Morgunblaðið - 02.03.1990, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 02.03.1990, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ PÖSTUDAGUR 2. MARZ 1990 Stöð 2: Bjarni Hafþór verður frétta- og dagskrár- gerðarmaður á Norðurlandi BJARNI Hafþór Helgason hefur tekið við starfi frétta- og dág- skrárgerðarmanns Stöðvar 2 á Norðurlandi. Bjarni Hafþór hef- ur undanfarin ár verið sjónvarps- stjóri Eyfirska sjónvarpsfélags- ins og mun halda því áfram. Bjarni Hafþór er viðskiptafræð- ingur að mennt og útskrifaðist frá Háskóla ís- lands árið 1983. í október árið 1986 tók hann við starfi sjón- varpsstjóra hjá Eyfírska sjón- varpsfélaginu og varð einnig fram- kvæmdastjóri Samvers hf. ásamt Þórarni Ágústssyni. Jafnframt því sem hann tekur nú við starfí frétta- og dagskrárgerðarmanns Stöðvar 2 á Norðurlandi mun hann gegna starfi sjónvarpsstjóra Eyfírska sjón- varpsfélagsins, en Þórarinn Ágústs- son verður framkvæmdastjóri Sam- vers hf. Eyfírska sjónvarpsfélagið verður áfram með aðstöðu sína við Grund- argötu 1 á Akureyri og leigir af Samver tækni-, framleiðslu- og út- sendingarþjónustu, en fyrst um sinn verður skrifstofa Bjarna Hafþórs í Hrísalundi 14a á Akureyri. Um 300 með kvef TÆPLEGA 300 manns þjáðust af völdum kvefs og hálsbólgu í síðasta mánuði, samkvæmt skýrslu Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri um smitsjúkdóma. Magakveisa var skráð í 107 til- fellum, en aðrir sjúkdómar voru ekki skráðir í miklum mæli. Strepptókokkahálsbólga var skráð hjá 11 einstaklingum í síðasta mán- uði, 8 fengu inflúensu og 8 lungna- bóigu. Morgunblaðið/Rúnar Þór Fimm manna leiðangur frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð hélt frá Akureyri að Skaga í gær, en þar er ætlunin að taka kjarnasýni af vatnaseti á norðanverðum skaganum og er vonast til þess að úr kjarnanum verði hægt að lesa upplýsingar um fornt veður- og gróðurfar og sjávarstöðubreytingar. A myndinni eru Svante Bjork, á toppi bifreiðarinnar, Per Sandgren lengst til vinstri, Olafúr Ing- ólfsson leiðangursstjóri og Christian Hjort, en á myndina vantar Þorstein Sæmundsson. Leiðangur frá Háskólanum í Lundi: Taka borkjarna afvatna- seti í fyrsta sinn á Islandi Vonast til að upplýsingar fáist um forn- gróður- og veðurfar síðustu 10 þúsund ára FIMM manna leiðangur lirá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð hélt frá Akureyri og að Skaga í gær, en þar mun hópurinn dvelja við rannsóknir í tíu daga. Ætlunin er að taka bor- kjarna af vatnaseti á norðvest- anverðum skaganum og er það í fyrsta skipti sem það er gert á Islandi. Vonast er til að unnt verði að lesa úr kjarnanum upplýsingar um fornt veður- og gróðurfar og sjávarstöðubreyt- ingar. Halldór G. Pétursson jarðfræð- ingur hjá Náttúrufræðistofnun Norðurlands sagði að stofnunin hefði aðstoðað við undirbúning leiðangursins og væri þess vænst að mikilsverðar upplýsingar varð- andi jarðfræði og verðurfarsþróun á Norðurlandi fengjust að aflokn- um leiðangrinum. Hann sagði að ástæða þess að Skagi hefði orðið fyrir valinu væri sú að þar væru aðstæður hentugar, en jöklar gengu ekki yfír norðurhluta skag- ans í lok síðasta jökulskeiðs. Leiðangursstjóri er Dr. Ólafur Ingólfsson, sem starfar við Há- skólann í Lundi, en heimsskauta- svæði eru hans rannsóknarsvið. Auk hans taka þátt í leiðangrinum þrír Svíar og einn íslendingur. Leiðangurinn tekur tíu daga og hefur hópurinn aðsetur á Skaga- strönd. Ætlunin er að taka bor- kjarna af vatnaseti á norðvestan- verðum skaganum og sagði Hall- dór að vonast væri til þess að úr kjömunum mætti lesa upplýsing- ar um fornt veður- og gróðurfar og sjávarstöðubreytingar að minnsta kosti síðustu tíu þúsund ára og jafnvel allt til síðasta jökul- skejðs. Úrvinnsla gagna fer fram við Háskólann í Lundi í Svíþjóð og á íslandi, ef til þess fæst fjármagn. Álver í Eyjafirði góður kostur: Forsendur til að taka ákvörðun um stað- setningn nýs álvers ekki nægilega góðar enn - segir Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar „FORSENDUR til að taka ákvörðun um staðsetningu nýs álvers mjög fljótlega tel ég ekki nægilega góðar ennþá,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar, en hann hefur undanfarna mánuði unnið á vegum félagsins að fram- gangi þess að álver rísi í Eyjafirði. