓREA.........17:21
RÚMENÍA- TÉKKÓSLÓVAKÍA.....25:17
Á MORGUN:
SVISS — RÚMENÍA
TÉKKÓSLÓVAKlA - SUÐUR-KÓREA
Fj.leikja u J T Mörk Stig
RÚMENIA 2 2 0 0 51:41 4
S-KÓREA 2 1 0 1 45:43 2
SVISS 2 1 0 1 30: 33 2
TÉKKÓSL. 2 0 0 2 29: 38 0
C-RIÐILL
KÚBA- JÚGÓSLAVÍA...........27:28
SPÁNN - ÍSLAND.............19: 18
ÁMORGUN:
ÍSLAND —JÚGÓSLAVfA
KÚBA-SPÁNN
Fj.leikja U J T Mörk Stig
SPÁNN 2 ÍSLAND 2 JÚGÓSLAVÍA 2 KÚBA 2 2 0 0 37: 35 4 1 0 1 45:42 2 1 O 1 45:45 2 0 0 2 50: 55 0
D-RIÐILL
JAPAN - SOVÉTRÍKIN .........16:35
PÓLLAND- A-ÞÝSKALAND........17:25
ÁMORGUN:
SOVÉTRÍKIN - AUSTUR-ÞÝSKALAND
PÓLLAND - JAPAN
Fj.leikja U J T Mörk Stig
SOVÉTRÍKIN 2 A-ÞÝSKAL. 2 PÓLLAND 2 JAPAN 2 2 0 0 61:37 4 2 0 0 51:39 4 0 0 2 38: 51 0 0 0 2 38: 61 0