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra hefur látið hafa eftir sér í fjölmiðlum að hann vilji láta taka ákvörðun um staðsetningu nýs álvers sem fyrst. Sigurður telur aftur á móti að ekki sé tímabært að taka ákvörðun um staðsetningu þess á næstu vikum. „Ég geri mér fyllilega ljóst að iðnaðarráðherra er í vandasamri stöðu við að fínna bestu úrlausnina í þessu máli. Forsendur til að taka þessa ákvörðun eru hins vegar ekki nógu góðar ennþá,“ sagði Sigurður P. Sigmundsson. Hann sagði að enn lægi ekki fyrir samanburður Markaðsskrifstofu Landsvirkjunar og iðnaðarráðuneytis á stofnkostn- aði miðað við mismunandi staðsetn- ingu. Né heldur lægju fyrir niður- stöður NILU, norsku loftgæðarann- sóknarstofnunarinnar um mengun og samanburður Byggðastofnunar á áhrifum álvers á búsetu og vinnu- markað miðað við mismunandi stað- setningu. „Ég tel að það þurfí að bíða eftir þessum niðurstöðum. Einnig leyfí ég mér að draga í efa að Alumax, se’m gert er ráð fyrir að veiti Atl- antal-samstarfínu forystu, sé tilbúið að taka ákvörðun innan nokkurra vikna. Fulltrúar þeirra eru væntan- legir til landsins 11. mars næstkom- andi og hafa hug á að líta á aðstæð- ur í Eyjafírði 12. mars og þeir þurfa tíma til að átta sig vel á aðstæðum," sagði Sigurður. Varðandi stofnkostnað, sem rætt hefur verið um að sé nokkru hærri í Evjafirði, en í Straumsvík, sagði Sigurður að miðað við ákveðnar forsendur væri ekki hægt að neita að svo væri. Margir liðir væru hins vegar háðir óvissu og mati, enn lægi ekki fyrir hvort í Eyjafírði þyrfti að vera vothreinsun, en ekki í Straumsvík og þar væri um miklar fjárhæðir að ræða. „Mat útlending- anna kann að vera annað en okkar t.d. varðandi áhættu vegna hafíss, en ef við gefum okkur að útreikning- ar leiði í ljós einhvern mun þá á eftir að taka tillit til annarra þátta, s.s. líklegra ókosta vegna nágrennis við Isal, stöðugleika vinnuafls í Eyjafírði og viðhorfs fólks. Ég held að munurinn geti orðið lítill þegar búið er að taka tillit til allra þátta, en það er hlutverk Atlantal-hópsins að meta þetta endanlega." Sigurður sagði að vissulega hefði Straumsvík náð ákveðnu forskoti í skjóli samnings fyrrverandi iðnað- arráðherra við Atlantal-hópinn, eins og hann var skipaður, þar sem kveðið var á um að ekki mætti ræða við aðra aðila um staðsetningu fyrr en eftir 31. desember síðastlið- inn. Nýtt álver væri annað mál en stækkun ísal og menn yrðu að gefa sér tíma til að athuga aðra kosti en Straumsvík og með tilkomu Alumax hefði staðsetningin orðið opnari. „Ég er viss um að nýtt 200 þús- und tonna álver á suðvesturhorninu hefði stórkostlega byggðaröskun í för með sér og það verða ráðamenn að gera sér ljóst. Ef stjórnvöld fá einhveiju ráðið um staðsetningu ál- vers, ef það þá kemur, verða þau að beita áhrifum sínum í þá átt að þjóðarhagsmunir verði sem best tryggðir. Ég get ekki séð að það verði með öðrum hætti en að stuðla að uppbyggingu á landsbyggðinni. Það þarf að byggja upp mótvægi við höfuðborgarsvæðið þannig að fólk geti í framtíðinni valið um bú- setu í landinu. Það bendir margt til þess að Eyjafjþrður sé góður kostur fyrir álver. Ég treysti því að ráðamenn komist að þeirri niður- stöðu og komi þeim upplýsingum á framfæri við stóriðjufyrirtækin. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að iðnaðarráðherra og stjómvöld vinni þetta mál þannig að það verði þjóðarheildinni til hagsbóta," sagði Sigurður.....».................... Stofnfundur Nordklúbbs Stofiifúndur Nordklúbbsins, æskulýðsdeildar innan Norræna félagsins, verður haldinn laugar- daginn 3. mars nk. í fundarsal Norræna hússins kl. 16. Markmið klúbbsins er að stuðla að tengslum ungs fólks á Norðurlönd- um, til dæmis með ódýrum hópferð- um innan lands og utan, tungu- málanámskeiðum, þátttöku í sum- arstarfi Nordjobb og samnorrænum mótum sambærilegra klúbba á Norðurlöndum. ■ FERÐA FÉLA O- íslands og Ferðafélagið Útivist standa fyrir heilsúgöngum um aðalútivistarsvæði höfuðborgarinnar í tengslum við Heilsudaga í Kringlunni í dag, laugardaginn 3. mars, kl. 13. Hægt verður að_ velja um tvær stuttar göngur, Öskjuhlíðarhringinn og Fossvogsdalshringinn. Báðar eru þessar göngur um svæði sem eru að hluta til ennþá í meira en 500 metra fjarlægð frá miklum umferð- argötum. Á þessum gönguleiðum er mikið af merkilegum minjum sem bent verður á. Lagt verður af stað í göngurnar frá Kringlunni við Myllu-anddyrið gegnt Borgarleik- húsinu kl. 13 og komið til baka um kl. 15. Hægt er að stytta gönguna. Þetta verða göngur við allra hæfi. Ekkert þátttökugjald. ■ SAMTÖK fiskvinnslustöðva efna til ráðstefnu um aukningu vinnsluvirðis í sjávarútvegi að Hótel Sögu, A-sal, í dag, föstudaginn 2. mars kl. 12. Frummælendur: Dr. Alda Möller, matvælafræðingur, Dr. Sigurður Bogason, matvæla- fræðingur, Guðbrandur Sigurðs- son, matvælafræðingur, Helgi Geirharðsson, vélaverkfræðingur, Sigurjón Arason, efnaverkfræð- ingur, Jóhann Antonsson, viðskipt- afræðingur og Örn D. Jónsson, skipulagsfræðingur. Að erindunum loknum verða pallborðsumræður þar sem framsögumenn sitja fyrir svörum. Ráðstefnustjóri verður Dr. Ágúst Einarsson, varaformaður SF. Ráðstefnan er öllum opin, þát- tökugjald er kr. 1.500 og hádegis- verður innifalinn. ■ LAGNAFÉLAG íslands heldur tæknisýningu í Kristalssal Hótel Loftleiða á laugardag. í ráðstefnu- sal hótelsins verður haldinn fræðslu- fundur, sem hefst klukkan 13. Tæknisýningin verður opnuð klukk- an 10 á laugardagsmorgun af form- anni Lagnafélags Islands, Jóni Sigurjónssyni verkfræðingi, ásamt Hugrúnu Lindu Pétursdóttur, fegurðardrottningu íslands. Á sýn- ingunni kynna ýmsar stofnanir og fyrirtæki starfsemi sína. Sýningin verður opin til klukkan 18. Á fræðslufundinum verður fjallað um viðhald og rekstur loftræsti- og hita- kerfa. Fundurinn og sýningin er öllum opinn. ■ ANNAÐ ráð ITC á íslandi mun halda ráðsfundi í Gaflinum í Hafnarfirði laugardaginn 3. mars og sunnudaginn 4. mars og hefjast báðir fundirnir kl. 10.15. Yfirskrift fundarins á laugardag- inn verður Þjálfun og samstarf er lykill að árangri. Á dagskrá er árleg ræðukeppni milli deilda ráðsins, en eftir hádegi mun Kristbjörg Þórðardóttir, skólastjóri Sjúkralið- askóla íslands, halda fyrirlestur um slys á börnum á grunnskólaaldri. Yfírskrift fundarins á á sunnudag er Sterkur er sá sem stefnir hátt. Þá verður kosin ný stjóm ráðsins fyrir næsta starfsár, Guðrún Lilja Norðdahl veitir fræðslu um kapp- ræður, og Páll Eiríksson geðlæknir mun halda fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð. ■ J KVÖLD verður haldið uppá 12 ára afmæli skemmtistaðarins Hollywood og af því tilefni verður mikið um dýrðir. Ungfrú Holly- wood, sólarstúlka Úrvals, ljós- myndafyrirsæta Samúels ásamt stúlkunum sem kepptu til úrslita um titilinn fulltrúi ungu kyn- slóðarinnar verða sérstakir gestir kvöldsins. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.